Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985 33 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 25 kr. eintakiö. Ræktun mannsins Augljóst er af víðtækri þjónustu sem sprottið hefur upp hér á landi hin síðari ár, að einstaklingar leggja meiri rækt við sjálfa sig en áð- ur. Hvers kyns skólastarf utan hins hefðbundna skólakerfis hefur skotið rótum. Margskon- ar félög hafa verið stofnuð til að veita sköpunargleði manna útrás. Mikil gróska hefur hlaupið í fyrirtæki sem gefa mönnum kost á að þjálfa lík- ama sinn og styrkja. Verulegt átak hefur verið gert til að bjarga einstaklingum út úr áfengisbölinu og á ári æskunn- ar verður lagt kapp á að vara við ógninni sem stafar af fíkni- efnum. Þróun í þessa átt er síður en svo einkennandi fyrir ísland. Hvarvetna þar sem þjóðir eru jafn vel efnaðar og við hefur hið sama gerst. Það er ekki eins auðvelt og oft áður að glepja menn með alls kyns gylliboðum um að unnt sé að stytta sér leið og komast hjá því að rækta sjálfan sig. Á dög- unum vakti það heimsathygli þegar vinstrisinnaður mennta- málráðherra Frakka sagði, að framvegis yrði lögð á það áhersla í frönskum grunnskól- um að kenna nemendum að lesa, skrifa og reikna. Með þessari yfirlýsingu var ráð- herrann að breyta um stefnu frá því að hægrisinnaðir, franskir stjórnmálamenn létu undan kröfum vinstrisinnaðra „skólafræðinga" um nýja stefnu í skólamálum; stefnu sem hefur leitt það af sér, að grunnmenntun Frakka hefur hrakað. Fyrir vellíðan og velmegun einstaklinga skiptir mestu að þjóðfélagsgerðin sé þannig, að þeir hafi frelsi til orðs og æðis. Ofstjórn og ofskipulag veitir einstaklingnum enga vernd þegar til lengdar lætur, sviptir hann sjálfskaparviðleitni og gerir hann háðan ríkisvaldi sem jafnt og þétt sækist eftir meiri áhrifum og völdum. Sagan sýnir, að á valdi stjórnmálamanna og stjórn- valda eru engar einfaldar lausnir til að skapa borgurun- um áhyggju- og átakalaust líf. Þar vegnar borgurunum best þar sem þeir fá að vera i sem mestum friði fyrir afskiptum stjórnmálamanna og opinberra aðila. Með hliðsjón af þessu er það öfugþróun í íslenskum stjórnmálum, að nú skuli fólk kveða sér hljóðs, meðal annars á síðum Morgunblaðsins, sem telur unnt að auka hamingju einstaklinga einfaldlega með flokkspólitískum lausnum. Síðan 1917 hefur markvisst verið að því stefnt í Sovétríkj- unum að skapa hinn nýja, hamingjusama, sósíalíska mann. Þessi stefna beið skip- brot strax og hún var kynnt eins og aðrar stjórnmálastefn- ur sem ætla að breyta mannin- um og manniegu eðli. Sá flokk- ur hér á landi sem kennir sig við manninn er eitt af þeim fyrirbrigðum sem fylgja mis- heppnaðri mannræktarstefnu. Að gera ræktun mannsins að pólitísku trúaratriði stangast á við þá einstaklingshyggju sem fram kemur í áhuga fólks á þeirri starfsemi og þjónustu sem í upphafi var lýst. Greiða atkvæði með fótunum jr Iofstjórnarríkjum kommún- ismans hafa þegnarnir eng- an rétt til að láta í Ijós álit sitt á stjórnvöldum í lýðræðisleg- um og frjálsum kosningum. Vilji menn mótmæla gjörðum stjórnvalda verða þeir að gera það með öðrum hætti en að setja kross á atkvæðaseðil. Flestir velja þann