Morgunblaðið - 28.03.1985, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
57
Björn Gíslason formaöur félagsins og Jón B. Stefánsson. Morgunblaðift/Sigurður
Frá hófinu í nýja húsnæóinu.
Bætt aðstaða Ung-
mennafélags Selfoss
SelfoHHÍ, 23. nurs.
Jens f Kaldalóni
„Já, það er eins og þetta
blessaða frelsistal ykkar
verði aö öfugmæli, og
virki sem þrýstiganga út
í opinn skuldadauða í
milljaröatali fyrir þeim
aragrúa óþarfa, sem
engum er til gæfu.“
takmörk fyrir því sem þið getið
flutt af varningi til landsins, án
þess að láta neitt í staðinn. Og það
mættir þú svo sannarlega vita, að
það eru ótaldar þúsundir manna
og kvenna á landi hér, sem hafa í
ýmsum úrvinnslugreinum land-
búnaðarframleiðslunnar allt
framfæri sitt, aðrir en bændurnir
sjálfir og þar á meðal stór hópur
Reykvíkinga, að þar yrði skarð
fyrir skildi ef þessi starfsemi legð-
ist niður, eða þó ekki væri nema
minnkaði oní það að enginn hlutur
frá þessari framleiðslu væri unn-
inn til útflutnings.
Um nýjar fram-
leiðslugreinar
Já, svo er það þessi nýsköpun í
búnaðarháttum og nýjar arðbær-
ar framleiðslugreinar, sem þú svo
ávítar landbúnaðarráðherrann
okkar að vinna ekki betur að. Það
er ekki amalegt að stinga slíkri
skrautfjöður i hárið á sér, því ég
veit þú gengur ekki með hatt. En
minn kæri Jón, þú minntist n.l.
ekkert á það hverjar þessar arð-
sömu framleiðslugreinar væru til
að dæla útí byggðir landsins, og
við bíðum spenntir eftir a heyra
frá þér hverjar vera ættu, og
raunar sendi ég þér þessar línur
til að ámálga það við þig að þú
bendir okkur á gersemina, því
lengi má manninn reyna í ráð-
herrastóli landbúnaðarins, og ekki
reynir á manninn fyrr en á hólm-
inn er komið í liðveislu nýrra
framleiðslugreina, en við þurfum
endilega að fá nasasjón af þeim
heilræðum sem þú virtist eiga
okkur til handa, og áreiðanlega
viltu þinni fósturjörð svo vel, að
þú liggur ekki á slíkri andagift,
sem eins og þú veist alltof fáum er
gefið, að kunna ráð við öllum
vanda, og mikið myndum við
halda þér veglegt þorrablót góði
maður, ef til okkar á veginn fram
lýstir því hnossi, þá sólin gyllir
hlíðar og dali þessa blessaða lands
í allri heiðríkju vorblámans, sem
orðið gæti okkur vegvísir til bjart-
ara lífs og betri daga í öðru formi
en þurfa að gnauða til ykkar rán-
dýrum dilkaskrokkum niður-
greiddum að öllu á ykkar kostnað,
og svo afganginum með útpíndum
útflutningsbótaskatti, svo sem guð
má einn vita hvað okkur tekur
sárt að þurfa að knýja undan ykk-
ar blóðugu nöglum í viðbót við 30
milljón kr. brennivínskaup og aðr-
ar 30 milljónir í sælgætiskaup um
eina, já, aðeins eina verzlunar-
mannahelgi.
Og svo er það frelsið
Já, svo er það blessað frelsið,
allir þráum við það, og ánauð vilj-
um við ekki undirokaðir verða, og
þessi ótætis fóðurbætisskattur á
kjúklingafóðrið er einhver sá
dæmalausasti ófögnuður sem
frelsið leggur í hendi nokkurs
ráðherra, og allir vildum við þá
gerð í kútinn kveða. Og þetta
dýrmæta frelsi verðum við að
varðveita betur en svo að það
verði blessuðum kjúklingunum að
aldurtila, og þá ekki síður hitt, að
þegar fiskiþjóð eins og við íslend-
ingar notum þetta okkar mikla
frelsi til að flytja inn tugi tonna
fyrir ekki minna en tugi og hundr-
að milljónir af útlendum soðfiski,
em ég hefði aldrei trúað, hefði ég
ekki séð það í hagtölum um inn-
flutning. Nú að ég ekki nefni allt
súkkulaðið og gotteríið 1000 tonna
farmur, fyrir svo utan allt andsk.
draslið og dótið á öllum sviðum og
í öllum formum og tökum svo er-
lend lán fyrir öllu góssinu, þar
sem gjaldeyririnn hrekkur ekki
nándar nærri fyrir óráðsíunni
allri. Á þetta minnist þið ekki,
þessir elskulegu ættjarðarvinir, í
öllu búskaparlegu formi.
