Morgunblaðið - 28.03.1985, Síða 37

Morgunblaðið - 28.03.1985, Síða 37
launa ;mið? aðamót maí/júní 1983, þá freistast þeir gjarnan til þess að taka „for- skot á sæluna" og hækka vöruna jafnvel áður en kaupgjaldið hefir hækkað. Einhverjir kunnu að segja, að með verðlagsákvæðum ætti að vera hægt að koma í veg fyrir slíkt. En þegar hraði verð- bólgunnar er orðinn slíkur, sem var á umræddu tímabili, hljóta verð- lagsákvæði að verða óvirk að mestu. En rekjum nú söguna ofur- lítið lengra. Án þeirra efnahags- ráðstafana, sem gerðar voru í júní- byrjun 1983, hefðu laun hækkað um 23—24% þann 1. júní. En hve lengi hefðu launþegar notið þess? Auðvitað hefði sagan frá því í mars endurtekið sig, þannig að eftir að launþegar hefðu notið fáeinna hveitibrauðsdaga fyrstu dagana í júní hefðu komið gengisfelling og almennar verðhækkanir, þannig að í lok vísitölutímabilsins hefði bilið milli hækkunar verðlags og kaup- gjalds verið jafnvel enn breiðari en áður. Miðað við þessar forsendur er því augljóst, að það verður nánast öfugmæli að halda því fram, að vísitölufyrirkomulag verðtryggi laun. En forsendurnar eru þær, eins og fram kemur í ofangreindum dæmum, að öllum kauphækkunum — og hér eru auðvitað hafðar í huga kauphækkanir sem eru hlut- fallslega þær sömu öllum launþeg- um til handa — sé tafarlaust velt yfir í verðlagið. Þá fer auðvitað ekki hjá því að um óviðráðanlega verðbólgu á skömmum tíma verður að ræða. Sú skoðun skýtur stund- um upp kollinum, þegar verðbólgan fer vaxandi, að launþegar geti var- ið kaupmátt launa sinna með því að krefjast þess, að kaupgjaldsvísitala breytist þá örar, þannig að bætur hækki t.d. á tveggja mánaða eða mánaðarfresti í stað þriggja mán- aða. Hér er þó um hættulegan mis- skilning að ræða. Að óbreyttri þeirri forsendu, að stjórnvöld telji, svo sem var á því tímabili sem hér var tekið sem dæmi, að atvinnuör- yggið krefjist þess að öllum kaup- hækkunum sé velt yfir í verðlagið jafnóðum og þær eigi sér stað, þá leiðir stytting vísitölutímabilsins aðeins til örari verðbólgu en áður og jafnvel enn meiri rýrnunar kaupmáttar. Búvöruverðshækkun, gengislækkun og verðhækkun vöru og þjónustu verður t.d. á tveggja mánaða fresti í stað þriggja mán- aða frests ef farið verður að breyta kaupgjaldsvísitölu með tveggja mánaða millibili. Þó ekki sé nema af tæknilegum ástæðum er von- laust fyrir launþega að vinna kapphlaup óðaverðbólgunnar. Selj- endur vöru og þjónustu geta hækk- að verð hennar um leið og kostnað- arhækkun á sér stað, eða jafnvel áður en hún hefir átt sér stað, sbr. dæmið hér að framan, en það tekur ávallt sinn tíma að safna upplýs- ingum fyrir útreikninga nýrrar kaupgjaldsvísitölu, útvega lán til þess að greiða hið hærra kaup o.s.frv. Getur vísitölufyrirkomu- lag verið liður í kaupmátt- artryggingu? Hér hefir verið gerð grein fyrir því, að þegar hraði verðbólgunnar kemst á ákveðið stig, þá verða vísi- tölubætur á laun ekki nein trygg- ing fyrir því, að kaupmáttur launa haldist heldur getur slíkt fyrir- komulag haft algerlega neikvæð áhrif í því efni. Þetta fyrirkomulag verður þá snar þáttur í mögnun verðbólgunnar, þó að hún eigi sér auðvitað fleiri orsakir. Versta af- leiðing stöðugra víxlhækkana verð- lags og kaupgjalds er sú, að þær kippa fótum undan allri verðsam- keppni og þeim kjarabótum, sem hún getur veitt neytendum. Að vísu MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985 Ólafur Björnsson „Það er heldur ekki verðhjöðnunin, sem valdið hefír þeirri kjara- skerðingu, sem orðið hefír síðan 1982, hvern- ig sem hún er metin, heldur gengislækkanir þær, sem gerðar hafa verið til þess að reyna að draga úr viðskipta- hallanum við útlönd og samdrátturinn í þjóðar- framleiðslu.