Morgunblaðið - 20.01.1985, Blaðsíða 30
Hvað segja þau um gagnrýni Zukofskys?
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
Skipulag og stjórnun Sin-
fóníuhljómsveitarinnar hefur
talsvert verið til umræðu að
undaníornu. í Mbl. þann 5.
janúar sl. birtist grein eftir
Paul Zukofsky fiðluleikara
og stjórnanda undir fyrir-
sögninni „Skipulag og list-
ræn sköpun“. Þar segir hann
það m.a. skoðun sína að Sin-
fóníuhljómsveitín sé um
þessar mundir sálfræðilega í
einhverri mestu iægð sem
hann hafí nokkurn tíma orð-
ið var við hjá henni eða
nokkurri annarri hljómsveit
Ástæðurnar telur hann að-
allega vera tvær. í fyrsta lagi
„ótrúlega úttútnað, óvirkt og skaðlegt fyrirkomulag á öllu er
lýtur að skipulagi hljómsveitarinnar,“ og í öðru lagi „kemur
þetta í veg fyrir að unnt sé að marka henni skýr músíkölsk
markmið til að keppa að og móta starfshætti hennar við hæfí
atvinnuhljóðfæraleikara.'*
Síðar segir Zukofsky: „Ég vil þó strax láta í Ijós þá óbifan-
legu trú mína, að Sinfóniuhljómsveit íslands gæti verið
hljómsveit í mjög háum gæðaflokki, því hún hefur á að skipa
hæfíleikamönnum og nægilegri getu til þess að standa músík-
alskt jafnfætis flestum útvarpssinfóníuhljómsveitum í Evr-
ópu. Samt er ég hræddur um, að Sinfóníuhljómsveitin nái
aldrei þessu marki, af því að það krefst listræns innblásturs,
hugrekkis og aga, en þetta eru allt atriði, sem við eðlilegar
kringumstæður er nærri því ógerlegt að ná fram en gjörsam-
lega ómögulegt með það nefndafargan, sem Sinfóníuhljóm-
sveit íslands dröslast með.“
Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi í starfsháttum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar skipta þrjár nefndir með sér verkum,
verkefnavalsnefnd, starfsmannastjórn og stjórnarnefnd, sam-
tals 19 manns. Um þetta skipulag segir Zukofsky:
„Nefndarstjórnun felur í sér, að eingöngu er sinnt þeim
allra nauðsynlegustu þáttum stjórnunar, sem unnt reynist að
fínna sameiginlegan nefnara fyrir - það er ekki gengið lengra
en sá vill sem skemmst fer og stöðugt verður að slá af
kröfunum og setja það takmark, sem keppt skal að, lægra,
drepa því á dreif eða jafnvel fórna því með öllu til þess að
tryggja nægilegan meirihluta innan hinna ráðandi nefnda svo
að einhver mál komist í gegnum allar þrjár nefndirnar. Þessir
starfshættir hafa það í för með sér, að skýr markmið eru ekki
sett hljómsveitinni, sökum þess að nægilega margir innan
nefndanna geta ekki sætt sig við slík markmið, og lokanið-
urstaðan í málefnum Sinfóníuhljómsveitar íslands verður því
sú, að 19 manns standa í hring og benda á þann, sem næstur
stendur.“
Zukofsky leggur til að breytingar verði gerðar á fyrirkomu-
lagi varðandi stjórnun hljómsveitarinnar. „Stjórnarnefnd
hljómsveitarinnar ætti þegar í stað að setja hljómsveitinni
jafnt almenn sem og listræn markmið er stefnt skuli að ... “
Hann er á þeirri skoðun að engin þörf sé á sérstakri
verkefnavalsnefnd, og starfsmannastjórn hljómsveitarinnar
ætti eingöngu að starfa sem kvörtunarnefnd „fjöldi þeirra
funda, sem hún heldur og lengd þeirra er bein vísbending um
sáiarástand það, sem ríkjandi er með hljómsveitinni — það
gefur því auga leið, að því færri sem fundir starfsmanna-
stjórnarinnar eru, þeim mun heilbrigðari er stofnunin.“
Mbl. kom að máli við nokkra tónlistarmenn og embættis-
menn sem áhrif hafa á stjórn og skipulag hljómsveitarinnar
og spurði þá hver væri afstaða þeirra við gagnrýni Zukofskys
og hvað þeir vildu segja um breytingartillögur hans.
