Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985 fclk í fréttum Sade hættir að reykja í nálarstungu- meðferð Fólk beitir hinum ýmsu brögðum til að hætta að reykja. Það minnkar við sig jafnt og þétt, hættir með öllu skyndilega, undirbýr sig andlega misjafnlega vel og svo lyktar málinu með ýmsum hætti; sumir standa sig með glans en aðrir springa á limminu og hvort sem er, þá er næstum alltaf um mikinn bardaga að ræða þar sem aðstandendur dragast beint og óbeint inn í glímuna hvort sem þeir óska þess eða ekki. Miðað við hvað ein sígaretta er lítil, getur hún verið ótrúlega stórt vandamál. Söngkonan þokkafulla, Sade, reykir ekki lengur, en einu sinni reykti hún ákaflega. Aðferðin sem hún beitti telst nýstárleg og þess vegna gerum við henni skil. Hún fer einu sinni i viku í nálarstungur. Jú, nálarstungur. Sérfræðingur nokkur stingur hana 14 sinnum og svo situr Sade með nálarn- ar lafandi úr líkamanum nokkra stund. „Ég skil ekki hvernig það má vera, en þessi meðferð veitir mér þá ríkulegustu andlegu afslöppun sem ég hef fundið á ævinni. Streitan hverfur og með henni löngunin til að tendra sígarettur. Nú orðið finnst mér þessi áður ómissandi hlutur beinlínis ógeðslegur og illa lyktandi," segir Sade ... Með Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands í Hallonnsstaðaskógi í júní 1982. Merkisafmæli Ingiríðar ekkjudrottningar Dana Ingiríður ekkjudrottning í Danmörku á merkisafmæli í dag. Þi eru liðin 50 ár síðan hún gekk að eiga Friðrik konung og varð þar með krónprinsessa Danmerkur og ekki nóg með það, krónprinsessa íslands að auki. Var hún Danadrottning í tíð Friðriks IX, en við frifall hans tók Margrét við þjóðhöfðingjatigninni, en Ingiríður varð ekkju- drottning. Ingiríður er virt, greind og vinsæl í heimalandi sínu og víðar. Hún hefur ferðast víða og verið glæsilegur fulltrúi lands og þjóðar. Myndirnar sem hér fylgja eru fri ferðum hennar i síðari irum. Egilsstaðir: Á árshátíð grunnskólanemenda Nemendur í Egilsstaða- skóla efndu til árlegrar árshátíðar fyrir skömmu. Nemendur 7.-9. bekkjar settu á svið einþáttung eftir Dario Fo „Betra er þjófur í húsi en snuðra á þræði" undir leikstjórn Arndísar Þorvalds- dóttur. Þjófinn lék Hjalti Þor- kelsson, 7. bekk, og er það mál manna að hann hafi unnið sinn fyrsta leiksigur. Aðrir leikendur I einþáttungnum voru Kjartan Guðmundsson, Björg Björnsdóttir, Herborg Eðvaldsdóttir og Frosti Þor- kelsson í 9. bekk og Kolbrún Magnúsdóttir í 8. bekk. Hvísl- ari var Guðrún Marta Ás- grímsdóttir í 8. bekk. Arndís Þorvaldsdóttir, sem er þekkt fyrir störf sín í Leik- félagi Fljótsdalshéraðs, hefur ekki fengist við leikstjórn áður — en segja má með sanni að hún hafi náð góðum árangri með hina ungu leikendur i þessum ærslafarsa eftir Dario Fo. Ljósameistari var einnig aðfenginn við þessa sýningu grunnskólanemendanna. Var það Kjartan Einarsson og skil- aði hann hlutverki sínu með ágætum. Einþáttungurinn var sýndur á föstudagskvöld og tvisvar í gær. Ætlunin er að sýna ein- þáttunginn aftur á svonefndri unglingavöku Menningarsam- taka Héraðsbúa er haldin verður í ME á sumardaginn fyrsta. Allir grunnskólar á Héraði munu taka þátt í ungl- ingavökunni. Þá vöktu ýmis önnur atriði á árshátíð grunnskólanemend- anna athygli — enda kom hver bekkjardeild í forskóla og 1.—6. bekk með sitt atriði. Má þar til nefna þjóðdansahóp úr 6. bekk — er Þráinn Skarphéð- Leikendur voru Hjalti Þorkelsson, Kjartan Guðmundsson, Björg Björnsdóttir, Herborg Eðvaldsdóttir, Frosti Þorkelsson og Kolbrún Magnúsdóttir. Hvíslari var Guðrún Marta Ás- grímsdóttir. Nemendur 7.-9. bekkjar settu á svið leikritið „ Betra er þjóf- ur í húsi en snurða á þræði“, eftir Dairo Fo. insson, formaður þjóðdansa- hópsins Fiðrildanna, hafði að- stoðað. Nýlega kom út blað nem- enda Egilsstaðaskóla, Lag- arfljótsormurinn, og er það að venju skrifað af nemendum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.