Morgunblaðið - 28.03.1985, Page 35
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
35
Orðsending
frá Framsóknarfélagi Reykjavíkur
Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur hefur mót-
mælt vaxtastefnu Seölabankans og ríkisstjórnar-
innar. Stjórn féiagsins vill ekki láta þar viö sitja,
heldur vill hún fylgja eftir kröfu sinni um breytta
vaxtastefnu.
Utanríkisráðherra íraks í Washington
Tariq Mikhayl Aziz, utanríkisráðherra Iraks, hefur verið á ferðalagi um
Bandaríkin og átti þar meðal annars fund með George Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna. Var mynd þessi tekin er utanríkisráðherr-
arnir tveir hittust í Washington. Margir hafa orðið til þess að setja
þennan fund í samband við friðarumleitanir mili íraks og írans, en
hávær orðrómur er nú uppi um að mörg ríki beiti sér af alefli fyrir því
að koma á friði milli landanna tveggja, sem hafa átt í ófriði í fjögur ár.
Til aö fá gleggri yfirsýn um erfiöleika, sem einstakl-
ingar hafa lent f vegna lánamála, og til aö móta
nýjar tillögur í vaxtamálum, vill stjórn félagsins ná
sambandi viö sömu einstaklinga, og býöur þeim aö
hafa samband viö starfsmann félagsins og stjórn-
armeölimi á skrifstofu félagsins á Rauöarárstfg 18
næstu virka daga milli kl. 13.30—18.00. Síminn á
skrifstofunni er 24480.
Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur
Bretar afstýrðu
sprengjutilræði
Amman, 26. marz. AP.
NÆSTT æðsti yfirmaður Al Fatah, fjölmennasta hópsins í Freisissamtökum
Palestínu (PLO), Khalil Wazir, sagði í dag að brezk yfirvöld hefðu komið í
veg fyrir tilraun á vegum Sýrlendinga til þess að sprengja skrifstofu PLO í
Lundúnum i loft upp.
Hann sagði að átta menn, sem
voru með vegabréf sýrlenzkra
stjórnarerindreka, hefðu komið til
Bretlands og komið fyrir 150 kíl-
óum af sprengiefni í skrifstofunni.
PLO tilkynnti Scotland Yard
hvaða menn hér væri um að ræða,
sprengiefnið fannst og fjórir menn
voru teknir höndum.
Wazir segir að þeim hafi verið
leyft að fara, þar sem þeir voru
með vegabréf stjórnarerindreka,
og að hinir mennirnir fjórir hafi
flýtt sér af landi brott.
Yfirlýsing Wazirs virðist koma
heim og saman við frétt brezka
vikublaðsins Observer, sem skýrði
frá því að brezk yfirvöld hefðu
rekið úr landi átta menn úr
morðsveit, sem hefði verið send
frá Sýrlandi til þess að myrða tvo
starfsmenn PLO í janúar.
Blaðið sagði að mennirnir, sem
hefði átt að ráða af dögum, hefðu
verið PLO-fulltrúinn Faisal
Oweida og gjaldkeri PLO, Jawad
Khoussein, sem hefur bækistöð í
Túnisborg, en var í heimsókn í
Lundúnum um þetta leyti.
Blaðið sagði að hinir handteknu
hefðu verið félagar í Alþýðuhreyf-
ingunni til frelsunar Palestínu,
hópi innan PLO er Sýrlendingar
styðja og er eindregið á móti Yass-
er Arafat og þeim hópum, sem
fylgja honum að málum.
Líbýskur her enn
til staðar í Chad
— segir varnarmálaráðherra Frakka
Parúi, 27. nare. AP.
('HAKLEK Hemu varnarmálaráðherra viðurkenndi í dag, að líbýskur her
væri enn til staðar í Chad þrátt fyrir samkomulag Frakka og Líbýumanna frá
því í haust. Hann kvað hermenn Líbýu í landinu „færri en 4.550 en fleiri en
þeir ættu að vera“.
Samkvæmt samkomulagi
Frakka og Líbýumanna bar báð-
um aðilum að draga allan her sinn
frá Chad. Frakkar luku brott-
flutningi 3.500 hermanna sinna
um miðjan nóvember.
Heyrst hefur, að Líbýumenn
hafi ekki staðið við sinn hluta
samkomulagsins, og á sunnudag
sagði forseti Chad, að um 7.000
líbýskir hermenn væru enn í norð-
urhluta landsins og hefðu á að
skipa flugvélum, skriðdrekum og
fullkomnum loftvarnabúnaði.
Kvað hann Líbýumenn vera að
ljúka gerð 4 km langrar flugbraut-
ar og þar gætu flugvélar af öllum
tegundum athafnað sig.
iRGA*
fC
. heidui gen9,u bUpcixt/a't. atlí'
i háöut séI^EC MICPO er uPP » J^ltt. og pa,^vert*óKhald
;enda. °E *
Empire Brass
Quintet
Tónleikar í Austurbæjarbíói þriðjudaginn 2. apríl kl. 21.00.
Aukamiðar seldir í ístóni, Freyjugötu 1, Bókabúð Lárusar Blön-
da* og Bókabúð Sigfúsar Eymundssonar. Miðaverð kr. 300.
Tónlistarfélagið