Jón
| Stefánsson
formaður verkefna-
valsnefndar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar
Það sem mér finnst fyrst og
fremst jákvætt við grein Zukofsk-
ys er áhugi hans á málefnum SÍ og
það að vekja menn til umræðu um
málefni hennar, því umræða er
ávallt til góðs, svo framarlega sem
hún fer fram með því hugarfari að
bæta það sem miður fer.
Margt af því sem hann segir er
líka mjög athyglisvert, en þó
finnst mér greinin full „svart/-
hvft“, þ.e.a.s. ástand það sem hann
lýsir á þessum málum málað allt
of svart og iausnir vandamálanna
einum of „patent".
Þá kemur það vel fram í grein-
inni að hann þekkir ekki nægilega
vel til mála, en sennilegt þykir
mér að tilgangur hans hafi fyrst
og fremst verið að hefja umræðu
og þá er oft nauðsynlegt að mála
sterkt.
Á greininni er hægt að skilja
það að allir sem stjórna málefnum
hennar séu úr röðum hljómsveit-
armanna sjálfra. sem er mikill
misskilningur. I fimm manna
stjórn er aðeins einn fulltrúi
hljómsveitar og í sjö manna verk-
efnavalsnefnd er auk konsert-
meistara, sem situr í nefndinni
samkvæmt lögum, einn fulltrúi
frá hljómsveitinni, en þar fyrir
utan báðir fastráðnir stjórnendur
hennar. Stjórn starfsmannafélags
hefur ekkert með stjórn hljóm-
sveitarinnar að gera, og sömuleið-
is hefur framkvæmdastjóri ekkert
með stjórnun að gera þótt hann
sitji fundi stjórnar og verkefna-
valsnefndar og hafi þar málfrelsi
og tillögurétt. Úr greininni má
lesa það að verkefnavalsnefnd sé
sett saman af fólki sem eigi að
gæta hagsmuna einhverra „stríð-
andi fylkinga" tónlistarmanna.
Þetta er nokkuð sem ég kannast
ekki við. Samsetning nefndarinn-
ar þjónar þeim tilgangi að sam-
eina sem víðtækasta tónlistar-
þekkingu. Auk þeirra sem ég hefi
þegar talið upp eiga þar sæti full-
trúi frá tónskáldafélaginu, sem
hefur það hlutverk að kynna fyrir
nefndinni þau tónverk íslensk,
sem til greina koma til flutnings,
enda er það eitt af hlutverkum
hennar samkvæmt lögum að flytja
og kynna íslenska tónlist. Þá á
tónlistarstjóri útvarps sæti í
nefndinni, en hans hlutverk er að
velja þá tónlist sem tekin er upp
fyrir útvarpið, en á hverju ári er
nokkrum vikum varið til upptöku
á efni sem útvarpið vill eignast til
afnota. Einn nefndarmanna er
fulltrúi áheyrenda og síðan for-
maður sem skipaður er af mennta-
málaráðherra og á að vera úr röð-
um tónlistarmanna. í þau tvö og
hálft ár sem nefndin hefur starfað
samkvæmt lögum, hefur aldrei
þurft að beita atkvæðagreiðslu,
sökum þess að nefndin hefur verið
einhuga í öllum málum. Það er svo
aftur annað mál, að til eru aðrar
leiðir til að velja verkefni, sem
vafalaust geta gefið góða raun, en
ég er þeirrar skoðunar að það út af
fyrir sig sé engin trygging fyrir
betri árangri.
Verkefnaval er þess eðlis, að það
hlýtur alltaf að vera umdeilt. Það
kemur til af þeirri gleðilegu stað-
reynd, að tónlistarsmekkur fólks
er eins misjafn og mennirnir eru
margir. Ég skal fúslega játa það
að sitthvað af því sem matreitt
hefur verið af núverandi verkefna-
valsnefnd hefur farið fyrir brjóst-
ið á nefndinni sjálfri þegar að
flutningnum kom og það finnst
mér mjög jákvætt, því það sýnir
að nefndin er gagnrýnin á starf
sitt þótt hún þurfi að vísu að
borga fyrir það að fylgjast með
starfi sínu utan formaðurinn sem
fær fría miða.
f greininni kemur það fram að
verkefnaval sé stefnulaust. Þetta
er auðvitað mjög einfalt að full-
yrða, en þegar kemur að því að
skilgreina einhverja stefnu i verk-
efnavali er dæmið ekki jafn ein-
falt. Við athugun á vetrarefn-
isskrá er það hlutur sem ekki ligg-
ur í augum uppi. Ef á einu starfs-
ári væru fluttir allir píanókon-
sertar Mozarts væri það stefna
sem lægi í augum uppi, en ekki get
ég skrifað undir að það væri betri
efnisskrá en sú sem flutt hefur
verið. Zukofsky nefnir nokkur at-
riði til úrbóta, sem við nánari at-
hugun, kemur í ljós að þau atriði
sem hann nefnir hafa verið á
dagskrá hjá verkefnavalsnefnd
undanfarin tvö ár. Ákveðinn fjöldi
íslenskra tónverka á ári. (Það er
stefna þótt ekki vilji allir áheyr-
endur hlusta á íslenska tónlist.)
