Morgunblaðið - 01.03.1985, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
Andrew prins
nauðlenti þyrlu
London, 28. febrúar. AF. JL
Bensínstödin þar sem sprengjan sprakk, skemmdir bflar sjáanlegir fyrir framan stöðina. AP/Símamynd
Norður-írland:
INLA sprengdi við
knattspyrnuyöllinn
ANDREW prins nauölenti þyrlu
brezka sjóhersins á Falklandseyjum
vegna vélarbilunar, að því er tals-
maður varnarmálaráðuneytisins
staðfesti. Atburðurinn átti sér stað
15. febrúar sl., en ekki var skýrt frá
því fyrr en í dag, daginn eftir að
ensk blöð höfðu sagt prinsinn ýmist
hafa brotlent, nauðlent á sjó eða lif-
að af dramatíska nauðlendingu.
Prinsinn, sem er 25 ára, stýrði
Lynx-kafbátaleitarþyrlu í eftir-
litsferð við Falklandseyjar þegar
hún bilaði skyndilega. í stað þess
að reyna að ná til móðurskips síns,
freigátunnar HMS Brazen, ákvað
hann að freista lendingar á landi
vegna þess að styttra var þangað.
Eftir giftusamlega lendingu
voru flugvirkjar sendir með ann-
arri þyrlu til lands. Að lokinni
bráðabirgðaviðgerð flaug Andrew
þyrlunni til skips. Bornar voru til
baka fregnir um að prinsins hafi
verið saknað í tvær stundir er at-
vikið átti sér stað.
Andrew prins er nú í eftirlits-
leiðangri við Falklandseyjar með
skipi sínu, Brazen, en leiðangrin-
um lýkur í júní. Hann tók virkan
þátt í bardögum í Falklandseyja-
Andrew prins
stríði Breta og Argentínumanna
1982.
GENGI
GJALDMIÐLA
Dollar
hækkar
London, 28. febrúar. AP.
Bandaríkjadollar hækkaói í
verði á gjaldeyrismörkuðum í Evr-
ópu seinni part dagsins þrátt fyrir
íhlutun vestur-þýzka seðlabankans,
sem var þó óveruleg. Verð á gulli
lækkaði.
Evrópskir seðlabankar sam-
ræmdu aðgerðir í gær og losuðu
sig við 1,5 milljarða dollara, sem
leiddi til verðlækkunar á dollar.
Þýzki seðlabankinn seldi 170
milljónir dollara í dag sem olli
verðlækkun um stundarsakir, en
er í ljós kom að ekki var um sam-
ræmdar aðgerðir fleiri banka að
ræða hækkaði verðið á dollar á
ný. Spáð er áframhaldandi verð-
hækkun á dollar ef bankarnir
haida ekki áfram samræmdum
aðgerðum.
Verðbréf lækkuðu í New York í
dag í kjölfar verðlækkunar doll-
ars í gær og ótta við vaxtabreyt-
ingar. Verðbréf hækkuðu í Lond-
on í dag af sömu ástæðu.
Gengi gjaldmiðla var þannig í
kvöld að sterlingspundið kostaði
1,0842 dollara miðað við 1,0885 í
gær. Fyrir einn dollar fengust
3,3450 þýzk mörk (3,3285), 2,8575
svissneskir frankar (2,8375),
10,2300 Frakklandsfrankar
(10,1850), 3,7850 hollenzk gyllini
(3,7650), 2.073,50 lírur (2.062,50),
1,3865 Kanadadollarar (1,3835)
og 259,00 jen (261,10). Gullúnsan
kostaði 288,25 dollara í London í
kvöld, miðað við 290 dollara í
gær._______________
Belfast, 28. febrúar. AP.
ÖFLUG sprengja sprakk í bílskúr
aðeins 180 metra frá Windsor-
knattspyrnuvellinum í Belfast í
gærkvöldi, aðeins tæpri klukku-
stund eftir að Norður-írar og Engl-
endingar höfðu leikið þar landsleik í
knattspyrnu með 28.000 áhorfendur.
Skúrinn og nokkrar bifreiðir
skemmdust í sprengingunni, sem
var mjög kröftug, en manntjón varð
ekkert. írski þjóðfrelsisherinn,
INLA, lýsti ábyrgð á verknaðinum á
hendur sér.
INLA er marxískur klofnings-
armur frá írska lýðveldishernum
og fremur hryðjuverk öðru hvoru.
Það var fréttastofa BBC sem
greindi frá því að INLA hefði
staðið að sprengingunni, en
greindi ekki frá því hvar þær upp-
lýsingar hefðu fengist. Sagði í
fréttatilkynningu BBC að auki, að
INLA hefði hótað því, að öll
íþróttalið sem ættu erindi til
Norður-írlands á næstunni og í
náinni framtíð skyldu vara sig, því
næst „yrði sprengt til að drepa".
Þetta kom nokkuð á óvart, því
INLA er mjög herskár hópur
hryðjuverkamanna, flokkur sem
yfirleitt hvorki varar við hryðju-
verkum, né fremur slík verk í
varnaðarskyni.
Henry Cabot
Lodge látinn
Litríkur og haröfylginn samningamað-
ur, sem setti mikinn svip á alþjóðamál
Beverly, Maasachunetta, 28. febrúar. AP.
HENRY Cabot Lodge, einn kunnasti og áhrifamesti fulltrúi Bandaríkjanna á
vettvangi utanríkismála á þessari öld, lézt í dag 82 ára að aldri. Banamein
hans var hjartabilun. Hann lézt á heimili sínu í Beverly í Massachusetts.
