Morgunblaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MARZ 1985
Betri handbolti á Ólympíu-
leikunum en í B-keppninni
— þrátt fyrir aö flestar austantjaldsþjóðirnar hafi einungis verið í síðari keppninni
ÞAD SEM mest kom á óvart á nýlokinni B-keppni í handknattleik sem fram fór í Noregi var hve gaeói
handboltans sem liðin léku voru lítíl miöað vió þaó hve sterkar þjóóir voru meðal keppenda. Og þó
úrslit hafi verió á þann veg sem búast mátti viö fyrirfram vakti athygli, og um þaó eru allir sérfræóingar
sammála, hve liöin eru oróin jöfn aó getu. Liöin sem komust áfram í A-keppnina voru þau sem búist
var vió: Austur-Þjóóverjar, Sovétmenn, Pólverjar, Tékkar, Ungverjar og Spónverjar en munurinn er
engu aó síður oröinn mun minni milli þeirra bestu og hinna sem á eftir koma. Sovétmann hafa verið
taldir í sérflokki í heiminum, og Júgóslavar og Rúmenar — kannski Austur-Þjóóverjar — í flokki þar á
eftir en nú er þetta breytt.
Eitt þaö skemmtilegasta i
keppninni í Noregi þótti einmitt
hve lítill munur er oröinn á getu
liöanna. Munurinn sé varla til
staöar lengur. Lið Sovétmanna,
Júgóslava, Rúmena, Vestur-
Þjóöverja, Dana, Austur-Þjóö-
verja, Pólverja, Ungverja, Tékka
séu mjög jöfn aö getu — og mitt
álit er aö enginn skyldi afskrifa
litla island. Á góöum degi geta
allar ofangreindar þjóöir unniö
hver aöra og því má búast viö
mörgum óvæntum úrslitum í
HM-keppninni í Sviss á næsta ári
og jafnvel óvæntum heimsmeist-
ara.
B-keppnin sem fram fór í Nor-
egi var sú fimmta í rööinni og nú
eru mjög deildar meiningar um
fyrirkomulag undankeppni HM.
Tap Norðmanna á keppninni var
mikiö og viröist nú vera meðbyr
meö því aö taka skuli upp riðla-
skiptingu þar sem leikiö yröi
heima og heiman, svipaö og í
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu.
Á B-keppni tryggja sex liö sér
þátttöku í A-keppni og nú kepptu
í fyrsta skipti 16 liö í B-keppninni,
áöur hafa þau veriö 12, og fyrir-
komulag keppninnar var nú í
fyrsta skipti eins og áöur í
A-keppnunum. Keppt í fjórum
fjögurra liða riölum og síöan var
skipt f tvo sex liða riöla upp úr
því. Liö frá heimsálfunum komu
svo í keppnina eins og um raun-
verulega HM-keppni væri aö
ræöa.
Eina liöið sem varö aö hafa
virkilega fyrir því aö komast
áfram var spánska liöið, en úr-
slitaleikurinn fyrir þá var í raun-
inni fyrsti leikur þeirra í keppn-
inni, viö Noreg, er þeir unnu
17:16 eftir aö hafa veriö meö 7
marka forystu lengi framan af.
Taugaóstyrkur Norömanna og
furöulegur varnarleikur þeirra f
fyrri hálfleiknum kom Spánverj-
um alls ekki f opna skjöldu eins
og til var ætlast, en Norömenn
léku vörnina mjög framarlega,
komu allt fram á 12 til 13 metra.
Tveggja ára undirbúningur Norö-
manna fór því í vaskinn strax eft-
ir fyrsta leik.
Schobel ánægður: Betri
handbolti á ÓL
en B-keppninni!
Landsliösþjálfari Vestur-
Þjóöverja, Simon Schobel, fylgd-
ist meö lokaleikjum B-keppninn-
ar eins og þjálfarar allra þeirra
liöa sem hafa tryggt sér sæti í
A-keppninni, og var Schobel
mjög hamingjusamur er hann
sneri aftur til Vestur-Þýskalands.
„Margir hafa sagt okkur aö
árangur okkar á Ólympíuleikun-
um hafi ekki verið marktækur
þar sem flestar austantjaldsþjóö-
irnar hafi vantaö, en handboltinn
sem leikinn var í Los Angeles var
einu þrepi hærra en sá sem leik-
inn var í Noregi," sagöi Schobel,
en liö hans varð i öðru sæti á
Ólympíuleikunum.
