Morgunblaðið - 30.04.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.04.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 80. APRÍL 1985 Mikill ránsfengur AP/Símamynd Þessum brynvarða flutningavagni frá Wells Fargo-fyrirtækinu var rænt neðarlega á Manhattan-eyju í New York í gsr. Milljónir ef ekki tugir milljóna dollara voru í vagninum sem fannst nokkrum klukkustundum eftir ránið undir Brooklyn-brúnni. 8 milljónum dollara rænt hjá Wells Fargo New York. 29. »Dríl. AP. * New York, 29. aprfl. AP. FJÓRIR vopnaðir menn brutust inn í bækistöðvar Wells Fargo á Manhattan og komust undan með um 8 milljónir dollara. I fyrstu var talið að ránsfengurinn næmi 25—50 milljónum dollara, en upp- hæðin var talsvert Isgri. Lögreglan telur sig komna á slóð ræningj- anna, sem komust undan með feng sinn í brynvörðum bfl Wells Fargo. Ránið var framið klukkan 5.30 að staðartíma i morgun. Engir verðir voru í húsinu þegar morg- unvaktin mætti til vinnu, en tal- ið er að ræningjarnir hafi brot- ist inn talsvert fyrr og beðið starfsfólksins. Réðust þeir að starfsmönnunum, skipuðu þeim að opna öryggishvelfingar, bundu þá síðan og settu sjálfir peningana i bil. Um 20 mínútum síðar tókst einum starfsmanna Wells Fargo að skríða i síma og gera viðvart. Bifreið ræningjanna fannst nokkrum stundum síðar auð og yfirgefin undir Brooklyn-brúnni. Talið er að ræningjarnir hafi verið á aldrinum 40—45 ára. Wells Fargo er fyrirtæki, sem flytur peninga fýrir banka og aðra viðskiptavini í brynvögn- um. Fjármunir eru geymdir í ör- yggishólfum fyrirtækisins um helgar, þar til bankar opna á mánudegi. Mesti peningastuldur i Bandaríkjunum til þessa er 11 milljóna dollara rán í fyrirtæki, sem starfar eins og Wells Fargo. Talið er að ránsupphæðin að þessu sinni sé lægri. Nígería: Hundrað manns falla í átökum Loadoa. 29. aprfl. AP. MEIRA en 100 manns voru ýmist skotnir eða hálshöggnir í miklum átökum, sem urðu á föstudag og laugardag í borginni Gombe f Austur-Nígeríu. Stóðu þau á milli iögreglunnar og félaga í múham- eóskum sértrúarfrlokki, sem bann- adur er í landinu. { frétt frá nígerísku fréttastof- unni sagði, að félagar í Maitats- ine-söfnuðinum hefðu hafið skothríð þegar ríkisstjórinn var á ferð í borginni og sært blaða- fulltrúa hans og lögreglumann. Lögreglan snerist þá til varnar og var barist á föstudag og fram á laugardag. Maitatsine-söfnuðurinn var bannaður eftir að til blóðugra átaka kom í borginni Kano í Norð- austur-Nígeríu árið 1980 en þá féllu 4.200 manns og þar á meðal leiðtogi safnaðarins. Lögregluyf- irvöld í Nígeríu greina aðeins frá 11 föllnum í átökunum nú, en níg- eríska fréttastofan hefur þá tölu hins vegar nærri tífalda. GENGI GJALDMIÐLA Dollarinn lækkaði Loodon, 29. aprfl, AP. Bandaríkjadollar lækkaði að- eins i dag gagnvart mörgum helztu gjaldmiðlum heims, en hækkaði þó gagnvart Kanadadoll- ar og svissneskum frönkum. Sterl- ingspundið hækkaði og seldist það á 1,2312 dollara (1,2145). Gengi dollarans var að öðru leyti þannig, að fyrir hann fengust 3,1235 vestur-þýzk mörk (3,1300), 2,6215 svissneskir frankar (2,6100), 9,5250 franskir frankar (9,5675), 3,5315 hollenzk gyllini (3,5385), 1.992,50 ítalskar lírur (2.006,00), 1,3687 kanadískir dollarar (1,3650) og 252,72 japönsk jen (252,40). 81 ARMAPLAST Brennanlegt og tregbrennanlegt. Sama verð. Steinull — glerull — hólkar. Armúla 16 sími 38640 Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ferðakynning Vestfjarða Ferðamálasamtök Vestfjarða efna til Vest- fjarðakynn- ingar aö Hótel Loftleiðum 4. maí n.k. kl. 19.30. Heiðursgestur Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og þing- maöur Vestfjarða. Dagskra: Ávarp Matthías Bjarnason samgönguráöherra og þing- maöur Vestfjaröa. Hafsteinn Davíösson frá Patreksfiröi leikur á sög viö undirleik Tone Solbakk kennara viö Tónlistarskólann Bíldudal. Vestfjarðakynning Reynir Adolfsson framkvæmdastjóri. Karlakórinn Fóstbræður. Jóhannes Kristjánsson frá Brekku á Ingjalds- sandi skemmtir. Ljósmyndasýning Jóns Hermannssonar fer fram I Hótelinu föstudag, laugardag og sunnudag. Fjöldi fallegra mynda frá Vestfjöróum. Matseðill Ljúffengir sjávarréttir af hlaðborði. Ólafur Kristjánsson Bolungarvík og Bjarni Svein- björnsson leika dinnermúsík. Hljómsveitin Töfraflautan leikur fyrir dansi til kl. 3. Kynnir Úlfar Ágústsson. Boröapantanir hjá yfirþjóni á Hótel Loftleiöum í síma 22322. Ferðamálasamtök Vestfjarða BORGARNESDAGAR í LAUGARDALSHÖU. 2.-5. MAÍ VÖRUSÝNING MYNDUSTARSÝNING TÍSKUSÝNINGAR FJÖLBREYTT DAGSKRÁ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA OPIÐ FIMMTUDAG KL. 19-22 FÖSTUDAG LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13-22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.