kost að greiða atkvæði með fótunum. Þeir flýja einfaldlega land. Reynslan frá Víetnam, Afgh- anistan, Kúbu, Nicaragua, Pól- landi o.fl., o.fl., segir allt sem segja þarf þessu til staðfest- ingar. Nú hafa öfgafullir marxistar og kommúnistar haldið bresk- um námamönnum í verkfalli í tæpt ár. Deilan hefur snúist um það, hvort stjórn kola- námufélagsins geti lokað óarðbærum námum. Náma- mennirnir hafa smátt og smátt áttað sig á því, að forystumenn þeirra höfðu það ekki eitt að leiðarljósi að tryggja hag um- bjóðenda sinna heldur vildu þeir koma höggi á bresku ríkis- stjórnina, helst banahöggi. Námumenn hafa ekki getað látið vilja sinn í ljós í almennri atkvæðagreiðslu. Þeir hafa hins vegar greitt atkvæði með fótunum og gengið til starfa sinna þrátt fyrir áskoranir verkalýðsrekenda um annað. Síðustu tölur sýna, að meiri- hluti í félagi námamanna hefur nú hafnað stefnu Arthur Scargill og félaga með því að hefja störf þrátt fyrir yfirlýst verkfall. Þetta eru söguleg þáttaskil í breskri verkalýðs- baráttu sem eiga eftir að hafa áhrif út fyrir Bretlandsstrend- ur. Frjáls samkeppni á kostnað þjóðarbúsins? Eru kaupskipaútgerðir á „villigötum“? eftir Einar Hermannsson í kjölfar mikilla rekstrarörðug- leika Hafskips hf. á síðasta ári, sem sagðir eru hafa orsakast að hluta af „óvæginni" samkeppni annarra innlendra útgerða í áætl- unarsiglingum. Þá velta margir fyrir sér hvort ekki séu umtals- verðir annmarkar á skipulagi þessarar atvinnugreinar. Þeir þættir sem gefa slíkum vangavelt- um byr undir báða vængi eru t.d. sú staðreynd að í allflestum viðko- muhöfnum þessara útgerða á meginlandinu, Bretlandi og á Norðurlöndunum eru 2 eða 3 ís- lensk skip í hverri viku, jafnvel samdægurs, að „slást" um tiltölu- lega takmarkað vörumagn. Skipin eru lítil, samanborið við erlend skip sem anna slíkum flutningum. Margir telja því að núverandi skipulag komi í veg fyrir að hægt sé að nýta sér hina augljósu „hag- kvæmni stærðarinnar", þ.e.a.s. að anna þessum siglingum með allt að því tveimur þriðju færri en stærri og hagkvæmari skipum, og kosti þetta ástand þjóðarbúið stórfé í nafni „frjálsrar sam- keppni". Til að forðast allan mis- skilning, þá er hér einungis fjallað um útgerðir í áætlunarsiglingum, þ.e.a.s. með fastar reglubundnar viðkomur svokallaðra línuskipa. Þessi rekstur er enn sem komið er að mestu verndaður frá erlendri samkeppni, þar sem hann krefst sérstakrar aðstöðu og dýrra vöru- geymslna hérlendis. Annar þáttur sem hvetur við- skiptavini útgerðanna til umhugs- unar, eru sífelldar yfirlýsingar erlendra flytjenda og flutninga- miðla um að flutningstaxtar séu óheyrilega háir hérlendis í sam- anburði við slíka taxta á milli annarra landa. Þótt innlendu út- gerðirnar hafi oft sýnt fram á háa kostnaðarliði í siglingum til fs- lands, s.s. dýrar vörugeymslur, lé- lega nýtingu skipa og gáma vegna þess að hinar hefðbundnu útflutn- ingsvörur okkar eru ekki hentugar til flutninga i áætlunarskipum (einingaskipum), háan fjármagns- kostnað, verðbólgu o.s.frv., þá virðist samt vanta upp á að fulln- aðarskýring á hinum háu töxtum sé fyrir hendi, nema það skyldi vera óhagkvæmni þeirra