Morgunblaðið - 28.03.1985, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
3
Hafraimsóknaleiðangri lokið:
Afli meiri en búizt var við
— en vil ekkert tjá mig um ástand og horfur, segir Ólafur
Karvel Pálsson, fiskifræðingur og leiðangursstjóri
„ÞAÐ VAR togað i 600 stöðum eins og fyrirhugað var og aflabrögð reyndust
mun betri en við gerðum rið fyrir. Þetta voru 60 til 120 lestir i togara f
hálfan minuð. Það var auðvitað minna togað en i venjulegum veiðum en
aftur var togað lengur en í fyrri leiðöngrum. Því varð aflinn mun meiri en
iður. Þritt fyrir það er ekkert hægt að segja enn sem komið er um istand og
horfur. Til þess vantar allan samanburð,“ sagði Ólafur Karvel Pálsson,
fískifræðingur, í samtali við Morgunblaðið.
Umfangsmestu rannsóknum Haf-
rannsóknastofnunar á helztu botnf-
isktegundum til þessa lauk síðastl-
iðinn mánudag, en þær hófust þann
8. þessa mánaðar. f fyrsta sinn voru
rannsóknir þessar í mjög náinni
samvinnu við sjómenn en fimm tog-
arar með áhöfnum voru leigir til
verksins og höfðu sjómenn tekið
drjúgan þátt í undirbúningi rann-
Guðjón A. Kristjánsson, foreeti Far- sóknanna. Leiðangursstjóri var
manna- og fískimannasambandsins Ólafur Karvel Pálsson.
og skipstjóri, á Páli Pálssyni, íbygg- ólafur Karvel sagði i samtali við
inn yfir tækjunum. Morgunblaðið, að rannsóknirnar
hefðu gengið mjög vel og hefði þar
nánast allt hjálpazt að; gott veður,
góð samvinna við sjómenn og víð-
tækur undirbúningur. Hafrann-
sóknastofnun væri því mjög ánægð
með árangurinn, en niðurstöður
lægju varla fyrir fyrr en eftir
páska. Þá tók hann það fram, að
allan samanburð vantaði, þannig að
erfitt væri að meta stöðu einstakra
stofna og horfur út frá níðurstöð-
unum. Til þess þyrfti að halda þess-
um rannsóknum áfram næstu ár og
sýndist honum fullvíst að svo yrði.
Pokahnúturinn leystur um borð í Páli Pálssyni. Morgunblaðið/Rafn Ólafsson
Fiskmarkaðurinn
í Þýzkalandi:
Vigri með
næsthæst
heildarverð
689 þús.
mörk
SKUTTOGARINN Vigri RE fékk
í gær næsthæsta heildarverð í
þýzkum mörkum talið, sem ís-
lenzkt fiskiskip hefur fengið á
fískmarkaðinum í Þýzkalandi.
Vigri á sjálfur sölumetið, sett í
janúarmánuði síðastliðnum, en
auk þess hefur hann fjónim sinn-
um fengið hæsta heildarverðið
síðan 1982. Ögri RE, sem eins og
Vigri er í eigu Ögurvíkur, á svo
fimmta hæsta verðið. Skipstjóri á
Vigra er Steingrímur Þorvalds-
son.
Vigri seldi í gær 215,7 lestir,
mest karfa, í Bremerhaven.
Heildarverð í islenzkum krónum
var 8.868.400 krónur, meðalverð
41,12. í þýzkum mörkum talið
var heildarupphæðin 688.800
mörk, meðalverð 3,20. Þann 7.
janúar sl. seldi Vigri 220 lestir.
Heildarverð var 693.900 mörk,
meðalverð 3,15. 26. október 1982
seldi Vigri 355,5 lestir. Heildar-
verð var 667.000 mörk, meðalverð
1,88. 23. febrúar sama ár seldi
hann 279,3 lestir. Heildarverð
var 673.600 mörk, meðalverð 2,41.
22. marz 1982 seldi ögri 239,5
lestir. Heildarverð var 662.687
mörk, meðalverð 2,76. Hæsta
meðalverð í Þýzkalandi á Ásgeir
RE, en 28. desember siðastliðinn
fékk hann 3,42 mörk að meðaltali
á hvert kíló.
Á mánudag seldi Már SH 115,9
lestir í Cuxhaven. Heildarverð
var 4.243.800 krónur, meðalverð
36,60. Þá seldi Beitir NK 123,9
lestir í Grimsby í gær, mest
þorsk. Heildarverð var 4.881.600
krónur, meðalverð 39,39. Meðal-
verð fyrir hvert kíló af þorski var
rúmar 40 krónur.
Skýring þess, að íslenzku fiski-
skipin fá nú mun betra verð fyrir
afla sinn en fyrir nokkrum vik-
um, er sú, að um páskana borða
bæði Englendingar og Þjóðverjar
mikið af fiski og er eftirspurn á
mörkuðunum því veruleg. Eitt
skip mun selja afla sinn erlendis
á morgun, föstudag og þrjú í
næstu viku.
Dun-let
kraftakjaniHiii
m
t>risvar sinnum mýkra • Prisvar sinnum auóveldara
Ein tappafylli af Dun-let kraftkjarna gef-
ur þrefalt meiri mýkt og ferskleika en
sama magn af venjulegu Dun-let.
I hverjum dropa er rtefnilega þrefalt meiri mýkt og fersk-
leiki. Flaskan er þrefalt minni — og þess vegna þrefalt
léttari aö bera, geyma og skammta úr.
Meö Dun-let kraftkjarna er þrisvar sinnum auðveldara að
fá þvottinn dúnmjúkan og ilmandi en meö venjulegu
Dun-let.
af raf magnar f ljótt og örugglega