Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
37
Garðabær:
Einbýlis- og raðhúsalóðum úthlutað í Hofsstaðamýri
Nýlega var farið aö auglýsa lóðir til
úthlutunar í Garðabæ og rennur um-
sóknarfresturinn út 4. mars nk. Að
því er Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, tjáði Mbl., er um 17 ein-
býlishúsalóðir og 4 til 8 raðhúsalóðir
að ræða. Lóðirnar eru í svokallaðri
Hofsstaðamýri, miðsvæðis í Garða-
bæ, og sagði Jón Gauti þær vera afar
heppilega staðsettar í nálægð nýja
miðbæjarins.
Einbýlishúsalóðirnar eru af
tveimur gerðum, annars vegar
minni lóðir, um 5—600 fm fyrir
hús, sem eru einnar hæðar með
risi, og hins vegar stærri lóðir,
u.þ.b. 750—850 fm undir venjuleg
einbýlishús á einni hæð. Raðhúsa-
lengjurnar eru við botnlangagötu
og er áætlað, að um fjögur raðhús
standi hvoru megin götunnar.
„Það á sér stað mikil uppbygging
í Garðabæ um þessar mundir,"
sagði bæjarstjórinn. „Nýi miðbær-
inn er sem óðast að komast í gagn-
ið og þangað er hægt að sækja
margháttaða þjónustu. Þá er þjón-
usta heilsugæslustöðvarinnar, sem
rekin er af læknunum sjálfum, að
verða mjög alhliða, m.a. verður nú
hægt að sinna þar ungbarnaeftir-
liti.“ Jón Gauti Jónsson sagði einn-
ig, að í samþykktri fjárhagsáætlum
bæjarfélagsins væri gert ráð fyrir
miklum umhverfisömbótum á
sumri komanda, yfirborðssnyrt-
ingu, trjárækt og að til stæði að
gera upphafinn grasvöll.
SÓLBÖD, SIGUNGAR, DÝRAGARÐAR
OG VEITINGASTADIR
Það sem vekur vafalaust mestan áhuga dvalargesta í Daun þegar hugað er að
stuttum ferðalögum eru hinir rómuðu og víðfrægu þýsku dalir, sem kenndir eru við
árnar Rín og Mósel. Þar er landslag ótrúlega fallegt, heillandi og sérstætt andrúmsloft
vínræktarhéraðanna er ómótstæðilegl og þar er vagga rómantíkurinnar í orðsins
fyllstu merkingu. Það er líka aðeins 1—2 klst. akstur frá Daun til margra þýskra
borga s.s. Trier, sem var höfuðborg Rómverja í norðri og Kölnar sem frægusl er fyrir
dómkirkjuna. Verðlag í Þýskalandi er geysilega hagslætt og því tilvalið að heimsækja
einhverja borgina til ftess að versla.
Þangað er tæplega 2ja stunda akstur og leiðin sú sama og til Kölnar.
er risastór skemmtigarður þar sem m.a. er heill gullgrafarabær úr villta vestrinu. Kína-
hverfi, breiðstræti frá Berlín með öllum húsum, gosbrunnum, sporvagni og Branden-
borgarhliðinu, stórt vatn með heilum her víkingaskipa og glæsileg lest sem flytur far-
þega í skoðunarferðir um svæðið. Það borgar sig að vera lengi í Fantasíulandi, því inn-
göngumiðinn í skemmtigárðinn veitir ókeypis aðgang að öllum tækjum og sýningum.
Það er líka ótrúlega margt til skemmlunar: Rosaleg vatnsrennibraut og rússibanar,
silfurnáma þar sem óvæntir alburðir gerasl, draugagöng, fornaldardýradalur, balasigl-
ingar, apaleikhús, stjörnusalur, galdrabíó, víkingaferðir, sýningar hjá selum og
höfrungum, Ijósmyndari sem tekur óvenjulegar fjölskyldumyndir, danssýningar, skot-
bakkar og ,,tryllitæki“ af öllum gerðum. Þú mátt ekki missa af Fantasíulandi.
Rétt hjá Daun eru þrjú lítil vötn í fornum eldgígum. Þar stunda menn sóltxið og
sund. siglingar, seglbretti og veiöar. Margir dýragarðar eru í nágrenninu, þar má t.d.
sjá villisvín, dádýr, birni og úlfa í náttúrulegu umhverfi, tamda fálka og erni og í Köln
er dýragarður með Ijónum, tígrisdýrum, fílum, flóðhestum og öllu því. I öllum litlu
bæjunum í kringum Daun eru svo auðvitað óteljandi veitingastaðir, bjórkrár og
skemmtistaðir sem allir þurfa að heimsækja.
Borttfarir: Alla sunnudaga frá 31. mars.
Verð frá: 14.818,- með bílaleigubíl. 13.457,- án bílaleigubíls.
Barnaafsláttur: Yngri en 2ja ára greiða kr. 2.000,-
2— 11 ára fá 5.800 í afslátt.
Innifalið: Flug, gisting, bílaleigubíll eöa rúta, rafmagn, hiti og fararstjórn.
Þýsku sumarhúsin í Daun Eifel, skammt frá Luxemborg gerðu stormandi lukku
síðast liðið sumar, Frábær gistiaðstaða er í allt að 95 m2 stórum íbúðum og húsum,
sem eru elnstaklega vönduð og vel búin. Á staðnum er fullkomin þjónustumiðstöð með
veitingastöðum, bjórkrá, diskóteki, sundlaug, æfingasal, bowlingbrautum, þvollahúsi,
verslun, spilakassasal og barnaheimili. Tennisvellir eru bæði úti og inni, minigolf, reið-
höll, útitafl, danspallur, barnaleikvöllur, útigrillsvæði, fóltboltavöllur og þannig mætti
lengi telja.
INAGRENNIMOSEL OG
FANTASIULANDI MA ENGINN SLEPPA
Hálftíma akstur frá Daun er frægasta kappakstursbraut Þýskalands: Núrburgring.
Þar er keppt í öllum flokkum kappaksturs, frá fornbílum upp í formúlu. Brautin er 4.5
km. að lengd, og umhverfis fjölmargar áhorfendastúkur, staösettar við erfiðuslu og
hættulegustu hluta brautarinnar. Keppt er allar helgar, fararstjórinn gefur allar upplýs-
ingar um keppnisflokk og tíma.
Það er líka hægt að keppa sjálfur, því tæpan klukkustundar akstur frá Daun er gokarl-
braut og einskonar bobbsleðabraut er 10 mínútna akstur í burtu.
í Hillesheim, 18 km. frá Daun, er svo geysiskemmtilegur 9 holu golfvöllur.
VÖNDUDUSTU HÚS SEM HÆGT ER AD FÁ
KAPPAKSTUR, GOKART EDA GOLF
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan Úrval við Austurvöll, sími (91) 26900.