Morgunblaðið - 20.01.1985, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
Kúbumenn láta
í minni pokann
Almar Grímsson kjörinn fulltr. stjómar WHO
ZMrick, 18. jaaáar. Frá önnu Bjaraadóttur, fréttaritara Mbl.
ALMAR GRÍMSSON, lyfjafrædingur og fulltrúi Norðurlanda hjá Al-
þjóðaheilbrigðÍBStofuninni, WHO, var kjörinn til að vera einn af fjórum
fulltrúum stjórnar stofnunarinnar i 38. Alþjóðaheilbrigðisþinginu í Genf
í maí gerðist þetta i fundi framkvæmdastjórnar alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar sem nú stendur yfir. Formaður stjórnarinnar mælti með Alm-
arí og minnti um leið i að taka ætti tillit til „persónulegrar hæfni og fyrri
setn i þinginu" við val fulltrúa stjórnarinnar. Almar hefur sótt alþjóða-
heilbrigðisþingið fyrir íslands hönd siðan 1983.
Almar greindi
nýlega frá því í
viðtali við Morg-
unblaðið að
Kúba hefði boð-
ist til að halda
39. Alþjóða-
heilbrigðisþingið
í Havana árið
1986. Þingið hef-
ur hingað til ávallt verið haldið í
Genf og olli þetta boð nokkrum
óróa innan stofnunarinnar. Mál-
ið var á dagskrá framkvæmda-
stjórnarinnar nú. Heilbrigðis-
ráðherra Kúbu ávarpaði stjórn-
ina 10. janúar og tilkynnti að í
framhaldi af heimsókn Halfdan
Mahlers, aðalframkvæmdastjóra
stofnunarinnar, til Havana fyrir
nokkru og ítarlegum viðræðum
hans við Fidel Castro, forseta
Kúbu, hafi rikisstjórn Kúbu
ákveðið að fresta um óákveðinn
tima boði um að halda þingið
þar.
Þessi niðurstaða er talin mik-
ill persónulegur sigur fyrir
Mahler. „Hann er mjög virtur
maður,“ sagði Almar i samtali.
„Það vogar sér enginn að setja
stofnunina i hættu á meðan
hann er framkvæmdastjóri
hennar. Hætta var á að samstað-
an milli aðildarrikjanna rofandi,
en stofnunin hefur þrátt fyrir
ýmis pólitísk vandamál, sem
tengjast heilbrigðismálum, haft
góðan starfsfrið.”
Dr. Leo A. Kaprio, fram-
kvæmdastjóri Evrópuskrifstofu
WHO síðastliðin 18 ár, lætur af
embætti 1. febrúar nk. Hann er
Finni og vel kunnugur íslenskum
heilbrigðismálum og heilbrigð-
isstarfsmönnum. Hann hefur
tvisvar komið til Islands en í sið-
ari heimsókninni árið 1983 var
hann sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu. Norð-
maðurinn dr. Jo E. Aswall hefur
verið ráðinn í stað Kaprios.
Aswall hefur verið nánasti sam-
starfsmaður Kaprios undanfarin
6 ár og hefur starfað fyrir Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunina bæði
í Evrópu og í þróunarlöndunum
um árabil.
Lucky lætur illa að stjórn
Forsetahjónin bandarísku halda i „Lucky“ i milli sfn, en Hvítahússhundur-
inn hefur vakió talsveróa athygli í seinni tíó. Þessi þríggja minaða gamli en
þó stæóilegi hvolpur vill nefnilega helst gera þarfir sfnar þar sem hann
stendur hverju sinni. Hefúr gengið brösulega aó veqja hann i ikveóinn staó,
en irangur samt orðið nokkur. Reagan vill ekki fordæma hvutta um of og
segir: „Þetta er ekki króniskt vandamil, þaó er bara ekki hægt aó treysta
Lucky fyllilega.“
Endurmenntunar-
námskeið á vegum HÍ
HÁSKÓU Islands hefur nú í sam-
vinnu vió Bandalag hiskólamanna
og fleiri aóila staóió fyrir endur-
menntunarnimskeiðum fyrír starf-
andi hiskólamenn síóan 1983.
Rúmlega 30 námskeið hafa verið
haldin og hafa þátttakendur verið
700.
Námskeið vormisseris eru að
hefjast i næstu viku og eru það
tölvunámskeið ætluð arkitektum,
verkfræðingum, tæknifræðingum
og endurskoðendum, auk nám-
skeiðs um umhverfisrétt.
Áætlað er að halda um tuttugu
námskeið þessa önnina. Umsjón-
armaður starfsemi þessarar er
Margrét S. Björnsdóttir.
Magnús Ólafsson
með skemmti-
dagskrá í vetur
NÚ FARA í hönd þorrablót
og árshátíðir landsmanna og
er þá oft leitað fanga hjá
skemmtikröftum og leikur-
um landsins með skemmti-
efni á þessum mannamótum.
Magnús ólafsson skemmti-
kraftur og leikari hefur að
þessu sinni sett saman
skemmtidagskrá fyrir alla
aldurshópa. Magnús hefur
áður verið í samvinnu með
öðrum, en að þessu sinni er
hann einn á báti og bregður
sér í hinar ýmsu persónur.
Skemmtidagskrá Magnúsar
er með söng, eftirhermum og
gamanmálum.
GREIÐENDUR
Vík í Mýrdal:
Tónskólanum gefið orgel
Vlk I Mýrdal, 18. judar. °
FYRIR tæpum fjónim árum var stofnaóur tónskóli í Vík í Mýrdal og befur
starfsemi hans farió heldur vaxandi. Skólastjóri er Guóríóur Valva Gísladótt-
ir og aó auki eru tveir kennarar í
Björnsdóttir og Hróbjartur Vigfússon.
í skólanum er meðal annars
kennt á píanó og orgel, ýmiss kon-
ar blásturshljóðfæri, gítar og auk
þess trommur, og tónfræði er
kennd. Nokkuð hefur vöntun á
stærri hljóðfærum háð skólastarf-
inu. Var það því kærkomin gjöf, er
erfingjar Hjartar Þorvarðarsonar,
verzlunarmanns í Vík, færðu skól-
anum orgel er Hjörtur hafði átt
hlutastarfi við skólann, þau Kristín
Nemendur í vetur eru 35.
um árabil, hið vandaðasta hljóð-
færi. Var það hlutaðeigendum til
sóma, þar sem Hjörtur hafði átt
mikinn þátt í söng og hljóðfæra-
leik hér í plássinu. Tónskólinn er
til húsa á Mýrarbraut 13. Stjórn
hans skipa Hrönn Brandsdóttir,
formaður, Anna Björnsdóttir og
Erna Ólafsdóttir.
Á bakhlið launamiðans eru prentaðar
leiðbeiningar um útfyllingu einstakra
reita launamiðans. Þar kemur m.a.
fram að í reit 02 á launamiða skuli telja
fram allar tegundir launa eða þóknana
sem launþegi fær, ásamt starfstengdum
greiðslum svo sem:
1. verkfærapeninga eða verkfæra-
gjald,
2. fatapeninga,
3. flutningspeninga og greiðslu far-
gjalda milli heimilis og vinnu-
staðar.
Greidda fæðispeninga skal telja fram í
reit 29 ásamt upplýsingum um vinnu-
dagafjölda viðkomandi launþega.
Frestur til að skila launamiðum rennur
út þann 21. janúar. Það eru tilmæli
að þér ritið allar upplýsingar rétt
og greinilega á miðana og vandið
frágang þeirra.
RÍKISSKATTSTJÓRI
Sigþór