Morgunblaðið - 28.03.1985, Síða 47

Morgunblaðið - 28.03.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1986 okkar, sem lifa í minningunni. Fjóía Eyfjörð Gunnarsdóttir var fædd 27. desember 1972, dóttir hjónanna Þuríðar Guðmundsdótt- ur og Gunnars Ástvaldssonar. Nú eru árin orðin tæp 5, sem baráttan hefur staðið, og allan þann tíma hafa þau hjónin ásamt öðrum ná- komnum ættingjum annast hana af þvílíkum kærleik og alúð að að- dáun vekur hjá þeim, sem með hafa fylgst, og ekki gleymist þrek og kjarkur litlu stúlkunnar sem alltaf hafði meiri áhyggjur af for- eldrum sínum og systkinum en sjálfri sér. Fjóla hvarf á braut í einlægri trú á almáttugan Guð, og þar á hún vísa góða heimkomu. Við hjónin og börnin okkar vott- um Þuríði og Gunnari og litlu systkinunum okkar einlægu sam- úð og biðjum þeim allrar blessun- ar. Lilja, Sigþór og börnin „Til eru fræ, sem fengu þennan dóm að falla í jörð og verða aldrei blóm.“ (D.St.) Já, Fjóla var sem lítið blóm er barðist við að festa rætur en varð að gefast upp. Mig langar til að minnast litlu vinkonu minnar með nokkrum orðum. Það væri of langt mál að telja upp alla þá kosti sem Fjóla hafði til að bera. Hún var einfaldlega sérstök stúlka, og ég var svo lán- söm að fá að fylgja henni síðasta spölinn í hennar stutta lífi. í sam- verustundum okkar lásum við oft upp úr bókinni „Sálminum um blómið" eftir Þórberg Þórðarson, og líkt og „Lilla Hegga" hafði Fjóla mest gaman af sögu „gamla mannsins" — „þegar amma hans dó og afi hans var fullur og sálm- urinn var sunginn um blómið". Sagan segir okkur svo margt og mér fannst Fjóla skilja hana mjög vel. Barátta hennar fyrir lífinu og seinna sáttfýsin og æðruleysið, þegar hún vissi að hverju stefndi, kenndu mér ótrúlega margt. Reyndar kallaði ég hana stundum „litla kennarann minn". Nú er litla blómið fallið en eftir lifir minningin um hina ljúfu ang- an er af því stafaði. Ég votta foreldrum Fjólu, systk- inum og öðrum ættingjum samúð mína. Það hefur verið mér mikils virði að kynnast ykkur. Magga „Þá er hann Guð búinn að taka hana Fjólu til sín.“ Leikur barn- anna hljóðnar um stund. Enda þótt nokkuð sé síðan hún varð að hverfa úr leiknum sökum veikinda sinna var hún samt alltaf nálæg. Hugurinn hvarflar til baka til þess tíma er við fluttum í þetta nýbyggða hús, þar sem hún tók á móti okkur sem næsti nágranni. Þessi litli fjörkálfur sem geislaði af atorku og fjöri, svo að stundum þótti nóg um. En fljótt skipast veður í lofti á þessari jörð. Tæp- lega átta ára gömul stóð hún frammi fyrir þeirri óvæntu stað- reynd að ganga ekki heil til skóg- ar. Við tók barátta sem stóð í fjög- ur og hálft ár. Erfiðar skurðað- gerðir, geislameðferð erlendis og ótal sjúkdómslegur. Allir lögðust á eitt, en sjúkdómurinn sigraði að lokum. Þegar ljóst var hvert stefndi tók Fjóla örlögum sínum af undraverðu æðruleysi og þroska. Þannig veitti hún sjálf styrk út í umhverfi sitt. „Nú leikur hún sér með engla- börnum á himnum," segja börnin, og leikur þeirra heldur áfram eins og börnum er tamt. í dag kveðjum við Fjólu litlu með þökk fyrir sam- fylgdina hér á jörðinni og biðjum algóðan Guð fyrir hana og alla fjölskyldu hennar. Megi sá styrk- ur sem hún sjálf sýndi okkur milda þunga raun. Nágrannar á Flyðrugranda Með tár í augum og sorg í hjarta skrifa ég þessi kveðjuorð. Fjóla litla hefur kvatt þetta líf eftir margra ára baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Hún varð bara 12 ára gömul, samt hafði hún orðið að takast á við og reyna meira í löngu