Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 4
?4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 Þrjú fyrirtæki í Þorlákshöfn vilja kaupa Bjarna Herjólfsson — Togarinn má ekki fara frá Suðurlandi, segir Eggert Haukdal RÍKISSTJÓRNINNI barst í gær bréf frá þrernur útgerðarfyrirtækj- um í l'orlákshöfn, þar sem leitað er stuðnings hennar við að togar- inn Bjarni Herjólfsson verði áfram gerður út frá Suðurlandi. Bréf þetta undirrita Hafsteinn Asgcirs- son fyrir hönd Elliða hf., Hallgrím- ur Sigurðsson fyrir hönd Suðurvar- ar hf. og Einar Sigurðsson fyrir Auðbjörgu hf. I'essir aðilar hafa gert Landsbankanum tilboð í tog- arann, og átt í viðræðum við bank- ann, en eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær, hefur bankinn ákveðið að taka upp samninga við Útgerðarfélag Akureyringa um sölu togarans til Akureyrar. Eggert Haukdal, einn af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að tilboð Þorlákshafnarmanna til Landsbankans væri sambæri- legt við önnur tilboð. Þingmað- urinn sagði, að mikill þrýstingur væri heima í héraði að halda togaranum þar. Eðlilegt væri, að togarinn færi í burtu af svæðinu, ef enginn fengist til að eiga hann og reka. En þegar fyrir liggur, að dugnaðarmenn heima fyrir, sem i v; Eggert Haukdal halda uppi myndarlegum rekstri, vilja eignast skipið og gera það út, horfir málið öðru vísi við, sagði Eggert Haukdal. Togaranum fylgir mikill kvóti, sem færi annað og hér er um 30—40 störf að ræða, sagði þing- maðurinn ennfremur. „Þessi starfsmannafjöldi slagar upp í stóra verksmiðju á okkar vísu. Öll héruð leggja áherzlu á að halda togurum hjá sér. Það eru ekki gerðir út margir togarar frá sjávarplássum í Suðurlandskjör- dæmi, en fjórðungur vinnandi fólks þar starfar þó við útgerð og fiskvinnslu. Það dugar ekki að vakna upp við vondan draum þegar allt er á burt.“ Eggert Haukdal sagði, að ríkisstjórnin hefði gert sérstaka samþykkt hinn 11. desember sl., þar sem því væri beint til stjórnar Fisk- veiðasjóðs m.a., að útgerðaraðil- um í viðkomandi byggðarlögum verði að höfðu samráði við sjáv- arútvegsráðuneytið gefinn kost- ur á að semja um kaup á slíkum skipum með ákveðnum kjörum enda bjóði aðrir aðilar ekki betra heildarverð eða greiðslu- kjör. Þá sagði Eggert Haukdal, að ríkisstjórnin hefði í febrúar- mánuði sl. samþykkt, að ákveðnu fjármagni yrði m.a. varið til þess að framkvæma þessa samþykkt frá 11. des. sl. Eggert Haukdal kvaðst að lok- um treysta því, að ríkisstjórnin tryggði að togarinn Bjarni Herj- ólfsson yrði áfram gerður út frá Þorlákshöfn. Áskonin 668 nemenda Menntaskólans í Reykjavík var afhent menntamála- ráðuneytinu í dag. Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri, tók við plagginu úr hendi Tómasar Guðbjartssonar, inspector scholae, en ásamt þeim eru á myndinni skólastjórnarfulltrúarnir Hlynur Grímsson og Páll Matthíasson. Nemendur hvetja stjórnvöld til að leysa deiluna — nemendur Vélskólans mótmæla aðgeröum kennara í DAG afhentu forsvarsmenn nem- enda við Menntaskólann í Reykja- vík menntamálaráðuneytinu áskor- un 668 nemenda við skóiann, en þaö Ráðuneytisstjóri f dómsmálaráðuneytinu um mál lögreglukonunnar: Gert upp við konuna í samræmi við samninga „VIÐ áttum viðræður við Landssamband lögreglumanna, sem tók upp