smærri skipa sem við notum og marg- feldni í stjórnun, tækjabúnaði, að- stöðu o.s.frv. Orðatiltækið „frjáls samkeppni" hefur óspart verið notað við upp- byggingu útgerða, s.s. Hafskip hf. og í öðrum útgáfum, s.s. „vinnum saman" við uppbyggingu Skipa- deildar SfS. Þriðji aðilinn hf. Eim- skipafélag fslands, hefur ekki am- ast við þessum orðatiltækjum, að mati margra vegna þess að með tilkomu nýrra aðila hefur einok- unarstimplinum verið að nokkru létt af Eimskip. Þessi einokun- arstimpill var óspart notaður áður fyrr, þegar útgerðin var næstum allsráðandi í áætlunarsiglingum. Einnig er það mat margra, að hagsmunum Eimskips sé ekki best borgið með því að gína yfir öllu, smáu sem stóru. Spurningin er hins vegar sú, hvort þessi orðatilt- æki séu ekki farin að fjarlægjast upphaflega meiningu, ef afleið- ingarnar eru dýrari flutningar fyrir viðskiptavini og verri af- koma útgerðanna? Nú er því þannig háttað utan íslands, að yfirgnæfandi hluti áætlunarsiglinga eru stundaðar undir fyrirkomulagi sem nefnist „shipping conferences", eða „sam- siglingar“/„samsiglingakerfi“ eins og það hefur verið nefnt á ís- lensku. Slíkt fyrirkomulag felst í að útgerðir í áætlunarsiglingum á ákveðinni siglingaleið koma sér saman um bindandi flutninga- taxta, afslætti, viðkomutíðni, þjónustuliði o.s.frv. Við fyrstu sýn virðist hér um einokunar- eða „hringmyndunar“-kerfi að ræða og eru efalaust tilhneigingar í þá áttina, ef ekki er rétt haldið á spöðunum. í því sambandi má þó benda á, að hin stranga löggjöf í Bandaríkjunum um einokun og hringamyndun undanskilur „shipping conferences" sem nauð- synlegar til að tryggja í siglingum æskilega viðkomutíðni, stöðugt verðlag og þjónustu til viðskipta- vina, sem allt séu undirstöður frjálsrar milliríkjaverslunar. Út- gerðir í áætlunarsiglingum taka á sig umtalsverðar kvaðir með því að tryggja fastar og reglubundnar viðkomur í höfnum, án tillits til vörumagns hverju sinni. Einnig eru skip til áætlunarsiglinga sér- hæfð og dýr í rekstri (hraðskreið) og hafa takmarkað hagkvæmt notagildi til annarra siglinga og því fjárfesting í áætlunarskipum mjög viðkvæm fyrir utanaðkom- andi samkeppni. Útgerðir í áætl- unarsiglingum lærðu snemma af biturri reynslu, að þær yrðu að verja sig gegn utanaðkomandi samkeppni aðila sem voru tilbúnir að undirbjóða flutninga í höfnum þar sem nóg var af vörum, en ekki tilbúnir til að sinna öðrum höfn- um né neinum skuldbindingum um viðkomutíðni. Einnig komu til „blóðug" verðstríð á milli áætlun- arútgerðanna sjálfra á hinum ýmsu siglingaleiðum, sem leiddu af sér reglubundin gjaldþrot út- gerða og meðfylgjandi röskun á siglingum. Það skipulag sem áætl- unarútgerðirnar kusu sér, er það sem kallað er „shipping conferenc- es“ í dag og má nefna að yfir 300 slíkar „shipping conferences" eru í Evrópu, að ekki sé minnst á allan heiminn. Hafa stjórnvöld alls staðar í hinum frjálsa heimi við- urkennt nauðsyn slíkra „samsigl- ingakerfa“. í gegnum árin hafa þróast alþjóðlegar bindandi regl- ugerðir um starfsemi slíkra „sam- siglingakerfa". í þessum regl- ugerðum er reynt að tryggja hags- muni flytjanda gegn einokunart- ilhneigingum. Má