sjúk- dómsstríð, en á marga er lagt, áð- ur en yfir lauk. Vil ég minnast og þakka öllum þeim er léttu henni erfiðar stund- ir, læknum, hjúkrunarfólki og öðr- um er glöddu hana. Söknuður okkar er mikill og mest eiga um sárt að binda foreldrar Fjólu litlu, þau Þuríður Guðmundsdóttir og Gunnar Ástvaldsson og systkinin þrjú, þau Turid Rós, Gunnar örn og Kári litli. Drottinn gaf og drottinn tók, við þökkum fyrir all- ar hugljúfu minningarnar sem elsku litla stúlkan okkar skilur eftir hjá okkur, þær eru okkur dýrmætar. Ég bið góðan Guð að taka hana í náðarfaðm sinn og veita henni sinn eilífa frið. Blessuð sé minning hennar. Turid amma SVAR MITT eftir Billy Graham Neyðaróp Ég er kona og hef nýlega gerst sek um hórdóm. Ég veit, að ég hef syndgað gegn Guði, sjálfri mér og öðrum. Ég hef beðið Guð að fyrirgefa mér óteljandi sinnum, en hef ekki fengið fyrirgefningu. Hvað get ég gert, svn að ég missi ekki vitið? Augljóst er, að þér hafið ruglað saman hórdómi og syndinni, sem ekki verður fyrirgefin. Biblían kennir skýrt og greinilega, að Guð sé bæði megnugur og fús að fyrirgefa yður þessa synd. Davíð drýgði hór. Hann iðr- aðist sáran og varð friðlaus, en Guð fyrirgaf honum. Jesús sagði við hórkonuna, sem farísearnir ætluðu að grýta: „Eg sakfelli þig ekki heldur. Far og syndga ekki framar." María Magdalena, samverska konan og fleiri öðluðust fyrirgefningu á þessari hræðilegu synd. Þér hafi iðrast mjög gerða yðar, en það þarf meira en iðrun til að finna fyrirgefningu. Iðrun er merki þess, að við játum og viðurkennum, að við erum sek. En við þurfum líka að viðurkenna og taka við fyrir- heitinu um fyrirgefningu, sem frelsarinn býður. Kristur greiddi skuldina vegna syndar yðar á krossinum. Biblí- an segir: „Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefnd- um hver sína leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum." Fagnaðarerindið er einmitt þetta, að Kristur hefur fyrirgefið yður. Viðurkennið nú, að svo sé, þakkið Guði fyrir það og þjónið honum með þakklátum huga. Guð hefur fyrirgefið yður. Nú verðið þér að fyrirgefa sjálfri yður, en það er að treysta fyrirgefningu Krists. Camp-let GT ÁRGERÐ 1985 Frægur tjaldvagn Þaö tekur þrjár mínútur aö reisa þennan 17 fer- metra tjaldvagn meö fortjaldi. Viö höfum nú flutt þessa tjaldvagna inn í 3 ár og okkur vit- anlega hefur engin bilun oröiö í þessum vögnum á þeim tíma. Verð kr. 118.000 — með fortjaldi og eldhúsi. Gísli Jónsson & Co. hf., Sundaborg 41. Sími 686644. MAZDA T 3500 er ný gerð af sterkbyggð- um vörubíl, sem ber 3.6 tonn á grind. Vélin er 3500 cc, 86 DIN hö og gírar eru 5 ásamt niðurfærslugír. Húsið er stórt og bjart (veltihús), þægileg sæti eru fyrir 2 farþega auk ökumanns og fjöðrunin er mýkri og þýðari en gerist í bílum af þessari gerð. Ríkulegur búnaður fylgir MAZDA T 3500, svo sem: Vökvastýri • Veltistýri • Mótorbremsa • aflúr- tak frá vél (PTO) • Yfirstærð af dekkjum (700 x 16) • Yfirstærð af rafgeymi • bakkflauta • Utispeglar beggja vegna • Luxusinnrétting • Tauáklæði á sætum • 2 þaklúgur • Hnakka- púðar • Litað gler í rúðum«Halogen aðalljós • aflmikil miðstöð • Viðvörunartölva og margt fleira. Við framleiðum sérlega vandaða vörukassa úr áli á þessa bíla. Kassarnir eru með stórum hleðsludyrum á hlið og gafli og eru þeir fáan- legir á ýmsum byggingarstigum. Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita fúslega allar nánari upplýsingar Opið laugardag frá kl. 10-4 MEST FYRIR PENINGANA BILABORG HF. Smiðshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.