Morgunblaðið - 28.03.1985, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
33
Kveikti í sér í mótmælaskyni
Þessi mynd var tekin f gær, þegar maöur nokkur kveikti í sér fyrir utan sendiráð Suður-Kóreu í Taipei á
Formósu. Með verknaðinum vildi hann mótmæla afhendingu Suður-Kóreustjórnar á 13 skipverjum af kínverska
fallbyssubátnum, sem dreginn var til hafnar í Suður-Kóreu á föstudag. Maðurinn hlaut alvarleg brunasár og var
þungt haldinn, er hann var lagður inn á spítala.
Danmörk:
Arabískir flóttamenn
Danmörk:
Tillögur um 3,5
prósent kaup-
hækkun á 2 árum
K.upm.nnshofn. 27. mvs. AP.
POUL SCHLUTER, forsætis-
ráðherra Danmerkur, lagði í dag
fram á þinginu tillögur í átta lið-
um til lausnar verkföllunum
sem lamað hafa þjóðlífið í land-
inu síðustu dagana. Þingmeiri-
hluti er talinn öruggur fyrir af-
greiðslu málsins og vonast
stjórnin til þess að allt verði
komið í eðlilegt horf á mánudag-
inn. Tillögurnar gera ráð fyrir
3,5% kauphækkun á tveggja ára
tímabili, 2% á fyrra árinu og
1,5% á síðara árinu. Þá er gert
ráð fyrir að vinnuvikan styttist
um eina klukkustund er þrír
mánuðir eru eftir af umræddu
tveggja ára tímabili, verði 39
stundir í stað 40.
Hin fjögurra flokka sam-
steypustjórn Schlíiters lagði
fram umræddar tillögur eftir
löng og ströng fundarhöld með
Radikal venstre-flokknum sem
tjyggir meiri hlutann á þinginu.
Ýmis úrræði í efnahagsmálum er
að finna, svo sem skyldusparnað-
ur hálaunamanna, leiðir til að
minnka erlenda skuldahalann, 40
til 50% skattaaukning á fyrir-
tæki sem á móti borga minna til
opinberrar þjónustu, svo og sam-
dráttur í opinberum framkvæmd-
um.
Stjórnarandstaðan og verka-
lýðsleiðtogar eru sáróánægð með
aðgerðir stjórnarinnar og ýmsir
úr þeirra röðum hafa lýst yfir að
órói verði óhjákvæmilega áfram
á vinnumarkaðinum og það megi
jafnvel búast við skæruverkföll-
um.
Gengi
gjaldmiðla
tóku fimm í gíslingu
Kaupmannahöfn, 27. mars. AP.
SAUTJÁN Líbanir og Palestínu-
menn gáfust upp fyrir dönsku lög-
reglunni snemma í morgun, eftir að
hafa haidið tveimur lögreglu-
mönnum og þremur túlkum í gísl-
ingu í þrjár klukkustundir í flótta-
mannabúðum á Livö í Limafirði.
Þeir höfðu hótað að brenna gíslana
lifandL
Konrad Pape, talsmaður lög-
reglunnar, sagði að mennirnir
hefðu verið vopnaðir hnifum og
líklega eldsprengjum.
Pape sagði, að ekki lægi ljóst
fyrir hvers vegna útlendingarnir
gripu til þessa ráðs, en talið væri
að þeir hefðu verið orðnir ergilegir
yfir einangrun sinni á eynni og
óttast að þeir fengju ekki landvist
til frambúðar í Danmörku.
í flóttamannabúðunum á Livö
búa nú um 150 útlendingar, sem
óskað hafa eftir landvist, og bíða
þeir afgreiðslu stjórnvalda á
Italíæ
Starfsmaður verka-
lýðsfélags myrtur
Símamynd/AP
Ekið á brott í lögreglubifreið með Líbanina og Palestínumennina 17, sem í
gærmorgun tóku fimm Dani í gíslingu í flóttamannabúðum á Livö í Lima-
firði.
málaleitan sinni. Samtals hefur 25
slíkum búðum verið komið á fót í
Danmörku, en flóttamönnum til
landsins fjölgaði skyndilega mjög
ört snemma á síðasta ári eftir að
sett voru ný lög um landvist út-
lendinga.
ERLENT
Jóhannesarborg:
25 skóla-
börn létu líf-
ið í bflslysi
JóhanneNarborK. Nuður-Afríku, 27. mnra. AP.
