Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 59 i VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu .. . Rás 2 með í helgarkálfinn Guðný hringdi: Mig langar til að spyrja for- ráðamenn Morgunblaðsins að því hvort að ekki sé hægt að hafa dagskrá rásar 2 með í kálfinum um sjónvarp/útvarp næstu viku sem fylgir föstu- dagsblaðinu? Eg er ákaflega ánægð með þennan dagskrárkálf, sem er afar þægilegur fyrir þá sem vilja fylgjast með dagskrá út- varps og sjónvarps. En nú hef- ur rás 2 bæst í hópinn og því ekki úr vegi að spyrja hvort hægt sé að hafa dagskrá hennar með. Svar: Eins og sjá má í dagskrár- kálfinum í Morgunblaðinu í dag höfum við þegar orðið við óskum Guðnýjar. Ritstj. í gallabuxum og íþróttaskóm D.G. hringdi: Mig langar til að spyrja hvort að snyrtilegur klæðnað- ur gildi ekki fyrir alla skemmtistaðina hér í Reykja- vík? Ég fór í Klúbbinn um dag- inn og þar voru strákar í iþróttaskóm, gallabuxum og háskólabolum. Þá er það hvimleitt hve sömu lögin eru leikin aftur og aftur í Klúbbn- um, maður fer að fá leið á þeim svona hvað og hverju. Óhagstæðar ferðir strætisvagna Þorsteinn Guðmundsson hringdi: Mig langar að vekja athygli á því hve strætisvagnaverðir um Seljahverfi í Breiðholtinu eru óhagstæðar um helgar. Ég tek t.d. leið 14 til vinnu minn- ar en þarf að skipta einu sinni um vagn. Hins vegar missi ég iðulega af honum þar sem leið 14 kemur á svo óhagstæðum tímum og þarf ég oft að bíða í 25 mínútur eftir næsta vagni. Kona mín er í skóla við Hlemmtorg en hún er öryrki. Sjaldan eða aldrei er staðað upp fyrir henni í strætisvögn- um og er ferðalagið því afar óhentugt fyrir hana þar sem hún þarf að taka tvo vagna á ákvörðunarstað. Þeim ber að kenna áfram Jósep hringdi: Ég undrast mjög þegar raddir frá kennurum heyrast um það að þeir ætli ekki að hlíta lögum heldur leggja niður vinnu 1. marz. Því að kennurum ber að vera fyrir- mynd þeirra nemenda sem þeir kenna. ósköp finnst mér það nei- kvætt að hlýða ekki lögum þjóðarinnar. Bréfritari er ósáttur við verð bensíns og olíu f landinu og telur að við hljótum að geta gert hagkvæm innkaup á þessum vörum. UPPHtV SAMfAtð tÍT«AR VERC Af Kastljósi Ólafur Sigurðsson fréttamaður tekur oft vel á málum og gengur beint til verks í þáttum sínum, spyr vel, er einarður og kurteis. Vel hefði hann samt getað veitt áhorfendum lengri tíma til þess að hlusta á samræður Kristjáns Ragnarssonar og Vilhjálms Jóns- sonar fulltrúa olíufélaganna. Ég þykist vita að Kristján hafi átt samúð þjóðarinnar það kvöldið enda er þjóðin orðin langþreytt á sífelldum hækkunum á olíuvörum meðan horft er uppá að þessar lífsnauðsynlegu vörur lækka allt í kringum okkar. Aldrei lækka þær hér, nema þá helst í Hvalfirði. Það er ansi erfitt að hlusta þegjandi á rök olíufurstanna, full- trúa sjoppanna, matsölustaðanna, varahlutaverslananna o.fl. úti um allt land. Ekki eru þær verslanir ódýrari en gengur og gerist, en spyr sá sem ekki veit: Hvað eru þessi olíufélög að gumsast í sjoppurekstri, rekstri á spilavít- um, þ.e. fjárhættuspilum reknum af Rauðakrossinum (gegn ísl. lög- um). Hvurslags fyrirtæki eru þetta eiginlega að verða? Eiga bensínkaupendur kannski að hjálpa olíufélögunum til þess að útiloka alla aðra frá sjoppu- og matsölurekstri, gera þau fær um að einoka alla greiðasölu á lands- byggðinni með óheyrilega háu bensín- og olíuverði? Svo má einn- ig spyrja. Hvar er hin frjálsa sam- keppni í þessari verslun? Hvers vegna biðja