Morgunblaðið - 20.01.1985, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
55
VIÐTAL: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR MYNDIR: BJÖRG SVEINSDÓTTIR
hljóma í brjóstholinu, en háir tón-
ar í höfðinu. Þegar farið er milli
þessara tveggja svokölluðu reg-
istra kemur eins og brestur í rödd-
ina. Eitt af því sem ég hef verið að
glíma við í vetur er að syngja á
milli registra án þess það heyrist
neinn áferðarmunur.
Röddin stefnir í tiltölulega lýr-
íska barítónrödd, sem hæfir ít-
alska óperufaginu. Hún verður
varla mjög dramatísk, tæplega
fyrir Wagner, nær tenór en bassa.
Hugum að söngbókmenntunum,
þ.e. óratóríum, ljóðasöng, óperu-
söng. Hvað viltu helst syngja?
KS: Ég hef gaman af þessu öllu,
vinn mín verk sem best til að
njóta þeirra sjálfur, því ég hef
enga ánægju af að vinna með hálf-
um huga. En ef ég mætti velja
sjálfur yrði ljóðasöngur fyrir val-
í minn smekk, gott ljóð og sem
fellur vel að röddinni. Persónu-
legur árangur verður alltaf meiri,
held ég, þegar svona er unnið en
þegar sett er fyrir. Ljóðasöngur-
inn gefur mér mesta ánægju, ég
túlka sjálfan mig i gegnum ljóðin.
Ég byrja á að athuga músíkina,
hvort hún vekur áhuga minn. Síð-
an lít ég á textann, hann skiptir
mig mjög miklu máli. Ég get ekki
sungið texta, sem mér finnst inni-
haldslaus. Þess vegna gæti ég ekki
sungið dægurlög. Ef hvorki músík
né texti hrífur mig við fyrstu sýn,
þá legg ég það til hliðar. Það er
kannski rangt en ég hugsa sem svo
að ef ég hrífst ekki, þá hef ég held-
ur enga tryggingu fyrir því að það
virki á tónleikum, jafnvel þó aðrir
hafi gert ljóðið ódauðlegt. Síðan
athuga ég hvort ég get sungið
þetta. Það er fjölmargt sem mér
hefur fundist stórkostlegt en hef
ekki getað sungið, passar röddinni
ekki. Það er andstyggilegt. Þá er
ég eins og refurinn sem sá berin,
þau eru súr ... En ég er viss um
að ég á eftir að líta aftur á margt
af því sem ég hef orðið að leggja
frá mér hingað til, á eftir að
endurskoða mikið.
Flestir sem lesa ljóð kannast við
að það getur verið eitthvað
óáþreifanlegt í ljóði sem vekur at-
hyglina, eitthvað sem heillar og
smám saman verður myndin skýr-
ari eftir því sem oftar er lesið. Þá
skýrist músíkin einnig oft fyrir
mér. Það er óralangur vegur frá
því að nótnablaðið er fyrst tekið í
höndina og þar til söngnum er
sprautað yfir áheyrendur.
Geturðu útskýrt nánar hvað þú átt
við með því að þér finnst röddin
ekki hæfa Ijóðum, sem þér Ifst ann-
ars vel á?
KS: Sum ljóð voru og eru sjálf-
sagt enn, tæknilega ómöguleg
fyrir mig. Það eru t.d. vissir hlutir
hjá Mahler sem ég hef reynt að
syngja en ræð ekki við. Ég held að
röddin sé, eða var ekki, nógu létt
þegar ég reyndi. Það voru gífur-
lega langar hendingar sem þýddi
að ég þurfti mikið loft til að koma
þessu frá mér og vegna þess að
röddin var of þung þegar ég próf-
aði t.d. þetta sérstaka Ijóð, þá
þurfti ég meira loft til að komast í
gegnum það heldur en léttari
rödd, t.d. tenór eða kóloratúrsópr-
an.
Það afsakar svo ekki að henda
því í burtu, en við erum alltaf að
keppa við tímann í þessu klond-
æk-þjóðfélagi hér, ég eins og aðrir.
Ég er ekki að vanþakka að ég hef
haft blessunarlega mikið að gera,
en kannski of mikið á stundum,
svo söngurinn hefur nánast orðið
rútína. Það er unnið og unnið,
sungið og sungið og enginn tími til
að undirbúa nýja hluti. Loksins
þegar kemur lægð í vertíðina,
nokkrir dagar þegar hvergi þarf
að syngja, er ég svo útslitinn að ég
vil vera í friði, nenni ekki að hafa
mig að þessu. Það sem vantar er
einhvers konar jafnvægi, en það
verður líklega seint. Það erfiðasta
er að maður hefur ekki efni á að
segja nei, þegar maður er beðinn
um að syngja, veit ekki hvort
nokkur vinna fæst, hefur ekkert
atvinnuöryggi. Afleiðingin er svo
hætta á að detta niður i einhverja
meðalmennsku.
Þú nefndir áðan að ein ásteðan
fyrir því að þú hallaðist að Ijóðasöng
væri sú að í þeim gætir þú túlkað
sjálfan þig. Hvers vegna skiptir það
máli, hefurðu þörf fyrir að koma
sjálfum þér að?
KS: Nei, en ég hef þörf fyrir
persónuleg samskipti við fólk og
ég þekki engin samskipti jafn
stórkostleg og sönginn. í sam-
skiptum verður að hafa eitthvað
að segja, eitthvað fram að færa,
ekki aðeins að tala um veðrið,
verðbólguna og rikisstjórnina. Þá
er ein leið að vera með góðan litt-
eratúr, koma á framfæri góðum
skáldskap, góðri músík.
Svo er annað mál að flutningur
verður ekki sannfærandi fyrr en
áheyrandinn hefur á tilfinning-
unni að hann sé að heyra þetta í
fyrsta sinn. En þarna tekur söngv-
ari ljóðið og persónugerir það, ger-
ir sig að þolanda, sögumanni eða
hvað sem við á, en ekki að verið sé
að úthella tilfinningum sínum yfir
fólk, þó kannski sé verið að því. En
flytjandi má aldrei gera sig að að-
alatriði, ekki sýna: Sjáið hvað ég
er klár, þetta get ég, svona er ég
nú orðinn tæknilega góður ...
Slíkt má ekki. Kannski er ákveðin
mótsögn í þessu, en aðalatriðið er
held ég að vera heill, heiðarlegur
gagnvart þeim sem gerðu ljóð og
lag og gagnvart áheyrendum, eng-
inn hókus pókus ...
Þannig að Ijóðasöngur er ekki að-
eins Ijóð og músík heldur einnig
leikur?
KS: Allur söngur, en mismikið,
er að hluta söngur, að hluta leik-
list.
Víkjum að óperusöng. Þar er
söngvari ekki einráður, heldur syng-
ur undir stjórn. Hvernig er það og
hvað með áhrif hljómsveitar og leik-
stjóra?
KS: í óperusöng er maður bara f
vinnu hjá öðrum, en tollir auðvit-
að ekki i þeirri vinnu nema að
standa sig og geri það sama og i
ljóðasöng, geri textann að sjálfum
sér, þó það sé kki alltaf auðvelt.
Mér detta í hug margar Verdi-
óperur, þar sem aðalpersónurnar
syngja í hálftíma eftir að búið er
að drepa þær ...
