Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.04.1985, Blaðsíða 35
MQ&fiUNBkAPIfr SUNNWAGDR-%1 AWUL 1985», I*f 3fr> FRETTAPUNKTAR Kúrekamyndir hafa átt erfitt uppdráttar undanfarin ár. Engu aö síöur eru tveir stórir vestrar í gangi: Clint Eastwood er aö gera Pale Rider og Lawrence Kasdan, sem gerði The Big Chill er að gera Silverado, meö John Cleese o.fl. Roman Polanski hefur ekki gert kvikmynd í fimm ár, eöa síöan hann lauk viö Tess. En um þessar mundir vinnur hann aö sjóræn- ingamynd sem heitir einfaldlega Prates. Walter Matthau er í aöal- hlutverki. Roland Joffé, sem hefur vakiö heimsathygli fyrir The Killing Fields, vinnur nú aö myndinni The Mission, sem gerist á 17. öld í Suöur-Ameríku. Robert Bolt skrif- ar handritið og aöalhlutverkiö er í höndum Roberts De Niro. Nýjasta James' Bond-myndin veröur frumsýnd í sumar. Hún hoitir A View To A Kill, og sem fyrr er þaö Roger Moore sem leik- ur spæjarann. Hér er hann meö einni af mörgum skvísum mynd- •rinnar. Ken Russell ætlar næst aö gera mynd eftir margra alda gamalli bók DeFoes, Moll Flanders. Pent- house-kóngurinn Guiccíone fram- leiðir. Stanley Kubrick hefur samiö viö Warner-bræður um aö gera þrjár myndir. Sú fyrsta nefnist Full Metal Jacket og fjallar um eftirköst Víet- nam-stríösins. Robert Redford, sem hefur dval- ist í Stjörnubíói undanfarnar vikur, er þegar byrjaöur á nýrri mynd og heitir hún Out of Africa. Handritiö er byggt á bókum eftir dönsku skáldkonuna og feröalanginn Isak Dinesen. Meryl Streep leikur á móti rauöbirkna kvennagullinu, en Sidney „Tootsie" Pollock leikstýrir. Meistari Fellini vinnur nú aö grínmynd sem hann nefnir Ginger og Fred, og á hún ekkert skylt viö frægt danspar sem hét ekki ósvip- aö þessu. John Landis og Dan Aykroyd vinna nú saman aö mynd sem þeir nefna Spæjarar eins og viö. Hver veit nema spæjarar fái jafn háöu- lega útreiö þar og draugar og aft- urgöngur í Ghostbusters. Þá ku Aykroyd vinna að framhaldinu af Draugabönunum. Steven Spielberg er aö vísu ekki aö gera neina kvikmynd sjálfur um þessar mundir, en hins vegar hefur hann í hyggju aö framleiöa nokkrar í samvinnu viö aöra. Tvær eru þeg- ar komnar af staö. Sú fyrri heitir Young Sherlock Holmes, fantasía um frægasta spæjara aldarinnar, leikstjóri er Barry Levinson. Hin nefnist Back To The Future, en leikstjóri er gamall vinur Spiel- bergs, Robert Zemeckis, sem geröi Romancing the Stone. Þýski kvikmyndaframleiöandinn Bernd Eichinger, sem hefur staöiö aö myndum eins og Dýragarös- börn og Sögunni endalausu, hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn aö umtöluöustu skáldsögu síöari ára, Nafni rósarinnar, eftir Umberto Eco. Leikstjóri hefur veriö ráöinn Jean-Jacques Annaud, sem geröi Leitina aö eldinum. Engir leikarar hafa veriö ráönir enn. Eichinger hefur ákveöiö aö stór partur myndarinnar veröi tekinn i þýskum klaustrum. Hugh Hudson (Chariots of Fire og Greystoke) vinnur nú aö mynd- inni Revolution 1776, sem fjallar um bandarísku byltinguna. Al Pachino er í aöalhlutverki. Ur The Breakfast Club. w*Æm Úr Mischief. Krakkarnir vilja klúrar myndir Grínmyndir um unglinga meö unglingum í aöalhlutverkum eru svo geysivinsælar um þessar mundir að Time Magazine sendi menn út af örkinni til aö leita svara við spurningunni: eru ungiingamyndir þaö sem máli skiptir? Þegar skoöaður er listi yfir vin- sælustu myndir ákveöins tímabils stingur i augun hve unglingamynd- irnar eru margar. Algengt er aö ársafraksturinn sé fimm til tíu myndir i Bandaríkjunum og síöar hér á landi, en fyrsti ársfjóröungur þessa árs hefur slegiö öll fyrri met. Á því tímabili einu voru ekki færri en átta myndir frumsýndar, og þaö sem meira er, allar mala þær gull. Meöal þeirra mynda sem hafa notið mestra vinsælda má nefna The Breakfast Club (sem Time tel- ur þá skástu — Laugarásbíó frum- sýnir um þessa helgi myndina Six- teen Candles, eftir sama höfund, Desperatly Seeking Susan, meö Madonnu í aöalhlutverki, The Sure Thing, Vision Quest og Flamingo Kid. Þegar þetta er ritaö er nýbyrj- aö aö sýna Police Academy 2 (já, framhaldiö af myndinni í Austur- bæjarbiói) og Porky's 3. Nýja bíó sýndi nýlega Steggjapartí, sem var meö vinsælli myndum siöasta árs. Og ekki má gleyma eldri myndum eins og Flashdance, Breakdance og Footloose. Ástæöan fyrir því hvers vegna þessar myndir eru svona vinsælar sem raun ber vitni er sjálfsagt jafn flókin og spurningin um tilgang lífsins. Börn og ungt fólk (á aldrin- um 12 til 