Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985 5 ACosta del Sol finna allir eitthvaö viö sitt hæfi. Þessvegna leitar fólk þangaö aftur og aftur og endurnýjar drauminn um sól, fegurð, hvíld, skemmtun og lífsnautn meö ótal tilbrigöum. Þú teygar af þessum lífsnægtabrunni um leið og þú nýtur geisla suörænnar sólar viö fagurblátt Miðjarðarhafiö, sem á máli sagn- fræöinga er kallaö „Vagga vestrænnar menningar“. Á Costa del Sol býöur ÚTSÝN fjölbreytt úrval glæsi- legra gististaöa — hér er „draumaland sælkerans", Tívolíiö er skemmtigaröur, sem vart á sinn líka í Evr- ópu, og í fyrra bættist viö vatns-íþróttastaöurinn AQUA AQUA PARK, sá stærsti í álfunni, sem strax varö óhemjuvinsæll hjá farþegum. Helstu gístistaðir: jin iURÐARSAMKEPPNI >ÝNAR adway á morgun kl. 13 T'- n feröakynning i 12 deiidum — ;ýning - skemmtiatriöi. Ókeypis aö- ir og feröahappdrætti. Feröaskrifstofan Austurstræti 17, sími 26611. Akureyri: Ráöhústorgi 3, sími 25000. La Nogalera verö frá kr. 22.840 Santa Clara verð frá kr. 27.030 verö frá kr. 24. 100 El Rem0 jy QA verö frá kr. Z í .4oU og nýi gististaöurinn Júpíter verö frá kr. 22.030 Páskaferðin fer fullskipuð é hverju ári og selst fljótt upp. — PANTIÐ MEÐAN PLÁSS ER — Nýja tollalagafriimvarpið: Hæstu tollar lækka úr 80 í 40 prósent - sagði Geir H. Haarde, aðstoðarmað- ur fjármálaráðherra, á aðalfundi stór- kaupmanna AÐALFUNDUR Félags íslenskra stórkaupmanna var haldinn sl. Hmmtudag að Hótel Sögu. Gestur fundarins var Geir H. Haarde, aó- stoðarmaður fjármálaráðherra, og ílutti hann erindi á fundinum og svaraði fyrirspurnum. I frétt frá FÍS segir að í máli hans hafi meðal ann- ars komið fram að væntanlegt er frumvarp til tollalaga, þar sem sam- einaðir verða þrír eldri lagabálkar. í frumvarpinu verður kveðið á um lægri en jafnari tolla en nú eru, og verða hæstu tollar 40% í stað 80% nú. Geir greindi frá ýmsu, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, til ein- földunar og hagræðingar á toll- meðferð, svo og þeim fjáröflunar- ieiðum sem fyrirhugaðar eru til þess að vega upp á móti þessum breytingum. Þá gerði hann grein fyrir áhrifum virðisaukaskatts á starfsemi heildverslana. Torfi Tómasson, formaður FÍS, flutti ræðu og fjallaði m.a. um ár- angur af frjálsri verðmyndun, sem spáð var á síðasta aðalfundi að myndi leiða til lækkandi verðlags. Þessi spá hefur ræst, sagði Torfi, því hækkanir voru áberandi minnstar á sl. ári á þeim innfluttu vörum, þar sem samkeppni ríkti við frjálsa verðmyndun. Hann sagði okkur lifa á tímum örra breytinga og benti margt til þess að þróun yrði hraðari í innflutn- ingi en nokkru sinni fyrr. Kæmi þar margt til, svo sem ný tækni, breytt viðhorf í viðskipta- og fjár- málum og betri skilningur á hlut- verki þessarar starfsgreinar. Torfi Tómasson var endurkjör- inn formaður Félags íslenskra stórkaupmanna til næstu tveggja ára. Með honum í stjórn eru: Bragi Jónsson, Elín Egilsdóttir, Ey- steinn Árnason, Haraldur Harald- son, ólafur H. ólafsson og Páll Bragason. Nokkrar ályktanir voru sam- þykktar á fundinum, m.a. um frjálsa verðmyndun, skattamál, tollamál, kjaramál, peningamál og skipulagsmál. f ályktuninni um frjálsa verðmyndun er fagnað þeim skrefum, sem stigin hafa verið til aukins frjálsræðis í versl- un og viðskiptum sem leitt hafi til harðnandi samkeppni og lægra vöruverðs. „Reynslan hefur enn einu sinni sýnt að ótti við aukið frjálsræði í viðskiptum hefur jafnan verið ástæðulaus og að af- nám hafta og skömmtunar hefur orðið til góðs fyrir almenning í landinu", segir í ályktuninni. Þá er hvatt til áframhaldandi starfa á þessari braut. í tillögu um skipulagsmál heild- Þorlákshöfn: Vinna hafin á ný í Meitlinum l>orlákNhófn, 14. febrúar. VINNA hófst í frystihúsi Meitilsins á nýjan leik í gær eftir nærri tveggja mánaða stöðvun. Meðan vinna í hús- inu lá niðri voru báðir togarar fyrir- tækisins sendir í klössun til Akur- eyrar. Gagngerar breytingar voru einnig gerðar á vinnslusal: öllum vélum og tækjum var rutt út úr salnum og hann flísalagður í hólf og gólf, færibönd voru endurnýjuð og tölvubúnaði frá Pólnum hf. á ísafirði komið fyrir. Atvinnuástand í Þorlákshöfn hefur verið með allra versta móti undanfarið vegna breytinganna og ekki hefur bætt úr skák, að afla- brögð á þessum árstíma hafa ekki verið jafn léleg svo lengi sem elstu menn muna. — JHS. 3. apríl — 12 dagar (aöelns 4 vinnudagar) verslunar er skorað á borgaryfir- völd að láta gera úttekt á þörfum heildverslunar fyrir landsvæði til starfsemi sinnar áður en meira landi verður ráðstafað í grennt við Sundahöfn. Fundurinn fól stórn FlS að gera könnun á því meðal félagsmanna, hvort tímabært sé að reisa nýja heildsölumiðstöð á hafnarsvæðinu. Frá aðalfundi Félags íslenskra stórkaupmanna á fimmtudag. Með Útsýn beint í sólina og vorið við Miðjarðarhafið PÁSKAFERÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.