Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 ari og hnyttnari umsagnir um samtíðarviðburði? Hvar fundu þeir sem áttu um sárt að binda meiri hughreystingu? Hvar voru bókmenntir og listir betur krufn- ar? Um sumt er komist þannig að orði að það sé auðveldara sagt en gjört. Hér á við hið gagnstæða. Það er erfið tilhugsun að eiga ekki Gunnar ólafsson lengur að en það er á hinn bóginn fjársjóður sem aldrei verður frá manni tek- inn að hafa átt hann að, vináttu hans og drenglyndi. Ég og fjölskylda mín sendum fjölskyldu Gunnars og aðstand- endum innilegustu samúðarkveðj- ur. Matthías Eggertsson Skyndilegt fráfall Gunnars ólafssonar kom eins og reiðarslag yfir okkur samstarfsfólk hans á Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins. Gunnar var við vinnu sína fram yfir hádegi, en fáeinum stundum síðar var hann fallinn. Gunnar var ekki afskiptasamur i daglegum störfum, en hann var hin styrka stoð sem við gátum sett traust okkar á og því finnum við mikið fyrir því skarði sem er kom- ið í raðir okkar. Þegar að því kom árið 1976 að ráðinn var aðstoðarforstjóri stofnunarinnar mun flestum hafa þótt Gunnar ólafsson sjálfsagður í starfið. Það var því í samræmi við óskir starfsmanna að hann skyldi sem aðstoðarforstjóri taka við þegar Björn Sigurbjörnsson forstjóri var fenginn til að taka við forstjórastörfum í alþjóða- stofnun um þriggja ára skeið. Það traust, sem Gunnar ólafsson naut umfram flesta aðra menn, stafaði af mikilli réttsýni og því hve auð- velt hann átti með að hafa yfirsýn yfir alla þætti mála. Gott var til hans að leita, málavextir voru kynntir og ræddir án allra útúr- dúra og það sem eitt sinn hafði verið sagt þurfti að jafnaði ekki að endurtaka. Orð hans stóðu. Á hinn bóginn var hann viðkvæmur fyrir þeim árekstrum sem óhjákvæmi- lega fylgja stöðu yfirmanns, eink- um vegna þess hve einlægur hann var. Eins og ráða má af framan- sögðu var Gunnar farsæll í dag- legri afgreiðslu mála. Honum var einnig umhugað um að halda áfram þeirri uppbyggingu, sem orðið hefur á stofnuninni. Á þeim nær 20 árum, sem hún hefur starf- að, hafa orðið miklar breytingar, bæði á stofnuninni sjálfri og þeim atvinnuvegi sem hún á að þjóna. Það var því orðið tímabært að huga að því, með hvaða hætti starfsemin yrði aðlöguð breyttum tímum. Gunnar hafði mótað sér hugmyndir um, hvaða skipu- lagsbreytingar væru æskilegar og beitti sér fyrir myndun starfshóps til að vinna að endurskoöun og út- tekt á landbúnaðarrannsóknum. Hér hefur verið farið nokkrum orðum um störf Gunnars ólafs- sonar í þágu stofnunarinnar og starfsmanna hennar og það traust sem við samstarfsfólkið bárum til hans. Efst í huga er þó söknuður eftir góðan félaga og vin. Við sam- hryggjumst eftirlifandi móður og fjölskyldu hans sem var honum svo náin og við höfum átt margar góðar stundir með fyrr og síðar. Valdís Helgadóttir, Unna Maja, Anna, Skúli, Vala og óli, við vott- um ykkur innilega hluttekningu okkar. Samstarfsfólk ólafur heitinn Hansson, síðar prófessor við Háskóla íslands, var á skólaárum mínum í Menntaskól- anum í Reykjavík kennari við skólann. Úr kennarahópnum er mér hann sérstaklega minnis- stæður. Höfðingleg og háttvís framkoma hans verkaði sterkt á nemendur hans og hann átti at- hygli nemenda sinna óskipta með- an hann dvaldi með þeim. Ólafur var talinn með margfróðustu ís- lendingum, jafnvel svo, að hann ætti sér ekki jafningja. Einkabarn ólafs og konu hans, Valdísar Helgadóttur, var Gunnar Ólafsson, sem hér er kvaddur. Við Gunnar höfum síðastliðinn áratug átt samstarf um margvís- leg viðfangsefni, sem tengjast Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins og landbúnaðarráðuneytinu. Hann minnti mig, þegar við fyrstu kynni, um margt á föður sinn, — háttvísin og höfðingleg