öll olíufélögin sem eitt um hækkanir? Er þetta auðhring- ur, sem ríkisvaldið ræður ekkert við? Ég held að það sé kominn tími til að rannsaka allan rekstur þessara aðila og reyna að haga þannig innkaupum að við séum ekki múlbundin við dollarann ein- göngu. Við hljótum að geta gert hagkvæm innkaup í olíuvörum, a.m.k. öðru hverju, rétt eins og að- rir eða erum við bara hreinir aul- ar? Það virðist blasa við, því að aldrei man ég eftir að bensín og olíur hafi lækkað í verði á íslandi. Um Keflavíkurútvarp og -sjón- varp er það að segja, að það hlýtur að vekja til umhugsunar hvort báknið okkar, höfuðsóttakindin nýbyggða undir þessa starfsemi á íslandi, væri ekki betur nýtt undir annað, t.d. aldraðarheimili, eða í raun hvað sem er og okkur van- hagar um. Báknið virðist vera með öllu óþarft og starfsfólkið, ja, hamingjan hjálpi okkur, því mætti fækka um % og myndi þá þjónustan varla verða verri að hún er í dag. Það getur varla verið að ráðamenn þjóðarinnar vakni ekki við að horfa á annað eins og við fengum að sjá frá Keflavík. Þetta óhemju bákn okkar og mannsöfnuður í kringum það virð- ist vera gamaldags og óþarft með öllu. Hafi Ólafur þökk fyrir þátt- inn. Starri. „Björgun- armaður“ Sigmundur Jónsson, Grímshaga 5, kom að máli við Velvakanda: Mér barst svo undarlegt bréf um daginn og get engan veginn áttað mig á því við hvað er átt í því. í umslaginu var blað sem á stóð eitt orð innan gæsalappa, „björg- unarmaður". Ég er hræddur um að þarna sé um einhver mistök að ræða og vona ég að sá eða sú sem sendi mér þessa orðsendingu hafi við mig samband og beri upp rétta er- indið. Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra: „Bankarnir draga lappirnar í flestu“ Segist reiðubúinn aö beita sér fyrir aukinni banka- fyrirgreiðslu til þess að styðja við innlendan iðnað „ÉG GET aúöviUA ekki svarað fjrrir bankana. Þeir draga lappirnar í flestu, og það er alvéí sérstakt rannsóknarverkefni í sjálfu sér að kanna hvernig bankaþjónustanvcr oröin, þegar svörin sem fist eru öll á þann veg að ekki séu til peningar, og-.siðan'qyða bankarnir allri sinni orku i að keppast um K»s«»r fáu krónur senT falla til hjá sparifjáreigendum," sagói Sverrir Her- VÍSA VIKUNNAR Enn er bankinn auralaus, opið niður úr vösum. Dregur lappir, hengir haus, með hor í báðum nösum. Hákur. Nýr heimurkínverskra kræsinga ÁShanghai framreidum vid fleira en steikt hrísgrjón og vorrúllur. Shanghai veitingastaðurinn í kjallaranum á Laugavegi 28. 26. leikvika — leikir 23. febrúar 1985 Vinningsröð: 22X — 1 1 1 — 22X — XX1 1. vinningur: 12 réttir — kr. 131.965,- 976 38717(4/11) 42281(4/11) 2. vinningur: 11 réttir, kr. 3.029,- 221 19258 36079 49123+ 85354 90504* 227 19285 36340 49153+ 87127 90573 1691 35366 38612 57092+ 87390 92946 6621 35624 39733 57096+ 87392 93482+ 6862 35708 39833 57583 87780* 95051 9985 35713 42229 58524 88381 95375 10844+ 35716 45380 62000+ 88515 11092 35721 48638+ 62839 90166+ • =2/11 Kærufrestur er til 18. mars 1985 kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboösmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kserufrests GETRAUNIR íþróttamiðstöðinni REYKJAVÍK Ath.: 27. leikvika — 2. mars 1985 Leikurinn Arsenal — West Ham hefst kl. 11.30. Útfylltir seðlar verða aö hafa borist fyrir þann tíma. GETRAUNIR ... og ennþá ein Ný Gázella tízkukápa Falleg og vönduð KÁPUSALAN BORGARTÚNI 22 Næg bílastæði. SÍMI 23509
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.