Morgunblaðið - 30.04.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.04.1985, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRlL 1985 Fiskurmn tekinn um borð í Keflavík. í vesturátt er flogið með sólinni og komið til San Francisco á svipuðum tíma dags og farið var frá Keflavfk um 8 tímum áður. íslenzka fyrirtækið Royal Iceland í Kaliforníu: Selur fisk í 200.000 máltíðir í viku hverri — 30 lestir af ferskum fiski og 20 af lausfrystum hörpudiski ÞEIR færast mikið í fang, sem selja vikulega 30 lestir af ferskum fiski til vesturstrandar Bandaríkjanna. Séu menn í vafa um þessa fullyrðingu má benda þeim á það, að þetta magn samsvarar 120.000 máltíðum! Sömu aðiljar selja enn- fremur á sama markaðssvæði um 20 lestir af lausfrystum hörpudiski vikulega svo í raun sjá þeir 200.000 manns fyrir sem svarar um einni fiskmáltíð vikulega. Svo vel hefur til tekizt, aö íslenzkur fiskur er auglýstur sem lúxus í heims- borginni San Francisco og víðar í Bandaríkjunum og borga menn yfir 200 krónur fyrir hvert kfló af íslenzku soðningunni þar vestra. Frá vinnslu í veitingahús Undirritaður átti þess kost fyrir skömmu, að fylgja íslenzku soðn- ingunni vestur um haf. Allt frá því hún var unnin í frystihúsi hér heima og þar til hún var komin í glæsileg fiskborð í verzlunum vestra og borin á borð í fínustu veitingahúsum. Það er óneitanlega merkileg tilfinning að fylgja „flugfiskinum“ í einni af stærstu og glæsilegustu fragtflugvél heims yfir nær hálfan hnöttinn og sjá hve fagmannlega er staðið að þessum flutningum með fullkom- inni flutningatækni og flutningan- eti á jörðu niðri. Það er Royal Ice- land í Berkeley við San Francisco, sem sér um sölu soðningarinnar, en Cargolux, fyrrum afkvæmi ís- lendinga, sem flytur fiskinn. Flutningafyrirtækið Cosmos er einnig aðili að þessum flutningum. Bæjarútgerð Reykjavíkur verkar meginhluta fisksins, aðallega karfa, en íslenzk matvæli í Hafn- arfirði og Vogar hf. í Vogum eiga einnig stóran hlut að máli. Enn á tilraunastigi Magnús Þ. Þórðarson heitir maðurinn, sem stjórnar Royal Ice- land. Hann tók á móti Morgun- blaðsmönnum vestra f síðasta mánuði og rakti fyrir þeim gang mála. Magnús var hógvær er hann var inntur eftir því, hvernig ævintýrið eentri: „Ferskfisksalan er enn sem komið er á tilrauna- stigi. Takist öllum aðiljum máls- ins að tryggja stöðugt framboð og gæði er aldrei að vita nema þetta geti gengið í framtíðinni. Við þurfum minnst eitt ár til að sannreyna möguleikana,“ sagði Magnús. UpphaHð eiginlega tilviljun „Hér er stór og mikill markaður fyrir ferskan fisk og íslenzki fisk- urinn hefur yfirburði yfir hérlend- an fisk hvað gæði og ferskleika varðar,“ sagði Magnús. „Þetta byrjaði hins vegar eiginlega fyrir tilviljun. Cargolux hafði þar til í haust flogið yfir Keflavík á leið sinni vestur um haf og tekið elds- neyti á austurströnd Kanada, reyndar með einstaka viðkomu í Keflavík. f samtali mínu við Þór- arin Kjartansson, svæðisstjóra Cargolux í Bandaríkjunum, kom upp sú hugmynd að millilenda f Keflavík til þess að flytja fisk frá íslandi vestur um. Meðan á undir- búningi þessa stóð, var Cargolux nauðsynlegt að taka eldsneyti í Kanada eða Keflavík, þar sem flugbrautin í Lúxemborg var of stutt til að 747-flutningavélarnar Mílin rædd í flugvellinum í San Francisco. Þórarinn Kjartansson, svæðis- stjóri Cargolux í Bandaríkjunura, Magnús Þrándur Þórðarson og Arnold Van Den Bosch, stöðvarstjóri Cargolux í San Francisco. Það ber ekki i öðru en hitastigið sé rétt við komuna vestur. Og daginn eftir í kæligeymslu dreif- ingarmanna er Ciskurinn auðvitað enn sem nýr. Svo er að selja fiskinn. Það er gert f stórmörkuðum og búðum af ýmsu tagi, en fjölskrúðug fiskborð eru algeng vestra. gætu hafið sig til flugs fullfermd- ar. Eftir að samkomulag um flutn- ingana náðist var hins vegar búið að lengja flugbrautina í Lúxem- borg, þannig að millilendingin heima var alveg óþörf. Engu að siður hófust þessir flutningar f október síðastliðnum og hafa stað- ið nokkuð sleitulaust síðan að und- anskildum hléum um jól og ára- mót og vegna verkfallsins. Undir- tektir hér hafa verið mjög góðar, en frumskilyrði þess að salan gangi er að framboð sé stöðugt. Það er því mikil skuldbinding, sem fiskverkendur heima hafa tekið á sig, en þeir skilja þetta mjög vel og hafa staðið sig með prýði. Fastur liður á mat- seðlinum Uppistaðan í þessu er karfi frá BÚR, en að auki seljum við þorsk, ýsu, lúðu, kola og steinbft auk fleiri tegunda frá Islenzkum mat- vaelum og Vogum hf. Sala þessara tegunda gengur vel hér og fer hún mikið í gegnum heildsala, en við dreifum talsverðu magni sjálfir. Við erum með auglýsingaherferð í gangi, bæklinga, veggspjöld og uppskriftir auk hefðbundinna blaðaauglýsinga. Það miðar allt að því, að tryggja söluna til helztu stórmarkaðanna. Koma henni f fastan farveg, þannig að íslenzkur fiskur verði fastur liður á matseðli sem flestra fjölskyldna og veit- ingahúsa. Fáurn 150 til 200 krón- ur fyrir hvert kfló Fyrir jól fengum við líklega hæsta verð fyrir ferskan fisk, sem um getur í Islandssögunni, en þá var framboð mjög lítið. Verð hefur síðan lækkað nokkuð í kjölfar auk- ins framboðs frá öðrum. Við leggj- um hins vegar áherzlu á, að ís- lenzki fiskurinn sé einstakt góð- gæti og reynum þannig að jafna út óhjákvæmilegar verðsveiflur vegna mismunandi framboðs frá keppinautunum. Hingað til hafa öll viðbrögð og viðtökur verið mjög jákvæð og því mikil umsvif hjá okkur. Hæsta verð til okkar fyrir karfa hefur verið um 150 krónur fyrir kílóið og tæpar 200 krónur fyrir kíló af þorski og ýsu, en við gerum okkur ánægða með 120 krónur fyrir karfakílóið að jafnaði næstu þrjá mánuðina. Álagning í verzlunum er síðan á bilinu 25 til 30%. Kaupandinn heldur með öllu 6—8 milliliðum uppi, svo það er mikilvægt að fá sem hæst verð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.