framgangan var hin sama, í um- PÁLS MAGNUSSONAR. ræðum og umfjöllun viðfangsefna fannst mér ég einnig oft kenna minn gamla læriföður. Gunnar lagði stund á búvísindi eftir stúdentspróf. Hann stundaði nám sitt í Noregi en jók einnig við þekkingu sína með námi i Eng- landi. Hann lauk doktorsprófi í næringarlífeðlisfræði og fóður- fræðum frá landbúnaðarháskólan- um að Ási. Gunnar starfaði alla starfsævi sína í þágu íslensks landbúnaðar. Hann starfaði frá 1960 við At- vinnudeild Háskólans, landbúnað- ardeild, síðar Rannsóknastofnun landbúnaðarins (RALA), og var lengi deildarstjóri fóðurrann- sóknadeildar stofnunarinnar. Rannsóknastofnun landbúnað- arins er ein þýðingarmesta stofn- un íslensks landbúnaðar. í þeirri stofnun hafa lengi staðið í stafni afbragðs menn, sem hafa gefið sig alla í starf sitt og leitað lags og leiða í aukinni þekkingaröflun til að auka hag atvinnuvegarins, en um leið að vernda þann höfuðstól, sem afkoman byggist á, jarðveg og gróður landsins okkar. Gunnar stóð í stafni þá hann féll, löngu fyrir aldur fram, fullur starfsgleði og vilja til að ná sem skilamestum árangri í stofnun sinni. Hann horfði gagnrýnum augum á það, sem unnið var að, þakklátur fyrir það sem vel tókst til, en taldi að í ýmsu mætti betur gera. Hann staðnaði ekki yfir því sem gert var eða hafði verið gert, stöðugt leitaði á hann spurningin, Einarsson og Pálsson hf. Bitstál hf. Ármúla 26. hvort hægt væri að gera meira og betur. Gunnar átti mikinn metnað fyrir hönd stofnunar sinnar og þegar honum þótti skorta á skiln- ing á þeim störfum, sem unnin eru á stofnuninni eða fjárveitingar ófullnægjandi til þýðingarmikilla viðfangsefna, særði það hans við- kvæmu lund. Hann leitaði þá lag- færinga af einurð, en aldrei brást honum meðfædd háttvísi við slík- an erindisrekstur. Síðustu mánuði beitti Gunnar sér fyrir því að öll rannsókna- starfsemi í þágu íslensks landbún- aðar yrði endurskoðuð, í því skyni að tryggja svo sem frekast er hægt, hagkvæmni hennar í þágu atvinnuvegarins. Hann kom þessu hugðarefni sínu af stað. Það var rétt hafið þegar hann féll, og síð- ustu verk hans voru í þágu þessa verkefnis. Utan aðalstarfsvettvangs voru Gunnari falin margvísleg trúnað- arstörf, flest tengd menntun hans og störfum. Hann sat m.a. í stjórn félags náttúrufræðinga og var um sinn formaður þess félags, í stjórn Vísindasjóðs raunvísindadeildar, í Tilraunaráði landbúnaðarins og hann tók virkan þátt i samstarfi norrænna búvísindamanna. Samstarf okkar Gunnars í verk- efnum, sem við völdumst saman í, var á þann veg að ég finn hjá mér hvöt til þess að þakka dugnað hans og drengskap. Vinátta vakn- aði af samstarfi okkar. Fyrir þá sök áttum við fleiri stundir saman en ella, sem nú er þakkað fyrir. Hugurinn leitar til þeirra sem mest hafa misst, Unnar Maju, barna hans og aldraðrar móður. Megi þeim vera styrkur í hversu mikils góðs er að minnast. Heiðríkja minninganna geymi öðlingsdrenginn. Sveinbjörn Dagfinnsson Það er erfitt að trúa því né sætta sig við að kveðja hinsta sinn minn ástkæra félaga Gunnar ólafsson sem nú hverfur af sjón- arsviðinu á miðri starfsævi. Er ég hóf störf hjá Rannsókna- stofnun landbúnaðarins sem að- stoðarmaður Gunnars var ég nokkuð óráðinn eins og gengur. Það breyttist fljótt eftir að sam- starf okkar hófst. Unnum við síð- an saman næstu árin þar til stjórnun stofnunarinnar tók æ meira af hans tíma. Þetta tímabil í starfi mínu fannst mér bæði þroskandi og skemmtilegt. Þar sem Gunnar gekk fór drengur góð- ur. Hann hafi það geðslag og mann- kosti sem orkað hvetjandi og bæt- andi á umhverfið. Ég minnist þess ekki að hafa fengið orð í eyra fyrir það sem miður fór, en þakkir og uppörvunarorð voru ekki spöruð ef honum þótti við eiga. Eftir að Gunnar settist í for- stjórastól