Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985 Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins: Bjóðum stcttasamvinnu og skattalækkunarleið „Ruglið í félagsmálaráðherra verður að hætta,“ sagði Birgir ísl. Gunnarsson um húsnæðismálin „Á NÆSTU vikurn og mánuAum mun stjórnmálabaráttan snúast um tvær stefnur: StéttastríA og skattahækkunarleid Alþýðubandalagsins og stéttasamvinnu og skattalækkunarleið SjálfstæAisflokksins,“ sagAi Þorsteinn Fálsson, formaAur SjálfstæAisflokksins, í ræAu á almennum stjórnmálafundi sjálfstæAisfélaganna í Reykjavík sem haldinn var í Valhöll á fimmtudagskvöldiA. Frummælendur á fundinum kvæmdastjórnar flokksins. Það voru þrír: Þorsteinn Pálsson, Frið- rik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Birgir Isl. Gunnarsson, formaður fram- kom fram í máli þeirra allra, að nú væri brýnt að ná sáttum og samkomulagi milli ríkisvaldsins og aðila vinnumarkaðarins um ár- angursríka efnahagsstefnu sem treysti undirstöður atvinnulífsins og veitti varanlegar og raunhæfar kjarabætur. Húsnæðismálin Bæði Þorsteinn Pálsson og Birg- ir fsl. Gunnarsson lýstu óánægju sinni með það hvernig ríkisstjórn- in hefði staðið að húsnæðismálun- um. Þorsteinn lagði á það höfuð- Morgunblaðið/Bjarni Frá fundi sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á fimmtudagskvöldið: Friðrik Sophusson, Birgir ísl. Gunnarsson, Þor- steinn Pálsson og Drífa Hilmarsdóttir, fundarritari. áherslu, að ekki mætti hvika frá sjálfseignastefnu Sjálfstæðis- flokksins í húsnæðismálunum, það kostaði jafn mikið að smíða íbúð hvort heldur það væri gert af leigusamtökum eða einstaklingi. Miklu nær væri að styðja einstakl- inginn og skapa þar með eign hjá honum. Birgir ísl. Gunnarsson sagði að húsnæðismálin hefðu ver- ið í molum eftir stjórn Svavars Gestssonar, formanns Alþýðu- bandalagsins, á þeim. Og hann sagði um meðferð Alexanders Stefánssonar á þessum mála- flokki: „Ruglið í félagsmálaráð- herra Framsóknarflokksins er orðið óþolandi. Krafan er að stefna Sjálfstæðisflokksins nái frarn." Ákvöröun um kosningar ótímabær Þorsteinn Pálsson sagði að þótt ríkisstjórnin hefði sætt andbyr síðustu mánuði þá væru engin þau mál á döfinni á milli stjórnar- flokkanna, sem gæfu tilefni til að ætla, að til stórárekstra kæmi milli þeirra. Miðað við aðstæður væri ekki óeðlilegt að menn veltu því fyrir sér, hvort til kosninga kynni að koma á næstunni. Hins vegar taldi Þorsteinn ekki ástæðu til að taka ákvarðanir um það á þessu stigi. Fyrir ríkisstjórninni lægi að vinna að framkvæmd þeirra mála sem flokkarnir hefðu samið um sín á milli. Sjálfstæð- Fyrsta íslenzka ferðakaupstefnan - á vegum Útsýnar í Broadway á morgun MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá ferðaskrifstofunni Útsýn: „Á 30 ára starfsafmæli sinu hefur ferðaskrifstofan Útsýn gefið út vandað rit, litprentað, í stóru broti um ferðaþjónustu al- mennt, um starfsemi Fríklúbbs- ins, sem stofnaður var fyrir rúmu ári og telur nú á 7. þúsund félagsmenn, og jafnframt lýs- ingu á dvalarstöðum og gisti- stöðum Útsýnarfarþegar, bæði í sólarlöndum, Mið-Evrópu og í Englandi, en Útsýn býður ferðir og þjónustu um víða veröld, t.d. er Heimsreisa Útsýnar í ár alla leið til Ástralíu, Nýja Sjálands