“ mætti segja, að vísitölufyrirkomu- lagið leiði til einskonar verðtrygg- ingar, en það er ekki verðtrygging launa, svo sem til var ætlast, held- ur trygging atvinnurekenda fyrir því, að þeir þurfi aldrei að lækka verð þeirrar vöru og þjónustu sem þeir selja vegna stöðugt vaxandi eftirspurnar í peningum reiknað. En þó að vísitölubætur á laun tryggi ekki kaupmátt launa og hafi jafnvel gagnstæð áhrif miðað við það verðbólgustig og þann verð- bólguhugsunarhátt, sem ríkt hefir hér á landi síðustu árin, er ekki þar með sagt að vísitölufyrirkomulag í iaunagreiðslum þurfi alltaf að vera verðbólguvaldur og ósamrýmanlegt stöðugu verðlagi. Það ætti að vera gott dæmi um það, að vísitölufyr- irkomulag er ekki ósamrýmanlegt stöðugu verðlagi að árin 1951—55, sem er lengsta tímabil frá styrjald- arlokum, sem tekist hefir að halda verðlagi stöðugu, þá var vísitölu- fyrirkomulag á launagreiðslum svipað því sem var fyrir efnahags- ráðstafanirnar sumarið 1983. Ég minnist í þessu sambandi samtals, sem ég fyrir u.þ.b. 35 árum átti við mikilsvirtan verkalýðsleiðtoga, sem nú er látinn, um það hverja áherslu launþegasamtökin skyldu leggja á vísitölubætur, en þá var ég formaður BSRB og eins og eðlilegt mátti telja, höfðu hin stóru laun- þegasamtök samráð sín í milli um vísitölumálin, sem telja mátti sam- eiginlegt hagsmunamál allra laun- þega. „Okkur í ASÍ er það vel ljóst," sagði þessi verkalýðsleiðtogi, sem sæti átti i stjórn ASl, „að vísitölu- bætur á laun eru ekkert töfralyf, sem tryggi kaupmátt þeirra á hverju sem gengur. En að mínum dómi, ættu þær alltaf að geta gegnt því hlutverki að veita stjómvöldum aðhald um það, að gjöra sitt til þess að halda verðhækkunum í skefj- um.“ Þetta eru sennilega veigamestu rökin, sem færð verða fyrir því, að visitölubætur geti átt þátt í því að halda verðbólgu í skefjum og tryggja kaupmátt launa. Hvort fyrir slíku eru skilyrði fer þó eftir verðbólgustiginu. Það er mjög ólíklegt að vísitölufyrirkomulagið veiti slíkt aðhald miðað við það verðbólgustig sem verið hefir hér á landi sl. 10 ár. Öðru máli gæti gegnt ef um hæga verðbólgu er að ræða eins og var hér á árunum 1950—72. Eins og reynslan sýndi fyrstu ár þessa tímabils gat vísi- tölufyrirkomulag og stöðugt verð- lag farið saman. Vissulega er það þó ekki vísitölufyrirkomulagið, sem leiðir til stöðugleika verðlagsins, heldur t.d. það, að hægt er að halda stöðugu gengi, eins og var á 6. ára- tugnum. Óbeint getur vísitölufyr- irkomulagið þó stuðlaö að auknu jafnvægi ef það skapar skilyrði fyrir því að samningar séu gerðir til lengri tíma. Hvað snertir það atriði að veita stjórnvöldum aðhald um það að gera sitt til þess að halda verðlagi í skefjum en á slíkt er skiljanlega lögð rík áhersla af hálfu launþega- samtaka — þá tel ég líklegt að því markmiði verði örugglegar náð með því að ákveða svonefnt loft í kjarasamningum, en með sjálfvirk- um ákvæðum um vísitölubætur. Með „lofti" er átt við það, að samn- ingar verði lausir, ef hækkun fram- færslukostnaðar fer fram úr vissu marki. Víða í nágrannalöndum okkar leggja launþegasamtök, eftir