I tilefni af því aö í dag er dregið
í riöla í A-keppnina á næsta ári er
gaman aö renna aðeins yfir sex
efstu liöin í B-keppninni.
Rússum gengur illa ad
yngja upp lið sitt
Þaó kom talsvert á óvart hve
heimsmeistarar Rússa áttu í
rauninni erfitt uppdráttar. Þeir
unnu Tékka meö mikilli heppni
22:21, en sigurinn heföi alveg
eins getaö lent hjá Tékkum og
þaö viröist vera sem Sovétmenn
eigi í erfiöleikum með aö yngja
upp lið sitt því þeir léku eiginlega
meö sama liö og varö heims-
meistari 1982 aö Below og Now-
itzki undanskildum.
Sú skýring var gefin á aö þeir
tveir væru einfaldlega ekki f
nægilega góöri æfingu til aö vera
meö en menn eru á þeirri skoóun
aö Sovétmenn séu aö geyma þá
fyrir keppnina í Sviss. Vilji ekki
sýna þá strax í liöinu. Þaö veröur
aö segjast eins og er aö Sovét-
menn áttu aldrei möguleika á
sigri i annars góðum úrslitaleik
keppninnar gegn Austur-Þjóö-
verjum er þeir töpuöu 23:27 og
sérstaklega má segja aö Austur-
Þjóðverjar hafi spilað Sovétmenn
upp úr skónum í fyrri hálfleik því
í leikhléi var staðan 18:12 fyrir þá
og verður aö teljast ótrúlegt aö
18 mörk hafi veriö skoruö gegn
Sovétmönnum í einum hálfleik og
þaö úr aðeins 20 skotum.
Sérfræöingar spyrja: hvenær
hefur þaö gerst aö Sovét-vörnin
hafi áóur fengiö á sig 18 mörk á
30 mínútum. Schobel sagöi um
Sovétmenn í leiknum: „Það kom
vel í Ijós aó þeir misstu takt f leik
sínum er þeir náöu ekki aö keyra
upp hraöa — nota hraöaupp-
hlaup. Andstæöingarnir náöu aö
nýta sókn sína vel og heims-
meistararnir fengu þvf ekki tæki-
færi á aö beita hraðaupphlaup-
um, sem þeir hafa alltaf skoraö
mikið úr. Líka má taka meö í
reikninginn aö þeir tóku ekki þátt
í Ólympíuleikunum og þaö sann-
ar sig aö þegar liö missa af svo
mikilvægum turnerlngum veröa
þau eftir í þróun.
A-Þjóðverjar ekki eins
sterkir og búist var við
Þaö kom á óvart aö Austur-
Þjóðverjar voru ekki sterkari en
raun bar vitni, en þeir náöu sór
síöan mjög vel á strik f úrslita-
leiknum. Þeir töpuöu mjög óvænt
fyrir Ungverjum, 24:25. Austur-
þýska liöiö byggist nær eingöngu
á stórskyttunni Frank Wahl og er
erfitt aö hugsa sér austur-þýskt
landsliö án hans. Annar athyglis-
veröur leikmaöur er einn af ungu
mönnunum f liöinu, Hauck aö
nafni. Hann er í mikilli framför og
einn af fáum leikmönnum í heim-
inum sem getur skorað jafn auö-
veldlega meö báöum höndum.
Hann leikur fyrir utan.
Pólverjar óheppnir með
meiðsli lykílmanna
Pólverjar heföu líklega leikið til
úrslita f keppninni ef þeir heföu
ekki verið svo óheppnir meö
meiösli og raun ber vitni. Sá
frábæri leikmaður Wazkiewicz
nefbrotnaöi í ieik gegn Vestur-
Þjóðverjum skömmu fyrir keppn-
ina eins og Mbl. greindi frá. Hann
var síöan meö f fyrstu leikjum
mótsins í Noregi en nefbrotnaði
þá aftur. í leiknum viö Tékka
vantaöi síöan þrjár bestu skyttur
Pólverja í liöið — þeir voru allir
meiddir, og þaö voru hornamenn
sem léku fyrir utan. Þaö verður
því aó teljast furöulegt aó Pól-
verjar skuli hafa náö þriöja sæt-
inu. En fróöir menn segja mér aö
Tékkar hafi álíka minnimáttar-
kennd gagnvart Pólverjum og
Rúmenar gagnvart Júgóslövum.
