Morgunblaðið - 01.03.1985, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
9
Viltu bjóða gestum
þínum gott brauð?
Snittur — brauðsneiðar
af öllum stæröum og geröum.
Okkar brauö eru ööruvísi.
Seljum út — sendum heim.
Hringdu í síma 11440.
Hótel Borg
Bladburdarfólk
óskast!
Austurbeer
Laugarásvegur 32—77 Lindargata frá 40—60
Síöumúli Miðbær I
Sóleyjargata Bergstaöastræti 1—57
Stórsýningin
Safnahúsinu á Húsavík
veröur opnuö í dag 1. marz 1985 kl. 20
Allir velkomnir
Leifur Vilhelm Baldursson og Úlrik Ólason
leika Ijúfa jasstónlist.
Hótel Húsavík og Mjólkurstöð KÞ annast veit-
ingar.
Opnunartímar sýningarinnar:
1. marz 20—23. 2.-4. marz 15—22
Þessir sýna:
Aðalsteinn Vestmann
Alice Sigurðsson
Arnar Björnsson
Auður Helgadóttir
Baltasar
Benedikt Jónsson
Benedikt Gunnarsson
Bertil Thorvaldsen
Bolli Gústavsson
Daði Halldórsson
Einar Hákonarson
Einar Ólason
Elías B. Halldórsson
Gígja Þórarinsdóttir
Guðlaugur Arason
Guðm. Ármann Sigurjónsson
Guömundur Þorsteinsson
Gunnar Dúi Júlíusson
Gunnar Rafn Jónsson
Gunnar Straumland
Gústav Geir Bollason
Gústav A. Guðmundsson
Hallfríöur Jónasdóttir
Hallsteinn Sigurösson
Helgi Jósefsson
Helgi Vilberg
Hólmfríöur Bjartmarsdóttir
Hringur Jóhannesson
Hrönn Eggertsdóttir
löunn Ágústsdóttir
Ingvar Þorvaldsson
Kári Sigurösson
Katrín Jónsdóttir
Kristinn G. Jóhannsson
Kristín Rúnarsdóttir
Kristlaug Pálsdóttir
Leifur Breiðfjörð
Marinó Björnsson
Matthildur Zóphaníasdóttir
Oddný Magnúsdóttir
Óli G. Jóhannsson
Ólöf Pálsdóttir
Pétur Friðrik
Rafn Hafnfjörö
Ragnar Lár
Rannveig Benediktsdóttir
Rúnar Þór Björnsson
Rúnar Hannesson
Samúel Jóhannsson
Sigrún Eldjárn
Siguröur Aöalsteinsson
Siguröur Hallmarsson
Sigurgeir Jónassson
Sigurpáll ísfjörö
Snæfríður Njálsdóttir
Valgaröur Stefánsson
Valtýr Pótursson
Veturliði Gunnarsson
Þorgerður Siguröardóttir
Þórhildur Jónsdóttir
Þráinn Karlsson
Þröstur Sigurösson
Örlygur Kristfinnsson
Örn Friðriksson
Örn Ingi
Auk þess styöja fjölmörg fyrirtæki sýninguna.
Komið, sjáið, kaupið.
Styðjið uppbyggingu Sumarbúðanna við
Vestmannsvatn.
„Alþýðubandalagið ber sína
ábyrgð á sundurþykkju
innan samtaka launafólks“
— segir m.a. í svarbréfi Kvennalistans, þar sem
viðræðum við Alþýðubandalagið er hafnað
ALÞÝÐUBANDALACINtl befur lítiA orAM á|H|(l í tilraunum sínuin utn
viðræður um mvndun „uýs landstjórnaraffcT og hefur bandalaginu borist
formleg neitun um slfkar viðræður bæði frá Bandalagi jafnaðarmanna og
Kvennaframboðinu, eins og greint befur verið frá í fréttum Morgunblaðsins.
Hér á eftir fer bréf Kvennaframboðsins þar sem viðræðum þessum er
hafnað:
„Með bréfi dagsettu 15. jan. upp við sig, að þær breytingar,
1985, fer Alþýðubandalagið þess á sem nauðsynlegar eru til að
leit við Kvennaframboðið í konur og aðrir *
Reykjavík að bað tilnefní nof«4
— að lausn á vanda islensku þjóö-
arinnar. sérdeilis vanda is-
lenskra kvenna, er ekki í þvi
fólgin, að stjórnarandstoðu-
flokkarnir fjórir „nái nægilega
saman til aö krefjast forystu á
sviði landstjórnar". í því sam-
bandi vill Kvennaframboðið í
Reykjavík minna á, að tveir
þessara flokka, þ.e. Alþýðu-
bandalagið og Aiþýðuflokkur-
Kvennalistinn hryggbrýtur
Alþýöubandalagiö
Alþýðubandalagiö kom nýlega á koppinn fjölmennri nefnd,
sem sameina átti stjórnarandstöðuflokka í „nýtt landstjórnarafl"
undir forystu Svavars Gestssonar. Bandalag jafnaðarmanna
baðst strax undan samfylgd Alþýðubandalagsins. Kvennafram-
boðið í Reykjavík hefur einnig hryggbrotið biðilinn. Eftir situr
Alþýðubandalag í öldudal skoðanakannana með Fylkingarfélaga
í hörkuslag við „verkalýösarm“ flokksins.
