Morgunblaðið - 28.03.1985, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
Leyft að fara frá
Sovétríkjuimm eft-
ir sjö ára baráttu
Víb, 26. mars. AP.
SOVÉSK hjón, sem í sjö ár hafa
reynt að fá brottfararleyfi frá
Sovétríkjunum, eru komin til Vín-
ar og hafa í hyggju að flytjast til
Bandaríkjanna, að sögn starfs-
manna sarataka, er annast flótta-
fólk.
Waldi Schauer, sem starfar
hjá Gyðingastofnuninni í Vín,
sagði að sovésku hjónin, Nik-
olai og Nadezhda Pankov, hefðu
komið á mánudag og haft með-
ferðis útflytjendaleyfi til ísra-
els. Þau eru ekki gyðingar.
Talsmaður Tolstoy-stofnun-
arinnar, sem aðstoðar Rússa, er
vilja setjast að í Bandaríkjun-
um, sagði, að Pankov-hjónin
hefðu haft samband við stofn-
unina, en vissi ekki hvenær þau
færu vestur.
Hjónin misstu bæði vinnuna
er þau sóttu um leyfi til að
flytjast til Bandaríkjanna, en
þau störfuðu hjá Sovésku
kvikmyndastofnuninni.
Haustið 1983 hlaut Nikolai
Pankov 15 daga varðhaldi, eftir
að hann hafði skrifað Pravda,
málgagni kommúnistaflokks-
ins, og mælst til þess, að blaðið
drægi til baka fullyrðingu sína
um að mannréttindabrot væru
óþekkt fyrirbæri í Sovétríkjun-
um.
Heimildir meðal andófs-
manna í Moskvu hermdu fyrir
ári, að Pankov-hjónunum hefði
verið haldið á geðveikrahæli
fyrir utan Moskvu í 80 daga
fyrir að hafa skrifað sov-
étleiðtoganum Konstanin U.
Chernenko bréf, þar sem þau
kröfðust þess að fá að flytjast
úr landi.
í þessum mánuði hlutu þau
opinbert leyfi til að fara frá
Sovétríkjunum. Þau fengu út-
flytjendaleyfi til ísraels, enda
þótt þau færu allan tímann
fram á að fá að flytjast til
Bandaríkjanna.
Viðræður Kína og
Sovétríkjanna
Hefjast í Moskvu 9. apríl
l'eking, 27. marz. AP.
VIÐRÆÐUR milli Kína og Sovétríkjanna um samskipti ríkjanna eiga að
hefjast 9. apríl nk. í Moskvu. Skýrði Ma Yuzhen, talsmaður kínverska
utanríkisráðuneytisins, frá þessu í dag. Viðræður þessar vekja meiri
athygli nú en ella vegna leiðtogaskiptanna í Sovétríkjunum fyrir skömmu
og er jafvel búizt við verulegum breytingum á afstöðu Kínverja til
Sovétmanna af þessum sökum.
Áskriftarsíminn er 83033
Þegar Mikhail Gorbachev tók
við embætti sem leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins í síðasta
mánuði, sendi Hu Yaobang, að-
alritari kínverska kommúnista-
flokksins, honum heillaóska-
kveðju. Var það í fyrsta sinn í
aldarfjórðung, sem slíkar kveðj-
ur hafa farið á milli æðstu
manna í Kína og Sovétríkjunum.
Forystumenn Kínverja hafa
skírskotað til Gorbachevs sem
„félaga", en það heiti notuðu þeir
aldrei gagnvart Konstantin
Chernenko, Yuri Andropov né
Leonid Brezhnev.
Gert er ráð fyrir, að verzlun-
arviðskipti milli Kína og Sovét-
ríkjanna eigi eftir að vaxa um
36% á þessu ári og muni nema
1,6 milljörðum dollara. Síðar á
CCCAI
í KVÖLD
Heiödís
Steinsdóttir
John
Casablancas
Kristina
Haraldsdóttir
Húsiö opnað kl. 19.30.
Matargestum boðið upp á fordrykk.
Allir matargestir fá ilmvatn.
Borðhald hefst kl. 20.30.
MATSEÐILL
Frönsk ostasúpa.
Sinnepssteiktur grísahryggur
(Robert).
Sykurleginn berjadúett með
rjóma.
Nýjustu vorlitirnir í snyrtingu veröa kynntir.
Ragnhildur Gísladóttir og Jakob Magnússon
skemmta.
Gullveig Sæmundsdóttir, ritstjóri Nýs Lífs,
kynnir blaöiö og Elite-keppnina.
Heiödís Steinsdóttir og Kristina Haraldsdóttir
vinningshafar í Elite- keppninni 1985 segja
nokkur orö um keppnina.
15 þátttakendur í keppninni sem komast í úrslit
sýna glæsilegan tískufatnaö.
Dansstúdíó Sóleyjar sýnir tvo dansa eftir Corn-
elius Carter.
John Casablancas, eigandi Elite-fyrirtækisins,
krýnir sigurvegarana.
Kynnir kvöldsins Heiöar Jónsson. Dansaö til kl. 1
Miöa- og boröapantanir daglega í síma 77500 kl. 11—17.
þessu ári verður ennfremur und-
irritaður verzlunarsamningur
milli ríkjanna til fimm ára.
Samkvæmt honum eiga Sovét-
menn að byggja verksmiðjur
fyrir Kínverja og láta þeim í té
aðstoð við að reisa raforkuver.
Enginn
leynistuðn-
ingur við
skæruliða
Washington, 27. mare. AP.
TALSMENN ríkisstjórnar Ron-
alds Reagan fullyrtu á Banda-
ríkjaþingi í gær, að hún hefði
engin áform uppi um að nota
með leynd fé, sem þingið sam-
þykkir að nota til þróunarhjálpar
eða einhvers annars, til styrktar
skæruliðum, sem berjast gegn
stjórnvöldum í Nicaragua.
„Ég fullvissa ykkur um að
slíkt verður ekki gert,“ sagði
Langhorne A. Motley, aðstoð-
arráðherra, sem fer með mál-
efni Ameríkuríkja, á fundi í
utanríkismálanefnd öldunga-
deildarinnar í gær.
í sama streng tók William
Schneider, skrifstofustjóri í
utanríkisráðuneytinu, á fundi í
undirnefnd fjárveitinganefnd-
ar fulltrúadeildarinnar.
El Salvador.
Áframhaldandi
skemmdarstarf-
semi skæruliða
San Salvador, E1 Salvador, 27. mare. AP.
Skæruliðar halda áfram skemmd-
arstarfsemi sinni í því skyni að tor-
velda framkvæmd kosninganna,
sem fara eiga fram á sunnudag.
Hafa þeir kveikt í opinberum bygg-
ingum í fjórum borgum, þar á meðal
í fjarskiptamiðstöðvum í þremur
þeirra.
Ekki hafa borist fréttir um
mannfall eða meiðsl í aðgerðum
þessum.
Alls hafa skæruliðar kveikt í 17
opinberum byggingum, þar af 11
fjarskiptamiðstöðvum, á undan-
förnum fimm vikum.
Meðal annars hefur verið ráðist
á byggingar, þar sem vitað er, að
kjörgögn eru geymd.
Á sunnudag verður bæði kosið
til þjóðþings og sveitarstjórna.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AO VANDAÐRI
____UTPRENTUN
MYNDAMÓT HF.