málið fyrir hennar hönd og við leiðréttum þennan launaflokkamun strax. Það var á misskliningi byggt að lækka hana í launaflokkum og stóð aldrei til að gera það,“ sagði Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, í samtali við Mbl. í tilefni af frétt blaðsins af málshöfðun jafnréttisráðs vegna launa lögreglukonu í barneignarfríi. „Hún fékk síðan vaktaálag greitt, gæsluvaktaálag og síma- peninga. Það, sem eftir stendur og ágreiningur getur verið um, er yf- irvinnugreiðslur. í reglugerðinni um veikindaforföll rikisstarfs- manna er ekki gert ráð fyrir þvi að meðaltal yfirvinnu sé greitt nema í veikindum og aðalreglan um þetta í kjarasamningum er sú, að ekki er greitt fyrir aðra yfir- vinnu en unnin er, ef fólk er í vinnu. Það er hins vegar rétt að með því að fara úr lögreglumanns- starfinu í sektarinnheimtu, minnkaði yfirvinnan verulega og að því leyti má segja að hún hafi haft rýrari Iaun, þar sem ekki var um jafn mikla aukavinnu að ræða, en hún þurfti heldur ekki að hafa fyrir því að vinna hana. í frétt Mbl. segir síðan: „Sam- kvæmt kjarasamningum bar henni meðaltal vaktaálags og aukavinnu i barnsburðarleyfi síð- ustu sex mánuði fyrir orlof sitt.“ Þetta er ekki rétt og stendur hvergi í kjarasamningum og hlýt- ur að vera á einhverjum misskiln- ingi byggt. Við höfum talið okkur ganga eins langt og okkur er framast heimilt að gera, með því að greiða gæsluvaktaálag og símapen- ingana. Hins vegar töldum við að í reglugerðum eða í kjarasamning- um væru ekki heimildir til að greiða aukavinnuna. Við sögðum hins vegar að við myndum taka það mál upp við fjármálaráðherra hvort að ástæða væri til að breyta reglugerðinni vegna þessa máls og jafnframt kom fram hjá okkur, eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum, að þegar lögreglukonur hafa þurft að skipta um starf vegna þungunar, þá er reynt að fá þeim störf sem henta, þannig að þær missi sem minnst i launum. Til dæmis fara þær inná fjar- skiptavaktir lögreglunnar í Reykjavík, en um þann möguleika er ekki að ræða í Kópavogi," sagði Þorsteinn Geirsson. Morgunblaðið hafði einnig sam- band við Ásgeir Pétursson, bæj- arfógeta í Kópavogi, vegna þessa máls, en honum er einnig stefnt ásamt fjármála- og dómsmála- ráðherra. Ásgeir svaraði því til, að þarna væri fyrst og fremst um kjaramál að ræða og stjórn þeirra væri alfarið í höndum launadeild- ar fjármálaráðuneytis og léti hann hana um þá hlið málsins. Hins vegar benti Ásgeir á að verk- stjórn lögreglunnar í Kópavogi væri í hans höndum og hefði hann á sinni tíð lagt svo fyrir að lög- reglukonur sem væntu sín væru ekki látnar vinna störf sem gætu haft hættu í för með sér fyrir þær eða fóstrið. Þetta takmarkaði þau störf sem lögreglukonur, sem þannig væri ástatt fyrir, gætu unnið og þannig tekjumöguleika þeirra. „Ég lagði hins vegar til 1 ágúst síðastliðnum, að ráðuneytið reyndi að finna leið til þess að kjör lögreglukvenna yrðu alls staðar hin sömu,“ sagði Ásgeir Pétursson bæjarfógeti í Kópavogi. mun vera um 83% allra nemenda MR. í áskoruninni eru stjórnvöld hvött til að leysa kennaradeiluna sem fyrst og á sem farsælastan hátt, þar sem hagsmunir nemenda skól- ans séu í húfl. Nemendur Vélskóla íslands hafa hins vegar sent Hinu íslenska kennarafélagi bréf, ásamt