því sem ég best veit, öllu meiri áherslu á slíkt en sjálfvirkar vísi- tölubætur. Slíkt „loft“ ætti að skapa minni hættu á því en sjálf- virknin, að væntingar atvinnurek- enda um stöðugt aukna eftirspurn í peningum reiknað, eyðileggi alla hvöt hjá þeim til þess að heyja verðsamkeppni. „Loftið“ verður þó að verka raunhæft, þannig að það sé raunverulega á valdi stjórnvalda aö halda verðhækkunum innan þeirra marka, sem þannig er kveðið á um, án þess að meiriháttar vand- ræði, svo sem aukið atvinnuleysi, hljótist af. Hvernig má tryggja kaup- máttinn og þá hve mikinn? Hér verður að lokum reynt að komast að niðurstöðu um það á grundvelli þess, sem sagt hefir ver- ið hér að framan, hvernig svara beri þeirri spurningu, sem er fyrir- sögn þessarar greinar. Ég tel að spurningunni beri að svara játandi, svo fremi þjóðarbúskapurinn verði ekki í næstu framtíð fyrir óvænt- um áföllum og sé því það viðhorf launþegasamtakanna að áherslu beri að leggja á tryggingu kaup- máttar launa eðlilegt. En ef von á að vera til þess, að ná raunhæfum árangri í þessu efni, þá ber að vara mjög við trúnni á það, að hægt sé að verðtryggja laun með því einu að semja um vísitölubætur á nokk- urra mánaða fresti, en skilja svo alla enda eftir lausa. Miðað við þann verðbólguhugs- unarhátt, sem enn er ríkjandi hér á landi, eru yfirgnæfandi líkur á því, að slíkt myndi síður en svo tryggja kaupmátt launa, heldur leiða til hins gagnstæða, nefnilega sírýrn- andi kaupmáttar launa. Sem dæmi um það í hvert óeðli stefnir, þegar hugsunarháttur verðbólgunnar verður ríkjandi, mætti nefna það, að þá getur það orðið atvinnurek- endum í hag að semja fremur um miklar kauphækkanir en litlar. Þegar atvinnurekendur semja um 20% kauphækkun eða meira, svo sem t.d. átti sér stað á sl. hausti, þá geta þeir venjulega treyst því, að stjórnvöld geri sér það Ijóst, að slíka byrði geti atvinnuvegirnir ekki axlað öðruvísi en að þeir fái að velta kauphækkunum yfir í verð- lagið ef ekki á‘ að verða stórfellt atvinnuleysi. Gengi er þá lækkað og leyfð hækkun á verði vöru og þjónustu að því leyti, sem til slíks þarf samþykki stjórnvalda og ekki linnt fyrr en allri þeirri kaupmátt- araukningu, sem launþegarnir fengu í bili, þegar kaupið var hækkað, hefir verið eytt og jafnvel meiru til. Ef kauphækkanirnar væru hinsvegar t.d. á bilinu 2—5% þá mega atvinnurekendur búast við því, að þeim sé ætlað að bera þær kauphækkanir sjálfir, sbr. dæmið um Singapore hér að framan. En telja má víst, að þeir geri sér grein fyrir því, að hagkvæmara er fyrir þá að semja um 20% kauphækkun og sækja hana nokkurn veginn taf- arlaust í vasa launþeganna sjálfa, heldur en aö semja um 30% sem þeir verða að greiða af ágóða sín- um. Rétt er að taka hér fram, að ég er ekki að fullyrða það, að atvinnu- rekendur hér á landi láti í raun ofangreind sjónarmið ráða afstöðu sinni við gerð kjarasamninga. Þó að það geti, samkvæmt áður sögðu, á tímum mikillar verðbólgu verið atvinnurekendum hagstæðara að semja um miklar en litlar kaup- hækkanir, þá er slíkt auðvitað skammtímasjónarmið. Sé yfir lengri tíma litið þá er verðbólga atvinnurekendum eins og öllum öðrum borgurum þjóðfélagsins óhagstæð. Er ég ekki í vafa um það, að forysta vinnuveitenda hefir þá þekkingu og ábyrgðartilfinningu til að bera, að hún tekur fórnir í þágu þess markmiðs að vinna megi bug á verðbólgunni betri kost en þann stundarhagnað