Morgunblaðið - 20.01.1985, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
VORTÍSKAN 1985
! i
\EN<ó??af<eefX'/
0<na^° xaoS#
pS>aí"s /
án póstburðargjalds.
VORTÍSKAN í EVRÓPU Á 600SÍÐUM
FYRIR AÐEINS 98. - KR.
Játakk! Vinsamlega
sendiö mérnýja FREEMANS
pöntunarlistann í póstkröfu
Nafn:
Heimili:
' Sendist til FREEMANS
ofLondon c/oBALCOhf.
. Reykjavíkurvegi 66,
220 Hafnarfirði, slmi 53900.
Staöur:
Norski undradrengurinn Simen Agdestein:
„Ég lærði
mannganginn
þriggja ára“
„VIÐ erum himinlifandi meö árang-
ur Himens Agdestein á svæöamótinu
bér í Gausdal. Þetta er í fyrsta sinn,
sem Norðmaóur eygir miiguleika á
að komast í millisvæðamót Norð-
menn eru stoltir af Simen Agdestein
— hann er eitt mesta efni, sem fram
hefur komið í skákheiminum. Að-
eins 17 ára gamall getur hann státað
af árangri, sem fáir hafa náð. Að-
eins fimm skákmenn hafa 17 ára að
aldri náð betri árangri og styrkleika
í skáksögunni — fyrstan ber auðvit-
að að nefna Bobby Fischer, þá
Garry Kasparov, Mecking frá Braz-
ilíu, Nigel Short frá Bretlandi í
fjórða sæti og Boris Spassky í
fimmta sæti. Simen Agdestein kem-
ur á eftir þessum skákjöfrum og við
væntum mikils af honum," sagði
Arnold Eikrem, sem hefur fylgst
með þroska og framförum hins 17
ára gamla Simens Agdestein. Eikr-
em kemur hingað til lands í byrjun
febrúar með Agdestein í einvígið við
Margeir Pétursson.
Árangur Simens Agdestein viö
skákboröið hefur vakið mikla at-
hygli í Noregi. Hann er tvímæla-
laust mesta efni, sem Norðmenn
hafa eignast. Hann er þegar orð-
inn alþjóðlegur meistari, aðeins
17 ára gamall. Agdestein býr í
Osló, fæddur 15. maí 1967. Hugur
hans hneigðist fljótt aö taflborð-
inu. „Ég lærði mannganginn
þriggja ára gamall,“ sagði Agde-
stein í viðtali við sænska skák-
tímaritið Schacknytt. Mikill skák-
áhugi var á heimilinu — faðir
hans, Reidar Agdestein tefldi við
syni sína þrjá og bræðurnir tefldu
einnig mikið saman — einkum
Simen og Aspen, sem einnig er
mjög frambærilegur skákmaður,
þó hann standi í skugga bróður
síns.
Aðeins sjö ára gamall tók Sim-
en Agdestein þátt í sínu fyrsta
skákmóti. „Lilleputts-meister-
skap“ eins og þeir kalla þaö i Nor-
egi og hafnaði i fjórða sæti. En
næstu árin varð skákin aö vikja
fyrir öðrum áhugamálum — ekki
sist knattspyrnunni. „Skákin vék
úr huga mér og áhuginn blossaði
ekki upp fyrr en Anatoly Karpov
og Viktor Korschnoi háðu einvígi
sitt um heimsmeistaratitilinn i
Baguio á Filippseyjum 1978. Sfðan
þá hef ég teflt mikið — fyrst í
skóla, þá Norðurlandamótum og
alþjóðlegum unglingamótum,*
sagði Agdestein.
Augu manna í Noregi tóku að
beinast að þessum unga skák-
manni um 1980 og ljóst þótti að
þar fór mikið efni. Framfarirnar
urðu stórstígar. „Framfarirnar
komu sjálfum mér á óvart — oft á
tíðum fannst mér ég tefla langt
fyrir ofan eðlilega getu,“ segir
Ágdestein.
Einn þeirra manna, sem fylgd-
ust með Agdestein á þessum ár-
um, var Ólafur H. Ólafsson,
stjórnarmaður í Skáksambandi
íslands, og driffjöður í ungl-
ingastarfi í skák á tslandi. „Ég sá
Agdestein fyrst á Norðurlanda-
móti i unglingaskák i Eksjö í
janúar 1981. Hann telfdi þá í
flokki 13—14 ára og sigraði á stig-
um — hlaut 4 'k vinning af sex
mögulegum ásamt Halldóri Grét-
ari Einarssyni, frá Bolungarvik.
