Morgunblaðið - 01.03.1985, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARS 1985
CIA og varnarmálaráðuneytið:
Æ’
Osammála um fjárveiting-
ar Rússa til varnarmála
WaMhmgton, 27. íebrúar. AP.
BANDARÍSKA leyniþjónustan CIA
og varnarmálaráóuneytið eru sam-
mála um að Sovétmenn hafi aukið til
muna fjárveitingar til varnarmála á
síðustu tveimur árum, en ósammála
hins vegar um hversu mikil hækkun-
in hafí verið.
Sérfræðingar CIA telja Sovét-
menn hafa aukið fjárútlát sín sem
nemur 1 til 2 prósentum, eftir til-
Sviss:
tölulega óbreytta eyðslu í sex ár
þar á undan. Sérfræðingar ráðu-
neytisins telja aukninguna hins
vegar meiri, 5 til 8 prósent, sem sé
þó minni en verið hefur sam-
kvæmt þeirra trú, var 5 til 10 pró-
sent á síðasta ári. Hvað svo sem
ósamþykkinu líður, þá eru báðar
stofnanirnar sammála um að Sov-
étmenn eyði mun meiri peningum
í hreina vopnavæðingu.
Það voru fjórir sérfræðingar frá
stofnunum tveimur, tveir frá
hvorri, sem hittu fréttamenn og
færðu þeim tíðindin gegn því að
nafnleynd yrði höfð í hávegum í
umfjöllun fjölmiðla. Einn sér-
fræðinganna sagði ástæðuna fyrir
þessu vera frjálslega umfjöllun
fjölmiðla um leynifund CIA og
ráðuneytisins á. síðasta hausti.
„Þar var greint frá ýmsum smá-
atriðum sem áttu að vera leynileg
og við vildum koma sjálfir á fram-
færi hvað á sér stað á fundum
okkar ef einhver á að gera það,“
var haft eftir ónafngreindum
CIA-manni.
Njósnuðu í
þágu Formósu
KÍNVERSKIJR réttur hefur dæmt
þrjá menn, þar af einn hermann, í
fangelsi fyrir njósnir í þágu
Formósu. Eru þeir sakaðir um að
hafa haft í frammi andkommúnísk-
an áróður og hvatt flugmenn í hem-
um til að svíkjast undan merkjum og
flýja, að því er stjórnvöld tilkynntu í
dag, fímmtudag.
Þetta er eitt af stærstu njósna-
málum sem frá hefur verið sagt
opinberlega í Peking í 36 ára póli-
tísku karpi Kína og Formósu.
Lögreglan beitti tára-
gasi gegn sendifulltrúa
Bern, Sriss, 26. tebrúar. AP.
Stjórnvöld í Sviss hafa beðið Sovétstjórnina afsökunar á því atviki, er
lögreglan í Bern beitti táragasi í því skyni að neyða sovéskan sendiráðs-
mann á bfl til að gangast undir blóðpróf vegna þess að grunur lék á, að
hann væri undir áhrifum áfengis.
undir blóðpróf, beitti lögreglan
táragasi, að sögn Nellen. Mann-
inum var svo leyft að halda
áfram, er hann krafðist þess að
fá að njóta friðhelgi sem sendi-
ráðsstarfsmaður.
Nellen kvað hafa verið bent á í
afsökunarbeiðninni, að sam-
kvæmt Vínarsamningnum um
réttindi sendifulltrúa, bæri þeim
að virða svissnesk umferðarlög.
Talsmaður svissneska utanrík-
isráðuneytisins, Stephan Nellen,
sagði fréttamönnum í dag,
þriðjudag, að „háttsettur" Sovét-
maður, sem hann neitaði að
nafngreina, hefði verið stöðvaður
að kvöldlagi snemma i þessum
mánuði eftir eltingarleik um
miðborgina.
