Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 39. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins AP/Símamynd. Frá blaðamannafundinum í Moskvu í g*r. Garri Kasparov er í ræðustóli, en næstur Ijósmyndaranum er heimsmeistarinn Anatoly Karpov. Við hlið Karpovs situr ('ampomanes, forseti Alþjóðaskáksambandsins. Kasparov á blaðamannafundi um frestun heimsmeistaraeinvígis í skák: Verið að koma í veg fyrir að ég gæti unnið Moskvu, 15. febrúar. AP. Garri Kasparov, áskorandinn í heimsmeistaraeinvíginu í skák, sagði að frestun einvígisins væri einungis til að koma í veg fyrir að hann gæti unnið í einvíginu. ("ampomancs, forseti Alþjóðaskáksambandsins, sagði á há- vaðasömum blaðamannafundi í Moskvu að einvíginu hefði veriö hætt og nýtt hæfist 1. september nk. Hafa margir á orði að þetta mál allt sé mesta hneyksli skáksögunnar. Brezka námadeilan: Er lausn í augsýn? London, 15. febriinr. AP. LEIÐTOGAR kolanámamanna fund- uðu í dag með leiðtogum brezku verkalýðssamtakanna (TUC) þar sem fjallað var um nýja „uppskrift" að við- ræðum, er leitt g*ti til þess að endi yrði bundinn á kolaverkfallið. Fulltrúar TUC og brezka kolafé- lagsins (NCB) náðu samkomulagi um nýjan viðræðugrundvöll eftir fjóra leynifundi. Þar er gert ráð fyrir tafarlausum samningaviðræð- um sem snúast skuli fyrst og fremst um ágreiningsefni deiluaðila, fyrir- hugaða lokun óarðbærra náma. Þar með félli ríkisstjórnin frá þeirri kröfu sinni að samtök náma- manna gæfu skriflega staðfestingu áður en til nokkurra samn- ingaviðræðna kæmi um að þau við- urkenndu rétt kolafélagsins til að loka óarðbærum námum. Kolafélagið skýrði frá því í dag að 2.092 námamenn hefðu snúið baki við verkfallinu í vikunni og því væru 85.500 námamenn að störfum, eða 46% allra námamanna. Walesa á yfir höfði sér ákæru Varsjá, 15. febrúar. AP. LECH Walesa leiótoga Samstöðu hefur verið boðaður til saksóknara Gdansk-borgar til yfirheyrslna og á hann yfir höfði sér að verða ák*rður fyrir að *sa til óspekta, að sögn að- stoðarmanns Walesa. Einkennisklæddir lögreglumenn afhentu Walesa stefnuna á heimili hans. Þar er honum gefið að sök að hafa brotið eina grein hegn- ingarlaganna með þátttöku í leynifundi Samstöðuleiðtoga, sem lögreglan leysti upp í fyrradag. PAP-fréttastofan sagði að „þar hefði átt að undirbúa uppþot", en Walesa segir að fjallað hafi verið um óskir Samstöðuleiðtoga um 15 mínútna mótmælaverkfall 28. febrúar nk. vegna fyrirhugaðra verðhækkana stjórnarinnar á matvælum í næsta mánuði. Walesa var sleppt strax, en aðr- ir fundarmenn færðir til yfir- heyrslu. Hafa sjö þeirra verið ákærðir fyrir brot á hegningarlög- gjöfinni. Hafa þrír þeirra, Adam Michnik, Bogdan Lis og Wladysl- aw Frasyniuk, verið fangelsaðir til bráðabirgða. Verði Walesa og félagar hans sekir fundnir eiga þeir yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Campomanes sagði á blaða- mannafundinum að nýtt einvígi hæfist næsta haust þótt ekki væri búið að fá samþykki keppendanna. Var hann tvísaga um heilsufar heimsmeistarans á fundinum. IKarpov var ekki á