Morgunblaðið - 16.02.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FKBRÚAR 1985
7
Vérd frá ^STTOÍKr^irgofuna
LxBxH: 4,145x1,630x1,385m Gengi Yen 0,16228
-door Sedan
9
HONDA Á ÍSLANDi, VATNAGÖRÐUM 24, SÍMAR 38772
— 39460.
Krókaleiðir að
sannleikanum
Honda kynnir
stóra smábílinn
Hingaö til hefur aöeins veriö ein leiö til aö gera smábíl rumbetri — stækka hann
Meö nýrri tækni hefur Honda tekist aö breyta hugtakinu „smábíll“ á undraveröan hátt.
í raun er lausnin einföld: aö minnka þaö rými sem er fyrir vél og annan búnaö og auka
sem því nemur viö farþega- og farangursrými.
Ný og aflmikil vél, ný Sportec-fjöörun ásamt tannstangarstýri gerir Honda Civíc Sedan
frábæran í akstri.
Aldrei fyrr hefur fjölskyldubifreiö í þessum stæröarflokki veriö eins rúmgóö, þægileg og
vönduö. Því má meö réttu kalla Honda Civic Sedan „nútíma bíl“.
Tæknilegar upplýsingar:
Þjóðleikhúsið sýnir Rashomon eftir
Fay og Michael Kanin byggt i sög-
um eftir Ryunosuke Akutagawa.
Þýðing: Árni Ibsen
Lýsing: Árni Baldvinsson
Leikmynd og búningar: Svein Lund-
Roland
Leikstjóri: Haukur J. Gunnarsson
Inntak þessa verks og boðskap-
ur er í senn einfalt og þó stór sið-
fræðileg spurning: Hvað er sann-
leikurinn, hvar er hann og hvernig
er hann. Og er yfirleitt einhver
algildur sannleikur. Það er engin
ný speki að velta þessu viðfangs-
efni fyrir sér en það getur verið
forvitnilegt og býður upp á ótal
kosti því að sannleikurinn er af-
stæður og einstaklingsbundinn og
það skilar sér ágæta vel í Rashom-
on, við höfum þann sannleik sem
við búum okkur til, eða skynjum
hverju sinni.
Siðfræði Japana er okkur nátt-
úrlega jafnframandi og tækju
þarlendir upp á því að færa Egil
heitinn Skallagrímsson upp á við
hjá sér eftir þeim ámóta króka-
leiðum og Rashomon fer til okkar.
Þar með er ekki sagt að ég gagn-
rýni í sjálfu sér valið á leikverkinu
til sýningar hér, okkur er ekki
nema hollt að horfa aðeins lengra
en niður á eigin nafla jafnvel þótt
þetta verk hljóti að höfða mjög
misjafnlega sterkt til áhorfenda.
Leikstjóra hlýtur að hafa verið
töluverður vandi á höndum að
skipa í hlutverk, einkum stiga-
mannsins og eiginmannsins. Hlut-
verk eiginmannsins er í höndum
Arnórs Benjamínssonar og þótt
hann skylmist fimlega fannst mér
skorta á návist hans á sviðinu þeg-
ar hann verður áhorfandi að
niðurlægingu eiginkonunnar og
ekki síður sinnar eigin, hefði í sér
þann þunga og mátt sem reyndur
leikari hefði getað ljáð því. Sama
máli þótti mér gegna um Guðjón
P. Pedersen, sem undi sér augljós-
lega prýðilega á sviðinu en vantaði
snerpu og vægi til að draga upp
mynd af stigamanninum. Því ekki
að fara þá leið að láta skyim-
ingabræðurnar um þau atriði, en
velja þjálfaðri leikara í hina þætti
hlutverkanna. Stílfærsla af því
tagi hefði gert sýninguna mátt-
ugri, að mínum dómi. Sú leið leik-
stjórans sem valin var þegar mið-
illinn kemur til sögunnar tókst
öldungis prýðilega, hvort tveggja
var að mér fannst Birgitta Heide
góð týpa og fim og að hugmynd
leikstjórans þegar eiginmaðurinn
talar *í gegnum hana skilaði sér
með ágætum. Tinna Gunnlaugs-
dóttir náði ekki að hafa nægilega
sannfærandi skil í sínum leik,
enda er skipt um snögglega og
sumt af púðrinu í persónunni eytt
of snemma. Framsögn hennar og
framganga var vel unnin.
Mennirnir þrír sem sitja við
Rashomon-hliðið, þjófurinn
Gunnar Eyjólfsson, skógarhöggs-
maðurinn Bessi Bjarnason og
presturinn Hákon Waage voru
kyndugir fýrar og eins ójapanskir
og hægt var að hugsa sér. Um
gervi þeirra má deila en umfram
allt var engu líkara en leikstjóri
og leikarar hefðu ekki getað fund-
ið þeim farveg til að samræmi
næðist milli samræðna þeirra og
leikfrásagnar þar sem hinar per-
sónurnar taka við. Leikmyndin
var glæsileg og óvenjuleg um
margt.
Óhjákvæmilegt er að þetta verk
veki til heilabrota og út frá ýms-
um forsendum. Þeir sem þekkja til
verka Kurasawa munu sjálfsagt
hyllast til að hafa uppi samanburð
við kvikmyndina. Sem sjálfstætt
leikhúsverk og skoðað í því Ijósi er
það þrátt fyrir ýmsa galla í upp-
færslu forvitnilegt vel í meðallagi.
Guðjón Pedersen og Arnór Benónýsson í hhitverkum sínum.
esiö
fjöldanum!
Vél: 4 cyl., 12-ventla þverstæð
Sprengirými 1500 cc
Viðbragö: 10,3 sek./100 km
Hæð undir lægsta punkt: 16,5 sm
Farangursrými: 420 lítra