og Fiji-eyja með viðdvöl í Bangkok á útleið og Balí á heim- leið. Að sögn starfsfólks Útsýnar hefur ekkert lát verið á fyrir- spurnum og pöntunum, síðan áætlunin kom út um síðustu helgi, og hafa pantanir numið sem ávarar einum flugvélar- farmi á dag. Til að auðvelda fólki að kynn- ast ferðunum og almennri ferða- þjónustu nánar, boðar Útsýn nýjung í kynningar- og mark- aðsstarfsemi með ferðakaup- stefnu í Broadway nk. sunnudag, 17. febrúar. Þar verður komið upp ferðasýningu, bæði á sviði hússins og um allan hinn stóra sal, og skiptist sýningin i 12 deildir, sem hver hefur sitt nafn. Auk Útsýnar taka bæði Flugleið- ir hf. og Arnarflug hf. þátt í kaupstefnunni. Húsið verður opnað kl. 13.30 og er aðgangur ókeypis ásamt happdrættismiða og ferðavinningar þrír, sólar- landaferð og flugfarseðlar. Starfsfólk við ferðaþjónustu verður um 30 manns við ráðgjöf, upplýsingar og pantanir, bæði sölufulltrúar og fararstjórar, sem gagnþekkja hina ýmsu ferðamannastaði. I gangi verður ný ferðakynningarmynd á 8 sjónvarpsskermum, og geta gest- ir fengið sér sæti við borð og pantað veitingar, meðan þeir fylgjast með sýningunni, sem tekur 45 mínútur, en síðan geng- ið milli sýningardeilda, fengið bæklinga, ráðgjöf og upplýs- ingar. Kl. 15.00 verður hlé á kaupstefnunni í 20 mínútur með- an ungt fimleikafólk úr íþrótta- félaginu Bjarkirnar leika listir sínar á sviðinu, og sjálfur Ómar Ragnarsson mun bregða á leik með börnum og fullorðnum. Eins og mörg undanfarin ár verður Útsýn með umfangs- mesta leiguflugið frá íslandi. Munu Flugleiðir annast leigu- flug fyrir Utsýn til Portúgal og Spánar, en Arnarflug til Ítalíu, þar sem farþegar dveljast sumir 12. árið í röð, eða í Bibione, sem var nýjung Útsýnar í fyrra, sem seldist gjörsamlega upp. Nú hef- ur Útsýn yfir enn vandaðri íbúð- um að ráða í gististaðnum Val- bella í Bibione. Útsýn býður aft- ur Grikklandsferðir í sumar, og verður dvalist í Porto Carras á Sithonia-skaganum, alveg á strönd Eyjahafsins. Hefur sá staður vakið mikla athygli síð- ustu árin vegna fegurðar og ómengaðrar náttúru, samfara því að bjóða nýjustu gistiaðstöð- una í Grikklandi í stil við það sem bezt gerist í Suðurlöndum. Önnur nýjung Útsýnar í ár er enska Rivieran, en þar er mild- ast og sólríkast á Bretlands- eyjum og minnir bærinn Tor- quay meira á meginlandið eða Suður-Evrópu. Margar skemmti- legar akstursleiðir eru um Suð- ur-England og hægt að enda ferðina í heimsborginni London. Fáir staðir í Mið-Evrópu þykja jafnast á við Mosel-dalinn í Þýzkalandi. Þangað tók Útsýn upp ferðir í fyrra, og urðu þær svo vinsælar, að aukið verður við í ár, en þá er flogið til Luxem- borgar. Aðstaðan á Mosel Hotelpark þykir með því bezta sem gerist, enda hafa gestir yfir nýtízkuíbúðum að ráða, en geta jafnframt notið fullkominnar hótelþjónustu og farið í ferðir um nágrennið og til landanna í grennd. Útsýn hefur rekið um- fangsmikla þjónustu við þá sem leita í málaskóla erlendis i lengri eða skemmri tíma og verður það einnig kynnt á ferðakaupstefn- unni. 24 Útsýnarierb Iryggir þér mesl fyrir ferðasjódinn! 