Morgunblaðið - 16.02.1985, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1985
Blað og kort
gegn ratsjám
Andstæðingar ratsjárstöðva á
Vestfjörðum hafa gefið út blaðið
Ratsjá. Útgefendur kalla sig 1.
desember hópinn en ábyrgðar-
maður blaðsins er sr. Lárus Þ.
Guðmundsson. Finnbogi Her-
mannsson setti blaðið en Jón
Sigurpálsson og sr. Jakob
Hjálmarsson sáu um útlit og
umbrot.
Forsíðugreinin heitir Baráttan
fyrir lífinu og þar segir meðal
annars: „Baráttan fyrir herrat-
sjám hér í næsta nágrenni ætti að
vekja okkur öll til umhugsunar og
aðgerða til þess að við getum ekki
og þurfum ekki að ásaka okkur i
framtíðinni fyrir að hafa ekki lagt
okkar af mörkum til að leiðrétta
vegvilltan heim ... Verum minnug
þess, að andinn hefur áður sigrað
þursa og tröll ... Davíð felldi
Golíat.“
Sömu aðilar og gefa út Ratsjá
hafa látið prenta kort með mynd
af Jónasi í hvalnum og er hún
„sett inn í vestfirska veröld," eins
Hcrra forsætisráðhcrra
Steingrimur Hermannsson
Stjórnarráðshúsinu
101 REYKJAVlK
Jónas spámaöur Stigahlíö Ijós af óshyrnu.
Tilvltnun í Flatartungufjalirnar
Hofundur: Jón Sigurpálsson
Jónas í hvalnum er táknið sem ratajárandstæðingar á Vestfjörðum hafa valið sér á kort sem þeir vilja að sent sé
ráðamönnum
og það er orðað. í Ratsjá segir að
myndin sé táknræn og þeir sem
gefi út blaðið vilji ekki farast
„sem Jónasi og flýja undan því
sem á okkur hvílir og hvorki vilj-
um við að óhugnaður vígbúnað-
arkapphlaupsins, sem er ein við-
urstyggileg hjáguðadýrkun, gleypi
okkur, né nokkur borg verði fram-
ar eydd,“ eins og segir á baksíðu
Ratsjár.
Kort þessi eru þannig gerð, að
menn geta ritað nöfn sín undir
texta á þeim og sent þau forsæt-
isráðherra eða öðrum.
Samstarfi
um Gauk-
inn lokið
SelfoHNÍ, 12. janúar.
SLITNAÐ hefur upp úr samstarfi
því sem Héraðssambandið Skarp-
héðinn og Ungmennasamband
Kjalarnesþings áttu með sér um
útihátíðina Gaukinn á sl. sumri.
Samkoma þessi gaf héraðs-
samböndunum dágóðar tekjur og
var m.a. liður í því að þau gátu
tekið myndarlega þátt í Lands-
mótinu í Keflavík.
Óánægju gætti meðal Skarp-
héðinsmanna um ákveðin atriði í
samvinnunni sem þeir gátu ekki
sætt sig við. Reyndar kom upp
brestur í samstarfinu á sl. vori.
Báðir aðilar töldu sig eiga tilkall
til útisamkomunnar og fóru því
fram á það við Skógrækt ríkis-
ins, sem er eigandi landsins í
Þjórsárdal þar sem útiskemmt-
unin fór fram, að fá leyfi til
skemmtanahalds um verslun-
armannahelgina á komandi
sumri.
Lyktir þessa máls urðu þær að
Héraðssambandið Skarphéðinn
fékk leyfi Skógræktarinnar til
að halda skemmtun á svæði þess
í Þjórsárdalnum en Ungmenna-
samband Kjalarnesþings fékk
leyfi til skemmtanahalds um
hvítasunnuna.
Það verður því HSK sem held-
ur Gaukinn ’85 um verslunar-
mannahelgina.
Sig Jóns.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!