Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
51
Harður árekstur á Akranesi
Akranrai, 12. mare.
í DAG VARÐ hardur árekstur á mótum Heiðarbrautar og Stillholts,
þegar tveir bflar rákust saman og endaöi annar bfllinn uppi á gangstétt
og braut þar niöur grindverk á nokkurra metra kafla.
Engin slys uröu á mönnum, og er þaö mesta mildi, því fólk heföi
getað verið á gangi þar sem áreksturinn varö. J-G.
Höfn, Hornafirði:
Enn unnið að björgun
tækja úr Sæbjörgu VE
Höfn, Hornafirdi 11. mnrz.
LOÐNUSKIPINU Sæbjörgu, sem
strandaöi við Stokksnes fyrir
nokkru, hefur nú verið velt viö á
strandstaö til að auðvelda björgun
þeirra tækja, sem enn eru eftir í
skipinu. Björgunarsveitarmenn á
Höfn hafa unnið aö björgun taekja
síðan um jól og telja þeir sig eiga
eftir tveggja til þriggja mánaða
vinnu þar til öllu nothæfu verður
náö.
Skipinu var velt um síöustu
helgi og það dregið enn lengra upp
í fjöruna, svo nú fjarar undan því.
Nú er ætlunin að ná hliðarskrúf-
um öðru megin svo og glussagír,
en öllu bitastæðu hefur verið náð
innan úr skipinu. Renna menn
hýru auga til góssins, einkum
Ijósavéla, en ekkert af því hefur
verið selt enn. Harður kjarni
manna hefur unnið við björgun
tækjanna og gefið nær alla vinnu
sína. Ennfremur hafa nemendur
vélskólans á staðnum tekið upp
ljósavélarnar og þannig fengið
tækifæri til verklegrar reynslu.
Fréttaritari.
Loönuskipinu Sæbjörgu hefur nú enn verið velt á strandstað til aö auövelda
björgun tækja úr því. Skipið er nú komið svo nálægt landi aö á fjöru fellur
undan því.
Sjö meginkröfur Alþjóða-
samtaka neytendafélaga
Frá árinu 1983 hafa Alþjóðasamtök neytendafélaga (IOCU) haldiö 15.
mars hátíðlegan sem alþjóöadag neytendaréttinda með þátttöku neytendafé-
laga um allan heim.
í frétt frá Neytendasamtökun-
um á íslandi segir, að samtökin
hafi reynt að vekja athygli ís-
lenskra neytenda á sjálfsögðum
lágmarksréttindum neytenda og
styðja eindregið þær sjö megin-
kröfur, sem neytendafélög um all-
an heim hafa sett fram í samein-
ingu um árabil.
Upphaflega var um að ræða
fjögur atriði, sem Kennedy,
Bandarikjaforseti, setti fram í
frægu ávarpi til þjóðþings Banda-
ríkjanna þann 15. mars, 1962. Síð-
an hefur þremur verið bætt við.
Atriðin sjö, sem alþjóðleg neyt-
endafélög setja á oddinn, eru
öryggi, upplýsingar, val, áheyrn,
bætur, fræðsla og umhverfi.
í þessum orðum felst meðal
annars, að' neytendur eigi rétt á
vernd gegn vörum, framleiðslu-
háttum og þjónustu, sem eru
hættuleg heilsu og lífi. Upplýsing-
um eiga neytendur að eiga kost á,
þannig að þeim sé gert kleift að
taka ákvarðanir af skynsemi og
ábyrgð og einnig eiga þeir að eiga
rétt á fjölbreyttum varningi og
þjónustu á samkeppnisverði.
Neytendur eiga ennfremur,
samkvæmt Alþjóðasamtökunum,
rétt á því að sjónarmiða þeirra sé
gætt og tekið sé fullt og sann-
gjarnt tillit til þess og hagsmuna
þeirra við mótun og framkvæmd
fjárhagsstefnu. Réttmætar bóta-
kröfur neytenda eiga að fá sann-
gjarna úrlausn, þeir eiga að fá
fræðslu um þau mál, er þá varða
og siðast en ekki síst eiga allir
neytendur rétt á vernd gegn um-
hverfisspjöllum.
•\4A * ..
Ármúla 8 — 108 Reykjavík
Sími (91) 19294
Nýtt Mannlíf
Tímaritið Mannlíf, fyrsta tölublað
ársins 1985, er komið út. Efni ritsins
er fjölþætt. M.a. eru í blaöinu viötöl
viö Geir Hallgrímsson, utanríkisráö-
hcrra, Sigurö Helgason, hinn nýja
forstjóra Flugleiða og Maríu Guö-
mundsdóttur, fyrrverandi feguröar-
drottningu og Ijósmyndafyrirsætu.
Meðal efnis í Mannlifi eru einn-
ig greinar um stjórnmál, ýmis fé-
lagsleg fyrirbæri, fólk og listir,
grein um mannasiði og tískuþátt-
ur. Ritið er eitthundrað síður að
stærð, ríkulega myndskreytt og að
mestu prentað í lit.
NISSEN
DANMARK
Marsafsláttur
10% afsláttur af öllum trévörum
Notið viðinn við öll tækifæri
í þrjá áratugi hefur handverksmaöurinn Nissen
veriö í fremstu röö viö gerö hagnýtra búsáhalda.
Ýmsar gerðir áhalda, t.d. hnífar, brauöbretti, skál-
ar og margt fleira.
Komið og sjáið hina listfengu muni sem auk
gagnlegrar notkunar eru mikil prýði hverju
heimíli.
-5ERVERSLUN MED GJAhAVORUR