Já, það er eins og þetta blessaða
frelsistal ykkar verði að öfugmæli,
og virki sem þrýstiganga útí opinn
skuldadauða í milljarðatali fyrir
þeim argasta óþarfa, sem engum
er til gleði né gæfu. Og svo getið
þið, þessi óttalegu flón, sem allt
þykist vita um alla búskaparhætti
okkar og kunna öll ráð til úrbóta,
sínöldrandi og skammandi, bít-
andi og nagandi í hælana á þessari
heiðursstétt bændum. Og þetta
eitthvað sem koma skal í staðinn
fyrir okkar hefðbundnu búgreinar,
er n.l. þeirri náttúru gætt, að það
hefur enginn viljað taka það af
okkur uppí skuldirnar okkar, hvað
þá heldur að vilja borga okkur
túskilding fyrir það í reiðufé, og
við getum ekki étið það heldur, og
hvers andsk. virði er það þá, að
jagast um það sýknt og heilagt.
Já, hún er alltaf sígild vísan
góða.
Upp er skorið, engu sáð,
alit er í vargaginum.
Þeir sem engin þekkja ráð,
þeir ætla að bjarga hinum.
Margt fleira vidi ég við þig
ræða, en læt hér staðar numið, og
kveð þig með bestu óskum.
Jens í Kaldalóni er bóndi að Bæj-
um á Snæíjallaströnd.
UNGMENNAFÉLAG Selfoss er
stærsta félagið á Selfossi og starfsemi
þess mikil. Félagið hefur haft aðsetur
■ Tryggvaskála þar sem nefndir halda
fundi og menn koma saman til að
skeggrsða.
Bæjarstjórn samþykkti þaö að fé-
lagið fengi að auka við sig í
Tryggvaskála og leggja undir starf-
semi sína nokkur herbergi á efri
hæö hússins. Þessi herbergi voru
gerð upp, máluð og búin húsgögn-
um, skápum o.fl. tilheyrandi.
Sl. miðvikudag, 20. mars, var hús-
næðið vígt með kaffidrykkju for-
ystumanna félagsins og nokkurra
gesta. Björn Gíslason, rakari, for-
maður félagsins, lýsti húsnæðinu og
þakkaði þeim fjölmörgu sem ávallt
eru reiðubúnir að leggja hönd á
plóginn til að létta starfið. Jón 5.
Stefánsson, fyrrverandi félags-
málastjóri, afhenti formanninum
fundarhamar sem hann hafði i
varðveislu og þakkaði samstarfið
við félagið á liðnum árum.
Ungmennafélag Selfoss verður 50
ára á næsta ári og eru menn farnir
að huga að þvt að gera Selfossbúum
dagamun í tilefni þess.
Sig. Jóns.
þessu landi — eða skapa sér sjálf-
um laga-ákvæði?
Samkvæmt þessum lögum (án
reglugerðar) er það því algerlega í
höndum fóðureftirlitsmannsins
hér að leyfa eða banna innflutning
á fóðurblöndum, sem notaðar eru
á Vesturlöndum. Og í þessu
augnabliki er óvíst, hvort leyfi
fæst til að skipa upp 185 tonnum
af kjúklingafóðri, sem komið er til
landsins, eða hvort það verður
endursent. Það hefur beðið
ákvörðunar, þar sem eftirlitsmað-
urinn hefur verið á ferð erlendis,
manni skilst til að bæta fóður-
fræðilegt siðgæði í Efnahags-
bandalaginu. Hver borgar skað-
ann af allri þessari vitleysu?
Úr því að penninn minn er kom-
inn á ferð vil ég lítillega blanda
mér í deilurnar um söluskipulag
eggja hér og þetta nýja eggjasölu-
samlag (Samband eggjafram-
leiðenda, sem menn greinir á um,
hvort sé samband manna eða
hænsna, því hingað til hafa hæn-
urnar framleitt eggin). Eggjasölu-
samlag var stofnað hér fyrir ein-
um aldarfjórðungi, og endaði loks
með einu heljarmiklu FÚL-
EGGJAFJALLI. Það er miklu
meiri vandi að verzla með egg en
kjöt eða mjólkurvörur á eins litlu
og takmörkuðu markaðssvæði og
er hér á landi. Eggin er hvorki
hægt að geyma lengi eða frysta og
örðugt í miklum mæli að koma
þeim i aðrar afurðir s.s. osta eða
skyr, eins og hægt er að hagnýta
óselda neyzlumjólk. Fuglabændur
hér hafa fundið hið hagkvæmasta
söluskipulag án afskipta kerfisins
síðan fúleggjafjalliö gaus og eyði-
lagðist með harmkvælum margra.