þar t.d. nefna að skipaeigendum er skylt að til- kynna allar hækkanir á töxtum með minnst 90 daga og iðulega 150 daga fyrirvara, áður en þær koma til framkvæmda. Einnig er út- gerðum skylt að leggja fram til samtaka flytjenda (Shippers Councils, gæti t.d. verið Verzlun- arráð hérlendis) rökstuddar skýr- ingar fyrir hækkunum. I mörgum tilfellum eru ákvæði um, að ef ekki semst milli útgerða og flytj- enda um hækkanir, þá er málinu skotið til óháðs kjaradóms og ákvörðun hans bindandi. Hérlendis höfum við síðustu ár- in búið við nokkurs konar samsigl- ingakerfi í „öfugri meiningu", þ.e. a.s. að stykkjaflutningar eru háðir verðlagsákvæðum. Hækkanir á töxtum koma i kjölfar „rökstu- ddra“ hækkunarbeiðna útgerð- anna til verðlagsyfirvalda. Þetta fyrirkomulag hefur margoft sýnt sig meingallað, ekki síst í kjölfar slikra „rökstuddra" hækkunarb- eiðna, þegar útgerðirnar hafa síð- an keppst um að bjóða mismun- andi háa afslætti frá þessum ný- umbeðnu og „bráðnauðsynlegu" töxtum. Slík verðstríð, en eitt þeirra er nú í hámarki, eru þau sömu og knúðu áætlunarútgerðir erlendis til myndunar „samsigl- Einar Hermannsson „Önnur áleitnari spurn- ing er, hvort ekki megi tryggja betri grundvöll áætlunarútgeröa og hagsmuni viðskiptavina þeirra, ásamt umtals- verðum ávinningi fyrir þjóðarbúið með því að koma á „samsiglinga- kerfi“ milli allra þriggja núverandi innlendra áætlunarútgerða á helstu siglingaleiðum til meginlandsins, Bret- lands, Norðurlandanna og Bandaríkjanna.“ ingakerfa". Núverandi erfiðleikar Hafskip hf. eru glöggt dæmi um afleiðingar slíkra verðstríða og var t.d. Bifröst hf. annað dæmi fyrir nokkrum árum. Spurningin er sú, hvort með núverandi skipu- lagi komi ekki óhjákvæmilega upp slíkir erfiðleikar einstakra út- gerða nokkuð reglubundið og hvaða útgerð verði næst fyrir slík- um skakkaföllum? Önnur áleitn- ari spurning er, hvort ekxi megi tryggja betri grundvöll áætlunar- útgerða og hagsmuni viðskipta- vina þeirra, ásamt umtalsverðum ávinningi fyrir þjóðarbúið með því að koma á „samsiglingakerfi" milli allra þriggja núverandi inn- lendra áætlunarútgerða á helstu siglingaleiðum til meginlandsins, Bretlands, Norð- urlandanna og Bandaríkjanna? í kjölfar slíks samsiglingakerfis má síðan nýta hina augljósu „hag- kvæmni stærðarinnar". Áætlunarútgerðir, jafnvel um- fram aðra kaupskipaútgerð, eru þjónustufyrirtæki og eru því skuldbundnar til að sinna þörfum viðskiptavina sinna á sem hag- kvæmastan hátt. Þegar hugað er að þörfum viðskiptavina áætlun- arútgerða, þá eru hagkvæmir flutningstaxtar efst á blaði. En hagkvæmir flutningstaxtar eru ekki einungis þeir lægstu, heldur þeir sem sameina refelubundnar siglingar, stöðugt verðlag, ásamt sem lægstu flutningsgjaldi. Á ís- landi, sem umfram flest önnur lönd byggir afkomu sína á milli- ríkjaviðskiptum, er flestum ljóst hversu áríðandi það er að sjóflutn- ingar séu sem hagkvæmastir til að vega upp á móti landfræðilegri einangrun í samkeppni okkar við aðrar þjóðir um sölu á framleiðs- luvörum okkar. Slíkt á ekki síður við í aðflutningum til að halda niðri vöruverði í landinu og skapa sem hagkvæmust hráefniskaup til framleiðslu. Þetta