Morgunblaðið - 28.03.1985, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
Óbreyttu vísi-
tölukerfi hafnað
— aðilar gætu samið um viðmiðanir
„VIÐ ERUM, báðir stjórnarflokkarnir, óbreyttrar skoóunar. Við erum á móti
vísitölubindingu launa í nokkru formi svipuðu því og var áður,“ sagði
forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, er hann var spurður álits á
afstöðu samningaráðs Vinnuveitendasambands ísland til þess að vísi-
tölubinding launa taki gildi 1. júní nk., en samningaráðið er andvígt því.
„Nei, það munum við aldrei
gera," sagði forsætisráðherra, er
hann var í framhaldi af því spurð-
ur, hvort ríkisstjórnin ætlaði að
láta lögin um vísitölubindinguna
taka gildi óbreytt 1. júní nk., en þá
rennur út ákvæði laga frá í maí-
mánuði 1983, sem námu vísitölu-
bindinguna úr gildi til tveggja ára.
Steingrímur sagði ennfremur í
framhaldi af þessu: „Spurningin
er hins vegar, hvort við látum
nægja að fella lögin úr gildi og
Tíu þúsund ;
hafa séð
Hvíta máva
Rúmlega tíu þúsund manns hafa
séð kvikmyndina Hvítir mávar, síð-
an hún var frumsýnd, 16. marz sl.,
að því er Valgeir Guðjónsson, einn
Stuðmanna er standa að myndinni,
tjáði Mbl.
Hvítir mávar voru frumsýndir
samtímis í Reykjavík og á Seyðis-
firði, en síðan hefur kvikmyndin
verið sýnd í Reykjavík, samtímis í
Bíóhöllinni og Háskólabíói.
Nú stendur hins vegar til að
hætta sýningum í Háskólabíói og
sýna myndina eingöngu í Bíóhöll-
inni.
treysta þá vinnuveitendum til
þess, að þeir semji ekki um vísi-
tölubindingu sem að okkar mati
stenst ekki.“
Varðandi afstöðu VSÍ sagði for-
sætisráðherra, að hann vissi ekki
betur en VSÍ hefði staðið í viðræð-
um á síðasta ári við ASÍ um alls
konar „rauð strik“, eins og hann
orðaði það. Stjórnvöld treystu því
að vinnuveitendur semdu ekki um
vísitölu neitt svipað því og áður
gilti. Hins vegar gæti vel komið til
greina að hans mati að í lengri
samningum kæmu einhverjar við-
miðanir, eins og giltu til dæmis á
Norðurlöndum. Nánar aðspurður
um hvað hann ætti við svaraði
hann: „Það má eiginlega túlka
bannið eins og það er núna þannig
að hvers konar viðmiðanir séu
bannaðar. Það er auðvitað óskap-
lega mikill munur á þeirri vísi-
töluviðmiðun sem gilti og rauðum
strikum, eins og ég veit að VSÍ og
ASÍ voru að ræða um í fyrra-
haust.“
Steingrímur sagði í lokin, að
viðræðum við VSI, ASÍ og enn-
fremur BSRB yrði haldið áfram.
Hann sagðist ekki vilja upplýsa
um tímasetningu næsta fundar og
sagði síðan: „Við ætlum að vinna
þetta í friði núna og erum undr-
andi á því að VSl skyldi hlaupa
beint í blöðin án þess að koma aft-
ur til okkar og svara."
Góðri loðnuvertíð að ljúka
— um 50 þús. lestir eftir af kvótanum
EINHVERRI beztu loðnuvertíð okkar fslendinga er nú að Ijúka. Alls hafa
veiðst um 760.000 lestir frá því á haustmánuðum og eru því tæpar 50.000
lestir eftir af leyfðu aflamagni, 815.000 lestum. Heildaraflinn á síðustu vertíð
var 570.000 lestir.
Nú eru aðeins 6 skip enn að
loðnuveiðum, en afli hefur verið
mjög tregur og loðnan dreifð á
svæðinu frá Eyjum vestur að
Jökli. Samkvæmt upplýsingum
Loðnunefndar munu flest þessara
skipa ætla sér að sigla með aflann,
takist þeim að ná fullfermi og slá
þannig botninn í vertíðina. Þetta
er að sögn Andrésar Finnbogason-
ar hjá Loðnunefnd einhver bezta
loðnu vertíð síðan veiðar hófust af
einhverri alvöru fyrir 12 árum.
NOD ’85:
Norræn samstaða
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Hjálparstofnun
kirkjunnar og framhaldsskólanem-
um:
Undanfarin ár hafa nemenda-
samtök á Norðurlöndum í sam-
vinnu við hjálparstofnanir kirkn-
anna í viðkomandi löndum staðið
fyrir verkefnum til stuðnings
æsku þriðja heimsins. Á þessu ári
1985, alþjóðaári æskunnar, er
verkefnið í fyrsta sinn unnið á
samnorrænum grundvelli. Hefur
Apartheid (aðskilnaðar) stefna
stjórnvalda í Suður-Afríku verið
valin sem viðfangsefni. Verkefn-
inu hefur verið gefið nafnið
„Nordisk operation dagsværk,
NOD 85.“
Hápunktur verkefnisins verður
28. mars. Þann dag mun fyrir-
tækjum, vinnuveitendum og al-
menningi boðinn vinnukraftur
námsfólks gegn greiðslu lág-
markslauna. Námsfólk og hjálpar-
stofnanir kirknanna á Islandi og í
Færeyjum hafa ákveðið í samráði
við Samkirkjuráð S-Afríku
(SACC) að fénu sem safnast, verði
veitt til æskulýðsdeildar SACC,
sem verji því til uppbyggingar í
menntamálum. SACC hefur verið
mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum
undanfarin vegna þess að fram-
kvæmdastjóri samtakanna, Des-
mond Tutu, hlaut friðarverðlaun
Nóbels 1984, fyrir tilraunir sinar
til að vinna sigur á Apartheid með
friðsamlegum baráttuaðferðum.