Fuglabændurnir hafa sjálfir fund-
ið sér markaðssvæði í verzlunum
eða á heimilum og hafa þannig
haft „hönd á slagæðinni" og fylgzt
með ástandi markaðarins. Samlag
myndar einangrun milli fugla-
bændanna annars vegar og verzl-
ana eða neytenda hins vegar. Með
samlaginu myndast fúleggjafjallið
aftur, verið alveg viss!
Svo hafa þessir „ný-spekingar“
Sambands eggjaframleiðenda
opinberað þekkingu sína alþjóð
með því t.d. tvívegis í blöðum og í
erindi til Búnaðarþings að full-
yrða, að meðalvarp í Noregi sé 17
kg eftir hverja hænu í landinu á ári,
og á þetta bull að vera rökstuðn-
ingur fyrir því að reisa hér ein-
hvers konar „Hríseyjarævintýri"
fyrir varpfugla, óljóst er hvað í
þessu felst, ýmist er það kallað
„stofnræktarstöð" eða „aðgerðir
við útungun og uppeldi á hænsna-
stofni til eggjaframleiðslu". Og
var ekki búið á Ármóti í Flóa
nefnt í þessu sambandi? Guð-
mundur Jónsson á Reykjum leysir
þetta mál núna með innflutningi á
útungunareggjum frá erlendurtl
stofnræktarbúum ágætlega, og
kerfið ætti ekki að koma nærri
þessu, því að hér hefur enginn
betri þekkingu á slíku en Reykja-
bóndinn.
Nú vitnar „spekingur eggja-
framleiðenda" í norska tímaritið
„Fjörfé“ sem heimild um þetta
heimsmet í eggjaframleiðslu! En því
miður eru þessir menn ekki læsir á
fagrit alifuglaræktarinnar. Þeir
taka tölur frá því sem kallað er
„Statens kontrollavlsstationer"
sem sannreyna varphæfni hinna
ræktuðu og ættblönduöu stofna,
sem ætíð er verulega meira en
landsmeðaltalið. Samkvæmt töl-
um í „Aktuelle tall í landbruket
1985“, gefið út af Norges Bonde-
lag, hefur meðalvarp hæna á ári
verið sem hér segir:
1969 8,81 kg
1980 11,50 kg
1984 12,86 kg
Framfarirnar er að þakka
árangursríkum fóðurvísindum,
víðtækri tilraunastarfsemi og
kynbótum. AUt stuðlar þetta að
hagkvæmari rekstri og ódýrari mat-
vælum. Hvers vegna mega íslenzk-
ir neytendur og framleiðendur
ekki njóta þessara framfara bú-
vísinda, heldur eru neyzluvörur af
svínum og alifuglum þvingaðar í
verulega hærra verð en þðrf væri
á með innflutningstollum á fóður
og kerfiskarlaafskiptum. AUt er
þetta að meira eða minna leyti
„þjóðfélagsleg fúlegg“.
Að lokum nokkur orð vegna
ályktunar Búnaðarþings um kröf-
ur um hreinlæti í skepnuhúsum og
andúð á lyfjanotkun. Að þessari
þingsamþykkt gerðri héldu þing-
fulltrúarnir heim til sín með eftir-
farandi leiðbeiningar frá yfirdýra-
lækni í vasanum:
„Öðru hvoru finnast leifar af
júgurbólgulyfjum í sölumjólk hér
á landi. Skapar það tjón fyrir
mjólkurframleiðendur og vanda
fyrir neytendur. Skal vikið lítið
eitt nánar að þessu máli.
Þegar lyf gegn júgurbólgu eru not-
uð á réttan hátt, koma þau oft að
góðu gagni. Ef rangt er með lyfin
farið, geta þau hins vegar valdið
miklu tjóni.
Ef leifar af júgurbólgulyfjum
finnast í þeirri mjólk sem send er
til mjólkurstöðvanna, getur sú
mjólk eyðilagt framleiðslu t.d. á
skyri, súrmjólk og ostum. Hafa
mjólkurstöðvarnar stundum orðið
fyrir stórfelldu tjóni af þessum sök-
um.