sem verðbólgan getur fært. Nú er ég ekki efins um það, að launþegum er það jafnljóst og at- vinnurekendum að sívaxandi verð- bólga er engum í hag og síst þeim sjálfum, þannig að það geti verið stundarfórna vert, að koma í veg fyrir slíka þróun. Hins vegar mun sú skoðun eiga talsverðu fylgi að fagna meðal launþega, að það muni kosta of miklar fórnir að eyða verð- bólgunni alveg eða koma henni niður í þau 5—10% sem hún hefir undanfarið numið í helstu við- skiptalöndum okkar. Skynsamlegra markmið væri að reyna að halda henni í þeim 40—50% sem hún var áður en sú stökkbreyting varð til hækkunar seinni hluta árs 1982 og fyrri hluta árs 1983. Ég tel slíka hugmynd óraun- hæfa, því að reynslan hefir sýnt það bæði hér á landi og annars staðar, að við svo hátt verðbólgu- stig er ekki hægt að skapa jafn- vægi, heldur verður tilhneiging til sívaxandi verðbólgu. Það er heldur ekki verðhjöðnunin, sem valdið hefir þeirri kjaraskerðingu, sem orðið hefir síðan 1982, hvernig sem hún er metin, heldur gengislækk- anir þær, sem gerðar hafa verið til þess að reyna að draga úr við- skiptahallanum við útlönd og sam- drátturinn í þjóðarframleiðslu.. En hvað er þá hægt að gera til þess að tryggja kaupmátt launanna og þá hvaða kaupmátt? Eðlilegt svar við síðari spurningunni finnst mér vera það, að stefna beri að þeim mesta kaupmætti, sem í senn samrýmist því, að ekki verði um frekari skuldasöfnun erlendis að ræða og ekki verði hætta á umtals- verðu atvinnuleysi. Hver sá kaup- máttur sé, verða aðilar vinnumark- aðarins að meta, er þeir gera sína samninga. Þar sem ekki er ástæða til þess að efa að báðir aðilar séu sammála um það að óraunhæft sé að byggja á meiri skuldasöfnun er- lendis og einnig um það að atvinnu- leysi sé óæskilegt ætti að vera grundvöllur fyrir samkomulagi þó að óvissa um framtíðina valdi því að ekki verði hjá því komist, að taka einhverja áhættu við slíka samninga. Kauphækkanir, sem báðum aðilum vinnumarkaðarins er Ijóst, að ekki verða fjármagnaðir öðruvísi en með því að sækja þær í vasa launþeganna sjálfra, geta hinsvegar ekki þjónað neinum skynsamlegum tilgangi. En víkjum þá að hinu, hvernig ! ryggja megi þann kaupmátt, sem með t.illiti til atvinnuöryggis er raunhæft að stefna að. Hér að framan voru rök færð fyrir því að vísitöluákvæði í kaupgjaldssamn- ingum ein sér tryggja slíkt ekki og geta jafnvel haft öfug áhrif við til- gang sinn. En hvaða haldbetri ráðstafanir koma þá til greina? Auk raunhæfrar stefnumörkun- ar í kaupgjaldsmálum með sam- komulagi aðila vinnumarkaðarins, þarf samræmdar aðgerðir í fjár- málum ríkisins og peningamálum. Nauðsynlegur liður í ráðstöfunum til þess að tryggja viðunandi kaup- mátt launa er festa i gengisskrán- ingunni, þannig að forðast megi meiriháttar gengissveiflur. Mér finnst það geta komið mjög til álita miðað við núverandi að- stæður í islensku efnahagslífi, að lögboðin yrði nokkurra mánaða verðstöðvun. Ekki vegna þess, að ég hafi sérstaka trú á verðlagsákvæð- um sem tæki til þess að halda verð- ____________________________37_ hækkunum í skefjum. En almenn verðstöðvun getur stundum verið nauðsynleg ráðstöfun til þess að fá svigrúm til þess að gera varanlegri ráðstafanir til að stöðva verðbólgu og eyða verðbólguhugsunarhættin- um. Auðvitað verður svo sem venja hefir verið, þegar gripið hefir verið til tímabundinna verðstöðvana, að heimila vissar undanþágur, svo