Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
21
Verðlaunasamkeppni um „Bestu uppskriftirnar '85“
Uppmeð
Við hjá Osta- og smjörsölunni bjóðum nú öllu áhugafólki um matargerð
að vera með í verðlaunasamkeppni um „Bestu uppskriftirnar ’85".
Hugmyndaflug, ostur og smjör ráða ferðinni.
Keppnisreglur eru í stuttu máli þessar:
• Ostar og/eða smjör þurfa að skipa veglegan sess í uppskriftunum.
• Uppskriftirnar þurfa að falla inn í einhvern af eftirtöldum flokkum:
sjávarréttir, bakstur (brauð og kökur) eða eftirréttir.
• Uppskriftirnar mega ekki hafa birst áður á prenti eða annars staðar.
• Þátttökurétt hefur allt áhugafólk um matargerð.
• Heimilt er að senda fleiri en eina uppskrift en ekki á sama blaði.
• Tilgreinið nákvæmlega öll mál I dl, matskeiðum, teskeiðum,
grömmum o.s.frv. Þetta á einnig við um salt og annað krydd.
• Tilgreinið einnig fyrir hve marga rétturinn er og hvað hentar að
bera fram með honum. 1 _ „ __ l
• Heiti uppskriftar þarf að fylgja hverri uppskrift.
• Nafn höfundar, heimilisfang og sími skal fylgja í lokuðu umslagi
merktu heiti uppskriftar.
Þá áskiljum við okkur rétt til að birta þær uppskriftir sem berast
eða hagnýta þær á annan hátt, án endurgjalds.
í dómnefnd sitja Hilmar B. Jónsson, „Gestgjafi", Jóhanna
Sveinsdóttir, „Matkráka” og Dómhildur Sigfúsdóttir, uppskrifta- og
matreiðslusérfræðingur okkar
Síðasti skiladagur er 15. apríl 1985.
Uppskriftir skal senda fyrir 15. apríl n.k. í umslagi merktu:
„Bestu uppskriftirnar 85"
Osta- og smjörsalan, pósthólf 10100, 130 Reykjavík.
Ef nánari upplýsinga er óskað, veitir Dómhildur Sigfúsdóttir þær í
síma 82511.
Til „Keben" á góðri uppskrift!
Verðlaunin eru ekki af lakara taginu:
1. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar með
kvöldverði á einu þekktasta veitingahúsi borgarinnar.
2. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Akureyrar eða Reykjavíkur.
3. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Húsavíkur eða Reykjavíkur.
Einnig verða veittar 20 viðurkenningar í hverjum uppskriftaflokki,
samtals 60. Verðlaunaafhending fer fram í lok maí.
Láttu nú reyna á hugmyndaflugið, ef þú hefur áhuga á matargerð
og ferðalögum.
Hver veit nema þú komist þá til „Koben"?
Osta- og smjörsalan
..oq altirtneö!
_ I
fÍÉ^ I