Lodge var þingmaður þrjú kjör-
tímabil í öldungadeild bandaríska
þingsins. Hann var varaforseta-
efni Repúblikanaflokksins í for-
setakosningunum 1960. Áður hafði
hann verið sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum í
tæp 8 ár, eða lengur en nokkur
annar maður hefur gegnt því emb-
ætti.
Eftir forsetakosningarnar 1960
hugðist Lodge hætta afskiptum af
stjórnmálum, en það leið ekki á
löngu áður en John F. Kennedy,
forseti, sem borið hafi sigurorð af
Richard Nixon og Lodge í forseta-
kosningunum, fól þeim síðar-
nefnda að taka við embætti sendi-
herra Bandaríkjanna í Suður-
Víetnam, einmitt á þeim tíma, er
árásir Norður-Víetnama tóku
mjög að aukast og sömuleiðis and-
staðan við Ngo Dinh Diem, forseta
Suður-V íetnams.
Lodge var í Víetnam er stuðn-
ingur við framboð hans sem for-
setaefni repúblikana fór mjög
vaxandi, en svo fór að lokum, að
Barry Goldwater varð fyrir valinu
sem forsetaefni flokksins. Er
Lyndon B. Johnson hafði verið
kjörinn forseti skipaði hann Lodge
að nýju sendiherra Bandaríkjanna
í Suður-Víetnam í júlí 1965.
Árið 1969, eftir að Lodge hafði
verið sendiherra Bandaríkjanna í
Vestur-Þýzkalandi í 7 mánuði,
skipaði Nixon forseti hann sem
formann bandarísku sendinefnd-
arinnar í friðarviðræðunum um
Víetnam í París, en eftir 10 mán-
aða árangurslaust samningaþóf
lét Lodge af því embætti.
í júni 1970 tók Lodge enn við
mikilvægu embætti, er Nixon
skipaði hann sendimann sinn í
Páfagarði. Því embætti gegndi
Henry Cabot Lodge. Mynd þessi var tekin 1%9 skömmu eftir að Richard
Nixon forseti hafði skipað hann formann bandarísku samninganefndarinnar
í friðarviðræðunum um Víetnam í París.
Lodge til ársins 1977, er hann dró
sig í hlé og settist í helgan stein í
Beverly í Massachusetts, heima-
borg konu sinnar.
Friðarhorfur í Miðausturlöndum:
Góður árangur sagður af
fundum Egypta og ísraela
Kairó, 28. febrúar. AP.
SENDINEFNDIR Egyptalands og ísrael sátu á fundum í dag og í gær í leit
að lausn á deilumálum þjóðanna og friðarmálum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Talsmenn stjórnvalda beggja landa lýstu ánægju sinni og bjartsýni með
viðræðurnar.
Esmat Abdel Meguid, utanrík-
isráðherra Egypta, las upp grein-
argerð í útvarpi í dag þar sem
hann lýsti yfir bjartsýni á að
Bandaríkjamenn, Egyptar og
sameiginleg sendinefnd Jórdaníu-
manna og Palestínumanna myndu
hefja nýjar viðræður um friðar-
möguleika á þessu óróasvæði í ná-
inni framtíð og gætu þær viðræð-
ur orðið fyrsta skrefið í átt að var-
anlegum friði á þessum slóðum.
Þessi greinargerð var lesin upp í
kjölfarið á fundi Avraham Tamir,
skrifstofustjóra forsætisráðu-
neytis fsraels, og Kamals Hassan,
forsætisráðherra Egyptalands, í
Kaíró í dag. Það kom einnig fram
í viðræðunum, eftir því sem fregn-
ir herma, að ísraelar kunni að
taka þátt í umræddum viðræðum,
svo og „fleiri aðilar sem kunna að
hafa hagsmuna að gæta, eða hafa
áhuga á því“, eins og það var orðað
og er ekki talið ólíklegt að hér sé
átt við Sovétmenn sem hafa
hreiðrað um sig í þessum heims-
hluta í skjóli Sýrlendinga, sem
einnig kynnu að krefjast setu og
þátttöku í slíkum friðarviðræðum.
Mubarak Egyptalandsforseti vill
beinar viðræður landanna áður en
boðað verði til ráðstefnu, slíkt sé
vænlegra til árangurs.
Veður
víða um heim
Lægst Hæst
Akureyri 10 skýjaö
Amsterdam 0 4 skýjaö
Aþena 3 11 skýjaö
Barcelona 13 alskýjað
Berlín +1 5 þoka
BrOasel +2 10 skýjað
Chicago -6 0 skýjað
Oublin 6 9 heiðskírt
Feneyjar 8 þokum.
Frankfurt 0 11 skýjað
Genf -í-1 8 skýjað
Helsinki -3 0 skýjað
Hong Kong 14 19 skýjað
Jerúsalem 0 6 skýjað
Kaupm.höfn +1 1 skýjað
Las Palmas 22 mistur
Lissabon 12 17 rigning
London 5 10 skýjað
Los Angeles 11 21 heiöskírt
Lúxemborg 8 mistur
Malaga 17 alskýjað
Mallorka 16 lóttsk.
Miami 22 25 skýjað
Montreal +13 +4 heiðskirt
Moskva +20 +3 heiðskírt
New York 4 13 heiöskírt
Osló +2 1 skýjað
Paría 2 11 heiðskirt
Peking +0 0 skýjað
Reykjavík 8 súld
Rio de Janeiro 22 34 skýjað
Rómaborg 4 16 skýjað
Stokkhólmur +4 1 skýjað
Sydney 17 27 skýjað
Tókýó 2 5 rigning
Vínarborg 0 5 skýjað
Þórshöfn 7 skýjað