Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
29
Kýpur-Tyrkir:
Þingíð samþykkir
stjórnarskrárdrög
OVENJULEG VIÐGERÐ
Símamynd AP.
Lítil eins hreyfils flugvél af Turbo-Arrow-gerð lenti í
vandræðum í dag er hún var að koma inn til lendingar
í Augustine í Florída. Eitt lendingarhjólanna sat fast
og tæki vélarinnar gátu þar engu breytt. Það varð því
úr, að Joe Lippo, vélvirki á flugvellinum, freistaði þess
að bjarga málunum með þeim hætti sem hér sést.
Hann teygði sig upp um sóllúgu Audi-bifreiðar, sem
ók á allt að 144 kílómetra hraða á klukkustund, og
meðan flugbrautin entist og flugvélin hélt sama hraða,
reyndi hann að losa hjólið. Á endanum tókst það og
vélin náði að lenda rétt áður en eldsneytið var þrotið.
Áframhaldandi róst
ur við Persaflóann
Nieosíu, Kýpur, 13. mars. AP.
í NOTT samþykkti stjórnlagaþing
tyrkneska þjóðarbrotsins á Kýpur
frumvarp að nýrri stjórnarskrá.
Fékk frumvarpið fulltingi 63
þingfulltrúa, en 6 voru á móti.
GENGI
GJALDMIÐLA
Hækkun á gulli
Lundúnum, 13. mars. AP.
GENGI bandaríkjadals var lægra
í dag, en búist hafði verið við.
Aftur á móti varð talsverð hækk-
un á gullverði.
Við lok viðskipta í Tókýó
fengust 259,70 japönsk yen fyrir
hvern bandaríkjadal, sem er
hækkun frá verðinu í gær, sem
var 259,15. Við lok viðskipta í
Lundúnum fengust 260,60 yen
fyrir dalinn.
Fyrir hvert sterlingspund
fékkst í dag 1,0860 bandaríkja-
dalur, en í gær var 1,0855 dalur
greiddur fyrir pundið.
Gengi bandaríkjadals gagn-
vart öðrum helstum gjaldmiðl-
um var sem hér segir í lok
viðskipta í dag 3,3590 vestur-
þýsk mörk (í gær 3,3450); 2,8500
svissneskir frankar (2,8575);
10,2550 franskir frankar
(10,2700); 3,7975 hollensk gyllini
(3,7990); 2.099,00 ítalskar lírur
(2.099,50); 1,3890 kanadadalur
(1,3925).
yFyrir hverja únsu af gulli
fengust í dag 293,40 bandaríkja-
dalir, en í gær fengust 288,40
dalir.
Frumvarpið verður að bera undir
þjóðaratkvæði, sem að líkindum
fer fram 31. mars, til þess að næg-
ur tími gefist vegna almennra
þingkosninga í júnímánuði.
Ekki er í frumvarpinu minnst á
hugsanlega stofnun sambandsrík-
is á Kýpur, en á sama fundi og
afgreiddi stjórnarskrárfrumvarp-
ið var samþykkt þingsályktunar-
tillaga, sem kvað á um, að „nýja
stjórnarskráin mun ekki koma í
veg fyrir hugsanlega stofnun sam-
bandsríkis, sem grundvallast á
pólitísku jafnrétti þjóðarbrotanna
tveggja".
Verkföllum
enn frestað
Kaupmannahöfn, 13. mars. AP.
ÞEGAR aðeins fjórir dagar voru til
stefnu frestaði sáttasemjari ríkisins
áður boðuðum verkfollum í Dan-
mörku í hálfan mánuð. Verður nú
reynt til þrautar að finna lausn á
deilunni.
Ef verkfallinu hefði ekki verið
frestað hefðu rúmlega 300.000
manns lagt niður vinnu nk. mánu-
dag en samningaumleitanir hafa
engan árangur borið og ber mikið
á milli. Sáttasemjari hefur nú
frestað verkfallinu tvisvar og get-
ur ekki gert það í þriðja sinn.
Ekki er víst, að vinnufriður
verði í Danmörku næsta hálfan
mánuðinn því ef sáttasemjara
miðar ekkert mun hann skýra frá
því og hefst þá vinnustöðvunin
innan þriggja daga.
Baghdad, írak. 13. mars. AP.
ÍRAKAK sögðust í dag hafa hrundið
sókn írana sem miðaði að því að
einangra borgina Basra, sunnarlega
á víglínunni. Sögðu þeir að þrjár
herdeildir hefðu ráðist á írani úr
jafn mörgum áttum og hrakið þá frá.
íranir greindu frá því í útvarps-
fréttum, að gagnsókn íraka hefði
gersamlega misheppnast og þeir
hefðu „goldið háðulegt afhroð". Á
hinn bóginn staðfestu báðir, að ír-
askar herþotur hefðu gerst loft-
árásir á tvær íranskar borgir og
drepið fjölda manns.
Það var raunar lítið að frétta af
suðurvígstöðvunum, íranir sögðu
eitt og Irakar annað. íranir segj-
ast hafa drepið 700 iraska hef-
menn í bardögunum sem staðið
hafa í mýrlendinu eigi fjarri
Basra að undanförnu,
íraskar þotur steyptu sér yfir
borgina Isfahn, næst fjölmenn-
ustu borg íran, og 11 manns létu
lífið, en 36 særðust. Nokkrir létust
einnig í samsæri í bæ í jaðri Isfah-
an.
„Hverjir kaupa
allar þessar
IBM PC einkatölvur?“