Alit og hróður
A-flokka
Um eitt eru Bandalag
jafnaðarmanna og Kvenna-
listinn sammála: að hafna
bónorði Alþýðubandalags-
ins um viðræður stjórnar-
andstöðuDokka um „nýtt
landstjórnarafl“ undir for-
ystu Alþýðubandalagsins.
Eftir situr Alþýðubanda-
lagið, hryggbrotið, í öldu-
dal skoðanakanna. Eftir
situr fjölmenn viðræðu-
nefnd, sem Svavar Gests-
son kom á legg, hafandi
ekki annað að gera en líma
saman stríðandi brotabrot
í hrófatildri Alþýðubanda-
lagsins sjálfs.
Kvennalistinn segir m.a.
í hryggbrotsbréfi sínu:
„í því sambandi vill
Kvennaframboðið í
Reykjavík minna á. að
tveir þessara flokka, þ.e.
Alþýðubandalagið og Al-
þýðuflokkurinn, hafa þrá-
faldlega setið í ríkisstjórn
og hafa verk þeirra þar
hvorki verið til að auka álit
þeirra né hróður..
Þar sem allt
logar í inn-
byrðis ófriði
Afstaða Bandalags jafn-
aðarmanna og Kvenna-
framboðs er skiljanleg. Al-
þýðubandalagið er varla í
stakk búið til að sameina
vinstri flokka né veita
þeim pólitíska forystu.
Sjálft er það rúið fylgi,
samkvæmt skoðanakönn-
unum, og logandi ■ inn-
byrðis ófriði, þar sem fjöldi
ólíkra „sella" stendur í
innbyrðis stríði. Ekki skán-
aði standið á Goddastöðum
þegar Fylkingin, samtök
byltingarsipnaðra sósíal-
ista, gekk á einu bretti í
Alþýðubandalagið og hóf
tafarlausan skæruhernað
gegn þeim Alþýðubanda-
lagsmönnum, sem hafa
haft trúnaðarstörf innan
verkalýðshreyfíngarinnar á
hendi. Arangur þessara
„skæniliða" kom m.a.
fram í „hallarbyltingu"
innan Verkalýðsmálaráðs
flokksins, sem nýlega varð.
Sú fjölmenna viðræðu-
nefnd, sem Svavar Gests-
son hugðist gera út á mið
annarra vinstri flokka í
landinu, til að hressa upp á
hrófatildrið, nær hvergi
eyrum annarra stjórnar-
andstöðuflokka. Hún kem-
ur hvarvetna að lokuðum
dyrum. Hinsvegar sýnist
hún hafa ærið verk fyrir
höndum, að líma saman
brotabrotin í Alþýðubanda-
laginu og lægja þar ófriðar-
öldur. Alþýðubandalagið,
sem í orði slær eign sinni á
friðinn í heiminum á stór-
um áróðursstundum,
stendur upp í eyru í inn-
byrðis ófriði — ekkert sést
um það hvernig „bezt“
verði stuðlað að ófriði í ís-
lenzkum þjóðarbúskap!
í heild er vinstriflokka-
flóran lasleg og lakur kost-
ur.
Frúnerki
á Alþýðu-
bandalagið
Kvennaframboðió í
Keykjavík hefur hryggbrot-
ið Alþýöubandalagið. I»vi
er ekki alls varnað. I>að
breytir hins vegar ekki því
að þingmenn Samtaka um
kvennalista hafa í umræð-
um og afstöðu til mála á
þingi skipað sér hið næsta
Alþýðubandalaginu, ekki
sízt f afstöðu til öryggis-
mála og orkuiðnaðar, og
raunar á flesta grein.
Stundum er engu líkara en
Kvennalistinn á Alþingi sé
eins og límt frímerki á AF
þýðubandalagið.
Konur hafa mismunandi
afstöðu til stjórnmála,
engu síður en karlar. I*að
er sem betur fer vonlaust
verk fyrir Kvennalistann
að ætla að móta allar kon-
ur að vinstri pólitík, eins og
tilgangurinn sýnist vera.