á ekki síst við sjávarútveginn og iðnaðinn, þar sem fjárfestingu í framleiðslut- ækjum er stefnt í hættu með skyndilegum hækkunum á flutn- ingstöxtum sem gera framleiðsl- una ósamkeppnisfæra. Eins og áður var minnst á, eru innlendar áætlunarútgerðir varð- ar gegn erlendri samkeppni í gegnum sérreglur og fyrirkomulag hérlendis. Á hinn bóginn getur slíkt ástand breyst á mjög skömmum tíma t.d. með breyttri tollameðferð innflutnings, sam-. eiginlegri gámahöfn o.s.frv. Ef heldur fram sem horfir má búast við að íslensku áætlunarútgerð- irnar verði verr í stakk búnar til að takast á við slíka erlenda sam- keppni, ef ekki kemur til frekari samvinna, og óbreytt flutnings- gjöld bjóða slíkri erlendri sam- keppni heim. Þótt auðvelt sé að sýna fram á talnalegan ávinning sem nemur hundruðum milljóna króna með því að nýta „hagkvæmni stærðar- innar" í íslenskum áætlunarsigl- ingum, þá er ekki öll sagan sögð með því samsiglingakerfi, sem virðist vera lykillinn að því að hægt sé að nýta sér „hagkvæmni stærðarinnar". Það býður heim spurningum um hvort slíkt fyrir- komulag hefði ekki letjandi áhrif á útgerðirnar í að fylgjast með þróun í siglingum, auka hag- kvæmni í rekstri, o.s.frv. Samsigl- ingakerfi dregur einnig úr tryggð viðskiptavina við útgerðirnar og sviptir viðskiptavininn valkostum. Þótt í þessari grein sé lögð meiri áhersla á kosti „shipping confer- ences" en núverandi fyrirkomu- lags, þá er það fyrst og fremst til : að kynna hugmyndina, sem ekki hefur verið til umræðu hérlendis. Tilgangur greinarinnar er því ekki að leggja endanlegt mat á hag- kvæmni „shipping conferences", heldur að vekja upp umræðu um hvort breytt fyrirkomulag á ís- lenskum áætlunarsiglingum sé æskilegt og hvernig mögulega væri hægt að nálgast þann ávinn- ing sem „hagkvæmni stærðarinn- ar“ býður upp á í þessari atvinnu- grein. Einar Hermannsson er skiparerk- frædingur og rekur eigin rerkfræóistofu. Alið á ranghugmyndum um starfsemi Alþingis eftir Þorstein Magnússon Áhugi Islendinga á stjórnmál- um er, eins og við öll vitum, veru- legur og er yfirleitt mestur þegar kosið er til Alþingis. Þrátt fyrir þennan áhuga er það nú svo, að almenn þekking á störfum þessar- ar stofnunar virðist vera frekar lítil, enda ekki mikið verið gert af því að fræða fólk um starfsemi þingsins. Fræðsla af þessu tagi í grunn- og framhaldsskólum landsins er t.d. mjög af skornum skammti. Fræðsla um ræðulengd Vegna þessarar takmörkuðu fræðslu um störf Alþingis er lík- legt að vitneskja fólks um það sem fram fer á Alþingi mótist að miklu leyti af umfjöllun dagblaða og annarra fjölmiðla um stofnunina. Fjölmiðlarnir hafa því verulega í hendi sér hvers konar mynd al- menningur fær af Alþingi. Frá- sagnir fjölmiðla af Alþingi eru skiljanlega að miklu leyti bundnar við það sem fréttnæmast er hverju sinni af þessum vettvangi og lítil tök á því að gera fólki grein fyrir því hvernig Alþingi og þeir er þar vinna haga sínum störfum. Það er því auðvitað virðingarvert þegar dagblað eins og DV gerir tilraun til að upplýsa lesendur sína svolít- ið um það hvernig stofnunin starf- ar og hvað þingmenn hafa fyrir stafni. Þegar út í