Til viðbótar þeim fjármunum sem
safnast fyrir dagsverk er í ráði að
hafa almenna söfnun til sama
verkefnis.
Sýnum í verki samstöðu okkar
með S-Afrískri æsku sem berst
gegn allri þeirri kúgun og órétt-
læti sem hún er beitt af s-afrísk-
um stjórnvöldum í krafti aðskiln-
aðarstefnunnar (apartheit). Það
gerum við best með því að leigja
vinnukrafta nemenda í einn dag
þann 28. mars. Það gerum við með
því að hafa samband við NOD
nefndir eða nemendafélög í fram-
haldsskólum landsins, eða leggja
framlag inn á reikning NOD 8687 í
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis.
Okkar stuðningur mun gefa
S-Afrískri æsku von um bjartari
framtíð.
Hjálpum æsku Suður-Afríku.
Morgunblaftift/Árni Sæberg
Frónfari affermdur á Kastrupflugvelli f gær: alþjóðlegar hjálparsveitir taka til hendinni. Finnur Vaidimarsson,
hlaómaður af Keflavíkurflugvelli, fremstur á myndinni.
*
Islensk viðbrögð við verkfallinu í Danmörku:
Norski kúrekinn
fékk að borða
ÞAÐ VAR óvenju rólegt á Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn í gær — nánast ekkert að gera. Flestar verslanir
og barir voru lokaðir á vellinum vegna yfirstandandi verkfalls í landinu („pá grund av det págáende konflikt**
eins og það var orðað á handskrifuðum veggspjöldum hér og þar um flugstöðvarbygginguna) og farþegar máttu
sjálfir bera farangur sinn fram og aftur. Flestir starfsmenn vallarins eru félagar í danska alþýðusambandinu
(LO), sem er í verkfalli. Aðeins var opið í flugvallarkaffinu í miðri fríhöfninni og þar var ekkert að fá nema
páskabjór frá Tuborg og Gammel dansk. Það getur ekki verið góður hádegismatur fyrir svanga íslendinga.
Þjófar í verkfalli
Umferð um Kastrup er í lág-
marki þessa dagana enda hlað-
menn þar í verkfalli og ekkert
bensín að fá. Flugleiðir — og
væntanlega fleiri flugfélög —
hafa gripið til þess ráðs að fljúga
tveimur hlaðmönnum að heiman
til að hjálpa til við affermingu
og fermingu vélanna og lent er í
Osló eða Stafangri til að taka
eldsneyti á heimleiðinni.
Hlaðmenn Flugleiða eru ekki
óvanir því að fara í skottúra af
þessu tagi þegar verkalýðurinn í
nágrannalöndunum finnur sig
knúinn til að leggja niður vinnu.
Fyrir tveimur árum var verkfall
hjá flugvallarstarfsmönnum i
London og þá fóru nokkrir menn
að heiman með hverri ferð og
heim aftur samdægurs til að
annast störf hlaðmanna. Á með-
an tslendingarnir gengu i störf
starfsbræðra sinna i London
skilaði farangur sér miklu betur
en áður — þeir segja að þjófóttir
starfsmenn á Heathrow hafi
verið i verkfalli!
Farþegar bera sjálfir
Islensku hlaðmennirnir voru
örsnöggir að afferma Frónfara
um hádegisbilið í gær og nutu til
þess aðstoðar hjálpfúsra
starfsmanna KLM, Sabena og
fleiri flugfélaga auk starfs-
manna Flugleiða á Kastrup.
Farþegar máttu sjálfir bera
farangur sinn á kerrur brottfar-
armegin, þar sem sömu — og
fleiri — starfsmenn tóku við að
ferma vélar á útleið. Aðeins fáir
„rampar“ eru í notkun á Kastrup
þessa dagana og þvi koma far-
þegar að heiman inn i öðrum
enda flugstöðvarbyggingarinnar
en venja er til.
Breiðþotur myndu verða
„lens“ á Kastrup meðan á verk-
fallinu stendur — aðeins vélar
meö eigin landgöngubrú, ljósa-
mótor og loftdælur geta séð um
sig sjálfar þar sem flugvallar-
starfsmenn eru í verkfalli.
Það var heldur fátt á leiðinni
utan en heldur fleira á útleið.
Farþegar sem komu um borð í
Kaupmannahöfn voru hungraðir
enda flest lokað á Kastrup eins
og fyrr segir. Mest matarþurfi
var tveggja metra hár norskur
kúreki að koma frá Austur-
Þýskalandi, greinilega talsverð-
ur matmaður.
Flugfreyjurnar um borð í
Frónfara höfðu gætt þess á út-
leiðinni að henda ekki leifunum
af morgunmatnum (enda óvíst
að hægt yrði að losna við ruslið á
Kastrup) og hituðu upp fyrir
hann eggjahræru og skinku.
Hann steig svo alsæll út í vetr-
arstilluna í Osló upp úr hádeg-
inu og hefur vafalaust ætlað
rakleiðis að fá sér þjóðlegan
norskan hamborgara með geita-
osti.
- ÓV
No boording calls foi scheduted departures
Það var með rólegra móti á helsta flugvelli Dana I gær: ein flugferð var ráðgerð þaðan fyrir hádegið.
PfPAfiTURfc
AfGANC