fundinum til að byrja með en stormaði skyndilega í salinn og upp á svið, þreif hljóð- nemann úr hendi Campomanes og mótmælti því hástöfum að einvíg- inu skyldi hætt. Kasparov tók til máls á eftir Karpov og hrópaði fremur en tal- aði til Campomanes og krafðist skýringa á frestuninni. Biturleik- inn leyndi sér ekki er Kasparov hrópaði yfir fundarsalinn: „Það er bara verið að koma í veg fyrir að ég geti unnið í einvíginu. Heims- meistaranum líður illa. Hann er hér, en hann er ekki vel fyrir kall- aður. Nú hef ég tækifæri til að sigra en þá á að koma í veg fyrir það. Ég vil tefla áfram og sleppa öllum frestunum. Með hverri töf færist Karpov nær sigri.“ Kasparov lýsti blaðamanna- fundinum sem vel undirbúinni leiksýningu þar sem allir hefðu kunnað sína rullu. Hefur hann staðfest, að eftir aðra sigurskák sína, 30. janúar, hafi verið farið fram á það við hann að einvíginu yrði hætt, og það síðan ítrekað er hann vann þá þriðju. Þegar Campomanes skýrði frá því, að einvíginu hefði verið hætt, sagði hann ástæðuna vera, að ein- vígið hefði tekið svo mikinn toll af líkamlegu og andlegu þreki kepp- endanna beggja Þegar hann var spurður hvort það þýddi. að Karp- ov gæti ekki teflt áfram, sagði hann flestuni til mikillar furðu, að hann hefði hiti Karpov 25 mínút- um fyrir fundinn og hefði Karpov þa verið hinn hressasti og beðið um að einvígið fengi að halda áfram. Sji nánar „Skákheimurinn má ekki sælta sig við þessi úrslit" og „Campomanes dregur taum Karp- ovs“ á bls. 24 og 25. Grænland: Þorskkvótinn skorinn niður í 25.000 tonn t.rjrnlandi. 15. febniar. f’ri NiLs Jör(en Bruun, frétUritara Mbl. GRÆNLENSKA heimastjórnin hef- ur ákveðið, hversu mikið megi veiða af þorski í grænlenskri fiskveiðilög- sögu á þessu ári. Verða þorskveiðar mjög dregnar saman. Leyfilegur heildarafli verður aðeins 25.000 tonn vegna hins geigvænlega samdráttar i þorsk- veiðunum í fyrra. Þetta hefur í för með sér, að ekki verður unnt að úthluta Evr- ópubandalaginu neinum þorsk- kvóta. f fiskveiðisamningnum við bandalagið segir. að aðeins það sem Grænlendingar geti ekki veitt sjálfir, komi til úthlutunar handa EB þo þannig ao fyrstu 50.000 tonnin komi ávallt i hlut. Græn- lendinga. Grænlendingar eignast eigin fána GrKnlandi, 15. febrúar. Krá Nils Jörgen Kmun. GR/ENLAND f*r nú sinn eigin fána samkv*mt ákvörðun gr*n- lenska landsþingsins. Hingao til hefur danska fán- anuni verið flaggað i Grænlandi, en langt, er síðan sú ósk kom fram, aö landiö fengi eigin fána. á sama hátt og annað danskt. frétUriUra Mbl. heimastjórnarland, Færeyjar. Við atkvæðagreiðslu í lands- þinginu greiddu 14 þingmenn at- kvæði með tillögu um rauðan og hvítan fána : stað hins danska Tillaga uni fána. seni vær' eins og hinn danski. nema með græn- um lit i staö hins hvíta, fékk 11 atkvæði. Grænlenski fáninn verður þannig, að hann skiptist lárétt í miðju, rauður að ofan. hvítur neðra. Aðeins tii vinstri við lóð- rétta miðju verður hringur, hvit- ur i rauða helminguum. en rauð- ur í hvíta heimingnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.