Hann nefnir að huga þurfi að því
að flytja verk sem ekki hafa verið
flutt áður (erlend). Sl. tvö ár hafa
á áskriftartónleikum verið „frum-
flutt" hér á landi u.þ.b. 10 verk
erlend. Zukofsky nefnir að hafa
beri í huga þjálfunargildi verka
fyrir hljómsveitina. Jú, — einnig
þannig verk er að finna á efn-
isskrá siðustu tveggja ára og er
skemmst að minnast glæsiflutn-
ings á Vorblóti Stravinskys nú
fyrir skömmu með 90 flytjendum.
Ein af leiðum til úrbóta er að mati
Zukofskys að skipta hljómsveit-
inni niður í smærri einingar. Á
kammertónleikum hefur þetta
einmitt verið gert. Strengjasveitin
vinnur að tónleikum en blásarar
vinna á meðan að upptöku eða
öfugt. Hljómsveitinni er skipt
niður í fjórar sveitir í sjúkrahús-
heimsóknum og nú í vor verður
haldið námskeið fyrir slagverks-
menn sem lýkur með tónleikum
þar sem leikið verður verk þar
sem sú deild er í brennidepli.
Verkefnavalsnefnd hefur ekki séð
ástæðu til að birta sérstaklega
stefnu þá sem hún vinnur eftir,
enda verður efnisskráin hvorki
betri né verri vegna þess.
Þá eru það lögin. Sjálfsagt má
margt að þeim finna, en aftur á
móti er ég þeirrar skoðunar að
ekki sé hægt að leysa neinn vanda
einungis með lögum, því engin lög
eru svo fullkomin að ekki sé hægt
að klúðra þeim í framkvæmd. Það
væri auðvitað hægt að setja það i
lög að allir í hljómsveitinni ættu
alltaf að spila eins vel og þeir geta.
Hætt er þó við að það leysti ekki
öll vandamál. Jafnvel bestu
hljómsveitir heimsins eiga sína
góðu og vondu daga. Svo eru menn
síður en svo sammála um hvað er
gott og vont. Það er ekkert eins-
dæmi að gagnrýnendur sem um
tónleika SI fjalla séu svo gjör-
samlega á öndverðum meiði að
einn hefji tónleika upp til skýj-
anna þegar annar sér ekki ljósan
punkt í sömu tónleikum!
Þá er ég loksins kominn að því
sem ég tel höfuðvandann, en það
er einmitt framkvæmd þessara
laga. Verkaskipting milli þeirra
sem eiga að sjá um rekstur
hljómsveitarinnar er alltof flókin,
óljós og þung í vöfum. Samkvæmt
lögunum er verkefnavalsnefnd
ráðgefandi en stjórnin hefur síð-
asta orðið. Þetta er atriði sem
hægt er að túlka á ótal vegu. Verk-
efnavalsnefnd sér ekki aðeins um
verkefni hverra tónleika, heldur
þarf hún einnig að finna einleik-
ara og stjórnendur. Ef lögunum er
framfylgt út í æsar er gangur
mála á þann veg að verkefnavals-
nefnd stingur upp á því að frú X
verði fengin sem stjórnandi á
ákveðna tónleika. Ef gert er ráð
fyrir hámarksafgreiðsluhraða fer
tillagan fyrir stjórn eftir viku,
sem annaðhvort lýsir blessun
sinni yfir viðkomandi eða ekki. Ef
frú X hlýtur náð fyrir augum
stjórnarinnar er framkvæmd-
astjóra falið að kanna hvort við-
komandi sé laus þennan dag. í níu
tilfeilum af tíu er viðkomandi ekki
laus, en það kemur fyrir verkefna-
valsnefnd í fyrsta lagi hálfum
mánuði eftir að óskin var borin
fram. Eins er þotvíst að stjórnin
hafi á næsta fundi orðið að taka
ákvörðun um það hvort ráðast