Agdestein vann á stigum, þrátt
fyrir að Halldór Grétar hafi unn-
ið skák sina gegn Agdestein,"
sagði Ólafur í samtali við Mbl.
„Næst sá ég Agdestein í Skien í
október sama ár. Þá var ég með
skáksveit Æfingaskólans á NM i
skólaskák. Simen tefldi á 2. borði
fyrir norska skólann, bróðir hans
Áspen var á 1. borði. Sveit þeirra
vann mótið, hlaut 12 Vi vinning en
Æfingaskólinn hlaut 12 vinninga.
Raunar vann Æfingaskólinn inn-
byrðisviðureign skólanna með
2'Æ—l'Æ. Simen vann sína skák,
en við unnum á 3. og 4. borði. Hins
vegar setti það strik í reikninginn
að við töpuðum óvænt 3—1 fyrir
B-sveit Noregs í síðustu umferð.
Ég sá Ágdestein í þriðja sinn í
febrúar 1982 í einstaklingskeppni
NM. Þá sigraði Simen f sínum ald-
ursflokki, hlaut 6 vinninga af sex
mögulegum. Þá var ljóst, að
Agdestein var mjög öflugur skák-
maður — langt á undan jafnöldr-
um sínum,“ sagði ólafur.
Agdestein fór að blanda sér f
baráttu beztu unglinga heims, en
leiðin var grýtt. Á heimsmeist-
aramóti unglinga í Mexfkó 1981
ur teflt mikið að undanförnu og
verið mikið frá skóla — allt of
mikið að dómi forráðamanna
menntaskólans í Osló, þar sem
hann les undir stúdentspróf. „Þú
nærð ekki í Agdestein nú. Hann
er í skólanum,* sagði Eikrem þeg-
ar blaðamaður Mbl. spjallaði við
hann í gær. „Þeir eru orðnir mjög
óþolinmóðir í skólanum. Hann
hefur ekki sést f skólanum f tvo
mánuði og því tími til kominn að
sýna sig. Þeir sögðu blátt nei þeg-
ar Agdestein bað um frí vegna
boðsins frá Skáksambandi lslands
um þátttöku í afmælismóti Skák-
sambandsins. Honum þykir sárt
að missa af mótinu og mikill heið-
ur að vera boðið á jafn sterkt
mót,“ sagði Eikrem.
Já, Simen Agdestein er miklum
hæfileikum búinn og áhugamálin
eru mörg. „Simen er sérstakur
unglingur. Hann hefur svo mörg
járn í eldinum að hann veit vart
hvað velja skal. Skákin færir
hann í sviðsljósið og honum er lft-
ið um það gefið,“ sagði Reidar
Agdestein, faðir Simens.
Simen Agdestein er ekki bara
liðtækur við skákborðið — hann
er einnig snjall knattspyrnumað-
ur, meðal hinna efnilegri í Noregi.
Hann leikur knattspyrnu f ungl-
ingaliði Lyn frá Osló. Sfðastliðiö
sumar lék Simen Agdestein sex
unglingalandsleiki fyrir Noreg og
stóð sig með miklum ágætum. Og
áhugi hans á knattspyrnu er eld-
heitur. „Strax eftir að dregið var
um töfluröð í Gausdal fó!' Simen
um 60 kílómetra vegalengd til
þess að keppa f fótbolta,“ sagði
Eikrem og greinilegt að honum
var ekki alltof mikið um sam-
keppnina gefið.
Því hinn ungi Simen Agdestein
hefur ekki ennþá gert það upp við
sig, hvort hann leggur skákina
fyrir sig. „Það gæti verið gaman
að reyna fyrir sér í heimi atvinnu-
mennskunnar f eitt ár. Sjá
hvernig það kæmi út — hvort ég
hef þolinmæði til þess að sökkva
mér niður f fræðin. Hingað til
hefur mig skort þolinmæði,* sagði
þessi ungi norski hæfileikamaður,
mótherji Margeirs Péturssonar f
einvígi um rétt til þátttöku í
millisvæðamóti í skák. Ef Agde-
stein ber hærri hlut verður hann
fyrsti Norðmaðurinn til að öðlast
rétt til þáttöku í millisvæðamóti.
