Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985 25 , , AP/Símamynd. SIÐASTA SKAKIN Stórmeistararnir að tafli í síóustu skákinni í þessari lotu. Garri Kasparov, áskorandinn, er vinstra megin og Anatoly Karpov hægra megin við borðið. AP/Símamynd. Kasparov rís úr sæti sínu til að auð- sýna óánægju sína með frestun ein- vígis þeirra Karpovs. vel og svara þeirri spurningu.“ Það var púað á Campomanes þeg- ar hann svaraði og sagði, að hann hefði gjarnan viljað geta talað við keppendurna en það hefði bara verið þannig, að hann hefði ekki getað náð í þá. „Nú erum við hins vegar allir samankomnir og það er gott. Nú skulum við setjast niður og ræða málin.“ Má Kasparov ekki sigra? Kasporov hrópaði nú yfir salinn og biturleikinn leyndi sér ekki. „Það er bara verið að koma í veg fyrir, að ég geti unnið í einvíginu. Heimsmeistaranum líður illa. Hann er hér, en hann er ekki vel fyrir kallaður. Nú hef ég tækifæri til að sigra en þá á að koma í veg fyrir það. Ég vil tefla áframo og sleppa öllum frestunum. Með hverri töfl færist Karpov nær sigri,“ sagði Kasparov. „Ég treysti ekki forsetanum“ Karpov lagði nú til, að blaða- mannafundinum yrði frestað og efnt til sérstaks fundar með Campoman- es og keppendunum og öðrum við- komandl. Fulltrúi sovéska utanrik- isráðuneytisins var þá fljótur að lýsa því yfir, að fundinum væri lokið en þegar þeir keppendurnir gengu út af sviðinu sagði Kasparov við ná- læga fréttamenn: „fundur með for- seta FIDE er ekki til neins. Ég treysti ekki forsetanum." Að fundinum loknum kom Camp- omanes aftur fram á sviðið og til- kynnti, að Karpov hefði fallist á að hætta einvíginu og aðKasparov „ætlaði að hlýða". „Já, auðvitað verð ég að hlýða,“ sagði Kasparov við fréttamenn á eftir og vék siðan máli sínu að yfir- lýsingu Karpovs. „Ég veit ekki hvort hann meinti það þegar hann sagðist vilja halda áfrm að tefla. Blaða- mannafundurinn minnir mig sterk- lega á vel undirbúna leikæfingu þar sem allir kunna sína rullu.“ Voru veikindin sett á svið? Kasparov hefur staðfest, að eftir að hann vann aðra skákina 30. janú- ar hafði verið farið fram á það við hann, að einvíginu yröi hætt og það síðan ítrekað þegar hann vann þá þriðju. Eftir heimildum meðal skákmanna í Moskvu er haft, að Campomanes hafi hitt Kasparov að máli sl. fimmtudag og haft þá með- ferðis bréf frá sovéska skáksam- bandinu þar sem veikindum Karp- ovs var lýst. Þegar Campomanes skýrði frá því, að einvíginu hefði verið hætt, sagði hann ástæðuna vera, að ein- vígið hefði tekið svo mikinn toll „af líkamlegu og andlegu þreki kepp- endanna beggja“. Þegar hann var spurður hvort það þýddi, að Karpov gæti ekki teflt áfram, sagði hann flestum til mikillar furðu, að hann hefði hitt Karpov 25 mínútum fyrir fundinn og „Karpov var þá hinn hressasti og bað mig um, að einvígið fengi að halda áfram“. „Ég hef margsinnis sagt, að ég vilji halda einvíginu áfram og ég er við hestaheilsu," sagði Kasparov í dag við fréttamenn, „en þeir hafa verið að reyna að telja mér trú um, að svo væri ekki og borið við alls kyns tylliástæðum öðrum til að fá mig til að hætta. Skákheimurinn má ekki sætta sig við þessi úrslit“ Campomanes sagði, að einvígið myndi hefjast aftur 1. september og báðir keppendur byrja jafnir, með engan vinning úr einvíginu, sem nú hefur verið hætt. Hann sagði ekkert um tilhögun þess að öðru leyti og kvað hana mundu rædda á þingi FIDE í ágúst. Reglur FIDE kveða á um, að ef heimsmeistari tapar titl- inum í einvígi getur hann farið fram á annað innan sex mánaða. Kasp- arov er sagður andvígur því að Karpov hafi þann rétt í haust því að það sé þá seinna einvígið, en sagt er að Karpov leggi áherslu á að hafa þessi réttindi áfram. ANNAFARGJALD Arnar- flugs gerir þér kleift að fara I stutta ferð tll útlanda í mlðrl viku fyrir 38% lægra verð en hingað til og þú þarft ekki að dveljast erlendis yfir helgi til að ná þessum sparnaði. Þú getur því varið helginni heima með Qölskyldunni, í stað þess að dveljast í hótelherbergi er- lendis einungis til þess að geta ferðast á lægra fargjaldi. Fjöl- skyldan verður örugglega ánægð með þessa breytingu. Á undanförnum árum hafa komið á markaðinn ýmis sérfar- gjöld - græn, rauð, PEX, APEX - mun lægri en almenna far- gjaldið. Farþegar eru að vonum ánægðir með þessa þróun. En fargjöldunum fylgir sú kvöð, að farþegarnir verða að dvejjast er- lendis yfir helgi. Þeir, sem hafa þurft að fara í stuttar ferðir til útlanda, gjarnan í viðskiptaer- indum, hafa því annaðhvort orðið að greiða hæsta fargjaldið eða orðið að dvejjast erlendis yfir helgi til að ná lágu sérfar- gjaldi. ANNAFARGJALD Arn- arflugs - 20.435 krónur til Amsterdam - breytir þessu dæmi. Þurfirðu að fara í stutta ferð erlendis, er ávinningur þinn margvíslegur Melra en 12.500 ARNARFLUG Lágmúla 7 Sími 84477 króna lækkun fargjalds, mið- að við almennt fargjald, eng- inn oþarfur dvalarkostnaður erlendis yfir helgl, betri nýt- ing vinnudaga og síðast en ekki sfst - þú getur verið heima hjá fjölskyldunni um helgina. Það eru því fleiri en þú sem eru ánægðir með nýja ANNAFARGJALDIÐ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.