Sumt fólk hefur ofnæmi fyrir
þeim sýklalyfjum, sem notuð eru
gegn júgurbólgu, og getur því orð-
ið fyrir óþægindum, ef það drekk-
ur mjólk, sem í eru t.d. leifar af
penieillini. Af þessum sökum er
mjólk, sem í eru lyfjaleifar, óhæf til
sölu.
Samkvæmt reglugerð um mjólk
og mjólkurvörur er óheimilt að
selja mjólk sem í eru leifar af júg-
urbólgulyfjum, og er hægt að sækja
menn til saka vegna þessa.
Af þessu er ljóst, að það eru
bæði fjárhagslegar, siðferðilegar
og lagalegar ástæður fyrir því að
láta aldrei af hendi mjólk sem í
eru leifar af júgurbólgulyfjum.
Eftirlit með því hvort lyfjaleif-
ar finnast í mjólk hefur aukist
mjög hin síðari ár, enda hafa kom-
ið til auðveldari aðferðir til próf-
unar en áður voru tiltækar.
Finnist lyfjaleifar í mjólk má
verðfella hana, og enn fremur er
heimilt að beita framleiðendur
sektum, sbr. ákvæði reglugerðar
nr. 269/1973 um mjólk og mjólk-
urvörur.
Helstu ráð til að girða fyrir að
lyfjaleifar leynist í mjólk, eru eft-
irfarandi:
1. Notið aldrei júgurbólgulyf nema
samkvæmt ráði dýralæknis.
2. Leggið vel á minnið þær notkun-
arreglur sem lyfjunum fylgja
eða dýralæknir hefur látið af
hendi. Sérstaklega þarf að festa
í minni hvenær má í fyrsta lagi
nýta mjólkina eftir að lyfjameð-
ferð er lokið.
3. Merkið greinilega þær kýr, sem
eru á lyfjameðferð hverju sinni.
Mjólkið þær síðast og hellið
mjólkinni niður. Þetta er sérstak-
lega mikilvægt þegar lyf eru notuð
handa kúm í geldstöðu, ef manna-
skipti verða við mjaltir, eða ef
kúnni hafa verið gefin lyf af öðr-
um ástæðum en júgurbólgu.
4. Ef þið eruð í vafa um, hvernig
nota eigi júgurbólgulyf eða
hvenær óhætt er að nýta mjólk
eftir lyfjameðferð, leitið þá ráða
dýralæknis.
5. Geymið ekki júgurbólgulyf eða
tómar túpur eða glös þar sem
börn ná til. Þvoið hendur ræki-
lega, ef lyf berst á þær.
Það er jafnt hagur framleiöenda
og neytenda, að aldrei komi til
sölu mjólk sem í eru lyfjaleifar.“
(Leturbr. eru greinarhöfundar)
Og svo var Búnaðarfélagið svo
nærgætið að senda bændum í
febrúar sl. lista yfir verð á fúkka-
lyfjum og hormónum, sem þeir
geta keypt:
(iunnar Bjarnason er tyrrverandi
deildarstjóri Fóóurelíirlitsdeildar
Rannsóknastofnunar landbúnadar
ins.
Veró i nokkrum algengum dýralyfjum 7. febrúar 1985.
Fúkkalyf til inndaelingar
Pasirillin Pasing 3 milljón ein ..... 22 kr. glasió
Penirillin Pasing 5 milljón ein ....... 43 Itr. glasió
llrorillin P, upplausn, 100 ml 410 kr. glasiA
Ikorillin PS, upplausn, 100 ml .... 566 kr. glasiA
Streptorillin. upplausn, 100 ml 652 kr. glasió
Fukkalyf í leg:
Depomyrin 20/35, uppl. 100 ml 317 kr. glasiA
Streptorillin uppl. 100 ml .. 321 kr. glasiA
Ostrilan uppl. 30 ml — 112 kr. glasió
Streptorillin m/suldadimidin, stílar 26 kr. stfllinn
Fúkkalyf i spena:
Orbenin spenatúbur 36 kr. túban
Streptorillin spenatúbur 43 kr. túban
Cepoxillin spenatúbur 44 kr. túban
I.yf vió skitu:
Aureomyrin duft, 2,5 kg . '453 kr.
Sulfa-guanidine, 100 töflur á 0,5 grm . 122 kr.
Sulfa-dimídine, 100 töflur á 0,5 grm 182 kr.
Hormónar:
Dinolytic, 10 ml.h.gl. . 306 kr. glasiA
OpterortenokS, 20 ml.h.gl. . 362 kr. glasiA