Morgunblaðið - 20.01.1985, Síða 24
24 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
B8BMB
DRUGGED
AGENT”
,to/Abducfj,
*e West 1
Dr. Otto John (til vinstri), Sir Frodorick Hoyor Millar og fyrirsagnir trétta um málið.
Annar góður vinur hans var einn
helzti leiðtogi andspyrnuhreyf-
ingarinnar, dr. Hans von Dohn-
anyi, sem var lögfræðingur eins
og hann.
John hafði einnig starfað fyrir
Hans Oster hershöfðingja, næst-
æðsta mann gagnnjósnaþjónust-
unnar Abwehr, sem barðist gegn
nazistum. Hann tók áberandi
þátt í samsærinu gegn Hitler 20.
júli 1944. Hann stóð m.a. í nánu
sambandi við brezk og bandarísk
yfirvöld og fór flugleiðis til Ma-
drid til að vara þau við innrás-
inni í Normandí og tilræðinu við
Hitler fyrir hönd samsæris-
manna, sem vildu semja frið.
John var einn þriggja
óbreyttra borgara í aðalstöðvum
samsærismanna í Bendler-
strasse 20. júlí auk Gerstenma-
iers og Gieseviusar. Hann var
einn örfárra félaga andspyrnu-
hreyfingarinnar sem komust lífs
af. Hann komst hjá yfirvofandi
handtöku og notaði sér aðstöðu
sína hjá Lufthansa til þess að
fara til Madrid fjórum dögum
eftir tilræðið. Hann komst frá
Þýzkalandi án nokkurra erfið-
leika, en bróðir hans, Hans, sem
einnig var leiðtogi í andspyrnu-
hreyfingunni, var tekinn hönd-
um og líflátinn. Frá Madrid var
John fluttur til Englands um
Lissabon.
Síðustu mánuði stríðsins
starfaði dr. John sem ráðunaut-
ur „svörtu" áróðursstöðvarinnar
„Soldatensender Calais" og vann
í London við útvarpssendingar
með friðaráróðri á þýzku síðustu
mánuði stríðsins.
Hann var skipaður yfirmaður
vestur-þýzku öryggisþjónust-
unnar („Bundesamt fúr Verfass-
ungsschutz“ — BfV) í desember
1950.
VALDABARÁTTA
Jakob Kaiser verkalýðsleið-
togi, sósíaldemókrati og félagi
Johns úr andspyrnuhreyfing-
unni, lagði til að hann yrði yfir-
maður BfV. John naut einnig
stuðnings Theodor Heuss for-
seta.
í brezku stjórnarskjölunum,
sem nú hefur verið leyft að
skoða, kemur fram að sögn
Observers að þótt Bretar hafi
fyllzt efasemdum í garð dr.
Johns áður en hann hvarf
hreyfðu yfirmenn leyniþjónustu
Bandamanna á þessum tima
engum mótbárum gegn vali hans
þegar stjórn Konrads Adenauer
kanzlara stakk upp á að hann
yrði skipaður yfirmaður öryggis-
þjónustunnar.
Samkvæmt skjölunum höfn-
uðu yfirmenn leyniþjónustu
Bandamanna hugmyndum um 12
menn í stöðuna, en sættu sig við
dr. John þegar stungið var upp á
honum.
Þegar John tók við yfirstjórn
BfV voru tvær aðrar gagn-
njósnaþjónustur þegar starfandi
í Vestur-Þýzkalandi.
Önnur þeirra var stofnun
Reinhards Gehlen fyrrverandi
foringja Abwehr á austurvíg-
stöðvunum. Bandaríkjamenn
styrktu stofnun Gehlens fjár-
hagslega í byrjun og hún varð
síðar opinþer leyniþjónusta
Vestur-Þjóðverja.
Hin var hernjósnadeild i svo-
kölluðu „Amt Blank", sem varð
vísirinn að landvarnaráðuneyti
Vestur-Þýzkalands.
Gehlen gerði allt sem í hans
valdi stóð til að koma í veg fyrir
tilnefningu dr. Johns. Hann taldi
hann hættulegan keppinaut og á
sama hátt og öðrum fyrrverandi
Ein fárra mynda sam til oru af Gehlen oftir aiðari heimsstyrjöldina. Hún var tekin í Hannover 1958.
Otto John
á velmektardögum
sínum
ÞRJÁTÍU ára gamalt njósnamál var nýlega endur-
vakið, þegar brezka vikublaðið Observer skýrði frá
því að stjórnarskjöl, sem nýlega hefur verið leyfður
aðgangur að eftir þriggja áratuga leynd, sýndu að
Bretar hefðu verið sannfærðir um það frá byrjun
að dr. Otto John, sem var um skeið yfírmaður
öryggismála í Vestur-Þýzkalandi, hefði flúið til
Áustur-Þýzkalands 1954.
Flótti dr. Johns vakti gífurlega athygli á sínum
tíma. Árið eftir birtist hann aftur í Vestur-Þýzka-
landi og harðneitaði því að hann hefði verið útsend-
ari kommúnista. Hann sagði að hann hefði verið
svæfður, numinn á brott og neyddur til að tala
fjandsamlega um vestræn ríki í útvarpi í Austur-
Þýzkalandi.
Dr. John býr nú í Innsbruck í Austurríki og
heldur fast við framburð sinn.
Mál Ottos
John var
mesta
ssr
hneyksli,
sem orðið
hafði í Vestur-Þýzkalandi eftir
síðari heimsstyrjöldina, og vakti
eins mikla athygli og hvarf
brezku stjórnarerindrekanna
Burgess og Macleans og hvarf
prófessors Brunos Pontecorvo.
John var lögfræðingur að
mennt og talinn frjálslyndur
íhaldsmaður. Á árunum 1937 til
1944 var hann lögfræðilegur
ráðunautur flugfélagsins Luft-
hansa. Hann var náinn vinur
höfuðs Hohenzollern-ættarinn-
ar, Lúðvíks Ferdinands prins,
elzta sonar krónprinsins, sem
var lýðræðislega þenkjandi.
GAMALT
NJÓSNAMÁL
SÉÐ í NÝJU LJÓSI