En það getur skipt sköpum um
árangur söngvara hvernig
hljómsveitar- og leikstjórar eru,
hvaða hugmyndir þeir hafa, svo og
meðsöngvarar. — Leikstjóri mót-
ar verkið á æfingaskeiði, ræður
öllu um leikræna túlkun. Það er
meðal annars kennt í skólum að
söngvara komi hreint ekkert við
hvernig leikstjóri vill að hann
standi. Þó leikstjórinn láti söngv-
ara snúa baki í áhorfendur og
syngja upp í vegg, þá er það leik-
stjórans, ekki söngvarans. Á sama
hátt megi hann ekkert segja um
hvernig hljómsveitarstjórinn vilji
láta hann syngja. Hljómsveitar-
stjórinn er einráður um músík-
alska túlkun. Ef söngvari er á önd-
verðum meiði við hann, er úti-
lokað að hann njóti sín. Það getur
tekið á fyrir söngvara að syngja í
óperu sem hann hefur fastmótað-
ar hugmyndir um, þegar þær
hugmyndir fara ekki saman með
hugmyndum annarra í sýning-
unni.
Þegar kemur að sýningum ræð-
ur hljómsveitarstjórinn gangi
hverrar sýningar fyrir sig. Hann
getur lyft henni í hæstu hæðir en
líka eyðilagt hana ef svo ber und-
ir. Við höfum reynslu fyrir því í
íslensku óperunni að t.d. sama
sýningin gjörbreytist þegar skipt
er um hljómsveitarstjóra, batnar
eða versnar. í Sígaunabaróninum
voru þrír hljómsveitarstjórar,
hver með sín sérkenni, kosti og
galla. Þetta hafði bein áhrif á sýn-
ingarnar.
En þegar upp er staðið er það þó
söngvarinn sem stendur á sviðinu
og brillerar eða missir niður um
sig buxurnar. En þeir tveir sem
mótað hafa sýninguna, bera
ábyrgð á henni með söngvaranum,
eru hvergi nærri. Leikstjórinn er
heima eða byrjaður á nýju verk-
efni. Hljómsveitarstjórinn er niðri
í gryfjunni og þarf ekki að horfa
framan í áhorfendur, enda held ég
að áhorfendur geri sér enga grein
fyrir mikilvægi hans. Þetta er
skrítið allt saman ...
Ég er vafalaust sérvitur, hef
mínar hugmyndir á mörgum svið-
um og þetta gerir að verkum að ég
á auðveldara með að vinna sem
ljóðasöngvari. Auðvitað eru málin
rædd og reynt að komast að sam-
komulagi við hljómsveitar- og
leikstjóra. Þetta er ekki eins svart
og ég dró það upp, en málamiðlun
þarf ekki að vera neitt betri en
upphaflegi kosturinn. Já, í raun er
þetta bara gamla sagan um að
vinna hjá sjálfum sér eða öðr-
um ...
Svo eru upptökur, að vinna fyrir
upptökur. Það er ólíkt því að koma
fram, það er hægt að liggja yfir upp-
tökum, bæta og betrumbæta. Hvern-
ig er sú vinna?
KS: Upptökur eru með því al-
erfiðasta sem ég geri. Tónninn er
farinn og gleymdur þegar er búið
að syngja hann á tónleikum eða
óperusviði, hvort sem hann er ljót-
ur eða fallegur. Að minnsta kosti
reyni ég að gleyma þeim mis-
heppnuðu. Áheyrendur muna þá
kannski. í stúdíói er þetta allt
öðru víst. Þá neyðist söngvarinn
til að hlusta á þessa hörmung og
þar er ekki sungið fyrir fólk held-
ur míkrófóna, jú og svo menn sem
hafa atvinnu af að taka upp og
passa að ekkert fari í gegn nema
það sem þeir telja það besta. Ég
hef góða reynslu af upptöku-
mönnum útvarpsins, get nefnt t.d.
Bjarna Rúnar Bjarnason.
En þetta er erfitt. Á nokkrum
klst. þarf að eltast við eitthvað
ídeal þess sem er verið að syngja,
ídeal sem aldrei næst. Maður tæt-
ir sig í sundur fyrir framan
míkrófónana og gengur misvel. Til
þess að gera góða upptöku þarf
langan tíma. Ég þarf a.m.k. lang-
an tima. En það eru til menn eins
og Fischer-Dieskau sem syngja
hvert lag tvisvar, þrisvar sinnum
og þá er komin nothæf útgáfa,
sem er sett á plötu, sem vinnur
Grand prix du disque. En það eru
ekki allir jafngóðir og hann.
