Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985 Orðaskipti Þáttur Sigurðar G. Tómasson- ar um Daglegt mál var núna á þriðjudagskveldið óvenju fyndinn en þar fjallaði Sigurður um mál- far á skýrslu nokkurra „kjúkl- ingabaenda". Var málfar skýrslunnar afar frumlegt, nánast einsog klippt út úr fáránleikaleikhúsinu, til dæmis úr Bubba kóngi Alfreds Jerry eða hvernig skiljiði hugtakið: „for- eldradýr"? Téður Sigurður G. Tómasson var ekki alveg eins fyndinn er hann birtist síðar á þriðjudagskveldið í þætti Ingva Hrafns Jónssonar: Setið fyrir svör- um enda voru þá alvarlegri mál- efni á dagskrá eöa sjálf fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar. Að sjálfsögðu sat borgarstjórinn okkar, Davíð Oddsson, hér fyrir svörum en Sigurður G. Tómasson var í hópi fulltrúa minnihluta- flokkanna í borgarstjórn er gerðu harða hríð að borgarstjóranum. Flugu skeytin svo ótt og títt milli manna, að Ingvi Hrafn kom nánast ekkert við sögu nema undir lokin er ónefnd valkyrja gerðist full aðgangshörð. Orðaflaumur: Ég verð að segja einsog er að ég var mjög ánægður með hversu harðskeyttir þeir minnihlutamenn voru að þessu sinni, því lýðræðið verður ekki virkt nema til staðar sé stjórnarandstaða, er veitir þeim sem sitja við stjórnvölinn hæfilegt aðhald, og svo held ég að Davíð hafi grætt á þessari hörðu sókn þeirra minnihlutamanna, því hún leiddi í Ijós styrk hans sem stjórnmálamanns. Tel ég að ýmsir þeir „stjórnmálamenn" er nú fara offari í fjölmiðlum gætu ýmislegt lært af Davíð í þessu efni, sér- staklega hvað varðar orðheldni því það er ekki nóg að henda á lofti þau mál er henta mönnum best í sviðsljósi augnabliksins, ef hugur og athafnir fylgja ekki máli. Ann- ars ætla ég ekki að fara neitt frek- ar út í efnisatriði þeirrar orra- hríðar er geisaði kringum Davíð borgarstjóra í fyrrgreindum þætti en þar fannst mér einkar áberandi umræðan um dagvistunarmál. Af vettvangi Nú vildi svo til að ég var nýkom- inn af foreldrafundi, er haldinn var á einum af leikskólum Reykja- víkurborgar, er þáttur Ingva Hrafns hófst. Fannst mér því nánast eins og ég kæmi beint af starfsvettvangi borgarstjóra inní umræðuna. Eða ætti ég kannski fremur að segja að umræðan á leikskólanum hafi á vissan hátt runnið saman við um- ræðuna í sjónvarpssal. Þó var sá munur á, að á fundinum uppí leikskóla var lítið rætt um dag- vistunarvandamál en því meir um hin margvíslegu hegðunarvanda- mál er þróast með börnum, vegna of langs vinnutíma foreldra. Ann- ar af tveimur sálfræðingum barnavistunar var mættur á for- eldrafundinn og fjallaði um árás- arhneigð barna og unglinga er hann taldi oft stafa af fyrr- greindri fjarvist foreldra frá heimili, en einnig taldi hann alltof stóra skóla, með of fjölmennum bekkjardeildum, auka á árásarat- ferlið. Þá taldi sálfræðingurinn að hægt væri að undirbúa börnin á allan hátt betur fyrir lífið og skól- ann á vel búnum og hönnuðum leikskólum. Persónulega er ég mjög ánægð- ur með leikskóla barna minna. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S JÓN VARP Andrés Indriðason höfund- ur verksins. Ágúst Guðmundsson er leikstjóri. „Greta Garbo fær hlutverk“ — útvarpsleikrit eftir Andrés Indriöason ■^^■i { kvöld kl. 20.00 90 00 verður flutt £vf — nýtt útvarps- leikrit eftir Andrés Indriðason; „Greta Garbo fær hlutverk". Kvikmyndaleikstj óri nokkur og aðstoðarstúlka hans eru að leita að heppi- legum stað fyrir lokaupp- töku á kvikmynd. Þau fá að skoða gamalt hús þar sem allar aðstæður eru hinar ákjósanlegustu. Eigandi hússins, sem er eldri kona, er himinlif- andi yfir tilbreytingunni sem hún á í vændum og vill allt fyrir gesti sína gera. Ekki verður ánægja hennar minni þegar leik- stjórinn fær þá hugmynd að láta köttinn hennar fá veigamikið hlutverk í