24 ára) er langstærsti hópurinn sem sækir kvikmynda- húsin og hann vill myndir sem um- fram allt eru skemmtilegar, léttar og helst fyndnar, eilítiö klúrar og obbolítiö spennandi. Allar fjalla þær um sama fyrirbæriö, viöur- kenna þeir menn sem þær gera, þaö er: strákar eru í stelpuleit og stelpur eru i strákaleit. Krakkar vilja klúrar myndir, segir Jerry Par- is, sem leikstýröi Police Academy 2 en hún var frumsýnd í aprílbyrj- un. Krakkar fara aö sjá þesskonar myndir, þeir kunna þær utanaö, fara aftur til aö hlæja aö uppá- haldsatriöunum sínum. Jeff Kan- ew, sem geröi Revenge of the Nerds, segir aö peningamenn stóru kvikmyndaveranna biöji um slíkar myndir, og aö ekkert sé auð- veldara. American Graffiti (1974) var sennilega fyrsta alvarlega myndin sem gerö var um þennan aldurs- hóp, en sú mynd sem talin er vera undanfari þeirra allra er National Lampoon’s Animal House (Delta- klíkan) meö John Belushi o.fl. Hún sló út aösóknarmet Guöfööurins, 150 milljónir dala klingdu i kassan- um. Síöan kom Porky’s (180 millj- ónir dala) og svo Police Academy (150 milijónir dala) og þær hafa getiö af sér ótal afkvæmi. Þaö er ekkert eölilegra, segja menn á Time Magazine, aö fólk fari í bió og hlæi sig máttlaust, en þeir telja þaö harla undarlegt þeg- ar fólk hópast á mynd eftir mynd sem eru ekki annaö en aum eftir- öpun af eldri mynd. Hvaö hefur oröiö af hugmyndafluginu og frum- leikanum? spyrja þeir. Tískufyrirbæri koma og fara eins og íslenskar rigningaskúrir. Eina stundina eru bílamyndir vin- sælastar, aöra geimvisindamyndir, og enn aörar stelpu- og stráka- myndir. Hvaö gerist næst? Gæti þaö gerst aö leikrit og bækur kæmust í tísku? Ekki meöan ungl- ingar eru unglingar, því í þeirra augum, segja þeir á Time Maga- zine, er hiö forboöna alltaf vinsæl- ast og í augum unglinganna er skemmtilegra aö fríka út á laug- ardagskvöldi heldur en aö sitja heima hjá pabba og mömmu. HJÓ Frakkland: SIGNORET skrifar skáldsögu Franska leikkonan Simone Signoret hefur skrifaö stóra skáldsögu sem heitir „Adieu Volodia" (Bless, Volodia). Signoret, sem er 63 ára og á afarglæsilegan feril aö baki innan kvikmyndanna, hefur komist á metsölulísta f Frakklandi meö bók sína. Bókin er önnur í rööinni frá hendi leikkonunnar og fjallar um tvær innflytjendafjölskyldur af gyö- ingaættum í París á árunum 1921 til 1944. Sjón Signoret hefur hrakaö mjög hin síöari ár og sérstaklega á meöan á ritun bókarinnar stóö þar til svo var komiö aö hún gat varla séö sína eigin skrift. „Augu min héldu þaö út þangaö til ég lauk viö bókina. Ég haföi þaö á tilfinning- unni aö þau þyrftu á frii aö halda en, því miður, hafa þau ekki snúiö til baka.” Signoret fæddist í Wiesbaden i Þýskalandi en ólst upp i úthverfi Parísar. Fortíö hennar á lítið sam- eiginlegt meö fátæku innflytjend- unum, sem bókin hennar segir frá, en í henni eru þó atriöi úr lífi henn- ar og eiginmanns, Yves Montand. Leikkonan franska Simone Signoret Skáldsöguna skrifaöi leikkonan á 18 mánuöum á sveitasetri í Normandy. „Ég var sífellt aö ónáöa fjölskyldu mina og biöja hana aö lesa hvern kafla eftir því sem ég lauk viö þá,“ segir Signoret í blaöaviötali. „Ég var aldrei viss um hvort óg væri með bók í höndun- um eöa ekki. Svo var þaö einn daginn aö nágranni minn, indæl kona, sem haföi lesið handritiö í pörtum aö minni ósk, kom til mín og sagöi aö hún hugsaöi ekki um annaö en gyöingafjölskyldurnar í sögunni. Þá vissi ég aö óg var komin meö skáldsögu.“ Sá Volodia, sem nefndur er í titl- inum, er ein persóna bókarinnar en önnur fjölskyldan í sögunni, Guttmansfólkiö, heldur aö hann sé látinn. Svo er þó ekki því einn dag- inn skýtur hann upp kollinum í Par- ís. Hann nær þó aldrei aö heilsa upp á fjölskylduna. Yfirvöld gruna hann um eitt og annaö og hann hverfur aftur. Mörgum árum seinna fróttir fjölskyldan aö hann heföi dáiö í Síberiu skömmu eftir aö hann fór frá París. „Þetta er nákvæmlega þaö sama og kom fyrir frænda minn einn frá Brati- slava, sem ekki var leyft aö hitta mig,“ sagöi Signoret. „Þaö sýnir hversu nákvæmlega hlutirnir eru skipulagöir svo fólk finni ekki hvort annaö, hittist og tali saman“. Signoret sagöi nýlega í sjón- varpsþætti: „Fólk er alltaf undr- andi þegar leikari sýnir aö hann hefur hæfileika til aö skrifa skáld- sögur. En ég hef sökkt mér niöur í skáldsagnapersónur — sköpunar- verk annarra — allt mitt líf svo skáldskapurinn varö mér auöveld- ur.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.