Þegar hann þráaðist við að af-
henda ökuskírteini og gangast
Stærsta steinkista
sem fundizt hefur
Kaíró, 27. rebráar. AP.
EGYPZKIR fornleifafræöingar
hafa fundið geysistóra, 3.000 ára
gamia steinkistu, hina stærstu sem
fundizt hefur til þessa.
Steinkistan vegur 24 tonn og
fannst í Sakkara skammt frá Ka-
író.
„Þessi steinkista er einstök,"
sagði dr. Sayyed Tawfik, forseti
fornleifadeildar Kaíró-háskóla,
sem stjórnaði leitinni. „Svona
stórar steinkistur voru aðeins
ætlaðar faraóum. Hún er stærri
en steinkista Tutankhamuns."
Tawfik sagði að sá sem hefði
legið í kistunni hefði verið
Nephrenbet, forsætisráðherra í
stjórnartíð Ramsesar II, um
1300 f. Kr. Sérfræðingar telja að
Ramses II hafi verið við völd á
þeim tíma þegar Móses leiddi
Gyðinga burtu úr Egyptalandi.
Steinkistan var tóm. Líkræn-
ingjar í fornöld virðast hafa
rænt fjársjóði þeim sem hlýtur
að hafa verið grafinn með múmí-
unni, sem einnig er horfin, að
sögn Tawfiks.
Tawfik kvaðst einkum vera
hrifinn af skreytingunum á kist-
unni, sem væru einstakar. „Ég
hef verið starfandi fornleifa-
fræðingur í 30 ár og aldrei séð
nokkuð jafnfallegt," sagði hann.
England:
Kennari dæmdur
vegna kynferðis-
áreitni við nemendur
Blaydon, Knglandi 27. februar. AP.
BERNARD Longhorn aðstoðarskólastjóri við grunnskóla í Blaydon á Eng-
landi var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, eftir að hafa verið fundinn
sekur um að neyða tíu ára nemendur til að afklæöast og sitja síðan ber fyrir
á myndum sem hann tók af þeim.
Bernard þessi Longhorn, sem er
47 ára gamall piparkarl, hefur
unnið við kennslustörf í 25 ár.
Hann viðurkenndi að hafa tvívegis
gerzt sekur um þetta athæfi.
Hann fékk börnin, dreng og telpu,
til að koma heim til sín, lét þau
afklæðast og skipaði þeim síðan að
leggjast á dýnu og þukla hvort
annað. Síðan lamdi kennarinn þau
með keyri og tók myndir af þeim.
Longhorn hefur verið stjórn-
andi klúbba . áhugamanna um
ljósmyndun og viðurkenndi, að
hann hefði oft neytt fyrirsæturnar
— þótt eldri væru en umtalaðir
nemendur — til að aðhafast
eitthvað í þessum dúr og sumt ívið
grófara.
Indira Gandhi
hlaut 24 skotsár
Nýju Delhí, 28. febráur AP.
INDIRA Gandhi, forsætisráðherra Indlands, hlaut 24 skotsár, er hún var
skotin til bana 31. október sl. af tveimur síkum úr hópi öryggisvarða hennar.
Var frá þessu skýrt í opinberri skýrslu, sem birtist í indverskum blöðum í
dag.
Frú Gandhi hlaut skot í gegnum
bæði brjóstin, en einnig í læri,
hægri öxl og í bakið. í réttarhöld-
um, sem fram eiga að fara fyrir
luktum dyrum í næsta mánuði,
verða leidd 144 vitni gegn þeim
þremur mönnum, sem ákærðir eru
fyrir að hafa undirbúið og fram-
kvæmt samsærið gegn frú Gandhi.
í hópi þeirra er Satwant Singh,
sá af morðingjunum, sem enn er á
lífi. Hinir eru Kehar Singh, fyrr-
verandi stjórnarstarfsmaður og
Balbir Singh, sem var yfirmaður í
lögreglunni. Einn af morðmgjun-
um, Beant Singh, var skotinn til
bana af öryggisvörðum frú
Gandhi.
