Morgunblaðið - 20.01.1985, Qupperneq 36
36 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1985
mhhm
... að sameinast í
náttúrunni.
TM Reg U.S. Pat. Off -all rtgfits reservtd
®1984 Los Angeles Times Syndicale
IVfér varð það á að segja við skradd-
arann að éjr væri ekki alveg ánægð-
ur með axlarsauminn á hægri öxl.
Maður getur svo farið beint í gólfin
svona klædd!
HÖGNI HREKKVÍSI
Asgeir verðugur
maður ársins
Ágæti Velvakandi.
Eins og við var að búast hafa
orðið talsverð blaðaskrif vegna
kjörs íþróttamanns ársins 1984.
Flestir béfritarar eru neikvæðir í
garð hins nýkjöma íþróttamanns
Ásgeirs Sigurvinssonar og sumir
hafa sagt kjör hans hneyksli.
Sannast hér enn hið fornkveðna,
að enginn er spámaður í sínu föð-
urlandi, allra sízt ef föðurlandið er
ísland.
Nú síðast, 17. janúar, skrifar
R.S. í Velvakanda undir fyrirsögn-
inni „Rangt val“. R.S. telur að
Bjarni Friðriksson hafi átt skilið
að fá titilinn. „Ásgeir er atvinnu-
maður og vinnur sín afrek fyrst og
fremst fyrir Þjóðverja, en ekki ís-
lendinga. Er ekki annars verið að
kjósa íþróttamann íslands?" spyr
R.S.
Þessi röksemdafærsla hefur
komið fram hjá fieiri mönnum og
hún er röng. Ásgeir Sigurvinsson
er og verður lslendingur, þótt
starfsvettvangur hans hafi verið
erlendis sl. 12 ár, eða allt frá því
hann var 18 ára gamall. Hann hef-
ur haldið mjög góðu sambandi við
ísland, dvelur hér í fríum sínum,
fær blöð, bækur og plötur að
heiman og hefur eins og allir
sannir íslendingar lagt sérstaka
áherslu á að varðveita móðurmál
sitt, eins og við heyrðum vel í við-
tölum við hann í fjölmiðlum um
áramótin. öll sín knattspyrnuaf-
rek með landsliðinu og erlendum
liðum hefur Ásgeir unnið sem Is-
lendingur og ég fullyrði að enginn
annar landi okkar hefur unnið
betra landkynningarstarf í Evr-
ópu á undanförnum árum en Ás-
geir.
Kjarni málsins er auðvitað sá,
þegar velja skal íþróttamann árs-
ins, hver hefur unnið mesta afrek-
ið. Eg undirritaður hefi starfað
Ásgeir meó vestur-þýzka meistara-
skjöldinn sem hann vann með
Stuttgart í fyrra. „Ásgeir á það ekki
skilið aó menn uppi á íslandi séu aö
gera lítió úr afrekum og kjöri hans í
blöóum og telji kjöriö jafnvel
hneyksli," segir bréfritari.
við íþróttaskrif meira og minna sl.
15 ár. I allmörg ár tók ég sjálfur
þátt í þessu kjöri, en hef fylgst
náið með því undanfarin ár. Valið
hefur aldrei verið erfiðara en nú,
því gera þurfti upp á milli tveggja
frábærra íþróttamanna, Ásgeirs
og Bjarna Friðrikssonar. Margt
þarf að vega og meta þegar
ákvörðun er tekin. Til dæmis
hvernig meta eigi annars vegar af-
rek unnið innan vinsælustu og
einnar fjölmennustu greinar
íþróttanna, knattspyrnunnar, og
hins vegar innan mun fámennari
greinar, sem júdóið vissulega er.
íþrótta-
1984
Ennfremur þarf að vega og meta
hvort vegur þyngra, afrek unnið í
einstaklingskeppni á Ólympíuleik-
um eða afrek unnið á heilu
keppnistímabili i Þýzkalandi.
Fleiri slík atriði þurfa menn að
íhuga. I mínum huga hafði Ásgeir
vinninginn. Að verða Þýzka-
landsmeistari í knattspyrnu, að
vera valinn bezti knattspyrnu-
maður þýzku deildarinnar af öðr-
um knattspyrnumönnum sem i
deildinni leika, langtum framar en
margar heimsfrægar knatt-
spyrnustjörnur, að vera valinn
annar bezti knattspyrnumaður
Þýzkalands af íþróttafrétta-
mönnum, að vera valinn annar
tveggja leikmanna á heimsmæli-
kvarða í þýzku knattspyrnunni af
stærsta knattspyrnutimariti þar í
landi, að vera valinn 13. bezti
knattspyrnumaður i heimi af les-
endum blaðsins World Soccer.
Þetta eru að mínu mati iþróttaaf-
rek sem ber hærra en öll önnur,
sem Islendingur vann á árinu
1984. Ég vil meira að segja ganga
svo langt að telja þetta eitt mesta
ef ekki mesta íþróttaafrek sem Is-
lendingur hefur nokkurn tima
unnið.