slíka fræðslu er farið verður þó að gæta þess að setja efnið ekki þannig fram að það geti valdið misskilningi hjá lesendum, eins og þvi miður hefur hent DV. Blaðið hefur tvívegis birt uppsláttarfréttir um ræðulengd þingmanna á Alþingi, nú síðast þann 28. janúar sl. í frásögn blaðsins í janúar er greint frá því hvað þingmenn hafa talað lengi og hversu oft frá þingbyrjun í októ- ber 1984 og fram að jólafríi í des- ember sama ár. í frásögninni kemur fram hverjir töluðu lengst og oftast sem og hverjir töluðu skemmst og sjaldn- ast. Jafnframt er athugað að nokkru hvernig þetta skiptist eftir þingflokkum, kjördæmum og kyn- ferði þingmanna. Fljótt á litið virðist þetta vera ósköp saklaust gaman og lesendur DV geta skemmt sér við að bera saman „frammistöðu" sinna manna og andstæðinganna. En hvað skyldi sitja eftir í huga lesandans að lestri loknum? Hvaða ályktun er sennilegt að hann dragi um störf þingmanna af þessum upplýsing- um DV? Ekki er ólíklegt að eink- um sitji tvennt eftir í huga lesand- ans að lestri loknum. Aherslan á þingsalinn 1) í fyrsta lagi er mjög líklegt að það sem eftir sitji sé sú hug- mynd að mikilvægustu störf þing- manna fari fram í þingsal. Öll framsetning frásagnarinnar býð- ur upp á það að lesandi, sem ekki þekkir til starfa Alþingis, komist að þeirra niðurstöðu að sú um- ræða sem á sér stað í þingsal sé þungamiðja þess starfs sem fram fer á Alþingi. Ennfremur að störf þingmanna á Alþingi snúist fyrst og fremst um að tala og hlýða á ræður í þingsölum. Blaðið gengur jafnvel svo langt að það leyfir sér að staðhæfa að vinnutími þing- manna hafi á haustþinginu verið tæpir 44 dagar og virðist þá telja saman þá daga sem fundir voru í þingsölum (deildum og sameinuðu þingi) þ.e. frá mánudegi til fimmtudags, eins og það séu einu dagarnir sem þingmenn starfi. í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að það kemur ósjaldan fyrir að fundir eru í þingflokkum og nefndum Alþingis á föstudögum auk þess sem þingmenn eru yfir- leitt bundnir að einhverju leyti við fundi og störf er tengjast þing- mennsku þeirra jafnt um heigar sem aðra daga. 1 frásögn DV er engin tilraun gerð til þess að útskýra fyrir les- endum að þingsalurinn er aðeins einn starfsvettvangur þingmanna af mörgum innan veggja Alþingis, og síst sá mikilvægasti. Ekkert er á það minnst að það sem gerist í þingsal segir því mjög takmarkað um störf Alþingis og að ekki er hægt að meta stofnunina einungis út frá því sem þar gerist. I reynd fer aðeins hluti af starfsemi Al- þingis fram í þingsölum og segja má að lítið af hinni eiginlegu vinnu þingmanna eigi sér þar stað. Hin raunverulega vinna innan veggja Alþingis fer fram á öðrum stöðum og þá einkum á þing- flokksfundum, nefndafundum og skrifstofum þingmanna. Ræðulengd og dugnadur 2) í öðru lagi er ekki ólíklegt að lesendur fái það á tilfinninguna að það sé eitthvað „jákvætt" við að tala sem oftast og lengst, og þá að þeir þingmenn sem oftast stíga i ræðustól og tala lengst séu jafn- framt duglegastir þingmanna. Þannig er almenningi óbeint gefið undir fótinn með að ræðulengd sé einhver mælikvarði á það hvernig þengmenn standa sig og því