Morgunblaðið - 01.03.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
Athugasemd við
grein Páls Bergþórs-
sonar um orkuspár
— eftir Jakob
Björnsson
í Morgunblaðinu 15. febr. sl. er
grein eftir Pál Bergþórsson, veð-
urfræðing, sem hann nefnir „Um
orkuspár". í grein þessari kemur
fram misskilningur, vafalaust
vegna ókunnugleika, sem nauð-
synlegt er að leiðrétta. Af mis-
skilningnum sprettur síðan gagn-
rýni sem ekki á við rök að styðjast
og ábendingar sem eru út í hnött.
Páll víkur fyrst að fréttatil-
kynningu frá Orkuspárnefnd, og
telur að hún varpi „nokkru ljósi á
starfsaðferðir við þessar spár“.
Sannleikurinn er sá, að af þessari
greinargerð nefndarinnar verður
alls ekkert ráðið um vinnuhætti
hennar eða aðferðir við að gera
sjálfar spárnar, heldur fjallar hún
aðeins um samanburð á spám og
raunverulegri þróun raforkunotk-
unar, ásamt tilraun til að skýra
frávik hennar frá spánni. í grein-
argerðinni er t.d. fjallað um al-
menna raforkunotkun í einu lagi,
en hún ekki greind í notkunar-
flokka, sem er hið fyrsta sem
menn gera þegar spáð er um
orkuþarfir framtíðarinnar. f grein
Páls kemur fram, að hann heldur
að nefndin hafi „gefið sér“ sem
forsendur spárinnar, að „notkun-
araukning sé og muni verða
ákveðinn hundraðshluti af notk-
uninni sjálfri", þ.e. samanlagðri
almennri notkun því aðrar notk-
unartölur hafði hann ekki undir
höndum úr greinargerð nefndar-
innar. Síðar í greininn kemst Páll
svo að þeirri niðurstöðu að „strax
í árslok 1979, ef ekki fyrr, hefði átt
að breyta grundvallarforsendum
orkuspárinnar og reikna með um
það bil 75 GWh aukningu hvert ár
framundan, eins og meðaltalið
hafði þá bent til í mörg ár“.
Gallinn við þessa ábendingu
Páls er sá, að þær „grundvalar-
forsendur" sem hann telur að
hefði átt að breyta „strax í árslok
1979, ef ekki fyrr“ eru ímyndun
hans sjálfs, sem enga stoð eiga í
starfsháttum Orkuspárnefndar.
Nefndinni hefur aldrei til hugar
komið að gera spár sínar með
þeim hætti að framreikna heild-
arnotkunina til almenningsþarfa,
sem er samsett úr mörgum mis-
munandi notkunarflokkum, með
einföldum prósentureikningi um
alla framtíð, eða með föstum ár-
legum vexti í GWh, eins og
„endurbót" Páls fólst i. Mér er
ekki kunnugt um að þesskonar að-
ferðum sé neinsstaðar beitt við að
gera raforkuspár. Svo tekið sé til
samanburðar svið þar Páll er vel
heima samsvara þvílíkar „orku-
spár“ einna helst því, að veður-
fræðingur spái veðrinu á morgun
með þeim einfalda hætti að segja
að það verði hið sama og í dag, án
þess að gera sér neina rellu út af
ferðalagi lægða og hæða eða öðr-
um orsakaþáttum veðurlagsins.