Þeir Kehar og Balbir eiga að
hafa undirbúið morðið en þeir
Beant Singh og Satwant Singh
frömdu það.
Bretland:
Fjölmiðlar sakað-
ir um að valda
AIDS-hræðslu
Lundúnum, 27. febrúar. AP.
MIKIL móðursýki gengur nú yfir Bretlandseyjar og er sjúkdómurinn
hræðilegi AIDS, eða áunnin ónæmisbæklun, þar í aðalhlutverki og kemur
tvennt til, mikil fjölgun sjúkdómstilfella og í kjölfarið af því: Asakanir
lækna og fleiri aðila á hendur fjölmiðlum fyrir að gera úlfalda úr mýflugu,
að nota sjúkdóminn sem krassandi lesefni og í æsilegar fyrirsagnir.
„Plágan breiðist út eins og eld-
ur í sinu“ og „AIDS-dauðsfall
skelfir BBC“ eru dæmi um fyrir-
sagnir sem sjá má nær daglega í
breskum dagblöðum. Tölurnar
tala sínu máli, 5 Bretar dóu úr
AIDS í janúar og er það skugga-
leg tala miðað við að allt síðasta
ár dóu 14 manns úr sjúkdómnum.
Þá hafa vísindamenn varað
Breta við því, að árið 1991 kunni
ein milljón Breta að þjást af
AIDS ef ekkert gengur í barátt-
unni gegn sjúkdómnum og út-
breiðslu hans. AIDS-sjúklingum
hefur fjölgað jafnt og þétt á
Bretlandi, 18 tóku veikina árið
1982, 35 til viðbótar 1983 og 50
árið 1984. Dauðsföllin hafa þessi
sömu ár verið 13,16 og 14 talsins.
Fæstum er sjúklingunum hugað
líf, enda engin lækning til. Fimm
manns hafa dáið úr AIDS í janú-
ar, og hefur það skotið mönnum
skelk í bringu. Til samanburðar
hafa 8.495 tilfelli af AIDS verið
greind í Bandaríkjunum á þess-
um sömu árum og 4.077 dáið af
völdum sjúkdómsins til þessa.
Læknar og þeir sem gagnrýna
hvað mest blöðin fyrir æsifréttir
um AIDS segja ólguna vegna
fregnanna „ógnvekjandi". John-
athan Turner yfirlæknir Royal
National-sjúkrahússins í
Bournemouth sagði t.d. í dag að
„þjóðsagan væri orðin svo mögn-
uð, að hún tæki raunveruleikan-
um langt fram“. Annar sem
gagnrýnt hefur blaðafregnir af
AIDS segir að blaðamenn og rit-
stjórar viti mæta vel, að almenn-
ingur á Bretlandi sé íhaldssamur
í eðli sínu og hafi gamla rótgróna
fordóma í garð kynvillinga, því
sé það góð sölubrella að þyrla
upp moldviðri um AIDS.
Stjórnvöld á Bretlandi eru að
reyna að draga úr hræðslunni,
þannig sagði John Patten aðstoð-
arheilbrigðisráðherra í sjón-
varpsviðtali í gær, að hann
myndi ekki hika við að drekka
vatn úr glasi AIDS-sjúklings, eða
sitja við hlið hans og taka í hönd
hans. Keith Waterhouse greina-
höfundur hjá Daily Mirror komst
svo að orði í gær, að nýr fylgi-
fiskur AIDS hefði skotið upp
kollinum, AIPS, sem hann þýðir:
„AIDS induced panic syndrome",
eða „geðshræring af völdum
AIDS“. Ritar Waterhouse, að
hinn „hræðilegi kvilli" AIPS ber-
ist „munnlega milli trúgjarnra
og æstra einstaklinga sem hitt-
ast á förnum vegi og fylla heila-
bú hver annars með vitleysu af
verstu gerð“.