25 Úr sumaráætlun Útsýnar. ismenn vildu láta koma í ljós, hvort framsóknarmenn væru til þess búnir að standa við hin um- sömdu atriði, þegar á reyndi í framkvæmd. Þá væri eðlilegt að sjá hvort unnt yrði að ná viðun- andi niðurstöðu í kjaramálunum með samvinnu ríkisvaldsins og að- ila vinnumarkaðarins. Þessi tvö atriði myndu ráða úrslitum um framtíð ríkisstjórnarinnar og því væri ekki tímabært nú að ræða um kosningar. Stétt með stétt Þorsteinn Pálsson sagði að kjör- orð landsfundar sjálfstæðismanna nú i apríl yrði hið sama og sjálf- stæðismenn hefðu sett fram í upp- hafi: Stétt með stétt. Sjálfstæð- ismenn vildu stuðla að friði og víð- tæku samstarfi í þjóðfélaginu öll- um borgurum landsins til heilla. Hann sagði, að innan Alþýðu- bandalagsins hefðu þeir aðilar hins vegar náð undirtökunum sem vildu stéttastríð, Fylkingar-félög- um hefði verið sýndur mikill trúnaður innan flokksins og þeir vildu beita verkalýðshreyfingunni fyrir sig í valdabaráttu. Væri svo komið innan Alþýðubandalagsins að hinir pólitísku forystumenn væru komnir í andstöðu við for- ystumenn verkalýðshreyfingar- innar innan flokksins. Alþýðu- bandalagið hefði að þessu leyti færst aftur um rúm fimmtíu ár og ráðamenn þar vildu nú stéttastríð eins og Kommúnistaflokkur ís- lands forðum daga. I máli Þor- steins kom fram, að hann hafði litla trú á því að sú pólitíska flugeldasýning sem Alþýðuflokk- urinn hefði efnt til gerði þann flokk hæfari til að takast á við stjórn landsmála. Birgir Isl. Gunnarsson ræddi um þrjú meginviðfangsefni: Stór- iðjumálin, landbúnaðarmálin og útvarpsmálið. Hann sagði, að sjálfstæðismenn hefðu sett fram skýra stefnu í landbúnaðarmálum og nú reyndi á vilja framsóknar til samstarfs um þau. Friðrík Sophusson skýrði frá störfum nefndar sem falið var að gera tillögur um breytingar á sjóðakerfinu. Lýsti hann tillögum nefnarinnar sem miða að því að sameina sjóði og opna fjárfest- ingasjóðakerfið, lánastarfsemi verði flutt til viðskiptabanka, Framkvæmdastofnun verði lögð niður en eftir standi Byggðastofn- un með hluta af verkefnum Fram- kvæmdastofnunar, liðkað verði fyrir sölu á ríkisfyrirtækjum og stofnað eignarhaldsfyrirtæki til að hafa umsýslu á því sviði og stofnað verði hlutafélag, þróun- arfyrirtæki, með meirihlutaeign einstaklinga. Jónas Bjarnason, formaður Varðar, setti fundinn en Sigríður Ragna Sigurðardóttir var fundar- stjóri og Drífa Hilmarsdóttir fundarritari. Nefnd semur reglur um með- ferð og sölu skuldabréfa V ióskiptaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, skipaði í dag fimm menn í nefnd til þess að semja reglur um meðferð og sölu skuldabréfa. Nefndinni er falið að athuga hvort rétt sé að binda starfsemi verðbréfa- miðlara við sérsUkt sUrfsleyfi, svo og hvort ástæða sé til að herða á eftirliti með þessum viðskiptum, m.a. með kröfum um nafnskráningu skuldabréfa og upplýsingaskyldu verðbréfa miðlara gagnvart almenn ingi og stjórnvöldum. Þá er nefnd- inni falið að athuga skatulega með- ferð skuldabréfa og koma með til- lögur til úrbóU í því efni. Formaður nefndarinnar er Sig- urgeir Jónsson, aðstoðarbanka- stjóri í Seðlabankanum, en aðrir nefndarmenn eru Árni Kolbeins- son, skrifstofustjóri í fjármála- ráðuneytinu, Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, Gestur Jónsson, hrl., og Markús Sigurbjörnsson, lögfræðingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.