Konur starfa innan allra
stjórnmálaflokka, hægri
flokka ekkert síður en
vinstri flokka. og gegna
þar margvíslegum trúnað-
arstörfum innan sveitar-
stjórna og þings. Kona
gegnir nú embætti ráð-
herra öðru sinni á vegum
Sjálfstæðjsflokksins. Kona
gegnir forsetastarfi á Al-
þingi á vegum Sjálfstæðis-
flokksins. Kona hefur
gegnt borgarstjórastarfi í
Keykjavík á vegum Sjálf-
stæóisflok ksins. Allt er
þetta sjálfsagt og eðlilegt
og ætti ekki að vera sér-
stakrar frásagnar vert.
Sannleikurinn er hinsvegar
sá að enginn vinstri flokk-
ur hefur sýnt konum sam-
svarandi trúnað. I>að er at-
hyglisvert.
Samtök um Kvcnnalista
hafa tilcinkað sér vinstri
viðhorf í störfum og af-
stöðu til mála á Alþingi.
I>eim er það að sjálfsögðu
frjálst l>au eru í reynd
einn vinstri flokkurinn í
viðbót. Konur sem aöhyll-
ast frjálslynd, hægri sjón-
armið eiga hins vegar enga
samleið með þeim, þvert á
móti.
Sunnangola og sólskin í Miðfirði
Staóarbakka, 28. febrúar.
EKKI fer það á milli mála að það
sem af er þessum vetri hefur tíðarfar
verið með eindæmum hagstætt, logn
og hægviðri tímum saman og mjög
úrkomulítið. Hríðarveður af norðri
gerði eina nótt og er það í eina skipt-
ið sem veður hefur versnað. Snjóföl
hefur alloft komið í logni og stund-
um allmikil hálka verið á vegum þar
af leiðandi.
í dag er sunnangola og sólskin
og 8 stiga hiti, alautt í lágsveitum.
Færð á vegum eins og um sumar-
dag og snjómokstur óþekkt fyrir-
bæri.
Þar sem samgöngur hafa verið
svo greiðar hefur verið talsvert
um allskonar fundi og samkomur.
Þorrablótin munu nú vera öll af-
staðin. Þau voru haldin í öllum
samkomuhúsum héraðsins, voru
mjög vel sótt og fóru vel fram. Á
vegum Ungmennasambands Vest-
ur-Húnavatnssýslu hefur á und-
anförnum vetrum farið fram
spurningakeppni milli hreppanna
Náttúruverndarráð:
Athugasemd vegna
fréttar um selagengd
í DAG, 28. febrúar, birtist í Morgunblaðinu stutt frétt um mikla selagengd í
ísafjaröardjúpi eftir Jens í Kaldalóni. Þar er því haldið fram að Náttúruvernd-
arráö hafi beitt sér fyrir friðun sela. Þetta er rangt, Náttúruverndarráð hefur
aldrei látiö þá skoðun í Ijós eða reynt
hætt hér við land.
Þvert á móti hefur Náttúru-
verndarráð lýst yfir þeirri skoðun
að sjálfsagt sé að halda selastofn-
um i skefjum sýni rannsóknir fram
á að þess sé þörf. En það er ekki
sama hvernig að þeim er staðið eða
þeim stjórnað og þess vegna hefur
ráðið leyft sér að gagnrýna þær
skipulagslausu selveiðar sem
> beita sér fyrir því að selveiðum yrði
fyrir undanfarin ár. Ennfremur
hefur Náttúruverndarráð leyft sér
að efast um að þáttur sela í hring-
ormavandamáli fiskiðnaðarins sé
eins einfaldur og Hringormanefnd
vill vera láta, og verður ekki betur
séð en mikill meirihluti líffræðinga
sé þar á sama máli og ráðið.
(Náitúruverndarráð)
Hringormanefnd hefur beitt sér
á svæðinu. Fer slík keppni fram
nú á næstunni og verða samkomur
með skemmtiatriðum á fjórum
stöðum í sýslunni. — Benedikt.
Verkfalli
frestað
VERKFALLI ófaglærðs starfs-
fólks á vistheimilinu Sólheimum í
Grímsnesi, sem hófst aðfaranótt
sl. mánudags, var frestað í gær-
morgun. Þá tókust nýir samningar
um kaup og kjör milli verkalýösfé-
lagsins I>órs á Selfossi og fjár-
málaráðuneytisins. Ófaglærðir
starfsmenn á Sólheimum eru
fimmtán en vistmenn 42.
Samkomulag tókst um þrjú-
leytið í fyrrinótt eftir liðlega
þrettán stunda langan samn-
ingafund, að sögn Hafsteins
Stefánssonar, starfsmanns
verkalýðsfélagsins. I samningn-
um felst að starfsmenn hækka í
launum um 26% frá desember-
launum. í dag, 1. mars, hækka
laun um tæp 4% til viðbótar, 1.
maí um 3,5% og 1. júní enn um
3%. Jafnframt náðu starfsmenn
fram nokkurri hækkun á ferða-
peningum og desemberuppbót.
Hækkun til umsjónarmanna á
vinnustöðunum á Sólheimum
nemur 11,59% frá desember-
launum.