Morgunblaðið - 28.03.1985, Side 48

Morgunblaðið - 28.03.1985, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985 Ólafía Sigrún Odds- dóttir — Minning Faedd 19. janúar 1948 Díin 18. mars 1985 Hún er dáin, hún Lolla, ómaði í eyrum mínum mánudaginn 18. mars. Gat það átt sér stað að mað- ur sæi hana aldrei oftar, ætti aldr- ei eftir að hlæja með henni, njóta lífsins og tilverunnar i nálægð hennar? Hún sem var alltaf svo lifandi og opin fyrir öllu í kringum sig, átti svo auðvelt með að tala og laða að sér fólk sem hreifst af léttu skapi hennar, hlátri og hugmyndaflugi. Vorið 1974 kynntist ég ólafíu S. Oddsdóttur. Hún var þá komin á hárgreiðslu- og snyrtistofu Borg- arspítalans, og ætlaði að leysa þá- verandi hárgreiðsludömu af í sumarfríi. Við tókumst í hendur og heilsuðumst. Þá hvarflaði ekki að mér að það handaband og þau kynni yrðu eins sterk og þau urðu. Við áttum meira samstarf fram- undan. Fórum út á landsbyggðina, kynntumst mörgu tryggu og góðu fólki. Við lentum í ótrúlegum ævintýrum, og þegar heim var komið höfðum við oft orð á þvi, að ef við skrifuðum niður ferðasögu okkar, hlyti það að verða sú hlægi- legasta sem út hefði komið. Hún var þá gift Gunnari Hall- dórssyni og áttu þau tvo drengi, Odd Arnar, fæddur 1967, Valgarð Ragnar, fæddur 1971, eignuðust svo Tinnu Björk 1978. Lolla var dóttir hjónanna Petreu Georgs- dóttur og Odds Jónssonar frá Sandi í Kjós. { þau ár sem ég þekkti Lollu, féll henni aldrei verk úr hendi. Hún bjó yfir því fínasta í fingrunum, hvort sem það var viðkomandi hári eða handavinnu. En hún gat líka farið út í trésmiðju ef því var að skipta. Einu sinni kom ég heim til hennar að kvöldi fyrir jól, þá var hún að smíða sleða handa syn- inum. Hún sat og slipaði á eld- húsborðinu sem hún hafði smíðað sjálf. Bækurnar á heimilinu eru allar í hillu á skilvegg sem hún smíðaði. Á bernskustað sínum við Sand í Kjós er sumarhús sem hún átti. Þar inni og utanhúss er ým- islegt sem hún. hefur lagt hönd á. Þetta var hennar draumastaður, hún naut sín við gróðurinn og úti- veruna enda mikið náttúrubarn. Hún sagði manni margar sögur úr sveitinni sinni af Esjunni, en hún þekkti hana frá allt annarri hlið en við Reykvíkingar gerum. Hún Bg&l YASHICA MF2 ikr.2990 nett mundavél sem notar.B5mm filmu • Innbyggt eilífðarílass, sem gefur merki sé notkun þess þörí. • Rafhlöður endast á u.þ.b. 250 flassmyndir. • Engar stillingar MYNDARLEG GJÖF HfiNS PETERSEN HF hafði oft orð á því að ef hún hefði ekki Kjósina til að hverfa til yfir sumartímann, þá vissi hún ekki hvert hún gæti farið. Sagði stund- um glettin: „Ég held að bíllinn rati ekkert annað." Og að koma til hennar þangað fann maður hversu náin tengsl hennar voru við bernskustöðvarnar. Allt sem hún og Sissa systir höfðu gert og látið sig dreyma í æsku um framtíðina. Ætíð svo samrýndar og aldrei bar skugga á samband þeirra. Fyrir rúmum þremur árum tók hún meirapróf. Ekki fannst henni bækurnar nægilega skýrar, en var ekki af baki dottin frekar en fyrri daginn, náði sér í varahluti úr vél, og skoðaði þá í krók og kring. Eft- ir það voru bækurnar ágætar, hló svo og sagði: „Ég skil ekki hvað ég gat verið vitlaus." Eftir að hún lauk meiraprófinu réð hún sig til starfa hjá Strætisvögnum Kópa- vogs í sumarafleysingar. Það sama haust keypti hún hár- greiðslustofu á Miklubraut 68. Eftir þau kaup fór að halla undan fæti með heilsuna. í október gekkst hún undir stóra skurðað- gerð en eftir ótrúlega stuttan tíma var hún byrjuð að starfa aftur. Sumarið þar á eftir réð hún sig aftur í afleysingar hjá strætó og vann því tvöfalda vinnu. Þá voru þau Gunnar búin að slíta samvist- ir og hún búin að taka þá ákvörð- un að standa sig gagnvart mótlæti lífsins. Voru dugnaðurinn og ósérhlífnin með ólíkindum. Þetta sumar fór hún aftur í sjúkrahús, en hún lét það ekki aftra sér frá því að Ijúka samningi sínum við SVK. Síðastliðið sumar var hún enn lögð á sjúkrahús og fékk þann dóm að sjúkdómurinn herjaði enn á hana. Hún reis upp úr öllu og fór að vinna á stofunni sinni og ganga frá ýmsum málum varðandi fram- tíð barnanna. Húsnæðismálin voru þar efst á baugi. Var hún bú- in að festa sér íbúð hjá Verka- mannabústöðum Kópavogs. Átti hún að afhendast sumarið 1986. Hún hafði orð á því að þegar þau yrðu flutt þangað inn gæti hún verið róleg. Síðasta daginn sem ég sá hana tókumst við í hendur og kvöddumst. Hún spurði hvenær hún sæi mig aftur. Ég gat ekki svarað því ákveðið, en kannski á mánudaginn. Þann dag dó