Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 45 Minning: Gunnar Sigurjóns- son loftskeytamaður Fæddur 29. nóvember 1909 Dáinn 23. febrúar 1985 Hans, sem nú er sárt saknað og í dag er til moldar borinn, var einn þeirra manna, sem þjóðinni er mikill missir að. Eftirfarandi eig- inkona Gunnars er Gertrud fædd Abelmann frá Wesermiinde í Þýskalandi. Þau eiga þrjá upp- komna syni, sem allir eru kvæntir og búandi. Ég kynntist Gunnari fyrst árið 1935 er við störfuðum samskipa um þriggja ára skeið á bv. Garðari frá Hafnarfirði. Það skip var þá fyrir fáum árum komið til lands- ins í eigu Einars Þorgilssonar sem flaggskip togaraflotans, ef svo má segja. Gunnar starfaði þar sem loftskeytamaður og gerði það með þeirri alúð og prýði sem litið var upp til af öllum, sem með honum voru og starfa hans nutu. Ég átti því láni að fagna að kynnast þeim manndómi og þeirri hugarfró, sem Gunnar bjó yfir á þeim tíma, er ég þurfti þess með. Allar áhyggjur, misfellur og ann- an vanda mildaði Gunnar og færði í það lífsform, sem tíminn getur annars einn mildað. Gunnar mat list mikils, svo sem mörgum mun kunnugt. Hann var og sjálfur listamaður af Guðs náð, enda hef- ur hann fært þjóðinni og einkum Hafnfirðingum ljóst vitni þess með húsa- og hverfismyndum þeim, sem hann hefur fest á spjöld eða léreft af Hafnarfirði og húsum þaðan. Prúðmennska og vandvirkni voru skapgerð Gunnars svo sam- gróin, að hvað sem hann gerði, gerði hann vel og vandaði til þess. Jafnvel verk, sem voru honum á móti skapi en hann varð samt að gera, framkvæmdi hann með hinni mestu prýði, drenglund og stillingu. Þannig skapaði Gunnar sér hamingju við hvaðeina og um- hverfi sínu góðan lærdóm. Iðnin og eljan voru þær meginstoðir í öllu hans lífi og umsvifum, sem báru uppi afkastagetu hans allt til hins síðasta. Þótt Gunnar væri í fjöldamörg ár starfsmaður loftskeytastöðvar- innar að Gufunesi, dró sjórinn ávallt hug hans. Þangað leitaði hann oft í fríum frá stöðvar- starfinu og nú síðustu árin því meir eftir að hann fékk lausn frá störfum fyrir aldurssakir. Gott var að sækja Gunnar og hans elskulegu eiginkonu, Ger- trud, heim. Heima í þeirra fagra og hlýlega ranni nutum við hjónin og aðrir vinir þeirra oft vinsemdar og góðra veitinga. Þegar við þrír vinirnir, Gunnar, Karl Sæmunds- son og ég, ræddum saman um hugðarefni, sem okkur voru öllum sameiginleg, var eins og björgin opnuðust. Maður varð hugfanginn af skoðunum Gunnars, sem voru ávallt lausar við fagurgala eða yf- irborðshátt, en bundnar við hinn áþreifanlega raunveruleika meira en hið yfirnáttúrulega. Samt vakti þessi lífsstefna hans hvatningu því hún bar eindreginn vott um hreinlyndi og heiðarleik. Gertrud mín. Guð styrki þig og ykkar nánustu á þessari þrauta- stundu. Þér sé þökk fyrir þinn stóra hlut í gæfusömu lífi ykkar Gunnars. Við vinirnir og vensl- afólk kveðjum Gunnar okkar með vinsemd og virðingu. Við þökkum fyrir hið prúðmannlega fordæmi og ástúðlegu viðkynningu í hví- vetna. Friðg. G. Að morgni sunnudagsins 24. febrúar sl. hringdi síminn. Þar var mér tilkynnt að einn af fáum eft- irlifandi æskuvinum væri látinn, Gunnar Halldór Sigurjónsson, loftskeytamaður í Hafnarfirði. Það var sonur hans, Sigurjón, sem hringdi. Gunnar lést á Jefferson-sjúkra- húsinu í New Orleans í Bandaríkj- unum laugardaginn 23. febr. Gunnar var búinn að starfa sem loftskeytamaður lengst af ævinn- ar. Hann starfaði mikið á togurum á yngri árum, meðal annars á tog- aranum Garðari. Á seinni árum vann hann á loftskeytastöðinni i Gufunesi, þar til hann hætti störf- um fyrir aldurs sakir. Eftir að hann hætti störfum urðu tengsl okkar meiri og fann ég að hugur hans þráði sjóinn, þar sem hann hafði alið mest af ævinni. Leysti hann því oft af loftskeytamenn á öðrum skipum í fríum þeirra og margar ferðirnar fór hann á Foss- unum sem slíkur. En á þessari hinstu siglingu var hann loft- skeytamaður á es. Hvalvík sem búin var að sigla til Grikklands en var nú komin til Mexíkóflóans og var á heimleið er Gunnar veiktist. Það var ánægja þeirra hjóna, Gertrudar og Gunnars, að fá að vera saman í þessari síðustu ferð hans, þar sem hún gat annast hann þessa siðustu daga, sem hann var á sjúkrahúsinu. Kynni okkar Gunnars hófust Listamiðstöð- in hf. eins árs LISTAMIÐSTÓÐIN opnar sýningu laugardaginn 2. mars kl. 15.00 í til- efni þess að fyrirtækið er eins árs. Fjölmargir listamenn koma við sögu, bæði inniendir og erlendir. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 til 18.00 og lýkur henni sunnudaginn 10. mars nk. Listamiðstöðin hefur nú full- mótað hugmynd um að stofnaður verði menningarsjóður sem veiti listamönnum starfslaun. Einnig er Listamiðstöðin að hefja starf- semi myndleigu. Erlend samskipti hafa sett svip sinn á starfsemi Listamiðstöðvarinnar og er gert ráð fyrir að það haldi áfram þar sem Listamiðstöðinni hefur verið boðið að gangast fyrir sýningu ís- ienskra listamanna í viðurkenndu galleríi í Zagreb í Júgóslavíu næsta haust og áhugi er meðal ít- alskra listamanna að hafa vinnu- stofuskipti við íslenska listamenn. Auk þess hafa möguleikar opnast á kynningu íslenskrar myndlistar í Frakklandi og Noregi. Tónabíó: Með ástarkveðju frá Rússlandi í DAG hefjast sýningar í Tónabíói á kvikmyndinni „Meó ástarkveðju frá Rússlandi.“ Mynd þessi var áður sýnd hér á landi 1966—1967 og er önnur í röðinni af þeim kvikmynd- um sem gerðar hafa verið um njósn- arann fræga, James Bond. Alþjóðlegi glæpahringurinn „Spectre" hefur komið sér upp þjálfunarstöð, þar sem starfsfólk- inu er kennt að myrða. Red Grant skarar framúr fyrir fantaskap og er hann fenginn til að myrða hættulegasta andstæðing „Spectre", 007, öðru nafni James Bond. Með aðalhlutverk fara Sean Connery og Daniela Bianchi. Leik- stjóri er Terence Young. Leiðrétting í FRÁSÖGN af fjöltefli Vlastimils Hort í Sjómannaskólanum var rangt skýrt frá nafni Benedikts Bjarnarsonar, sem ^erði jafntefli við Hort. Mbl. biðst velvirðingar á jíessum mistökum. Akranes: Stofnfundur hlutafé- lags um ferðaþjónustu AkraneNÍ, 28. febrúar. Laugardaginn 2. mars nk. verður stofnað hlutafélag um ferðaþjónustu á Akranesi. Meðal verkefna hins Leiðrétting ÞAU mistök áttu sér stað í frá- sögn af árekstri og bílbruna á Kringlumýrarbraut, að skýrt var frá því, að ökumaður Allegro-bif- reiðar, sem kviknaði í, hefði ekið aftan á kyrrstæða bifreið. Það er ekki rétt. Ekið var aftan á All- egro-bifreiðina, sem við höggið kastaðist tftan á bifreið fyrir í'raman. Mbl. i>iðst velvirðingar ú (æssum mistökum. nýja hlutafélags verður að opna upp- lýsingaskrifstofu fyrir ferðamenn, útbúa nýtt tjaldstæði, koma á næt- urgistingu og efla útimarkaðinn á Akratorgi. Þegar er hafin undirbúnings- vinna fyrir næsta sumar og hefur ferðamálahópurinn, sem starfað hefur að undanförnu að þessum málum, ráðið sér starfsmann til að sjá um framkvæmdir. Áætlað er að hlutafé félagsins verði 500 þúsund til ein milljón kr. og verða hlutabréfin að upphæð 5, 10 og 50 þúsund kr. hvert. Stofnfundurinn verður haldinn i veitingahúsinu Stillholti, eins og ;iður segir, augardaginn 2. nars og hefst klukkan 14. J.G. þegar við vorum 9 ára gamlir og sátum saman í gamla barnaskól- anum í Hafnarfirði. Síðan hafa vináttuböndin haldist, þrátt fyrir aðskilnað, lengri eða skemmri tíma. Það voru margar ánægjustundir sem 9 ára pollar áttu saman í Hafnarfirði þeirra tíma eins og gengur. Margt hefir breyst á þess- um árum, ekki síst Hafnarfjörður sjálfur. Gunnar var alltaf sannur Hafn- firðingur og kunni vel að meta það listræna, sem umvafði og fyllti byggð Hafnarfjarðar þeirra tíma, en sem er óðum að hverfa, Hraun- ið. Þar áttum við margar ánægju- stundir í æsku sem hafa endurtek- ið sig á undanförnum árum í sam- veru á góðviðrisdögum. Gunnar var mjög listrænn maður og stundaði málaralistina í frístund- um. Hann hefir haldið margar sjálfstæðar málverkasýningar og eftir hann liggja margar myndir frá Hafnarfirði sem vernda minn- ingu gamalla húsa, sem nú eru horfin. Þau Gertrud og Gunnar áttu indælt og hlýlegt heimili og þakka ég allar ánægjustundir og vináttu sem ég hefi notið þar. Með elliárunum fækkar vinum og samferðamönnum, sem eru á líku reki. Þau traustu bönd, sem myndast í vináttu æskuáranna, verða trauðla bætt á elliárunum. Ég sakna Gunnars vinar míns ogþakka honum samfylgdina. Eg færi Gertrud, sonum þeirra og fjölskyidum, ásamt ættingjum þeirra, mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Karl T. Sæmundsson LEGUKOPAR Legukopar og fóðringar- efni í hólkum og heilum stöngum. Vestur-þýzkt úrvals efni. Atlas hf Borgartúni 24 — Sími 26755. Póathólf 493, Raykjavík. V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamióill! Nýjung Hefuröu séö ávaxta- og grænmet istorgiö í Ármúlanum? Viö erum búnir aö stækka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.