reyndist hann starfs- fólki vel og leysti hvers manns vanda einsog best hann gat. Reyndust hans ákvarðanir oftast farsælar, enda naut hann mikils trausts meðal starfsmanna. En því er ekki aö leyna að hann gat sviðið undan ef honum fannst ómaklega að sér vegið, en lét sjaldan á því bera. Það var ekki venja hans að bera tilfinningar sínar á torg. Enginn fær víst umflúið örlög sín, nú skilja leiðir og i dag er drengskaparmaðurinn Gunnar ólafsson kvaddur. Að leiðarlokum minnist ég vin- ar míns og vegferðarmanns með hlýhug og þakklæti og votta fjöl- skyldunni mína dýpstu samúð þó orö mín séu lítilvæg i þessari miklu sorg. Tryggvi Eiríksson Wterkurog hagkvæmur auglýsingamiöill! t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, GUÐNI ÞORSTEINSSON, múrarameistarí, Selfossi, lóst á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum aö morgni miövikudagsins 27. febrúar sl. Eggert Guönason, Emma Guönadóttir, Guömundur Guönason, Guöfinna Guönadóttir, Ásdis Guönadóttir, Benedikta Guönadóttir, Hulda Guönadóttir, Ásgeir Guðnason, barnabörn og Valborg Gísladóttir, Ágúst Eíriksson, Fjóla Guömundsdóttir, Eövarö Torfason, Leífur Eyjólfsson, Páll Árnason, Pólmi Jónsson, Þyrí Axelsdóttir, barnabarnabörn. t Móöir okkar, amma og langamma, sigrIður sigtryggsoóttir fré Flatey é Skjélfanda, Grænutungu 8, Kópavogi, andaöist fimmtudaginn 28. febrúar á hjúkrunarheimilinu Sunnuhliö í Kópavogi. Börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir, sonur og bróöir, SVEINN BEN AÐALSTEINSSON, fórst meö fiskibát viö Kodiak-eyju i Alaska þann 12. febrúar. Ólafia Jónsdóttir og börn, Svava Stefénsdóttir og systkini. t Eiginkona min, móöir, tengdamóöir og amma, ÞÓRA SIGRÍÐUR INGIMUNDARDÓTTIR, Bústaöavegi 57, Reykjavfk, andaöist i Landspitalanum 21. febrúar sl. Utförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Brynjólfur G. Ársælsson, Brynjólfur Þór Brynjólfsson, Ragnheióur Jónsdóttir og barnabörn. t Eiginmaöur minn. faöir okkar, tengdafaöir og afi, MARTEINN M. SKAFTFELLS, v kennari, Hamrahlíö 5, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. mars kl. 10.30. Astrid Vik Skaftfells, Hékon M. Skaftfells, Heiöar Marteinsson, Brynja Pélsdóttir, Venný Keith, William Keith og barnabörnin. Lokaö i dag fyrir hádegi, vegna jaröarfarar GUNNARS ÓLAFSSONAR, forstjóra Rannsóknastofnunar landbún- aöarins. Rannsóknaráð ríkisins. t Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GUNNAR HALLDÓR SIGURJÓNSSON loftskeytamaöur, Álfaskeiöi 57, Hafnarfirói, veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni i Hafnarfiröi i dag, föstudaginn 1. mars, kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Hjartavernd. Gertrud M. Sigurjónsson, Þór Gunnarsson, Ásdis Valdimarsdóttir, Sigurjón Gunnarsson, Þorbjörg Bernhard, Ludwig H. Gunnarsson, Guörún Jónsdóttir og barnabörn. t Sendum okkar innilegustu þakkir öllum þeim sem sýndu okkkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför dóttur okkar og systur, HAFDÍSAR HALLDÓRSDÓTTUR, Tjarnargötu 33, Keflavik, með minningargjöfum og blómum. Sérstakar þakkir færum viö Fjölbrautaskóla Suöurnesja og St. Georgsgildi i Keflavik og öllum öörum þeim sem vottuöu minningu hennar viröingu meö nærveru sinni viö jaröarför hennar 22. febrúar sl. Guö blessi ykkur öil. Elfsabet Ólafsdóttir, Halldór A. Brynjólfsson og systkini. t Alúöarþakkir fyrir samúö og hlýhug vegna andláts eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU ÁMUNDADÓTTUR, Laugarésvegi 67. Sigurjón Gfslason, Gísli Sigurjónsson, Gunnhildur Guöjónsdóttir, Jón Sigurjónsson, Sjöfn Hékonardóttir, Kristrún Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað e.h. í dag, föstudaginn 1. mars, vegna jarðarfarar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.