Margeir Pétursson verður hins
vegar annar íslenski skákmaður-
inn, sem þann rétt öðlast ef hann
sigrar. En það yrði eftir 24 ára
hlé. Aðeins Friðrik Ólafsson hefur
gert það. Síðast i Tékkóslóvakfu
1961. Raunar hefur Friðrik gert
gott betur, hann komst áfram á
millisvæðamótinu í Portoroz 1958.
Komst þá i kandídatakeppnina.
Tekst þessum tveimur ungu nor-
rænu skákmönnum að ná slíkum
tindum — komast f röð þeirra
bestu í heiminum f kjölfar þeirra
Bents Larsen, Friðriks Ólafssonar
og Ulfs Andersson?
HH
Simen Agdestein — skáksnillingur
spyrnu.
hafnaði hann f 25. sæti. En á EM
unglinga f Groningen varö Agde-
stein í öðru sæti með 10 vinninga
af 13 á eftir Salov frá Sovétríkj-
unum. Hann hefur staðið sig mjög
vel á mörgum sterkum skákmót-
um og tekið stórstígum framför-
um. Én hverju þakkar þessi unj
skákmaður árangur sinn?
þakka árangur minn fyrst og
fremst tveimur mönnum,* sagði
Agdestein í samtali við Schack-
nytt og hélt áfram: „í fyrsta lagi
bróður mínum Espen. Við teflum
daglega skák, — það líður aldrei
sá dagur að við teflum ekki
hraðskák — og í öðru lagi hefur
Arnold Eikrem verið mér mikil
hjálparhella — ómetanlegur.
Hann hefur skipulagt fjölda móta
hér í Noregi og fengiö erlenda
þjálfara til aö æfa okkur. Þetta
hefur Eikrem gert upp á eigin
spýtur og sýnt mikla fórnfýsi —
verið norsku skáklffi ómetanleg-
ur*
I samtalinu ræðir Agdestein
um veikleika sína og styrkleika.
Hann kveðst ekki nógu vel að sér í
byrjunum. „Ég hef ekki haft þol-
inmæði til þess að sökkva mér
nægilega niður i skákbækur —
stúdera fræðin og teorfur. Ég hef
fylgst með Karpov, Kasparov og
Ánderson. Fylgist með þvi sem er
efst á baugi hverju sinni, læri sitt
lftið af hverju hér og þar. En í
raun og veru hef ég lítið stúderað
gömlu meistarana, fyrir utan
bækur dr. Euwes um miðtaflið.
Vissulega væri það bæði lær-
dómsrikt og áhugavert að sökkva
sér í heim skákfræðanna, en enn
Verdens Gang/Slmamynd
og unglingalandsliðsmaður í knatt-
hef ég ekki haft þolinmæðina. Á
skákmóti i Gjövik hvfldi ég mig
milli skáka með lestri skáldsagna
— og gekk vel á mótinu,“ segir
Agdestein og bætir við: „Þetta
hefur orðið til þess að oft hef ég
fengið slæmar stöður — að þvf er
virðist óteflandi — en mér hefur
iðulega tekist að finna leiðir út úr
vandræðunum. Ég hef verið kall-
aður „grfsari", jafnvel svindlari,
þegar ég hef teflt illa, en engu að
síður náð að sigra eða halda mín-
um hlut,“ segir Agdestein.
„Þetta er einmitt styrkleiki
Agdesteins, hann lætur aldrei
hugfallast og finnur iðulega leiðir
út úr að því er virðist vonlausum
stöðum,“ segir Margeir Pétursson
um þennan verðandi andstæðing
sinn. „Ég vanmat Agdestein hér f
Gausdal. Jóhann yfirspilaði Agde-
stein, fékk yfirburðastöðu, hafði
náð kverkataki, en Agdestein náði
að losa um sig og sigra, en að vísu
lék Jóhann illa af sér. Vanmat
mitt á Agdestein var tilkomið
vegna þess að hann hafði teflt illa,
en verið ótrúlega heppinn eins og
til að mynda gegn Jóhanni. I skák
minni gegn Agdestein fékk ég
góða stöðu, en tapaði engu að sfð-
ur. Tók ranga ákvörðun þegar ég
fórnaði tveimur léttum mönnum
fyrir hrók og peð. Hefði átt að
fórna drottningu fyrir biskup og
hrók. En Agdestein má eiga það
að hann tefldi framhaldið af mik-
illi nákvæmni og hafði fram sig-
ur,“ sagði Margeir.
Simen Agdestein er núverandi
Noregsmeistari í skák. Hann hef-