Morgunblaðið - 30.04.1985, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1935
28
Styrkið og fegrið líkamann
DÖMUR OG HERRAR
Ný 4ra vikna námskeiö hefjast 6. maí
Hinir vinsælu herratímar í hádeginu.
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.'
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum: Sértím
ar fyrir konur sem vilja lóttast um 15 kg eða meira. Sórtímar fyrir oldr^
dömur og þær sem eru slæmar íbaki eóa þjást af vöövabólgum. Vigtun
mæling -^jsturtur — gufuböö — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295. ^
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
utanferðir mánaðarlega
MIÐI ER MÖGULEIKI
HAPPDRETTI
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna
Börn frá Víetnam í gæslu greinarhöfundar.
Opið bréf
— eftir Selmu
Júlíusdóttur
Margrét Pála Ólafsdóttir fóstra!
Þú ert að mínu mati orðhákur
hinn mesti. Þú vílar ekki fyrir þér
að koma hvað eftir annað með
rógburð og svívirðingar í garð
dagmæðra. Síðast er þú geystist
fram með tilhæfulausar aðdrótt-
anir gastu ekki staðið við neitt
frekar en aðrar „Gróur á Leiti“.
Er það illt að uppeldismenntuð
manneskja lúti eins lágt og þú
hefur ítrekað gert í ósvífnum að-
dróttunum að dagmæðrum. Þú
hefur algjörlega sannfært mig um
það, að þú eigir sjálf, að þínu eigin
mati, þannig heimili að menntun
þín nýtist ekki innan veggja þess,
heldur verður að láta borgina
byggja yfir þig til að geta sinnt
þörfum barna, síðan verður hún
að útvega mat handa þeim og láta
aðra einnig um þrifin. „Þá get ég,“
skilst mér að þú hugsir.
Mér þykir að ógnvænlegt ef
margar fóstrur hugsa eins og þú.
Sem betur fer veit ég þó að marg-
ar aftur á móti gera það ekki.
Finnst mér fráleitt að dæma
fóstrustéttina, þó að ég persónu-
lega hafi eftir skrif þín mjög lítið
álit á þér, bæði sem persónu og
uppalanda. Ég þekki persónulega
margar mjög góðar fóstrur em
ekki þurfa sérstök húsakynni til
að vinna störf sín vel. Ég er sann-
færð um að heimili þeirra er ekki
síður staður til að ná árangurs-
ríku uppeldisstarfi en annar vett-
vangur. Það er rétt að það er erfið-
ara vegna þess að þar sinna þær
og aðrir heimilismenn öllum þátt-
um í velferð barnanna. Það er til
uppeldismenntað fólk sem óskar
þess eindregið að fá að sinna sín-
um eigin börnum sjálft á heimil-
um sinum og gefa þá öðrum börn-
um um leið tækifæri til að njóta
einnig umhyggju sinnar og jafnvel
stálpaðra barna sinna.
Vona ég að hroki eins og þú,
Margrét Pála, sýnir hafi ekki
smitað mikið út frá sér.
Lastaranum líkar ei neitt
lætur hann ganga róginn.
Finni hana laufblað fölnað eitt,
fordæmir hann skóginn.
Vona ég að dagmæður fái ein-
hvern frið fyrir þér í framtíðinni,
að öðrum kosti verða þær að grípa
til frekari aðgerða.
Nafnlausa móðir, sem skrifar í
Þjóðviljann 14. apríl 1985!
Ég vísa til föðurhúsanna þeirri
fullyrðingu þinni að dagmæður
taki ekki börn fyrir einstæðar
mæður. Ég er ansi hrædd um að í
fjárhagsáætlun borgarinnar finn-
ist þeim sem um það fjalla vera
ansi háar fjárhæðirnar sem borg-
in greiðir í niðurgreiðslur fyrir
einstæðar mæður sem eru með
„Vona ég að félagsmála-
stofnanir landsins sýni
dagmæðrum þá virðingu
að láta þær njóta
sannmælis í hvívetna og
gæta þess að vera aldrei
með í að sýna þeim lft-
ilsvirðingu.“
börn sín hjá dagmæðrum. Er sá
skali sem áætlaður var í niður-
greiðslurnar löngu sprunginn.
Hvað agaleysið varðar er ég
hrædd um að margir foreldrar séu
ekki síður með agaleysi í sam-
skiptum sínum við dagmæður.
Hefur komið til tals hjá dagmæðr-
um að gera þyrfti aðvörunarlista
um þá forelda sem hlaupa með
börn sín frá einni dagmóður til
annarrar og skilja oft á tíðum eft-
ir sig ógreidda reikninga.
Mér finnst þetta mjög einkenni-
legt: „4 dagmæður á 6 mánuðum."
ósköp áttu bágt. Það er von að þú
getir ekki stunið upp nafni þínu
eftir þessar hörmungar.
Leiðaraskrif Þjóðviljans 14.
apríl, eftir ÓG:
„Skattsvikarar," „Of mörg
bðrn,“ „Dagmæður fóstra ekki
börn fyrir einstæðar mæður,“
„Börn hjá dagmæðrum fórnar-
lömb kerfisins.“
Þetta skrifar maður sem hefur
fengið skjól fyrir barnið sitt á
heimili hjá dagmóöur. Kaldar eru
kveðjur hans til þess heimilis.
Bergur Felixson, framkvæmda-
stjóri dagvistar barna í R!
Kaldar finnst mér kveðjur þínar
sem við dagmæður fengum frá þér
14. apríl 1985 í Þjóviljanum. Því er
ekki að leyna að mér hefur stund-
um fundist ekki réttlátar kveðjur
þínar í okkar garð og oft á tíðum
ekki skilið af hverju ekki hefur
verið hægt að laga ýmsa hluti til
hagræðis fyrir starfsemi dag-
mæðra og ekki síður til að fá rétt-
læti í skipan mála sem skipta
starf þeirra og borgina. Ég er
sannfærð um að hægt er að hafa
mikið betra skipulag á allri starf-
semi dagmæðra ef stirfni og
valdahroki verði algjörlega látin
hverfa og það fari út af dagskrá
hjá borginni að ræða málefni
dagmæðra án þess að hafa full-
trúa frá þeim með í ráðum. Ég er
sannfærð um það, Bergur, að þú
veist jafn vel og ég, að það er ekki
skrök dagmæðra sem heftir eftir-
lit með dagmæðrum. Þykir mér
það alvarlegt mál ef ósannindi
birtast á prenti frá dagvist barna
í R.
Vona ég að félagsmálastofnanir