hætt við að einhverjir álykti sem svo að því oftar og lengur sem þingmenn tala því betur vinni þeir verk sitt og sinni skyldum á Alþingi. Auðvitað fer það gjarnan saman að menn tali oft og lengi úr ræð- ustól á Alþingi og sinni jafnframt vel þingmennskustörfum eins og reyndar „mælskukóngur" Alþingis í frásögn DV 28. janúar sl. er ágætt dæmi um. Það þýðir þó ekki að allir þeir sem lítt tala úr ræð- ustól séu einhverjir letingjar er sinni ekki skyldum sínum. I þessu sambandi er athyglisvert að þing- flokksformenn stjórnarflokkanna lenda tiltölulega neðarlega hvað ræðulengd varðar, en samt eru þessir menn í hópi þeirra þing- manna sem oftast hvílir á mest starf á Alþingi. Þetta sýnir hvað ræðulengd segir okkur tak- markaða sögu um störf þing- manna. Þ6 að blaðið segi að til- gangurinn með tölunum um ræðu- lengd sé ekki að mæla afköst þing- manna, þá er engu að síður hætt við að margir dæmi þingmenn að einhverju leyti á grundvelli þess- ara upplýsinga. Annað atriði í þessu samhengi er að blaðið birtir tölur er sýna að þingmenn stjórnarandstöðunnar tali að meðaltali mun oftar og lengur en þingmenn stjórnarinn- ar. Hér hefði verið sanngirni að benda á að ein skýringin á þessu er sú að oftlega eru þingmenn Þorsteinn Magnússon „Það að birta hins vegar tölur um ræðulengd án nokkurra frekari skýr- inga, eins og DV gerir, skilur lesandann eftir litlu nær um starfsemi Alþingis.“ stjórnarinnar undir þrýstingi frá forystu sinni um að vera stuttorð- ir og tala sjaldnar en stjórnarand- staðan svo að þingstörfin tefjist ekki og afgreiðslu stjórnarfrum- varpa seinki ekki. Stjórnarand- staðan hverju sinni er hins vegar ekki undir sömu pressu og því eðli- legt að stjórnarandstöðuþingmenn tali lengi og án þess að það segi svo mikið um vinnu þessara þing- manna á Alþingi. Vanhugsun og fljótfærni Með þessum athugasemdum er ekki verið að segja að athugun á ræðulengd þingmanna geti ekki þjónað neinum skynsamlegum til- gangi, því vissulega getur slík at- hugun verið fróðleg ef niðurstöð- urnar eru settar í skynsamlegt samhengi. Það er til dæmis at- hyglisvert að hérlendis láta óbreyttir þingmenn meira að sér kveða í þingsölum en tiðkast víða í þingræðisríkjum. Fram kemur hjá DV að ráðherrar tala aðeins um 23% þess tíma sem varið er í um- ræður. Það er hins vegar ekki óalgengt, t.d. í Bretlandi, að ráð- herrar noti allt að 70% umræðu- tímans meðan aðrir þingmenn, sem eru sex sinnum fleiri, fá að- eins 30% tímans. Með því að bera tölur DV saman við upplýsingar sem við höfum um erlend þjóðþing er greinilegt að þingmenn hér hafa miklu meiri möguleika en víðast í öðrum þingræðisríkjum til að tjá sig í þingsölum, og skýrist það m.a. af því hversu þingmenn eru fáir hérlendis. Það að birta hins vegar tölur um ræðulengd án nokkurra skýr- inga, eins og DV gerir, skilur les- andann eftir litlu nær um starf- semi Alþingis. Það er frekar hætt við því að frásögn DV ýti undir þá ranghugmynd að störf Alþingis fari fyrst og fremst fram í þing- sölum og því sé eðlilegt að dæma Alþingi og þingmenn út frá því sem þeir gera þar. Þannig getur framsetning DV á ræðulengd þingmanna frekar orðið til þess að