Morgunblaðið - 20.01.1985, Qupperneq 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANtJAR 1985
„Séra Ralph“ leikur
Raoul Wallenberg
Nú eru 40 ár liðin síðan
sænska stríðshetjan Raoul
Wallenberg hvarf sporlaust, en
marga grunar að hann sé enn lif-
andi í sovésku fangelsi. Wallen-
berg beitti sér fyrir því að tugþús-
undum gyðinga var hlíft við bráð-
um dauða og fjölmargir í dag eiga
líf sitt nefndum Svía að þakka. 1
tilefni af árinu er nú verið að und-
irbúa kvikmynd um manninn og á
Richard ,þyrnifugl“ Chamberlain
að leika aðalhlutverkið, þ.e.a.s.
sjálfan Wallenberg. Ekki er það
þó átakalaust fyrir Ralph, því
hann er linur í þýskunni. Ekki nóg
með það, hann verður að mæla á
þýsku með sænskum hreim í
myndinni og því situr hann á
skólabekk uni þessar mundir og
nemur málvisindin.
Gera kvikmynd og fara til Rússlands
Sænski poppflokkurinn Herreys, sem gerði
sér lítið fyrir að sigra i siðustu sönglaga-
keppni sjónvarpsstöðva Evrópu, hefur átt tals-
verðri velgengni að fagna viða eftir sigurinn,
einkum þó í Danmörku, þar sem þeir njóta meiri
vinsælda heldur en heima fyrir i Svíþjóð. Þeir
hafa kvartað sáran undan vondri meðferð Svía.
Herreys-strákarnir, Per, Richard og Louis,
ætla nú að færa út kvíarnar, fyrst ætla þeir að
senda frá sér nýja breiðskífu og siðan er ætlunin
að standa að upptöku á kvikmynd, „ævintýra-
mynd með mikilli músik og dansi", segir Per, sá
elsti. Að þessum stórvirkjum loknum ætla strák-
arnir í hljómleikaferðalag til Sovétríkjanna, feta
í fótspor Björgvins Halldórssonar og félaga.
Nei, heyriöi nú ...
Við sögðum frá því fyrir fáum dögum, að hópur
stúlkna hefði komist á síður heimsmetabókar
tiuinness fyrir að troða sér inn í Mini-bifreið. Voru
stúlkurnar 19 talsins. Hitt er svo annað mál, að það
hefur lengi verið nokkurs konar þjóðaríþrótt skóla-
krakka í Kaliforníu að athuga árlega hvað troða megi
mörgum Itkömum inn I símaklefa. A myndinni er verið
að stappa í klefann og að þessu sinni var met sett, 24
tróðu sér eða var troðið í klefann. Þar sem engar reglur
eru um „íþrótt“ þessa, stendur hvergi skrifað að það
þurfi að loka klefanum, enda mætti veita há verðlaun
fyrir að reyna það svo sem sjá má á myndinni. Þetta
góða fólk flaug að sjálfsögðu í metabókina eins og
stelpurnar í Chelsea sem við sögðum frá á dögunum.
Spurning hvort afrekið er meira? Eða vitlausara?
ANNA JÚLÍANA SVEINSDÓTTIR ÓPERUSÖNGKONA
Carmen-hlutverkið
er toppurinn
argir hafa brugðið sér í
óperuna og séð Carmen, en
ýmsir eiga trúlega eftir að láta
verða af því og einhverjir hafa
jafnvel farið tvisvar eða ætla sér
það. Segja má að um þessar mund-
ir verði nokkur kapítulaskipti
hvað uppfærsluna varðar, þar sem
nýir söngvarar koma inn i sum
hlutverkin. Þetta gildir um sjálfa
Carmen einnig, sem fær nú annan
túlkanda, það er önnu Júlfönu
Sveinsdóttur, sem tekur við af
Sigríði Ellu Magnúsdóttur sem er
á förum utan. Þótti blm. slíkt
verðugt viðtalsefni og spjallaði
stuttlega við Önnu Júlíönu.
