Morgunblaðið - 20.01.1985, Page 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
Ekki eru allir
bófar atvinnumenn
Miamí, Fiórídm, 18. janúar. AP.
NÚ STANDA yfir í Miarai réttarhöld yfir tveimur afbrotamönnum sem
veröa að teljast í hópi einhverja mestu klaufa sem sögur fara af. Þeir
eru ákæróir og veröa trúlegast sekir fundnir fyrir innbrot, vopnað rán,
þjófnað og fleira, en þeir eiga yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi. En
nú skulum við rekja ránið, það var hið skrautlegasta:
FRA
FRAKKLAISIDI:
GtðesilegiY borð-
lampar í miklu úrvali.
Sannkölluð
stofuprýði sem
hentar vel til
tækifærisgjafa.
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
Þeir Enumerable Vailant og
Jose Moreno höfðu haft spurnir
af húsi nokkru þar sem eitur-
lyfjaverslun fór fram. Hugsuðu
þeir sér gott til glóðarinnar, að
ná bæði lyfjum og stórfé á einu
bretti með vel skipulagðri ráns-
ferð á svæðið. Ránsferð varð
það, en skipulögð telst hún varla
hafa verið. Ballið byrjaði þannig,
að kapparnir brutust inn í rangt
hús, þar með byrjaði klúðrið að
hlaða utan á sig eins og snjóbolti
sem rúllar niður snævi þakta
brekku.
í húsinu voru tvenn roskin
hjón, húsbúar og vinafólk þeirra.
Vailant réðst á vír sem hann
fann og hugði simavír. Skar
hann vírinn í sundur, en þetta
var í raun vírinn í rafmagns-
dósaopnaranum í húsinu. Á
sama tíma þreif Moreno
skammbyssu úr pússi sínu og
otaði að fólkinu, en byssan
opnaðist um leið og skotin
hrundu öll úr henni! Ræningj-
arnir heimtuðu lyf og í örvænt-
ingu sinni lét fólkið þá fá glas
með nítróglysseríntöflum sem
Norræna húsið:
99
J
Við
kaupum
lopapeysur
á hæsta verði hveiju sinni
n /^lafoss
Peysumóttakan,
Vesturgötu 2, sími 22091.
Opiö alla virka daga kl. 9 til 12 og 13 til 15.
hinn aldni heimilsfaðir annars
át vegna hjartaveiki. Einhverja
smápeninga og eina vínflösku
hirtu piltarnir svo og einn verð-
mætan hlut, demantshring ann-
arrar konunnar, en á flóttanum
frá húsinu og út í bíl misstu þeir
hringinn á stéttina án þess að
taka eftir því!
Svo var að forða sér. Þeir óku
af stað með ýlfri og látum og
beinustu leið inn á bannsvæði
bandaríska flughersins sem er
þarna á næstu grösum. óku þeir
fram hjá varðskýli og hugðu það
vegartollskýli!! Varðmenn gerðu
lögreglunni viðvart og voru pilt-
arnir gómaðir inni á herstöðinni.
Voru þeir fremur sneypulegir
sem von var.
HoIbergshefÖin
í listum og
Ijósmyndum“
„Holbergshefðin í listum og Ijós-
myndum“ er skermasýning sem nú
stendur yfir í Norræna húsinu. Á
sýningunni eru stækkaðar Ijósmynd-
ir og teikningar sem sýna samtíma
og mannlíf í tíð Holbergs og einnig
eru Ijósmyndir af leiksýningum.
Sýningin, er var í anddyri Nor-
ræna hússins, hefur verið flutt í
bókasafnið, en hún er einnig tengd
minningu Holbergs. Sýningarnar
eru opnar frá 9 til 19 alla daga
nema sunnudaga frá 12 til 19.
Marokkómenn
reisa múr
Mwrakech, Mwokkó. 18. janúir. AP.
MAROKKÓMENN hafa lokið 400
kflómetra áfanga 3 metra hás sand-
vt“ggjar í Vestur-Sahara , þar sem
skæruliðar Polisario hafa með
stuðningi Alsír herjað á stjórnarher-
inn síðustu tíu árin. Veggur þessi er
nú orðinn rúmlega 2000 kílómetra
langur og liggur eftir landamærum
Marokkó, Alsír, Mauritaníu og víð-
ar.
Polisariomenn hafa verið að
berjast fyrir sjálfstæði Vestur-
Sahara allar götur síðan að Mar-
okkó innlimaði landsvæðið. Al-
sírmenn hafa jafnan stutt dyggi-
lega við bakið á þeim. Hermálayf-
irvöld í Marokkó sögðu að Polisar-
iomenn hefðu hvað eftir annað
gert árásir á hermenn sem unnu
að veggnum, og haft sér til trausts
og halds alsírska skriðdreka og
fallbyssur, en „ekkert hefði dug-
að“. Sókn skæruliða hafi verið
brotin á bak aftur hvað eftir ann-
að og hermenn sfðan rekið flótt-
ann. Segja talsmenn hersins að
„fjölmargir" skæruliðar hafi verið
drepnir.
Fjárhagsáætlun
borgarinnar:
Félagsmið-
stöðvarnar
ÁÆTLAÐ er að veita tæplega 13
milljónum króna til framkvæmda á
sviði æskulýðsmála í borginni á
þessu ári.
Þar munar mest um fyrir-
framgreiðslu húsaleigu í samræmi
við samning borgarinnar við
Knattspyrnufélag Reykjavíkur frá
því í febrúar í fyrra. Helstu atriði
þessa samnings eru þau, að KR
reisir tvílyft hús á lóðinni við
Frostaskjól og leigir Reykjavík-
urborg, þegar þar að kemur, efri
hæðina fullgerða, án lausabúnað-
ar, til 27 ára gegn fyrirfram-
greiðslu húsaleigu á byggingar-
tíma. Þarna er fyrirhugað að reka
félagsmiðstöð og eru henni ætlað-
ir 555 fermetrar. Sagði Davíð
Oddsson borgarstjóri í gær, að
fyrirhugað væri að húsið yrði
frágengið að utan og innan fyrir
lok þessa árs. Greiðsla borgarinn-
ar verður í ár 7,8 milljónir króna.
Þá er fyrirhugað að vinna að
endurbótum og frágangi á félags-
miðstöðvunum í Árseli og Fella-
helli og að stofnframkvæmdum
við Ársel ljúki á þessu ári.