Trúi þvf bókstaflega ekki aö þeir
geti unniö.
Tékkar voru með mjög jafnt liö
f Noregi en i landsliöinu eru tfu
leikmenn frá Evrópumeisturum
Dukla Prag.
Stórskyttan Kovacs er
hálft lið Ungverja
Þaö er álíka erfitt aö fmynda
sér ungverskt landsliö án stór-
skyttunnar Peter Kovacs og
austur-þýskt landsliö án Frank
Wahl. Kovacs varö markahæsti
maöur B-keppninnar meö 62
mörk. Ungverjar eru meö rétt
þokkalegt landslió án Peter Kov-
acs, en þess má geta aö Ung-
verjar léku ekki meö sinn besta
markmann, Dr. Lazlo, í keppn-
inni. Hann var skorinn upp vegna
meiösla og hefur veriö frá í
nokkra mánuði. Lazlo er þekktur
fyrir aö leika ætíö á stuttbuxum.
Þrátt fyrir aö Júgóslavinn
Pokrajev þjálfi nú spánska liöið
var ekki hægt aö merkja miklar
framfarir hjá liðinu og er jafntefl-
iö gegn ítalfu gott dæmi um að
liöið er brothætt.
Jóhann Ingi Gunnarsson skrifar
Heimsmeistarakeppnin í handknattleik:
Dregið í
í Sviss í
— Hverjir verða mótherjar íslands?
í DAG verður dregið í riöla fyrir
A-heímsmeistarakeppnina i
handknattleik sem fram fer í
Sviss í febrúar og mars á næsta
ári.
Þar veröur leikiö í sautján borg-
um í fjórum 4ra liöa riölum og fer
úrslitaleikurinn fram 6. marz.
Drátturinn fer fram í Bern i aöal-
stöövum svissneska sambandsins
fyrir hádegi í dag. Formaöur HSÍ,
Jón Hjaltalfn Magnússon, veróur
viöstaddur dráttinn.
Þátttökuþjóóunum sextán hefur
verið raöaö niöur í riöla. í fyrsta
styrkleikariöli eru V-Þjóðverjar,
Handknalllelkur
Júgóslavar, Rúmenar og Danir,
fjórar efstu þjóðirnar á Ól-leikun-
um í Los Angeles. i næsta styrk-
leikariöli eru Svfar, islendingar,
gestgjafarnir Svisslendingar og
sigurvegararnir úr síóustu
B-keppni, A-Þjóöverjar. í þriöja
riöli eru svo Sovétmenn, Tékkar,
Pólverjar og Ungverjar. í fjóröa
riöli eru svo Spánverjar, Alsír,
Bandarfkin og eitt liö frá Asíu.
Dregið veröur í fjóra riöla. Þrjú
efstu liöin í hverjum riðli komast
svo áfram, en taka stigin úr for-
keppninni meö sér í miliiriólana.
Og hvernig gæti nú raöast í riöl-
ana? Þaö versta sem gæti komiö
fyrir liö islands væri sennilega aó
lenda í riöli meö Sovótmönnum,
Rúmenum og Spánverjum, en sá
riðla
dag
möguleiki er fyrir hendi. Óskariöill
gæti verið svona: island, V-Þjóö-
verjar, Alsír, Tékkar. Þjóöir úr
sama styrkleikariöli geta ekki
dregist saman.
• Kristján Arason er landsliði Ís-
lands geysilega mikilvægur.
Þessi stóri og stæðilegi FH-ingur
er einn besti maöur liösins bæöi í
vörn og sókn. Þrumuskot hans
eru þekkt víða um heim og á
mynd Friðþjófs hér við hliðina er
Kristján í kunnuglegri stellingu.
Kominn i loft upp og um þaö bil
að þruma knettinum í mark and-
stæöinganna — þarna var þaö
markvörður hollenska liösins
Hersci Vlug en Lenig sem þurfti
að hirða knöttinn úr netinu hjá
sér.