ala á fordómum um störf Alþingis en að hún veiti lesandanum inn- sýn í störf stofnunarinnar. Hér er alls ekki verið að segja að þetta hafi verið ásetningur blaðsins, heldur er hér greinilega um van- hugsun og flótfærni að ræða, sem vonandi er að blaðið endurtaki ekki. Þorsteinn Magnússon er stjórn- málafræðingur og rinnur um þess- ar mundir að doktorsritgerð um starfsemi Alþingis rið háskólann í Exeter á Englandi. Búnaðarþing: Endurskoðuð verði lagaákvæði um rekst- ur búfjár eftir vegum BUNAÐARÞING hefur falið stjórn Búnaðarfélags íslands að hlutast til um endurskoðun á þeim lagaákvæð- um, sem fjalla um rekstur búfjár eft- ir vegum, girðingar meðfram þjóð- vegum, val á veglínum og fleira sem leiðir af lagningu nýrra vega og/eða enduruppbyggingu eldri vega. Ályktunin var gerð vegna erind- is búnaðarþingsfuiltrúa Suður- lands um að þessi mál yrðu tekin til umfjöllunar vegna dóms sem féll í skaðabótamáii sem rekið var fyrir aukadómþingi Árnessýslu þar sem bóndi var dæmdur til að greiða vegfaranda hluta skemmda sem urðu á bíl hans er hann ók á kindur bóndans sem hlupu upp á veginn úr fjárhóp sem hann rak meðfram þjóðveginum. I ályktun þingsins er sagt að með tilkomu bundins slitlags á þjóðvegi, auknum hraða í umferð og aukinni umferð á þjóðvegum landsins hafi skapast ný viðhorf á ýmsum sviðum gagnvart bændum. f því sambandi er bent á aðstöðu til þess að nytja lönd, umferð með búfé og vörslu þess. Sú endurskoð- un sem stjórn Búnaðarfélagsins er falið að hlutast til um á að miða að því að minnka hættu á slysum svo sem auðið er, en tryggja jafnframt eðlilegan rétt bænda til umferðar með tæki og búfé vegna nytja á jörðum sínum. Þá verði sérstak- lega athugað hvernig koma megi við bættum vörnum gegn því að búfé gangi laust meðfram þjóð- vegum í byggð. Fiskeldi á bænda- býlum verði athugað BUNAÐARÞING það sem nú situr hefur í ályktun um fiskeldi skorað á landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir því að gerð verði ítarleg úttekt á því, hvar og hversu víða aðstaða er til fiskeldis á bændabýlum í landinu, svo meta megi hverja þýðingu fjöl- skyldubúskapur í þessari búgrein gæti haft til atvinnurekstrar í sveit- um. Þingið skoraði einnig á ráðherr- ann að beita sér fyrir því að áfram verði unnið að því að auka nytjun í silungsvötnum landsins, bæði með því að skipuleggja dreifingu og sölu aflans og ekki síður með því að efla leiðbeiningastarf í þessari grein, sem nú er mjög í molum. I greinargerð með ályktuninni segir að mikið sé nú rætt um að efla þurfi nýjar búgreinar í sveit- um, til þess að snúa vörn í sókn í atvinnumálum og væri þá jafnan nefnt fiskeldi, næst á eftir loð- dýrarækt. „En það er mála sann- ast, að tal manna um fiskeldi sem raunhæfan valkost í atvinnuupp- byggingu í dreifbýli er mjög í lausu lofti að því er varðar þekk- ingu á náttúrulegum aðstæðum fyrir slíkan búskap," segir í grein- argerðinni. Hvatt er til að slík at- hugun verði gerð því tímabært sé og raunar aðkallandi, að bændum og öðrum, sem í sveitum vilja vera, sé gerð grein fyrir því hverj- ir möguleikar eru hér fyrir hendi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.