Raforkunotkun á sér orsakir,
menn nota raforku í ákveðnum til-
gangi, mismunandi eftir notkun-
arflokkum (svo sem rafhitun,
heimilisnotkun, almenn iðnaðar-
notkun, stóriðjunotkun, notkun í
verslunum, skrifstofum, sjúkra-
húsum og öðrum þjónustustöðvum
fyrir almenning o.s.frv.). Þegar
raforkuspá er gerð reyna menn að
rýna í hvernig þessir orsakaþættir
muni þróast í framtíðinni á hverju
sviði um sig og hvernig samhengi
þeirra við sjálfa notkunina muni
breytast. Hve margir af þeim sem
búa við olíuhitun þegar spáin er
gerð munu t.d. fara yfir í rafhit-
un? Hve hratt munu þeir gera það
og hve mörg ný rafhituð hús verða
reist og hve ört? Mun húsrými á
hvern íbúa halda áfram að vaxa og
þá hve hratt? Hve margir verða
Éi
Jakob Björnsson
„Með þessari athuga-
semd er ekki verið að
fInna að því að Páll
gagnrýnir Orkupsár-
nefnd, heldur hinu, að
hann hefur ekki kynnt
sér málið áður en hann
gagnrýnir.“
íbúarnir? Mun raforkunotkun til
hitunar á hvern rúmmetra hús-
rýmis lækka í framtíðinni vegna
bættrar einangrunar? Hve mikið
og hve ört? Þessum og þvílíkum
spurningum er nauðsynlegt að
reyna að svara ef menn vilja gera
sér grein fyrir líklegri notkun á
raforku til húshitunar í framtíð-
inni, sem er einn flokkurinn í raf-
orkuspá Orkuspárnefndar. Til-
svarandi spurningum verður að
svara fyrir aðra notkunarflokka.
Svona eru raforkuspár gerðar.
Eins og menn sjá af þessu dæmi
er spurningum sem þessum oft
ekki auðsvarað, ekki síst þegar
umhleypingar ganga í orkumálum
og efnahagsmálum eins og verið
hefur Iengst af síðan í orkukrepp-
unni 1973. Orkuspár bregðast því
oft, bæði hér á landi og annars
staðar. Spár Orkuspárnefndar
þola í því efni mætavel saman-
burði við samskonar spár í öðrum
iðnríkjum, þar sem skýrslugerð í
orkumálum og sérstaklega efna-
hags- og atvinnumálum er þó víða
mun fullkomnari en hér. Þetta er
hliðstætt því að Páli og félögum
hans reynist stundum örðugt að
ráða í duttlunga lægða, hæða og
skila. Samt reyna þeir það í stað
þess að spá sama veðri á morgun
og er í dag. Þeir reyna stöðugt að
bæta aðferðir við veðurspár. Á
sama hátt reyna orkuspámenn að
rýna í orsakaþætti raforkunotk-
unar og þróunar þeirra í framtíð-
inni. Einnig þeir reyna stöðugt að
bæta vinnuaðferðir sínar.
Hitt er annað mál, að þeir hafa
ekki alltaf erindi sem erfiði. Þegar
stöðugleiki ríkir í efnahagsþróun-
inni og verðlagi á orku í heiminum
getur það vel komið fyrir að ein-
faldur framreikningur á orku-
notkun fortíðarinnar gefi lítið eða
ekki lakari útkomu en margbrotn-
ari aðferðir. Jafnnvel á óróleika-
tímum getur það sýnt sig eftir í að
útkoman verði svipuð. Þegar stað-
viðri ríkja er það heldur ekki svo
fjarri lagi að ætla að veðrið á
morgun verði eins og í dag. Sú get-
ur líka stundum orðid raunin á í
umhleypingum. Sem aðferð við
veðurspár dugir slík staðhæfing
samt ekki og á sama hátt er ein-
faldur framreikningur fortíðar-
innar alls ekki nothæf aðferð við
orkuspár. Gildir þar einu hvort
menn vilja reikna með föstum
hlutfallslegum vexti ár eftir ár,
eða fastri viðbót við notkunina á
hverju ári.
Með þessari athugasemd er ekki
verið að finna að því að Páll gagn-
rýnir Orkuspárnefnd, heldur hinu,
að hann hefur ekki kynnt sér mál-
ið áður en hann gagnrýnir. Hefði
hann t.d. náð sér í raforkuspá
Orkuspárnefndar frá 1981 sem er
öllum aðgengileg, og kynnt sér
forsendur spárinnar og vinnu-
brögð sem þar er rækilega lýst,
hefði hann komist hjá því frum-
hlaupi sem grein hans er, og e.t.v.
getað komið með málefnalega
gagnrýni. Slíka gagnrýni vill
nefndin gjarnan fá, en frábiður
sér „gagnrýni" af því tagi sem
grein Páls er.