hún. Það er erfitt að sjá á bak svo kraftmikilli manneskju, sem beið aldrei til morguns með að gera hluti sem hún gat gert í dag. Megi hún hvíla í Guðs friði. Votta ég foreldrum hennar, börnum og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. GréU Óskarsdóttir Mér verður á að spyrja hver sé tilgangurinn, þegar svo ung kona og þriggja barna móðir í blóma lífsins er hrifin brott úr þessu jarðlífi. Lolla vinkona mín var ekki nema 37 ára gömul er hún lést, eftir tveggja og hálfs árs baráttu, við þann sjúkdóm, sem að lokum varð henni yfirsterkari. Ég ætla ekki að reyna að lýsa hennar stórbrotna persónuleika hér, það yrði óendanlegt, en mig langar að kveðja hana með ör- fáum orðum. Við kynntumst fyrir 17 árum, er við lærðum saman hárgreiðslu á Miklubraut 1, sem þá var Hár- greiðslustofa Áslaugar Ólafs- dóttur, og urðum við strax góðar vinkonur, enda ekki hægt annað en hrifast af hressleika hennar og dugnaði. Hún var mikil atorku- kona og varð alltaf að hafa nóg fyrir stafni, enda var aldrei lognmolla að vera nálægt henni. Allt lék í höndunum á henni, hár- greiðsla, hannyrðir og jafnvel bílaviðgerðir, ef því var að skipta. Það sem mér fannst mest áber- andi í fari hennar var óbilandi þrautseigja og sjálfstæði. Aldrei gafst hún upp, aldrei var hún ráðalaus, sama á hverju gekk. Það sem mér verður þó trúlega efst í minni er sá mikli dugnaður og kjarkur, sem hún sýndi í gegn- um veikindi sín. Það var alveg ótrúlegt. Alltaf jákvæð og full bjartsýni. Ég mun sakna hennar sáran og þeirrar kátínu og uppátækja, sem henni einni voru lagin, enda oft mikið hlegið og gantast saman. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni og átt með henni ótaldar ánægjustundir. Börnum hennar, Adda, Valla og Tinnu, foreldrum hennar og systk- inum votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja ykkur á þessum sorgartímum. Lovísa Minning: Theodór Gunnlaugs- son frá Bjarmalandi Fæddur 27. mars 1901 Dáinn 12. mars 1985 1 janúar síðastliðnum kvödd- umst við í sjúkrahúsi Húsavíkur. Við afi vorum alltaf sammála um það að dauðinn væri jafn sjálf- sagður og lífið. Þess vegna kvödd- umst við eins og venjulega þótt svo við vissum að það gæti verið í síðasta sinn á þessu tilverustigi. Það síðasta sem afi bað okkur um, var að kenna Gulla litla ákveðna bæn sem hann sjálfur lærði sem barn og var honum kær. Þannig munu tengsl haldast milli forföður og afkomenda. Kynslóð tekur við af kynslóð — það er lögmál sem afi átti auðvelt með að skilja. Afi var slíkt náttúrubarn að það á sér fáar hliðstæður. Að vaka úti á heiði við fuglasöng, vatnanið og gróðurilm var hans líf. Afrakstur þessara vökunótta hefur hann, sem betur fer, skilið eftir á meðal okkar í formi bóka og blaðagreina sem hann skrifaði af sinni ein- stöku stílsnilld. Og hann skrifaði fleira því hann stóð í bréfaskrift- um við mörg hundruð einstaklinga um allan heim og síðustu árin hef- ur hann nýtt til hins ýtrasta til að rækta þessi sambönd. Þótt hann væri nánast blindur byrjaði vinnudagurinn oftast um miðja nótt. Þá settist hann við ritvélina og vann sleitulaust við að flokka og raða upp þeim aragrúa sendi- bréfa og annarra heimilda sem hann hafði safnað að sér. öll þessi vinna var unnin fyrir komandi kynslóðir og afraksturinn geymd- ur í safnahúsinu Húsavík þar sem allir sem áhuga hafa á geta gengið að því. Áð hafa fengið að alast upp með slíkum manni er svo dýrmæt reynsla að orð geta aldrei þakkað nógsamlega. Alltaf var hann óþreytandi að gefa af sínum and- legu og veraldlegu eigum og fyrir lítinn strák í sveit hjá afa var það fjársjóður sem endist ævilangt. Við munum sakna þess að fá ekki lengur bréf frá afa „austur yfir hafið“, bréfin sem svo mjög yljuðu okkur um hjartarætur. Við kveðjum afa í bráð með þessum fátæklegu orðum og minn- ingin um hann lifir alltaf hjá okkur. Guð blessi sálu hans. Theódór, Guðrún og Gulli í Svfþjóð Lúðrasveit Stykkishólms leikur á meðan á basarnum stendur. Kökubasar í Stykkishólmi LÚÐRASVEIT Stykkishólms heldur risa-kökubasar i Hljómskálanum á Silfurgötu 7, Stykkishólmi, næst- komandi laugardag. Á boðstólum verða kökur af flestum gerðum og einnig verða til sölu ýmsar páskavörur svo sem kerti og servéttur. Kökubasarinn hefst klukkan 14.00. Lúðrasveitin mun leika fyrir utan og víðar um bæinn á meðan basarinn stendur yfir. Tónleik- ar lúðrasveitarinnar verða síðan á dagskrá í fé- lagsheimili Stykkishólms 21. apríl nk. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.