sem vegna hækkunar innkaups- verðs erlendrar vöru. En með tilliti til þess, að verðbólga er nú lítil í helstu viðskiptalöndum okkar, ætti það þó ekki að stofna árangri verðstöðvunar í hættu. Vissulega getur verðstöðvun aldrei verið annað en bráðabirgða- ráðstöfun. Ef henni er ætlað að standa lengi verður hún fljótlega aðeins dauður bókstafur. Henni má að vissu leyti líkja við þær ráðstaf- anir sem gerðar voru sumarið 1983 þegar vísitölubætur voru skertar og kauphækkanir bannaðar um tíma, en hér er farið öfugt að, þar " sem verðhækkanir eru bannaðar án þess að beinar hömlur séu lagð- ar á þróun kaupgjalds, en það ætti að vera ólíkt hugðnæmari leið frá sjónarmiði launþega. Aðstæður voru vissulega að því leyti ólikar því sem nú er, að þá var verðbólga ört vaxandi, þannig að verðstöðv- un, ef reynt hefði verið að fara þá leið, hefði óhjákvæmilega leitt til mikils atvinnuleysis, en nú er þvi öfugt farið, þar sem verðbólga fer lækkandi. Verðstöðvun, jafnvel þó til skamms tima sé, er auðvitað ekki skemmtileg ráðstöfun frá sjónar- hóli þeirra, sem trú hafa á frjálsri verðmyndun. En spurningin er sú, hvort aðrar leiðir séu líklegri til þess að forða því við núverandi að- stæður, að átök á vinnumarkaði og niðurstaða samningagerðar að þeim loknum geri frjálsa verð- myndun óvirka um ófyrirsjáanleg- an tíma. Deilur um launahlutföll eru utan þess efnis, sem hér er um fjallað Til þess að fyrirbyggja allan hugsanlegan misskilning vegna mála, sem nú eru ofarlega á baugi i þjóðfélaginu, skal það tekið fram, að hér er aðeins fjallað um hugs- anleg áhrif almennra hlutfalls- legra kauphækkana öllum launþeg- um til handa á verðlag og atvinnu- stig. Háskólamenntaðir kennarar og aðrir háskólamenn eiga nú í harðri deilu við ríkisvaldið vegna krafna þeirra um það, að laun þeirra verði samræmd því, sem að þeirra dómi er greitt fyrir sam- bærileg störf á almennum vinnu- markaði. Sem háskólamaður og kennari í 44 ár hlýt ég að hafa sam- úð með kjarabaráttu þessara aðila, þó að ég hafi ekki forsendur til þess að meta réttmæti krafna þeirra til talna. Hér er varla um að ræða meira en 2—3% af vinnandi fólki, þannig að veruleg leiðrétting á kaupi þeirra ætti út af fyrir sig hvorki að geta valdið verðbólgu né atvinnuleysi. Hitt er annað mál, að ef aðrir stærri hópar viðurkenna ekki að hinn fámennari hópur hefir dregist aftur úr í launum og vilja fá sín kjör bætt til samræmis við það, sem þeir er fyrst fóru af stað hafa fengið, þá verður málið allt stærra i sniðum. Tel ég mig þekkja þetta vel þar sem ég hefi áður haft forystu fyrir baráttu svipaðri þeirri sem hér er háð. Það var æði oft að röksemda- færslu okkar fyrir því að opinberir starfsmenn hefðu dregist aftur úr almenna vinnumarkaðinum hvað launakjör snerti, að viðsemjendur okkar sögðu sem svo, að sér væri Ijóst, að við hefðum nokkuð til okkar máls, en ef komið væri veru- lega til móts við okkur, þá yrði allt vitlaust á vinnumarkaðinum, eins og það gjarnan var orðað. Þetta sýnir, að til þess að kjara- barátta kennara, háskólamanna og hliðstæðra starfshópa verði háð með árangri er þeim ekki nóg að túlka mál sitt fyrir stjórnvöldum og kjaradómum, heldur líka al- menningi og hagsmunasamtökum hans. Mér er þó ljóst að fjárhagur hinna smærri hagsmunasamtaka setur nauðsynlegri upplýsinga- starfsemi á vegum þeirra sín tak- mörk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.