Morgunblaðið - 16.02.1985, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985
35
Kjuklingadauðiim hjá Reykjagarði:
6 milljóna kr. tjón á árinu
ef ekkert verður að gert
Bann við lyfjablöndun hefur einnig valdið tjóni í öðrum búum
Kjúklingadauói vegna garna-
dreps heldur áfram í kjúklinga-
búinu Reykjagarói hf. á Reykjum
í Mosfellssveit. í janúar drápust
um 3 þúsund kjúklingar og nem-
ur tap eigenda búsins vegna
þessa um hálfri milljón kr. sem
bætist vió tæplega 2 milljón kr.
tap á sl. ári. Ef jafn mikill kjúkl-
ingadauði veróur á búinu allt árið
verður tjón Reykjagarðsmanna
vegna garnadrepsins um 6 millj-
ónir kr. á árinu. Nú hefur komið í
Ijós að óeðlilegur dauði vegna
garnadreps hefur verið í öðrum
kjúklingabúum, sem nota sama
fóður, frá því hætt var að blanda
lyfi gegn veikinni í fóðrið.
Stjórnendur búsins, Bjarni
Ásgeir Jónsson og Jón Bjarna-
son, fóru á fund landbúnaðar-
ráðherra á miðvikudag og fóru
fram á það að hann beitti sér
fyrir því að undanþága verði
veitt frá reglugerð sem bannar
lyfjablöndun í kjúklingafóður
þannig að hægt verði að blanda
nitrovin aftur í kjúklingafóðrið.
Bjarni Ásgeir sagði að land-
búnaðarráðherra ætlaði að
skoða málið og hefðu þeir beðið
hann að flýta því.
farfÍ ‘i *
5—6 vikna kjúklingar i Reykjagarði sem garnadrepið herjar á þessa
dagana.
Bjarni Ásgeir
kvæmdastjóri
Reykjagarðs hf.
Jónsson, fram-
kjúklingabúsins
Á miðvikudag komu nokkrir
kjúklingabændur í Mosfells-
sveit saman til fundar og gengu
frá áskorun til ráðherra um að
undanþágan yrði veitt. Vitað er
um vilja annarra kjúklinga-
bænda til hins sama, ekki síst
þeirra sem nota KFK-fóðrið frá
Danmörku, sem hætta varð við
að blanda nitrovini í fyrra.
Garnadreps hefur ekki orðið
vart, svo vitað sé, í kjúklinga-
búum sem nota kjúklingafóður
sem SÍS flytur inn frá Svíþjóð
og hefur það komið til tals með-
al kjúklingabænda hvort hugs-
anlegt sé að nitrovin sé blandað
í það fóður.
Bjarni Ásgeir sagði að nú
væri að koma til landsins fóð-
urskip með fóðurbirgðir til eins
og hálfs mánaðar sem engin lyf
væru í. Væri nauðsynlegt að
undirbúa málið þannig að
næsta sending verði með nauð-
synlegum efnum í og því áríð-
andi að undanþága fáist strax.
Sagði Bjarni nauðsynlegt að
reyna lyfjameðferð, svo sem
súlfa, á kjúklingunum, til að
minnka tjónið þangað til leyfi
fengist til að blanda nitrovini í
fóðrið. „Það er ekki nokkur leið
að reka búið með þetta yfirvof-
andi,“ sagði Bjarni Ásgeir.
Ásgeir Eiríksson, kjúkl-
ingabóndi á Klettum í Gnúp-
verjahreppi, sagði í samtali við
Mbl. að í sumar hefði um skeið
verið óeðlilega mikill kjúkl-
ingadauði sem rakinn hefði
verið til garnadreps, en hann
notar sams konar fóður og
Reykjagarður. Hefði hann orð-.
ið fyrir gífurlegu tjóni, því
kjúklingarnir hefðu hrunið tug-
um saman niður á hverri nóttu.
Síöan hefði þetta af einhverjum
ástæðum lagast og lægi nú
niðri. Sagði hann það skrýtið að
ekki mætti gefa kjúklingum lyf
til að halda í þeim lífinu á með-
an öðrum búfjártegundum
væru gefin lyf eftir þörfum, svo
sem lömbum við skitu og kúm
við júgurbólgu. Sagði hann að
brosað væri að Islendingum
erlendis fyrir að nota ekki
nauðsynleg hjálparefni, eins og
til dæmis Danir sem teldu úti-
lokað að framleiða kjúklinga
nema með lyfjagjöf í fóðri.
Gunnar Bjarnason:
Deila á milli búfjárrækt-
armanna og dýralækna
„ÞETTA garnadrep þekkist í flest-
um löndum. Það kemur oft fram
þegar kjúklingastofnar eru þraut-
ræktaðir, þannig að þarmar þeirra
hafa ekki við ef þeir fá ekki þetta
lyf. nitróvin,“ sagði Gunnar
Bjarnason, fyrrverandi forstöðu-
maður fóðureftirlits ríkisins og
landsráðunautur í svína- og ali-
fuglarækt, þegar álits hans var leit-
að á kjúklingadauða vegna garna-
dreps sem herjar á fugla í nokkr-
um kjúklingabúum hér á landi,
m.a. Reykjagarði í Mosfellssveit.
„En hér á landi er uppi deila á
milli búfjárræktarmanna og
dýralækna. Dýralæknarnir hafa
ekki viljað viðurkenna þær að-
ferðir sem notaðar eru í fremstu
landbúnaðarlöndum heims, það
er að gefa lyfin í fóðrinu sem
fyrirbyggjandi aðgerð. Þeir vilja
láta sjúkdóminn koma fram svo
að hægt sé að lækna hann. Með
sömu lyfjum, sjáðu til. Með
þeirra aðferð er miklu meiri
hætta á að lyfin verði í kjúkling-
unum þegar þeim er slátrað.
Ríkisvaldið lítur á dýralækn-
ana sem einhverja erkiengla og
setur þá á hærri stall en búfjár-
ræktarmenn og lætur þá skipa
sér fyrir með fóðrun búfjár.
Bændur eru aftur á móti píndir
til að búa við þennan mink, sem
óhætt er að kalla þessa veiki, í
kjúklingabúum sínum og tapa
stórfé. Ég hlustaði ekki á þessa
visku dýralæknanna þegar ég
var forstöðumaður fóðureftir-
litsins en eftirmaður minn þar
hefur tekið upp aðra stefnu og
framfylgir þeirra vilja með lög-
regluaðgerðum," sagði Gunnar
einnig.
HVERFAFUNDIR RORGARST JORA1985
Hvað hefur
áunnist,?
Hvert stefnum
við?
DAVÍÐ ODDSSON BORGARSTJÓRI FLYTUR RÆÐU
OG SVARAR FYRIRSPURNUM FUNDARGESTA.
1.FUNDUR
Langholtshverfi —
Laugarneshverfi
Laugardaginn 16. febrúar kl. 14.30 í
Veitingahúsinu Glæsibæ.
Fundarstjóri: Gunnlaugur G. Snædal
háskólanemi.
Fundarritari: Erla Wigelund kaupmaöur.
Á fundinum verða sýnd likön,
litskyggnur og skipulagsupp-
drættir.
REYKVÍKINGAR!
FJÖLMENNIÐ Á HVERFAFUNDI BORCARSTJÓRA.
KOMII) SJÓNARMIDUM YKKAR Á FR.AMFÆRI OC KYNNIST
UMHVERFI YKKAR BETUR.