Staðreyndin er sú, að Ásgeir
Sigurvinsson hefur verið kjörinn
íþróttamaður ársins 1984. Eg tel
kosningu hans verðuga og svo
telja vonandi fiestir aðrir. Ásgeir
á það ekki skilið að menn uppi á
fslandi séu að gera litið úr afrek-
um og kjöri hans í blöðum og telji
kjörið jafnvel hneyksli. Slik skrif
eru hneyksli og örugglega gegn
vilja hins ágæta iþróttamanns
Bjarna Friðrikssonar, sem vissu-
lega hefði sómt sér vel sem
íþróttamaður ársins. En það getur
aðeins einn sigrað og sá dómur
liggur fyrir.
Sigtr. Sigtryggsson
Þessir hringdu . . .
Komumst ekki
á hátíðina
Duran Duran-aödáandi hringdi:
Ég er mikill aðdáandi
hljómsveitarinnar Duran Duran.
Ég sá í Morgunblaðinu auglýs-
ingu um mikla Duran Duran-
hátíð sem haldin var sl. fimmtu-
dag í Safarí. Þar var aldurs-
takmark hins vegar 16 ára og ég,
sem er 13 ára og allir Duran
Duran aðdáendur á mínum aldri,
komumst því ekki á hátíðina.
Væri nú ekki hægt að halda aðra
slíka skemmtun fyrir krakka á
aldrinum 13 til 16 ára, svo að
okkur ungu kynslóðinni sé ekki
mismunað á þennan hátt?
Léleg
útvarpssaga
Oddfríöur hringdi:
Ég vil láta í ljós megna
óánægju mína yfir útvarpssög-
unni sem nú hefur hafið göngu
sína á rás 1. Heitir hún Morgun-
verður meistaranna og er eftir
Kurt Vonnegut. Ég fæ ekki
nokkurn botn í söguna og alls
engan söguþráð. Auk þess eru
bæði klám og blótsyrði allsráð-
andi í sögunni.
Hvar á að leita
upplýsinga?
Reiöur hundaeigandi hringdi:
Eins og fram hefur komið i
blöðum rennur út frestur til að
skrá hunda í Reykjavlk þann 9.
febrúar. En hvergi kemur þó
fram í fréttum hvert menn eiga-
að snúa sér til að fá leyfi fyrir
hunda sína. Hvar á að ná í eyðu-
blöð og annað slíkt? Æskilegt
væri að upplýsingar væru gefnar
i tíma þannig að fólk sé ekki til-
neytt til að vera á síðustu
stundu. Svo langar mig til að
lýsa yfir furðu minni á því sem
okkur hundaeigendum ber að
greiða fyrir skráningu, eða 4.800
krónur. Þetta er drjúgur skild-
ingur fyrir þá sem lifa á litlum
launum eða ellilifeyri, sjúkra-
dagpeningum eða öðru. Valda-
menn þjóðarinnar taki þetta til
athugunar.
Komið verði upp
gönguljósum
Helga Helgadóttir, starfsmaöur
í Þjónustuíbúóum aldraöra á
Dalbraut hringdi:
Mig langar fyrir hönd starfs-
fólksins hér að leggja eina fyrir-
spurn til gatnamáladeildar.
Þannig er, að gamla fólkið hérna
á Dalbraut þarf að fara yfir
Brúnaveginn til þess að komast í
verslanir við Laugarásveginn og
eins til þess að ná í strætisvagn.
Umferð er mjög mikil eftir göt-
unni og fólkið á oft í stökustu
vandræðum með að komast
hjálparlaust yfir.
Væri nú ekki athugandi hvort
hægt er að setja þarna upp
gönguljós til að auðvelda gamla
fólkinu í umferðinni?
íþróttir fyrr
á kvöldin
íþróttamaöur hringdi:
Mér finnst ófært að íþrótta-
þátturinn í sjónvarpinu á mánu-
dögum skuli sýndur svo seint,
þar sem ég og margir aðrir þurfa
að mæta snemma i skóla eða
vinnu á morgnana. Þá finnst
mér að sýna mætti í íþrótta-
þættinum myndir frá golfkeppni
nú þegar golfáhugamenn verða
að láta sér lynda að hvíla kylf-
urnar yfir vetrartímann.
Um vinsælda-
lista rásar 2
Flosi hringdi:
Ég vil taka undir orð tveggja
unglinga sem skrifa f dálka þína
sl. miðvikudag og hvetja eldri
hlustendur rásar 2 til þess að
taka þátt f vali vinsældalistans.
Málið er að þeir sem virðast
taka þátt f valinu að jafnaði eru
15 ára unglingar og útkoman er
sú að hljómsveitir eins og Duran
Duran, Limahl og Wham verma
efstu sætin viku eftir viku.
Hvet ég hlustendur rásar 2,
þ.e. 18 ára og eldri, til þess að
hringja og velja vinsældalista
vikunnar.
Að lokum vil ég þakka Krist-
jáni Sigurjónssyni fyrir mjög
góða þjóðlagaþætti á rás 2.