Morgunblaðið - 20.01.1985, Page 11
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
B 11
sækjast eftir vinnu.“ Svo fékk hann handritið að
Conan. Fyrst vildi hann ekki að ég fengi hlutverkið,
þvi honum var einfaldlega illa við mig. En leikstjór-
inn, Jon Milius, sagði þá við hann, „Við verðum að fá
Arnold. Ef þú notar ekki Arnold, verður þú að
byggja upp annan hans líka.“ Svo hann neyddist til
að nota mig. Fimm eða sex dögum eftir að mynda-
takan hófst var hann að lesa blöðin, og kom svo yfir
til mín og sagði, „Schwarzenegger, þú ert Conan."
Þetta var hrós frá honum, að segja að ég væri Conan
— að hann væri sáttur við hugmyndina. Upp frá því
batnaði samband okkar smám saman, og er nú orðið
þannig að ég treysti honum, og hann treystir mér.
Hann veit að þegar hann talar við mig getur hann
treyst mér umfram það sem stendur í samningnum.
Hann veit að ég hugsa ekki aðeins eins og leikari,
heldur sem kaupsýslumaður sem skilur vandamál
hans. Ég hugleiði hlutina miklu fremur sem fram-
leiðandi en sem leikari. Nú er samband okkar gott;
við snæðum saman og ræðum handrit og viðskipti.
Og hjá hverjum get ég lært meira en hjá Dino de
Laurentiis?
Þú stundar enn líkamsrskt, er það ekki?
Á hverjum degi. Þegar ég var að vinna að Conan I,
keypti Dino handa mér æfingatæki fyrir 40 þúsund
dollara. Þau fylgja mér hvert sem ég fer.
Þú ert sannarlega orðinn mun hófsamari í framkomu
en hér áður fyrr. fupphafí, til dæmis í Pumping Iron,
varstu alltaf að bera saman líkamsrækt og kynlíf. Og í
lokakafía myndarinnar varst þú í gleðskap reykjandi
hass.
Þegar þú sást mig undir áhrifum í Pumping Iron
var það af vilja gert í þeim tilgangi að auka vin-
sældir lyftinga. Þegar þú fullvissar aðra um að lyft-
ingar veiti jafn mikla ánægju og kynlíf, að þér sé
óhætt að borða eins mikið af kökum og þig lystir,
getir verið undir áhrifum, skemmt þér, og að öllum
líki vel við þig — þá er þetta sölumennska. Kynlíf er
Kraftakarlinn
nokkuð sem allir þekkja, svo ég líkti líkamsrækt við °® au^H||tir-
kynlíf. Um miðjan áttunda áratuginn var það verk- J** '
efni mitt að kynna líkamsrækt fyrir almenningi. Og f”n1l.
éggerðiþað. ÍS
Eg verð að segja að þú ert alveg sérlega hressilegur. rorniu
Ertu aldrei niðurdreginn?
Jú. Ég verð stundum niðurdreginn þegar ekki
gengur allt að óskum. En ég er ekkert að sálgreina
sjálfan mig. Ég er ekkert að spyrja sjálfan mig
hvers vegna ég sé niðurdreginn. Mér er sama um
ástæðuna, ef ég aðeins losna við dapurleikann. Ég
hvorki sálgreini sjálfan mig né leita til sálfræðinga.
Ég held að þvi meir sem þú reynir að kryfja ástæð-
urnar og einstaklinginn til mergjar, þeim mun
minni verður lífsgleðin. Getur þú ímyndað þér
hvernig væri að ganga svona gruflandi gegnum kyn-
lífið? Það á að láta eðlishvötina ráða framkvæmd-
inni. Þetta sama gildir varðandi þjálfun, viðskipti,
leik. Þú getur ekki ætlazt til þess að vera alltaf
upplagður; þú verður bara að beita líkama þínum og
sál og leika af fingrum fram, vegna þess að alltaf
kemur upp eitthvað nýtt.
Þegar þú horfír til baka yfír farinn veg, hve langt þú
ert kominn frá Granz í Austurrfki, fínnst þér það þá
stundum furðulegt?
Já, þegar ég hugsa út í það. En ég husa ekki ýkja
mikið um það. Ég bara held mínu striki. Þú verður
alltaf að sækja á brattann — alltaf að sækjast eftir
einhverju.
Bæði keppni í líkamsrækt og leiklist krefjast mikils
sjálfsálits til að kynda undir framförum. Þar sem þér
hefur vegnað svo vel á báðum þessum sviðum, hlýtur
sjálfsálitið að vera í sama stærðarflokki og vöðvarnir.
Attu nokkuð erfítt með að halda því í skefjum?
Það þarf mikið sjálfsálit til að geta framkvæmt
mikið. Það er sjálfsálitið sem knýr þig áfram. En ég
þarf ekkert að hafa fyrir því að halda mínu sjálfsál-
iti í skefjum. Það nægir að fara í fimleikasalinn. Það
er sama hve vel manni gengur, hve mikið álit þú
hefur á sjálfum þér. Þegar ég er kominn í æfingasal-
inn, er ég kominn til baka þangað sem ég var þegar
ég var fimmtán ára — til baka í sömu baráttuna.
Þar er enga hjálp að fá. Enga hughreystingu.
Hundrað pund verða alltaf hundrað pund. Þau hlifa
þér aldrei.
Gre\ðs\«^2L'
HLJOMBÆR
HLJOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
MULHFLEX
litasjónvarp
er framtíðin
l SATELLTTFTi
f Litasjónvarp 22"
á AÐEINS kr. 39.330,- stg.
Stereosjónvarp
LUXOR SATELLIT sjónvarp
'er tilbúiö til aö mæta send-
ingu i stereo og er nú þegar
útbúiö möguleikum til tull-
” kominnar hljómspilunar.
Kabal-
eiAnvarn Nú Þeaar eru lokuö
SJOnVdl p sjónvarpskerfi til hér
___á landi, og þeim á eftir aó fjölga.
Meö LUXOR SATELLIT höfum við
tekið tillit til þeirrar þróunar. Svo
_ þegar tækifærið kemur þarf aö-
eins aö bæta smástiili í tækiö.
Textasjónvarp
LUXOR sjónvörp
■ geta tekið á móti beinni texta- "
sendingu á skjáinn í framtióinni
þegar okkur vex tækni.
Fjarstýring
.LUXOR MULTIFLEX tækiö .
er hvenær sem er hægt aö
tengja viö fjarstýringu sem
stýrir texta, stereohljómi
o.fl.
Tölvuskermur
Hægt er aö setja
‘LUXOR SATELLIT i samband viö'
heimilistölvuna og nota skerminn til
aflestrar.
Aux-box
Meö þessu töfraboxi er mögulegt aó
tengja sjónvarpsvél sem t.d. er staö-
sett í barnaherberginu. Meö þessu
tæki er hægt aö passa börnin eöa sjá
hver er aó hringja bjöllunni.
Gervitungl
---------- LUXOR SATELLIT er
eina sjónvarpstækiö sem er beinlínis
gert til aö taka viö sendingu frá gervi-
tungti.
Vídeó
- Öll LUXOR SATELLIT tækin eru með •
videó-innstungu sem kemur í staóinn
f yrir loftnetiö og gefur betri og skýrari
myndir viö upptöku og afspilun.