Ef upptaka heppnast vel svo
maður þarf ekki beinlínis að
skammast sín þa er hún vel þess
virði, til einhvers var unnið.
En þarna er spurning um yfirlegu
og þolinmæði. Á þessi tegund vinnu
illa við þig?
KS: Nei, út af fyrir sig ekki.
Hún er bara svo allt, allt öðru visi
en að koma fram. Þarna eru ekki
þau persónulegu tengsl og sam-
skipti sem ég á viö áheyrendur
mína. Þegar við Jónas tókum upp
plötuna höfðum við fólk í salnum,
fólk sem kom og heimsótti okkur.
Þarna var að vísu ekki beinlinis
tónleikastemmning, en það hjálp-
aði samt heilmikið að finna
strauma frá þeim. En þetta er erf-
iðari vinna en að syngja á tónleik-
um, þvi hún krefst mikið meiri
einbeitni. Á tónleikum spila ég
meira á stemmningu, reyni að
skemmta mér um leið og ég
skemmti öðrum. í stúdióinu er
verið að eltast við fullkomleikann
sem er ekki til. Þetta er munurinn.
Vinnan sjálf á ekki verr við mig,
en ég sakna áheyrenda.
Þitt starf er ekki bara að syngja
heldur líka að koma fram, standa
fyrir framan fólk með þitt mystíska
hljóðfæri. Hvernig býrðu þig undir,
hvernig líður þér á meðan?
KS: Ég syng mig upp. Ef ég er
þreyttur reyni ég að sofna tvo,
þrjá tíma um miðjan daginn,
reyni að vera i andlegu jafnvægi.
Að öðru leyti bý ég mig ekki undir,
ég fer. Það verður bara að ráðast
hvernig fer.
Ertu kvíðinn?
KS: Yfirleitt ekki, en ef ég er
með eitthvað sem mér finnst ég
ekki hafa æft nógu vel, þá kemur
það fyrir. Ef ég veit ekki nákvæm-
lega við hverju ég má búast, er
hræddur um að eitthvað fari úr-
skeiðis, eins og fyrir fyrstu sýn-
inguna í Carmen núna um jólin,
þá er ég stressaður.
Kvíði fyrir tónleika, er hann upp-
byggjandi, skapandi eða er hann
eyðileggjandi?
KS: Hann getur verið hvort
tveggja. Ef litið er á kviðann lif-
fræðilega þá gerist það að nýrna-
hetturnar senda adrenalin út i
blóðið og andrenalinið undirbýr
frumur líkamans, bæði i tauga-
kerfi og vöðvum, fyrir átök. Ef
maður er reiður gefur andrenalín-
ið orku til árásar en til flótta eða
varnarviðbragða ef maður er
hræddur. Það gerist það sama
þegar maður kemur fram, kviðinn
kallar fram umframorku. Vandinn
er að veita henni i réttan farveg.
Stundum verður kviðinn eða senu-
skrekkurinn svo mikill að hann
verður óviðráðanlegur og skemm-
ir. Þá dreifist orkan, fer i aðra
hluti en henni er ætlað, lokar jafn-
vel fyrir alla einbeitingu. Sem be-
tur fer hefur mér yfirleitt tekist
að nota þessa orku til einbeit-
ingar. Það kemur miklu sjaldnar
fyrir að hún skemmir. Þetta er
eins og að vera i prófi. Það getur
komið fyrir i munnlegum prófum
að fólk veit ekki algengustu hluti,
veit varla hvað það heitir, hvað þá
meir.
Endurtekningar, því oftar sem þú
kemur fram, hjálpar það?
