Morgunblaðið - 23.03.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1985
35
Lúðrasveit verkalýðsins með tónleika
LÚÐRASVEIT verkalýðsins heldur árlega tónleika sína í Háskólabíói laugardaginn 30. marz klukkan 14. Á
efnisskrá eru marsar, veiðimannasöngvar, sjómannasöngvar og fleira í léttum dúr. Eftir hlé verður síðan
danshljómsveit sem leikur þrjú lög, en að leik hennar loknum tekur lúðrahljómsveitin aftur við.
Aðgangur er ókeypis að hljómleikunum.
Kjarvalsstaðir:
Yfirlitssýning á
verkum Doru Jung
Á KJARVALSSTÖÐUM verður í
dag opnuð yfirlitssýning á verkum
finnsku vefnaðarlistakonunnar
Doru Jung
í fréttatilkynningu frá Kjarv-
alsstöðum segir, að þetta sé
„minningarsýning um einn helsta
frumkvöðul finnsks listiðnaðar",
sem lést 1980, og er það finnska
listiðnaðarsafnið í Helsingfors
sem stendur fyrir sýningunni.
Hún var fyrst sett upp á mörgum
söfnum í Finnlandi, en er nú á
kynningarferð um Norðurlönd.
„Lífsverki hennar má skipta í
þrjá hluta,“ segir í fréttatilkynn-
ingunni: „Listvefnað, kirkjulist og
samvinnu við textíliðnfyrirtækið
Tampella. Dora Jung tók þátt í
fjölda sýninga á ferli sínum víða
um heim. Hún var sæmd gullverð-
launum á heimssýningunni í París
1937, og Grand Prix-verðlaunun-
um í Mílanó þrisvar sinnum í röð,
1951, 1954 og 1957. Hún hlaut
sænska Prins Eugen-heiðurs-
merkið 1961, og norrænu hönnun-
ar- og listiðnaðarverðlaunin 1972.
Verk eftir Doru Jung prýða kirkj-
ur og opinberar stofnanir í Finn-
landi og víða annars staðar."
Kaffisala Kvenfé-
lags Hallgrímskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 24.
mars, verður hin árlega kaffisala
Kvenfélags Hallgrímskirkju.
Hefst hún kl. 15 og verður í Dom-
us Medica við Egilsgötu. Þar verð-
ur að vanda glæsilegt veislukaffi,
og auk þess verður happdrætti og
fjöldi góðra vinninga. Frá fyrstu
tíð hefur kaffisalan verið einn
helsti burðarásinn i fjáröflun
þeirra kvenfélagskvenna, sem
óþreytandi eru að hlynna að kirkj-
unni sinni, fegra hana og prýða á
allar lund, og hafa auk þess gefið
umtalsverðar fjárhæðir til kirkju-
byggingarinnar. Má nefna að fyrir
síðastliðin áramót gáfu þær stór-
upphæð til orgelkaupanna, og í
Sýning frá
N-Kóreu
SÝNING á bókum, myndum og list-
iðnaói frá Noröur-Kóreu veróur
opnuö í Bókasafni Kópavogs laug-
ardaginn 23. mars.
í tilkynningu frá Bókasafni
Kópavogs segir að sýningunni sé
ætlað að bregða upp mynd af
menningu og lifnaðarháttum i
Norður-Kóreu.
Sýningin verður opin á opnun-
artíma safnsins kl. 11—21 á virk-
um dögum og kl. 14—17 á laugar-
dögum til 2. april.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
byrjun ársins keyptu þær og gáfu
kirkjunni nýja og bráðfallega
fermingarkyrtla, sem verða vígðir
við fermingar nú í vor. Um leið og
ég þakka fyrir hönd Hallgríms-
kirkju þeirra góða starf, vil ég ein-
dregið hvetja alla velunnara kven-
félagsins og Hallgrímskirkju til að
koma i Domus Medica á sunnudag
og njóta þess sem þar verður fram
borið, og styðja um leið hinar
fórnfúsu konur í starfi þeirra,
Hallgrímskirkju og söfnuði til
blessunar.
Karl Sigurbjörnsson
Hárgreiðslusýning:
Yor- og sumartízkan
— beint frá Tony og Guy
FINNSKI hárgreiöslumeistarinn
Ilkka Salminen kynnir vor- og
sumarlínuna í hárklippingum og lit-
un meö vörum finnska fyrirtækisins
CUTRIN á sunnudag og mánudag.
Ilkka kemur til landsins beint af
námskeiöi hjá Tony & Guy.
Sýningin verður haldin i ráð-
stefnu- og bíósal Loftleiða og hefst
kl. 15 báða dagana. Sýningin er
opin öllu hárgreiðslu- og hár-
skerafólki á meðan húsrúm leyfir.
Umboðsaðili CUTRIN á fslandi
er Arctic Trading & Co., en það
fyrirtæki var endurvakið í sept-
ember sl. Eigendur í dag eru Þór-
unn Lúðviksdóttir og Ásgeir
Gunnlaugsson i Garðabæ.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Lisa Johansson-Pape innanhússarkitekt hefur annast uppsetninguna á sýn-
ingunni á Kjarvalsstööum og hér stendur hún við verk meö mynd af listakon-
Líf og land:
Leiðrétting
í myndatexta undir mynd frá
blaðamannafundi Lifs og lands i
blaðinu í gær urðu þau mistök að
Hilmar Björnsson arkitekt var
sagður vera Stefán Thors arkitekt.
Biðst blaðið velvirðingar á þessum
mistökum.
Vantar vitni
Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir
vitnum að umferðarslysi, sem
varð á mótum Nýbýlavegar og
Stórahjalla mánudaginn 18. mars
síðastliðinn kl. 9.30. Þarna var um
að ræða Fiat-fólksbifreið og Ford
Bronco, og eru vitni að atburðin-
um beðin um að hafa samband við
lögregluna í Kópavogi hið fyrsta.
RENAULT 9
NCÍTÍMABÍLL MEÐ
FRAMTÍÐARS
.. mm
Renault 9 er sparneytinn, snarpur og pyður, auk þess er hann framhjóiadrifinn.
utlit, vandaðurfragangur, öryggiogending hafa tryggt Renault 9 vinsældir viða ur
bífl islenskra okurtnwma..Komdu og taktu í hann, þá veistu hvað við meint
Þú getur reitnf^rÆenault.
lönd