„Þetta er mikið gaman, mér lfð-
ur vel í hlutverkinu og bfð spennt
eftir því að fá að byrja," sagði
Anna, er hún var spurð hvernig
þetta legðist í hana að vera að
taka við af Sigríði. „Það er ekkert
nema gott eitt um þetta að segja.
Ég man fyrst eftir Sigríði úr sjón-
varpinu þegar ég var á mínum
menntaskólaárum og varð strax
hrifin af henni og er enn. Það er
gaman að fá að taka við af henni.
Hún kemur heim um hríð í febrú-
ar og ætlar þá að syngja tvær
helgar.
Eg hlakka til að byrja, þó að það
sé einnig viss spenna í manni. Æf-
ingarnar hafa gengið með ein-
dæmum vel enda erum við með
frábæran leikstjóra, Þórhildi Þor-
leifsdóttur. Mér finnst uppfærslan
á verkinu vera ótrúlega góð.“
— Hefurðu haft nóg að gera í
söng síðan þú komst heim úr
námi?
„Já, ég hef haft nóg og stundum
of mikið að gera. Að vísu tók ég
mér frí um tíma, þegar börnin min
voru að koma í heiminn, en fyrir
utan það hef ég haft yfrið nóga
vinnu i sambandi við sönginn. Eg
hef líka kennt i Söngskólanum og
líkar vel. Fólk er að breytast svo í
viðhorfum gagnvart söng, og það
er farið að skilja að söngnám er
ekki eitthvað sem hægt er að
stunda í hjáverkum, heldur krefst
mikillar vinnu."
— Hefurðu tekið þátt f mörgum
óperuuppfærslum?
„Þetta er fimmtánda hlutverkið
mitt á sviði. Áður en ég kom heim
frá námi vann ég i eitt ár við
Aachen-óperuna í Þýskalandi og á
þeim tíma var ég í fimm hlutverk-
um. Siðan hef ég verið að syngja
hérna heima, þó Carmen sé líklega
stærsta hlutverkið sem ég hef
fengið. Það er hægt að segja að
þetta hlutverk sé toppurinn af öllu
sem hægt er að óska sér og það er
virkilega spennandi að hafa fengið
möguleika að spreyta sig á þessu
verki, slíkt tækifæri eru ekki á
hverju strái. Erlendis tíðkast það
gjarnan að söngvarar ferðast á
milli borga og syngja hlutverkið æ
ofan í æ.“
— Nú krefst þetta hlutverk
mikilla tilþrifa í leik, ekki satt?
„Jú í dag krefst óperusðngur
leikhæfileika. Það eru orðnar svo
miklar kröfur gerðar til óperu-
söngvara og ekki síður hvað varð-
ar sviðsframkomu og leiktjáningu.
Framboð er orðið það mikið að
þeir velja úr þá er hafa lika yfir
slkum hæfileikum að ráða. í dag
þýðir ekki að standa eins og stytta
á sviðinu og syngja bara. Liklega
er leikurinn f þessu verki ennþá
meira krefjandi en söngurinn.“
— Carmen, hvernig kemur hún
þér fyrir sjónir?
„Hún er alin upp i heimi tatar-
anna þar sem lögmálið vogum
vinnum vogum tapar gildir.
Karlmenn bera afskaplega litla
virðingu fyrir konunni, en vopn
Carmenar er greindin og fegurðin
sem hún nýtir sér óspart til að fá
sínu framgengt og hún leggur allt
f sölurnar jafnvel lif sitt til að
halda frelsi sinu. Mér liður vel i
þessu hlutverki og það hefur alls
ekki verið ýkja erfitt að lifa sig
inn í hennar heim.“
— Hvar lærðir þú á sínum
tíma?
„Ég var í átta ár i Þýskalandi, í
Munchen, Köln og Aachen þar
sem ég tók einsöngvarapróf og
einsöngskennarapróf. Ég hef
reynt að fara alltaf út á sumrin
síðan til að halda mér við og læra
því þannig er það að maður er
aldrei útlærður í söng.“
félk í
fréttum
HERREYS-DRENGIRNIR;