kvikmyndinni. Leikendur eru: Guðrún Þ. Stephensen, Edda Heiðrún Backmann, Egill ólafsson og Ketill Larsen. Leikstjóri er Ágúst Guð- mundsson. Tæknimaður Runólfur Þorláksson. Minnisstætt fólk — fjallað um Maríu Maack ■■■■ í útvarpi í Ol 40 kvöld kl. 21.40 & A ™ verður Emil Björnsson með fyrsta þátt sinn af fimm í þáttaröð- inni Minnisstætt fólk. Segir Emil í þessum fyrsta þætti sinum frá kynnum sínum af Maríu Maack og nefnist þáttur- inn „Guðhrædd bæði og mikilmenni". María, sem hét fullu nafni María Bóthildur Jakobína Maack, fæddist 21. október 1889 á prests- setrinu Stað í Grunnavík í Norður-ísafjarðarsýslu og lést 9. mars 1975 eftir nokkurra mánaða sjúkra- húslegu. María réð sig eitt sumar sem gangastúlka í Holdsveikraspítalanum í Laugarnesi með loforði um að hún yrði lærlingur um haustið 1909. Hjá Sæmundi Bjarnhéðins- syni, þá yfirlækni, og yfir- hjúkrunarkonunni Harr- iet Kjær, sem bæði skipa veglegan sess í sögu heil- brigðismála á lslandi, lærði María hjúkrun sem varð síðan hennar ævi- starf eða í 55 ár. María vann um tíma við hjúkrun í Franska spítalanum en síðar starfaði hún um áratugi sem forstöðukona Farsóttarhússins við Þingholtsstræti. María var mikill ferða- garpur og dreif hún með sér hópa vina og kunn- ingja í ferðalög sín um landið. María tók og mik- inn þátt i félagsstörfum. Hún var mjög atkvæða- mikil innan Sjálfstæðis- flokksins og var meðal helstu stofnenda Sjálf- stæðiskvennafélagsins Hvatar, fyrsta flokkspóli- tiska kvenfélagsins á ís- Ötroðnar slódir ótroðnar slóð- 1 coo ir, þáttur um 10“ kristilega popp- tónlist, er á dagskrá rásar 2 í dag kl. 15. Stjórnendur eru Andri Már Ingólfsson og Halldór Lárusson. Að sögn Andra Más verður þátturinn eitt alls- herjar hanastél. „íslensk tónlist fær nokkuð mynd- arlega umfjöllun í þættin- um,“ sagði Andri Már. „Þar má nefna tónlist eft- ir Þorvald Halldórsson, Anne og Garðar og jafn- framt tónlist sem Sam- hjálp, Krossinn og Nýtt líf hafa gefið út á síðustu ár- um. Von er á nýju ís- lensku efni frá nokkrum einstaklingum með vorinu og má vænta ýmissar nýbreytni þar á meðal." Þá leika þeir félagar nýtt efni frá Bretlandi og Bandaríkjunum s.s. af plötu hljómsveitarinnar Rez-band, tónlist hennar verður talin til þunga- rokks. Þá verður kynnt ný María Maack landi. Hún var jafnframt formaður Hvatar í mörg ár. María var m.a. félagi í Sálarrannsóknarfélagi ís- lands, Slysavarnafélagi íslands, Vestfirðingafé- laginu og Kvenréttindafé- laginu. Hún átti sæti í framfærslunefnd Reykja- víkur í allmörg ár og var sæmd riddarakrossi hinn- ar íslensku fálkaorðu. Andri Már Ingólfsson plata frá Michael Card sem kunnur er fyrir af- bragðsgóða lagatexta. Loks munu umsjónar- Halldór Lárusson mennirnir lesa ummæli ýmissa ágætra manna í gegnum aldirnar, um trúna. ÚTVARP v FIMMTUDAGUR 14. mars 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Málræktarþáttur. Endurt. þáttur Baldurs Jónssonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð — Sigurveig Guðmundsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Agnarögn" eftir Pál H. Jónsson. Flyfjendur Páll H. Jónsson, Heimir Pálsson og Hildur Heimisdótfir (7). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þing- fréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 10.45 Málefni aldraðra Þáttur i umsjá Þóris S. Guð- bergssonar. 11.00 „Eg man þá tlö“ Lög frá liðnum árum. Um- sjón: Hermann Ragnar Stef- ánsson. 11.30 „Sagt hefur það veriö" Hjálmar Arnason og Magnús Gislason sjá um þátt af Suð- urnesjum. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Guðlaug Marla Bjarnadóttir. (RUVAK). 13.30 Tónleikar 14.00 „Blessuð skepnan" eftir James Herriot. Bryndls Vlg- lundsdóttir les þýöingu slna (26). 