KS: Já, það hjálpar, þá kemur
upp ákveðin rútina, þannig að ég
veit alltaf betur og betur við
hverju má búast. Þetta var erfið-
ast fyrst þegar enginn þekkti
mann, vissi ekki hvað maður gat
og ég vissi það varla sjálfur. Nú
kannast margir við mig, 'ég er eft-
irsóttur og það hjálpar strax. Fólk
hefur ákveðnar væntingar, það
léttir róðurinn. En í þessu er líka
ákveðin hætta, sú að detta niður i
meðalmennsku, hugsa bara: Aha,
ég þarf ekki meira en þetta, þá er
ég ekkert að leggja meira á mig.
En meðan ég veit af hættunni get
ég varað mig á henni.
Reynslan af kennslu á sínum
tima hjálpar mér heilmikið. Sam-
skipti við hóp fólks og hvernig er
farið að þvi að halda athygli þess i
meira en þrjár mínútur. Ég veit
eiginlega ekki hvernig það er gert
en einhvern veginn tekst það
samt.
Nú er röddin óstöðugt hljóófæri.
Þó þú getir ákveöna hluti á æfing-
um, þá eru þeir ekki tryggðir í eitt
skipti fyrir öll og það getur farið
fyrir söngvara eins og Ld. spjótkast-
ara sem kastar yfir 90 m á æfingu en
svo 70 m í keppni.
KS: Já, þetta er i raun alveg það
sama. Þeir, sem koma fram og
sýna öðrum færni sina i söng eða
öðru, þurfa raunar að ganga til
þess eins og afreksiþróttafólk,
þurfa að vera líkamlega vel undir-
búnir. Og við erum alltaf að
keppa. Söngvari þarf að gera sér
grein fyrir þvi að áður en fólkið
fór á tónleika eða sýningu, þá sett-
ist það niður og hlustaði á plötu
með stjörnunum. Þegar menn
inu og óperusöngur þar á eftir. En
hins vegar er valið ekki mitt, ég
verð því miður að taka tillit til
markaðslögmála, er orðinn hálf-
gildings söluvara. Framboð í
ljóðasöng er langt umfram eftir-
spurn og aðeins þeir albestu geta
unnið fyrir sér með ljóðasöng ein-
göngu. Það er auðveldara að kom-
ast áfram i óperum og hafa af því
tekjur.
Eg vildi þó ekki syngja ljóð ein-
göngu, þó ég taki þau framyfir, vil
hafa sem víðast verkefnasvið. í
söng er annars vegar að finna sér-
fræðinga sem sérhæfa sig, jafnvel
í einu tónskáldi og hins vegar þá
sem sérhæfa sig hvergi, reyna að
syngja allt. Það hefur bæði kosti
og galla. Það er ekki hægt að ná
fullkomnun á neinu sviði ef maður
takmarkar sig ekki, en einhvem
veginn höfðar það mest til mín
eins og er að kynnast sem flestu.
Mér er keppikefli að hafa vald á
sem flestum stílum, sem gæti orð-
ið til þess að ég verði hálfgert stíl-
ískt viðriðni, blandi saman stilum.
Af hverju höfðar Ijóðasöngur mest
til þín og hvernig undirbýrðu hann,
velur verkefni, höfunda ... ?
KS: í ljóðasöng hef ég meira
frelsi en ella. Það er enginn leik-
stjóri sem segir mér fyrir um túlk-
un, enginn hljómsveitarstjóri sem
segir mér hvernig ég eigi að
syngja. í ljóðasöng er um að ræða
nána samvinnu tveggja manna,
undirleikara og söngvara. Ég hef
borið gæfu til að hafa góðan und-
irleikara, Jónas Ingimundarson,
og hef grætt mikið á því sam-
starfi. í ljóðasöng er hægt að velja
viðfangsefni sjálfur. Ég reyni allt-
af að velja ljóð sem hafa þrennt til
að bera, góða músík eða sem fellur