Jakoh Björnsson er orkumila-
stjóri.
Blótsgestir við hlaðin borð.
Neskaupstaður:
Morgunblaðid/SÍKurbjörK
Blótsgestir koma með þorra-
matinn með sér í trogum
NeHkíupsta*, 24. febrúar.
ÁRLEGT þorrablót Sjálfstæðisfé-
lags Norðfjarðar var haldið 16.
febrúar síðastliðinn. Blótið var
fjölsótt og tókst vel í alla staði.
Heiðursgestir voru Þráinn Jónsson
og frú frá Egilsstöðum, einnig var
Sverrir Hermannsson iðnaðarráð-
herra gestur blótsins.
Fjölbreytt skemmtiatriði voru
og fjöldasöngur. Það setur svip
sinn á þorrablótin hér í Nes-
kaupstað að gestir koma með
þorramatinn með sér í trogum.
Blótsgyðja var Stella Stein-
þórsdóttir. Eftir borðhald var
dansað fram á rauða nótt.
— Sigurbjörg
Kvartett Norðfirðinga tekur lagið.
Yfirmenn á farskipum:
Atkvæðagreiðsla til 15. mars
MISHERMT var í blaðinu á þriðju-
daginn að allsherjaratkvsðagreiðsla
yfirmanna á farskipum um nýgerðan
kjarasamning stæði til 5. mars
næstkomandi. Atkvæðagreiðslan
stendur til kl. 16 hinn 15. mars.
Yfir 600 félagar í Skipstjórafé-
lagi íslands, Stýrimannafélagi ís-
lands, Vélstjórafélagi íslands, Fé-
lagi loftskeytamanna og Félagi
bryta taka þátt í atkvæðagreiðsl-
unni. Hver félagsmaður fær send-
an atkvæðaseðil og sendir hann
síðan til baka til höfuðstöðva Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins í Reykjavík, þar sem talið
verður sameiginlega upp úr köss-
unum.
Slökkviliðið á
firði endurski
UNDANFARIÐ hefur staðið yfir
nokkur endurskipulagning á Slökkvi-
liði Vopnafjarðar. Til að forvitnast ör-
lítið um gang þeirra mála fór fréttarit-
ari á stúfana, fylgdist með æfingu hjá
slökkviliðinu síðastliðinn laugardag
og ræddi stuttlega við slökkviliðs-
stjórann, Imrarin Þorgeirsson. Hann
sagði að töluverðar mannabreytingar
hefðu orðið í liðinu undanfarið og
væri nú kominn fastur hópur 18
manna sem skipaði aðallið slökkvi-
liðsins. Búið væri að fá búninga á alla
mennina. Nýkomin væru tvö reykköf-
unartæki mjög fullkomin af AGA-gerð
Morgunblaðid/Björn
Slökkvilið Vopnafjarðar. Slökkviliðsstjórinn er lengst til vinstri.
og einnig tæki til að hlaða súrefnis-
kúta og er það mjög til bóta þar sem
áður þurfti að senda þá í hleðslu til
Akureyrar.
Þórarinn gat þess að 3 menn
hefðu farið á reykköfunarnámskeið
á síðastliðnu ári og einnig hefðu
þeir fengið hingað mann úr Reykja-
vík, sem hafði haldið með þeim
þriggja daga æfingu síðastliðið
haust. Slöngur hafa allar verið
endurnýjaðar á öðrum tveggja bfla
slökkviliðsins eða alls um 840 metr-
ar.
Eitt af þeim atriðum sem háð
hefur lengi er húsnæðisleysi fyrir
bíla og búnað liðsins, en það stend-
ur til bóta því innan skamms mun
slökkviliðið flytja í nýtt húsnæði
þar sem aðstaða öll mun verða
nokkuð góð. Þórarinn tók fram að
það næsta sem þörf væri á af tækj-
um væri sög til að rjúfa með þök,
reykblásari svo og endurnýjun á
stigum tveggja bílanna sem væru
orðnir mjög lélegir. Útköll urðu alls
4 á árinu 1984 og æfingar 13 talsins.
B.B.