14.30 A frivaktinni Þóra Marteinsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 15J0 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Slödegistónleikar a. Næturljóð I H-dúr op. 40 og b. Slavneskur dans i e-moll op. 46 eftir Antonln Dvorák. Josef Suk og Alfreð Holecek leika á fiölu og planó. c. Strengjakvartett nr. 3 I es-moll op. 30 eftir Pjotr Tsjalkovskl; Vlach-kvartett- inn leikur. 17.10 Síödegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá 19.15 A döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 19.25 Ærslabelgirnir Sovésk teiknimynd um nokkra óþekka apa og mædda móður þeirra. 19.354 Sðgur trá Kirjálalandi Finnsk teiknimynd. Þýöandi Kristln Mántylá. Sögumaður Sigrún Edda Bjðrnsdóttir. (Nordvision — Finnska sjón- varpið) 19.40 Sæti grauturinn Sovésk teiknimynd gerö eftir einu ævintýra Grimms- bræöra. Þýðandi Hallveig Thorlacius. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 20.00 Leikrit: „Greta Garbo fær hlutverk" eftir Andrés Indriðason. Leikstjóri: Agúst Guð- mundsson. Leikendur: Guð- rún Þ. Stephensen, Edda Heiðrún Bachmann, Egill Olafsson, Ketill Larsen. Planóleikur: Ester Andrés- dóttir 12 ára. 21.05 Samleikur I útvarpssal Einar Jóhannesson og Phil- ipp Jenkins leika á klarinettu og planó. a. „Rek" eftir Þorkel Sigur- björnsson. b. Sónatína eftir Arthur Hon- egger. 15. mars Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaöur Sigrún Stef- ánsdóttir. 21.15 Skonrokk Umsjónarmenn Haraldur Þorsteinsson og Tómas Bjarnason. 21j45 San Francisco Þýsk heimildamynd. Yfir borginni San Francisco á vesturströnd Bandarlkjanna hvllir ævintýraljómi I hugum margra. Fagurt umhverfi en þó einkum fjölbreytt mannllf borgarinnar stuöla einkum aö þessu aö dómi höfundar þessarar myndar sem lýsir llfinu þar. Þýðandi Eirlkur Haraldsson. 22.45 Vassa Sovésk blómynd frá 1982, gerö eftir leikriti eftir Maxim Gorki. Leikstjóri Gleb Panfll- c. Fantasla eftir Carl Nielsen. d. Sónata I Es-dúr op. 167 eftir Camille Saint-Saéns. 21.40 Minnisstætt fólk „Guöhrædd bæði og mikil- menni” Emil Björnsson segir frá kynnum slnum af Marlu Maack. 22.00 Lestur Passlusálma (34) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Að lengja nóttina helst ekki minna" Umsjón: Anna Ólafsdóttir Björnsson. Lesari með henni: örnólfur Thorsson. of. Aðalhlutverk: Inna Tsjúr- ikvoa, Nikollaj Skorabogatof, Valentfna Télihina og Valent- Ina Jakúnlna. Myndin gerist I borginni Nlznl Novgorod viö Volgu, nú Gorki, áriö 1913. Vassa Tselesnova hefur safnað auði með skipaút- gerð. Hún hefur þolað ýmsar raunir I einkallfinu um dag- ana en býr nú I glæsilegu husi ásamt dætrum slnum, drykkfelldum bróður, sonar- syni og fjölda þjónustufólks. Þá snýr tengdadóttir hennar, sem er byltingarsinni, heim úr útlegð m.a. til að krefjast sonar slns. En Vassa hyggst halda drengnum sem og for- réttindum stéttar sinnar meöan hún má. Þýöandi Hallveig Thorlacius. 00.55 Fréttir I dagskrárlok. 23.00 Músikvaka Umsjón: Oddur Björnsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 14. mars 10.00—12.00 Morgun(Dáttur Stjórnendur: Kristján Sigur- jónsson og Sigurður Sverr- isson. 14.00—15.00 Dægurflugur Stjórnandi: Leópold Sveins- son. 15.00—16.00 Ótroðnar slóöir Kristileg popptónlist. Stjórnendur: Andri Már Ing- ólfsson og Halldór Lárusson. 16.00—17.00 Jazzþáttur Stjórnandi: Vernharður Linn- et. 17.00—18.00 Gullöldin Lög frá 7. áratugnum. Stjórnandi: Þorgeir Ast- valdsson. Hlé 20.00—21.00 Vinsældalisti hlustenda rásar 2 10 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 21.00—22.00 Nú má ég! Gestir I stúdlói velja lögin ásamt léttu spjalli. Stjórnandi: Ragnhelður Dav- lösdóttir. 22.00—23.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests 23.00—24.00 Astandið Stjórnandi: Margrét Blöndal. SJÓNVARP FÖSTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.