Morgunblaðið - 28.03.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
7
Innsbruck
MTjÉþTrento >
GARDAVATN
Mantovi
Florens
ingarsjóðinn, en tónlistarhúsið
mun senn rísa af grunni.
Hægt er að panta miða hjá
Bókhlöðunni og kaupa þá við inn-
ganginn að skemmtuninni.
INNLENT
öll aðstaða til sunds, sólbaða og
seglabrettasiglinga er hin
ákjósanlegasta. Góðir ogt p i
ódýrir veitingastaðir^ JjbSTi
eru á hverju strái
og diskótek.
Til Innsbruck um 3'/2 klst. akstur
T'O} U T, / VGarda
\Sirmionejy Bardolino
\ nJco peschiera
-JL-—AA Padova ~/\
\ í\ Verona Virpnra cAna.,;ar
' Sff
Milano
Til Feneyja
gengi 10.01. ’85
Til Verona um 'k klst. akstur.
Til Florenz um 4 klst. akstur
tónleikar
í kvöld
Sigfús Halldórsson
heldur málverkasýningu
og tónleika á Akranesi
TÓNSKÁLDIÐ og listmálarinn, Sigfús Halldórsson, opnar málverkasýningu
á Akranesi 4. aprfl, skírdag, klukkan 13.30. Sama dag klukkan 17.00 heldur
hann tónleika ásamt tveimur söngvurum.
Sigfús sýnir 30 vatnslitamyndir
og eru þær allar landslagsmyndir
frá Akranesi. Málverkasýningin
verður haldin í Bókhlöðunni og
stendur til 14. apríl. „Ég er nú
frægastur fyrir að mála hús, en
landslagsmyndir eru þarna líka,“
sagði Sigfús í samtali við blm.
Mbl. „Ég hef um árabil tekið ýmsa
bæi fyrir. Til dæmis í Reykjavík
Sinfóníu-
hef ég haldið einar fjórar sýningar
með Reykjavíkurmyndum ein-
göngu. Einnig hef ég sýnt tvívegis
Akureyrarmyndir á Akureyri og
eins hef ég gert þetta í Vest-
mannaeyjum, Keflavík og fleiri
stöðum."
Tónleikarnir verða haldnir í
Bíóhöllinni á Akranesi og á efn-
isskránni verða sönglög eftir Sig-
fús. Elín Sigurvinsdóttir og Frið-
björn G. Jónsson munu syngja, en
Sigfús mun leika undir á píanó.
NÆSTU áskriftartónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands verða í Há-
skólabíói í kvöld og hefjast þeir
klukkan 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna eru eft-
irtalin verk: Atmos I eftir Magnús
Bl. Jóhannsson, en verkið hefur
einu sinni verið flutt áður og þá í
Langholtskirkju á Myrkum mús-
íkdogum fyrir u.þ.b. 2 árum. Þá
verður Píanókonsert nr. 3 eftir
Béla Bartók fluttur og Matthías
málari eftir Paul Hindemith.
Stjórnandi er Arthur Weisberg,
en einleikari er Anna Málfriður
Sigurðardóttir.
Arthur Weisberg er bandarísk-
ur og lauk burtfararprófi á fagott
frá Juilliard-skólanum í New
York. Hann lék síðan í ýmsum
hljómsveitum á fagott, en sneri
aftur til Juilliard og lærði
hljómsveitarstjórn hjá Jean Mor-
el. Weisberg hefur stjórnað ýms-
um hljómsveitum, bæði austan
hafs og vestan, og hljóðritað yfir
30 plötur.
Ánna Málfríður Sigurðardóttir
lauk einleikaraprófi frá Guild-
hall-tónlistarskólanum í London
1971. Hún kennir nú við Tónlist-
arskóla Kópavogs og hefur oft
leikið áður með Sinfóniuhljóm-
sveitinni.
Afgangsyarmi á
Grundartanga:
Gæti hitað einn
til tvo hektara
gróðurhúsa
Járnblendifélagið á Gnindartanga
hefur hug á að kanna til hlítar mögu-
leika á nýtingu afgangsvarma og af-
gangsefna, sem til falla í rekstrin-
um, samkvæmt upplvsingum Jóns
Sigurðssonar, framkvæmdastjóra
Járnblendifélagsins. Hyggst félagið í
því sambandi bera saman möguleika
til fiskræktar og ylræktar í gróður-
húsum.
Jón segir aö kælivatn það sem
er í lokuðu kerfi á Grundartanga,
og kemur út 80 til 90 gráðu heitt,
myndi nægja til þess að hita einn
til tvo hektara af gróðurhúsum.
Hæstiréttur
staðfestir
gæzluvarðhald
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
úrskurð Sakadóms Reykjavíkur
um gæzluvarðhald yfir manni
þeim, sem hefur játað að hafa lent
í átökum við Sigurð Breiðfjörð
Ólafsson, sem fannst látinn á
heimili sínu í febrúar síðastliðn-
um. Sigurður reyndist tvíkjálka-
brotinn og hafði áverka á andliti.
Réttargæzlumaður mannsins, sem
situr í gæzluvarðhaldi, kærði úr-
skurð Sakadóms til Hæstaréttar.
NÝJU
UMARIBU-ÐIRN AR
okkar við hið undurfagra
iiiiiiin
eru í algjörum sérflokki og staðsetning þeirra i bænum
PESCHIERA skapa óteljandi skemmtilega möguleika.
Isafjörður:
Skemmtun til styrkt-
ar tónlistarskóla
Sigfús Halldórsson listmálari og
tónskáld.
ÁHUGAFÓLK um byggingu tónlist-
arskóla á ísafirði heldur skemmtun
með kabarettsýningu í Félagsheimil-
inu Hnífsdal 1 kvöld, ennfremur á
morgun, fostudag, og sunnudaginn
31. mars.
f fréttatilkynningu frá styrkt-
arsjóði um byggingu tónlistar-
skóla á ísafirði segir, að kabarett-
inn verði með svipuðu sniði og
undanfarin ár og að Samúel J.
Samúelsson verði kabarettstjóri.
Þeir, sem standa að sýningunni,
gefa allir vinnu sína, svo að tekj-
urnar renni óskiptar í bygg-
Auk margs annars til skemmtunnarerCANEVA-vatnsleik-
völlurinn og GARDALAND einn stærsti skemmtigarður
Ítalíu í sannkölluðum DISNEY-land-TIVOLÍ stíl, einnig
SAFARI-garður með villtum dýrum o.m.fl.
SÉRSTAKLEGA HAGSTÆTT VERÐ
Bt Rlfí SAMAN OKKAR VI Rfí OG ANNARRA
r
Boðið er upp á skoðunarferðir, t.d. til VERONA, skoðun
listaverka FLORENSBORGAR og FENEYJA eða ferð til
INNSBRUCK í Austurriki, og svo mætti kk lengi telja
~J0r*^FERÐASKRIFSTOFANj
ypTerra
Laugavegi 28, 101 Reykjavik. Simar 2-97-40 og 62-17-40 *
Unnendur sumarhúsa norðar i Evrópu kunna sannarlega
að meta aðstöðuna við þetta stærsta og fegursta vatn Ítalíu,
370 km2 meira en fjórum sinnum stærra en Þingvallavatn.
öllum verður ógleymanleg skemmtisigling með viðkomu á
fjölda staða meðfram ströndinni eða stórkostleg bílferð
eftir hinni víðfrægu GARDESANA útsýnishringbraut sem
varopnuð1931 umhverfis vatnið.
Þess má geta að GARDAWATN hefur orðið íslenskum
skáldum yrkisefni, eins og Jóhanni Sigurjónssyni og
Gisla Ásmundssyni.
Til Genova um 3 klst. akstur.
Til Padova um 1 klst. akstur.
Til Milano um 1 ’/a klst. akstur.