Morgunblaðið - 28.03.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
29
Dr. Björn S. Stefánsson
„Grundvöllur norræns
samstarfs er hugsjónir
og viðhorf sem borizt
hafa milli landanna og
birtast bezt í þjóðtung-
unum þremur, dönsku,
norsku og sænsku, en
þar er íslenzkan fulltrúi
upprunans.“
Hannesson til að þýða greinargerð
um skólamál á ísiandi úr dönsku á
ensku. Að loknu verki sagði sá
ágæti ensku- og íslenzkumaður, að
það væri í rauninni ekki gerandi
með góðu móti, hér væri um svo
mörg hugtök að ræða, sem væru
framandi ensku máli og menn-
ingu.
Þegar ég leiði fólk frá Norður-
löndum saman við íslendinga,
hvet ég gestina til að tala
dönsku/norsku/sænsku og halda
því áfram, þótt íslendingurinn
svari á ensku, nema því aðeins að
íslendingurinn biðjist eindregið
undan þvi, og endurtaka á sama
máli, ef ekki skilst, frekar en
svara fslendingnum á ensku. Með
því móti má hafa nokkurn stuðn-
ing af því, sem er skylt í málunum,
og íslendingurinn fær betur tæki-
færi til að kynna íslenzk nöfn,
stofnanir og hvers konar fyrir-
bæri. Um leið fær gesturinn
nokkra hugmynd um, að íslenzkt
mál er í senn klassískt menning-
armál og frjótt nútímamál.
Finnar ryðja ensk-
unni til rúms
Dæmi má nefna um rannsókna-
námskeið á vegum Norðurlanda-
ráðs sem að ósk Finna fer fram á
ensku í stað skandinavisku. Það er
dálitið hlálegt að Finnar, sem ekki
eru um allt frjálsir vegna nábýlis
við Rússa, skuli beinlínis ryðja
ensku máli til rúms á nýju sviði
samskipta norrænna manna.
Grundvöllur norræns samstarfs
er hugsjónir og viðhorf sem borizt
hafa milli landanna og birtast
bezt í þjóðtungunum þremur,
dönsku, norsku og sænsku, en þar
er islenzkan fulltrúi upprunans.
Ef ensk tunga verður viðurkennd í
samskiptum á vegum Norður-
landaráðs, er meginforsenda nor-
ræns samstarfs úr sögunni. Þá
mætti eins draga Skota og íra inn
í samstarf við Islendinga og Norð-
menn, en sleppa Finnum, sem geta
þá snúið sér frekar að þjóðum
Austur-Evrópu.
Fráleitt er að sjá á vegum Norð-
urlandaráðs nöfn stofnana og
starfsheiti háskólamanna á ensku,
jafnvel póstfang (Copenhagen).
Með þvi er spillt fyrir að menn
kynnist stofnunum og menningu
grannþjóðanna. Væri ráð, að
leiðbeiningar um slíkt bærust að-
standendum námskeiða frá við-
komandi stofnun Norðurlanda-
ráðs.
Sérstaða íslend-
inga kynnt
Þótt Islendingur þurfi að tala
dönsku/norsku/sænsku er hann
ekki á allan hátt sá sem minna má
sín, eins og bent hefur verið á.
Óhugsandi er að íslenzkt mál verði
almennt skiljanlegt á Norðurlönd-
um, en samt má kynna íslenzkt
mál þar betur en gert hefur verið.
Fyrir nokkrum árum lagði Baldur
Jónsson til í blaðagrein, að tekin
yrði upp kennsla í grunnskólum
Norðurlanda í íslenzkri stafagerð
og mannanafnavenjum. Það er
námsefni sem kennarar og nem-
endur hljóta að meta vel og mundi
vekja áhuga á íslenzku máli yfir-
leitt. Tillögu Baldurs hefur ekki
verið sinnt fyrr en nú í janúar, að
ég vakti athygli formanns menn-
ingarmálanefndar Norðurlanda-
ráðs (Eiðs Guðnasonar) á henni.
Hann hét því að fylgja málinu eft-
ir á vettvangi Norðurlandaráðs, en
þar tæki að vísu langan tíma að
fjalla um mál og ljúka þeim. —
Hitt er vitað, að íslendingar, þar
með talin islenzk stjórnvöld, eiga
iðulega sjálfir sök á því, að ekki er
tekið tillit til íslenzkra nafnvenja
og stafagerðar á Norðurlöndum.
Oft er sárt að finna þröngsýni
fólks á Norðurlöndum og áhuga-
leysi gagnvart íslenzkum málum.
Slikt er hlutskipti smáþjóðar. ís-
lendingar mega samt ekki láta slík
sárindi spilla fyrir samskiptum
við Norðurlönd í þágu eigin þjóð-
menningar og til mótvægis við hin
ríkjandi áhrif hinnar þjóðlausu
menningar sem berst um heiminn
á ensku.
Björii & Stefánsson er dr. scienL
COMBI CAMP
202
Verð ffrá kr. 95.500,-
Til afgreiðslu strax
COMBI CAMP
404
Verð frá kr.
112.306,-
Til afgreiðslu strax
BENCO
Bolholti 4,105 Reykjavík.
S. 91-21945.
Fermingargjöf
skíðaáhugafólks
SKÍÐAPAKKI Á ÓTRÚLEGU VERÐI
-skíöi. 140 til 190 sm.
SALOMON -bindingar. 30 til 90
kg-
V -skíöaskór. St. 36—46.
Skíöastafir, allar stæröir.
Þessi ótrúlegi skíöapakki er á aöeins
5.900 kr. en áöur verö 7.580 kr.
SKÍÐAPAKKI
I] -skíöaskór. St. 36 til 46.
SALOMOIU -bindingar. 30 til 90 kg.
Skíöastafir í öllum stæröum. Ótrúlegt verö
4.900 kr. áöur 8.430 kr.
ÞETTA ERU ÓSKAGJAFIR FERMINGAR-
BARNSINS Á ÓTRÚLEGU VERÐI
Póstsendum
um allt land
Sportval
\r Laugavegi 116 viö Hlemm.
Símar 26690 — 14390.
TALBOT 1100 VF 2
Vélastærð 1118-3 55 HA
Framhjóladrifinn
Sjálfstæð fjöðrun
Flutningsrými 2600 lítrar
Burðargeta 500 kíló
Kostarkr. 279.500,00
PEUGEOT 504GR PICK-UP
Vélastærðir: 1796-380HA Benzín
2304-370HA Diesel
Afturhjóladrifinn
„Splittað drif“
Pallstærð 1,45 X 2,00 M.
Burðargeta 1400 KG.
Kostar frá kr. 398.000,00
Tollgengi 1. marz ’85
HAFRAFELL
símar 685211 — 683537
Duglcgir og spamey tnir
v-innubílarfrá PEUGEOT
II