AÐ MINNSTA kosti 25 börn létu lífið í
dag, þegar skólabíll fór út af vegi og
steyptist niður í síki í útborg Jóhannes-
arborgar, að sögn suður-afrísku frétta-
stofunnar, SAPA.
Borgarstjórinn, Ernie Fabel,
greindi frá slysinu á borgarstjórn-
arfundi, en fór að því búnu á slys-
stað, að sögn fréttastofunnar.
Með bílnum voru um 60 börn á
heimleið úr barnaskóla Afríkana
nálægt Westdene í vesturhluta Jó-
hannesarborgar, en slysið varð um
hádegisbil, að sögn fréttastofunnar.
Sjúkrahús í grennd við slysstað
annaðist hina slösuðu, en óttast var,
að tala látinna ætti eftir að hækka,
sagöi í frétt SAPA.
Lækkandi
gengi
dollarans
London, 27. marz AP.
LÆKKANDI vextir á dollara-
innstæðum í Vestur-Evrópu og
orðrómur um óörugga stöðu
bandaríska bankakerfisins varð
enn til þess að lækka gengi Band-
aríkjadollars í dag. Hækkandi
vextir í Bretlandi urðu hins vegar
til þess að styrkja stöðu pundsins
enn frekar. Þannig fengust fyrir
það 1,2310 dollarar síðdegis í dag
(1,1807 í gær) og var það hærra
verð á pundinu gagnvart dollar
en nokkru sinni frá því í nóvem-
ber sl.
Gengi dollarans var að öðru
leyti þannig, að fyrir hvern
dollar fengust 3,1500 vestur-
þýzk mörk (3,2090), 2,6635
svissneskir frankar (2,7215),
9,6050 franskir frankar
(9,8075), 3,5580 hollenzk gyllini
(3,6300), 2.008,50 ítalskar lírur
(2.042,50), 1,3655 kanadískir
dollarar (1,3760) og 254,00 jen
(256,97). Síðdegis í dag var
gengi dollarans skráð á 252,90
jen í kauphöllinni i London.
VANTAR ÞIG ÍSSKÁP EÐA
Róm, 27. msre. AP.
TVEIR ungir menn, sem vopnaðir
voru vélbyssum, skutu í dag til bana
háttsettan starfsmann CICL-verka-
lýðssambandsins, Ezio Tarantelli, aö
sögn lögreglunnar. Maður sem ekki
sagði til nafns hringdi til útvarps-
stöðvar og lýsti ábyrgðinni á hendur
Rauðu herdeildunum, sem eru sam-
tök vinstri sinnaðra hermdarverka-
manna.
Þrjú helstu verkalýðssambönd ít-
alíu sendu út tilkynningu, þar sem
Verkfalli á
London, 27. marz. AP.
BREZKA bladid The Sun, eitt mest
selda dagbiað Bretlandseyja, kom út í
dag að nýju eftir sjö daga verkfall
starfsmanna í prentsmiðju blaðsins.
Verkfallinu var aflýst er stjórn-
endur blaðsins og starfsmenn náðu
samkomulagi um sameiginlega
rannsókn á því, sem verkfalli olli, en
það voru bilanir í prentvél.
félagar þeirra eru hvattir til að
leggja niður vinnu í a.m.k. tvo tíma
og fjölmenna út á götur borgarinn-
ar til að mótmæla morðinu á Tar-
antelli.
Á síðasta ári starfaði Tarantelli í
stjórnskipaðri nefnd, sem lagði
fram áætlun, er fól í sér afnám vísi-
töluhækkana á laun.
Morðið var framið í Rómarhá-
skóla, þar sem Tarantelli gegndi
prófessorsembætti.
Sun lokið
Bilunin var fólgin í því að prent-
plötur brotnuðu. Stjórnendur blaðs-
ins sögðu að um skemmdarverk væri
að ræða i þeim tilgangi að tefja út-
gáfuna. Stéttarfélög starfsfólks í
prentsmiðju vísuðu ásökununum á
bug og sögðu hættu stafa af plötun-
um.
Athugaðu þá Husqvarna ísskápana.
verð og útlit mun koma þér skemmtilega á óvart.
Stærðir 285L - 380L
Isskápar sem standast gæða-
kröfur framtíðarinnar.
verð frá aðeins 23.595.-^
EINSTAKT TÆKIFÆRI.
Husqvarna
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 91 35200 Iðl