Morgunblaðið - 20.01.1985, Síða 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Töluverð breidd i því
sem nú er lagt fram
7 segir Jóhann Hjálmarsson sem er fulltrúi
íslands í dómnefndinni ásamt Heimi Pálssyni
Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs verða afbent á þir.^i
Norðurlandaráðs sem haldið
verður í Reykjavík í byrjun mars.
Af íslands hálfu hafa Ijóða-
bækurnar „36 ljóð“ eftir Hannes
Pétursson og „New York“ eftir
Kristján Karlsson verið tilnefnd-
ar. Ákvörðun um verðlaunin verð-
ur tekin á fundi dómnefndar bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs í Osló 21. janúar nk. Dóm-
nefndina skipa tveir fulltrúar frá
hverju landi. Fulltrúarnir eru
skipaðir af menntamálaráðherra
til þriggja ára í senn og hafa þeir
Jóhann Hjálmarsson skáld og
Heimir Pálsson menntaskóla-
kennari verið fulltrúar íslands
undanfarin ár. Blaðamaður
Morgunblaðsins átti samtal við
Jóhann Hjálmarsson um bók-
menntaverðlaunin.
Jóhann var fyrst spurður
hvernig starfi fulltrúa væri
háttað.
„Fyrst tilnefna fulltrúar
hvers lands tvær bækur. ís-
lendingar og Finnar hafa þá
sérstöðu að bækur þeirra þarf
að þýða. Af þeim sökum eru
bækurnar sem tilnefndar eru
nú frá þessum löndum frá ár-
inu 1983. Síðan fá fulltrúarnir
allar bækurnar sendar í nóvem-
bermánuði til lestrar. Á fund-
inum í janúar fer fram at-
kvæðagreiðsla og úrslit gerð
kunn. Á þessum fundi fara oft
fram ítarlegar umræður um
bækurnar, um gildi þeirra og
einstaka höfunda. Oftast eru
það tvær til þrjár bækur sem
líklegast þykir að hljóti verð-
launin. Atkvæðagreiðslan sjálf
dregst oft á langinn. Ein höfuð-
regla gildir við fyrstu atkvæða-
greiðslu og hún er sú að ekki
má greiða bók frá eigin landi
atkvæði og við þessa atkvæða-
greiðslu eru atkvæðaseðlarnir
merktir. Oft þarf atkvæða-
greiðsla að fara fram nokkrum
sinnum áður en endanleg úrslit
fást. Þegar úrslit eru kunn eru
þau tilkynnt á blaðamanna-
fundi síðdegis sama dag. Verð-
launin eru svo afhent á þingi
Norðurlandaráðs."
Ertu ánægður með bókaval-
ið?
„Já, það er töluverð breidd í
því sem nú er lagt fram. Þar er
Jóhann Hjálmarsson.
að finna ljóðabækur, skáldsög-
ur, æviminningar og eina ungl-
ingabók. í fyrra var í fyrsta
sinn lögð fram barnabók. Mér
finnst þessar bækur yfirleitt
spegla það sem er að gerast á
Norðurlöndum. Þær eru dæmi-
gerðar fyrir strauma og stefnur
í bókmenntum þessara landa.
Fyrir þá sem fást við að skrifa
og meta bókmenntir er þetta
mjög hvetjandi starf."
Heldur þú að almenningur
fylgist með þessari verðlauna-
afhendingu?
„Stundum hefur mér þótt að
þessi úthlutun veki ekki eins
mikla athygli hér eins og ann-
ars staðar. Hjá flestum blöðum
erlendis er úthlutunin forsíðu-
efni daginn eftir að úrslit eru
tilkynnt. Blaðamannafundur er
haldinn og það er fylgst mjög
nákvæmlega með þessu, enda
eru þetta stærstu bókmennta-
verðlaun sem veitt eru á Norð-
urlöndum og koma næst Nób-
elsverðlaununum. Hér er yfir-
leitt aðeins lítilsháttar fjallað
um úthlutunina. Þó held ég að
stór hópur fólks hér á landi
vildi gjarnan geta fylgst betur
með, en hefur einfaldlega ekki
tækifæri til þess meðan fjöl-
miðlarnir sýna þessu svona lít-
inn áhuga."
Er eitthvað sérstakt sem vek-
ur athygli við þessa úthlutun
nú?
„Það sem ég tel merkilegt við
þessa úthlutun nú er að Færey-
ingar tilnefna eina bók og Sam-
ar aðra. Grænlendingar mega
tilnefna bók en hafa enn ekki
gert það. Það er mikill hugur i
þessum þjóðum um norrænt
samstarf og ég tel það rétta
stefnu að hafa þær með. Þessi
bókmenntaverðlaun efla nor-
ræn tengsl og einnig Norræni
þýðingasjóðurinn sem styrkir
þýðingar á norrænum bók-
menntum."
Tímaritið
Áfangar
komið út
ÚT ER komið tímaritið Áfangar, 4.
tölublað 5. árgangs, en annað blað á
vegum Frjáls Framtaks.
Blaðið er með fjölbreyttu efni
og má þar nefna í réttri röð sam-
kvæmt efnisyfirliti grein um
Lónsöræfi eftir Guðjón ó. Magn-
ússon, viðtal við Helga Bene-
diktsson kunnan ferðamann um
fjallamennsku, sagt frá ferð í
Álpafjöll, greinar um haförninn,
Strandir og jeppaferð á hálendið
að vetrarlagi og Hrútfjallstinda.
Þá er athyglisverð grein um
gönguskíði og eru þar bæði lífs-
reglur og leiðbeiningar, en greinin
er eftir Guðjón ó. Magnússon.
Áfangar eru mikið mynd-
skreyttir og er meira um litmynd-
ir en áður. Ritstjóri er Sighvatur
Blöndal, en útgefandi Frjálst
framtak.
Kostimir við að kaupa spariskírteini ríkissjóðs bera af eins og gull af eir,
ætlir þú að ávaxta fé þitt til lengri eða skemmri tíma.
SMLMÁLARNIR ERU HREINIR OG KLÁRIR
ENGIR LEYNDIR ENGIR LAUSIR EKKERT SEM KEMUR ENGIN
VARNAGLAR ENDAR í BAKIÐ Á ÞÉR VH/ETIA
Lægstu vextír sem ríkissjoóur býður ofan á verötryggingu er meöaltal vaxta af 6 mánaða verðliyggðuin reikningum
viðskiptabankanna
+ 50% VAXTAAUKI
Hæstu vextimir eru 9% ofan á gengistryggingu
Stystu bréfin em til 18 mánaða og spariskírteinin ganga auðveldlega kaupum og sölum.
Hægt er að fá vexti greidda út misserislega o.fl. o.fl.
BÝÐUR EINHVER BETRIÁVÖXTUN ÁSAMT ALGJÖRU ÖRYGGI?
Sölustaðireru:
Seðlábanki íslands, viðskiptabankarnir, sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS