Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 64
HLEKKURIHBMSKEÐJU apíd w.OQ'Z.oo FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. SamiÖ við yfirmenn, en undirmenn skelltu hurðum Að lokinni langri og strangri samningalotu takast þeir í hendur Guðjón A. Kristjánsson, formaður Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, og Kristján Ragn- arsson, formaður Landssambands íslenzkra útvegsmanna. Guðlaug- ur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, stendur fyrir aftan þá. Morgunblaðið/Júlíus - Fiskiskip frá Vestfjörðum væntanlega til veiða í dag — kauptrygging hækkar í 27.000 krónur FISKISKIPAFLOTINN leggur ekki úr höfn í dag — nema væntanlega á Vestfjörðum — þótt samkomulag hafi tekist við yfirmenn í sjómannadeilunni í gærkvöld. Samningar tókust með Landssambandi íslenskra útvegsmanna annars vegar og Far- manna- og fiskimannasambandinu og Skipstjóra- og stýri- mannafélaginu Bylgjunni á ísafirði hinsvegar en samningavið- ræður útvegsmanna og Sjómannasambands Islands fóru út um þúfur. Gengu fulltrúar Sjómannasambandsins af fundi laust fyrir kl. 21 í gærkvöld og skelltu hurðum á eftir sér. Nýr fundur í þeim hluta deilunnar veröur ákveðinn um hádegisbil í dag. Samningurinn, sem undirritað- ur var undir miðnætti í gær, er byggður á innanhússtillögu, sem Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari lagði fram laust fyrir kl. 5 í gærmorgun, og yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar sem lögð var fram skömmu síðar. Samning- urinn gildir til ársloka 1986. Sam- kvæmt upplýsingum Mbl. hefur kauptrygging nú hækkað úr rúm- lega 19.400 krónum í 27.000 krónur á mánuði frá 1. janúar sl. Sú trygging hækkar um 2,4% frá og með deginum í dag og um önnur 2,4% 1. maí næstkomandi, eins og gert er ráð fyrir í samningi ASÍ og VSÍ frá í haust. Á þetta féllust yfirmenn en undirmenn gerðu kröfu um að kauptryggingin hækkaði upp í rúmlega 30 þúsund krónur á samningstímabilinu, að því er Óskar Vigfússon, forseti Sjómannasambandsins, sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gær- kvöld. Ríkisstjórnin tryggir fyrir sitt leyti, skv. heimildum Mbl., auknar fæðispeningagreiðslur, að skatta- afsláttur sjómanna hækkar úr 10% af brúttótekjum í 12%, og að um 80 milljónir króna verði greiddar í lífeyrissjóð sjómanna (það fé kemur af uppsöfnuðum söluskatti í aflatryggingasjóði).. Auk þess mun ríkisstjórnin nú vera reiðubúin að auka kostnaðar- hlutdeild um 2%. á árinu frá því sem nú er en upphafleg krafa sjó- Mjólkur- lítrinn í 28,60 manna var að afli kæmi allur til skipta. Sem stendur koma um 70% afla til skipta. Samkvæmt upplýs- ingum Mbl. hækka fæðispeningar um 10% frá undirskrift samnings- ins en upphafleg krafa var að hækkunin yrði 13% frá 1. janúar og 10% frá 1. mars. Sjómanna- sambandið stendur enn fast á þeirri kröfu. Að öðru leyti vörðust samnings- aðilar allra frétta af samkomulag- inu í gærkvöld. Aðildarfélög Far- manna- og fiskimannasambands- ins halda fundi í dag þar sem sam- komulagið verður kynnt. Verkfalí- inu verður ekki aflýst fyrr en að þeim fundum loknum. Þá munu fiskiskip á Vestfjörðum geta hald- ið á veiðar á'nýjan leik eftir 12 daga verkfall en sjómenn í öðrum iandshlutum munu bíða eftir að samningar takist milli Sjómanna- sambands íslands og Landssam- bands íslenskra útvegsmanna. Á Vestfjörðum eru undirmenn á fiskiskipum með bundna samn- inga fram á vor. Sjá bls. 2. Kennarar sem sögðu upp hlíta ekki framlengingu uppsagnarfrests: Starf í framhalds- skólum úr skorðum Á FUNDI Hins íslenska kennarafé- lags í gærkveldi var samþykkt tillaga þess efnis að kennarar í félaginu, sem sagt hafa störfum sínum lausum frá og með deginum í dag, myndu standa fast við þá ákvörðun sína að leggja niður kennslu og hlíta ekki 3 mánaða framlengingu uppsagnar- frests. Tillagan var samþykkt með 229 atkvæðum gegn 49. Starf í fram- haldsskólum mun því fara úr skorð- um næstu daga og sums staðar leggj- ast niður samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ragnhildur Helgadóttir, mennta- málaráðherra, sagðist hafa vonast til að þessi kjarabarátta færi fram á málefnalegum grundvelli. „Ráðu- neytið hefur lagt mikið af mörkum til að svo gæti orðið, m.a. með endurmatsskýrslu um störf kenn- ara, sem gat orðið kennurum nýtt tæki til að ná betri kjörum," sagði ráðherra. „Það er augljóst að þessi staða málsins gerir lausn deilunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Illuti hins fjölmenna hóps kennara, sem sótti fund í Menntaskólanum við Hamrahlíð í gærkvöld. mun erfiðari. Ég vona að umhyggja kennara fyrir nemendum breyti þessari niðurstöðu, en hver og einn kennari hlýtur að gera upp við eig- in samvisku hvort hann mætir til skyldustarfa sinna eða ekki.“ Fjölmargir tóku til máls á fund- inum í gærkvöldi og var t.d. reifuð sú hugmynd að fresta aðgerðum um eina viku. Hugmynd þessi mætti mikilli andstöðu kennara og sögðu sumir að kennarar yrðu að sýna að þeim væri alvara og öll frestun væri af hinu illa. Kristján Thorlacius, formaður HÍK, sagði, að vonandi héldist samstaða kenn- ara áfram. Hann kvaðst einnig vonast til að kennarar stæðust þann áróður, sem yrði gegn þeim næstu daga, en þegar því létti myndi komast skriður á samninga- málin. Hann kvaðst ánægður með skýrslu nefndar, sem vann að endurmati á kennarastarfinu og kvað hana styrkja stöðu kennara í samningunum. Fjármálaráðuneytið vinnur nú að gagntilboði til aðildarfélaga BHM og er þess að vænta strax eftir helgi. Að sögn Indriða H. Þorlákssonar, formanns samninga- nefndar ríkisins, hljóða kröfur fé- laganna upp á 80—100% launa- hækkun, en kennarar krefjist að auki 10—25% hækkunar. Sjá frétt um endurmat á störf- um kcnnara á bls. 2 og tilmæli nemenda á bls. 4. í DAG tekur gildi ákvörðun sex- mannanefndar um nýtt verð landbúnaðarafurða. Kindakjöt hækkar um 5,5 % en mjólkurvör- ur á bilinu 7,2 til 9,4% Mjólkur- lítrinn hækkar um tvær krónur og tíu aura, úr 26,50 í 28,60 kr. Verðhækkanir mjólkurvara eru nokkuð mismunandi. Rjómi hækkar um 7,2%, ostar um 7,3%, mjólk um 7,7 til .7,9%, skyr um 8,1% og smjör um 9,4%. Verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvara, það er verð til bænda, hækkaði um 5,5% en einnig úrðu hækkanir á vinnslukostnaði, umbúðum og fleiru. Þá verða niðurgreiðslur óbreyttar að krónutölu þannig að prósentuhækkunin verði meiri á útsöluverði heldur en verði til bænda. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Verður heimilað að leggja verkin fram á íslenzku? Fram er komin tillaga til þings- ályktunar á Alþingi, sem felur rík- isstjórninni, verði hún samþykkt, „ad beita sér fyrir því að reglum um tilhögun bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs verði breytt á þann veg að íslendingar leggi bókmenntaverk sín fram á ís- lenzku. Að öðrum kosti sé þeim heimilt að leggja fram þýóingar á ensku, frönsku eða þýzku engu síður en dönsku, norsku eða sænsku“. í greinargerð segir m.a.: „Að sjálfsögðu hljótum við ís- lendingar að minna á að íslenzk- an geymir ein sem lifandi mál elztu skáldverk og bókmenntir norrænna manna. Fyrir þá sök ætti metnaður allra norrænna þjóða að standa til þess að ís- lenzk tunga sé virt til jafns við aðrar tungur norrænar þegar að því kemur að úthluta bók- menntaverðlaunum Norður- landaráðs. Skiptir í því efni ekki máli þótt íslendingar séu færri en Danir, Norðmenn og Svíar." Fyrsti flutningsmaður tillög- unnar er Halldór Blöndal, for- maður menntamálanefndar neðri deildar. Meðflutningsmenn eru: Árni Johnsen, Birgir ísl. Gunnarsson, Eyjólfur Konráð Jónsson og Salome Þorkelsdótt- ir. Greinargerð, sem fylgir tillög- unni, er birt í heild á þingsíðu Morgunblaðsins í dag, bls. 36.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.