undirskriftalistum, þar sem segir, að kennarar hafl ekki stuðning nem- endanna í aðgerðum sínum, sem miði að því að nota nemendur sem pólitískt þvingunarafl. Námi þeirra sé því vísvitandi stefnt í hættu. Fjölmörg nemendafélög hafa tekið afstöðu til aðgerða kennara. Nemendur við Fjölbrautaskóla Sauðárkróks lýstu yfir fullum stuðningi við kennara og hvetja til skjótrar lausnar deilunnar, því mælirinn sé fullur eftir að skóla- hald féll niður í verkfalli BSRB í haust. Nemendur öldungadeildar Fjölbrautaskólans í Breiðholti hvetja báða deiluaðila til að flýta fyrir samningum, svo vinnufriður í skólunum megi haldast aö sinni. Áuk nemendafélaga hafa aðrir aðilar látið sig málið nokkru skipta. Þannig hefur samstarfs- nefnd framhaldsskólanna á Norð- urlandi sent frá sér ályktun þar sem segir, að vandi íslendinga í efnahags- og atvinnumálum verði ekki leystur nema með betri þekk- ingu og menntun á öllum sviðum. Slíkt verði ekki nema með betri skólum, en til þess þurfi hæfa kennara. Þeir fáist hins vegar ekki til frambúðar nema gegn sann- gjörnum launum. Samstarfs- nefndin skorar því á stjórnvöld að bæta úr ófremdarástandi því, sem nú ríkir í kjaramálum kennara. Tarkowskí kemur til íslands Tarkowskinefnd hefur verið stofnuó á íslandi í því skyni að fá hinn heimsþekkta kvikmyndajöfur Andrei Tarkowski hingað til lands málstað hans til stuðnings. Hefur verið ákveðið að hann komi hingað föstudaginn 15. mars nk. ásamt konu sinni. Tarkowski er — eins og flestir vita — af ýmsum álitinn vera besti kvikmyndaleikstjóri heims um þessar mundir. Hann fór til Ítalíu til að gera kvikmynd (Nostalgia) fyrir þrem árum og hefur ekki snúið til heimalands síns upp frá því. Hefur hann síð- an átt í baráttu við stjórnvöld í Sovétríkjunum vegna þess að börn hans þrjú hafa ekki enn fengið leyfi til að yfirgefa landið. Nefndin hefur komið því til leiðar að eintök af öllum kvik- myndum hans, sjö að töiu, hafa fengist til sýningar á sérstakri Andrei Tarkowski kvikmyndahátíð í tilefni af heimsókn hans. Hefst hátíðin laugardaginn 9. mars og stendur í viku. Verða allar myndirnar, sjö talsins, sýndar á sérstökum kvöldsýningum í Háskólabíói. Sömu vikuna verða þær einnig sýndar í Regnboganum bæði síð- degis og á kvöldin. Er óhætt að fullyrða að íslenskum kvik- myndaáhugamönnum mun tæp- lega gefast annað tækifæri til þess að kynnast þessum fágæta fjársjóði kvikmyndalistarinnar. Andrei Tarkowski fæddist ár- ið 1932 I litlu þorpi á bökkum Volgu. Stundaði hann fyrst nám í tónlist, síðan myndlist og loks í jarðfræði (í Síberíu). Það var svo árið 1954 sem hann hóf nám í kvikmyndagerð við Kvikmynda- stofnunina í Moskvu. Nam hann þar alls í fjögur ár undir hand- leiðslu hins fræga kvikmynda- leikstjóra Mikhael Romm. Lokaprófmynd Tarkowskis IJr mynd Tarkowskis: Andrej Rubljow. var fyrst sýnd árið 1960. Fyrsta verk hans eftir að skólanum lauk var Æska ívans (1962), en hún fékk Gullljónið á kvikmyndahá- tíðinni í Feneyjum. Aðrar mynd- ir hans hafa verið Andrej Rub- Ijow (1966-1969), Solaris (1972), Spegillinn (1974), Stalker (1979) og loks síðasta mynd hans, Nost- algia (1979), sem hann gerði á Italíu. Allar þessar myndir verða sýndar á kvikmynda- hátíðinni dagana 9. til 15. mars. (FrétUtilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.